Ferill 380. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 709 — 380. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um fíknimeðferðarúrræði fyrir börn.
Við vinnslu svarsins var byggt á upplýsingum frá Barna- og fjölskyldustofu.
1. Hversu mörg börn bíða þess nú að fara í fíknimeðferð? Hver hefur þróun biðlista eftir fíknimeðferð fyrir börn verið undanfarin fimm ár?
Samkvæmt upplýsingum frá Barna- og fjölskyldustofu voru fyrst teknar saman upplýsingar um þróun biðlista í meðferðarúrræði á vegum stofnunarinnar árið 2021 og hafa þær verið teknar saman um það bil tvisvar á ári. Þróunin hefur verið sveiflukennd á tímabilinu desember 2021 til september 2025. Mestur hefur biðlistinn orðið þegar átta börn biðu eftir því að komast í meðferðarúrræði en í febrúar 2023 var ekkert barn á biðlista, sbr. töflu 1. og 2. Í dag bíður eitt barn þess að fara í meðferð á meðferðarheimili en upplýsingarnar miða við stöðuna 30. janúar 2026.
Tafla 1. Þróun biðlista meðferðarheimila Barna- og fjölskyldustofu á tímabilinu desember 2021 til september 2025.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla 2. Yfirlit yfir fjölda barna sem hefur beðið eftir því að fara í meðferðarúrræði á vegum Barna- og fjölskyldustofu á tímabilinu desember 2021 til september 2025.
| Desember 2021 | Ágúst 2022 |
Febrúar 2023 |
Ágúst 2023 |
Febrúar 2024 |
September 2024 | Febrúar 2025 |
September 2025 | |
| Stuðlar | 7 | 2 | 0 | 0 | 7 | 5 | 0 | 0 |
| Lækjarbakki | 1 | 1 | 0 | 0 | 0 | 2 | 0 | 0 |
| Bjargey | 0 | 0 | 0 | 2 | 1 | 1 | 1 | 1 |
| Blönduhlíð | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 7 | 1 |
2. Hvaða fíknimeðferðarúrræði fyrir börn eru í boði og hvar á landinu eru þau?
Meðferðarúrræði fyrir börn með vímuefnavanda á málefnasviði mennta- og barnamálaráðuneytis eru rekin af Barna- og fjölskyldustofu. Þau eru fyrir börn á aldrinum 12–18 ára og eru eftirfarandi:
Fjölkerfameðferð eða MST (e. Multisystemic Therapy) er fjölskyldumiðað meðferðarúrræði fyrir fjölskyldur barna á aldrinum 12–18 ára sem glíma við alvarlegan hegðunar- og/eða vímuefnavanda. Meðferðin felur fyrst og fremst í sér að auka færni foreldra til að takast á við vanda barna sinna og er mikilvægur þáttur í meðferðinni að ungmennið sé tilbúið til að taka þátt í henni. Hún stendur til boða um land allt og fer fram á heimili og í nærumhverfi barnsins. Meðferðin stendur yfir í 3–5 mánuði.
Meðferð sem veitt er felur í sér samþættingu MST-meðferðar og atferlismiðaðrar vímuefnameðferðar eða CM (e. Contingency Management). CM er gagnreynd meðferð þar sem m.a. er unnið markvisst að því að kortleggja ýmsa hegðun, svo sem neysluhegðun og kveikjur. Út frá kortlagningunni eru fundnar leiðir til að vinna að því að hætta neyslu. Meðferðin byggir einnig á jákvæðri styrkingu, umbun og mælanlegum markmiðum. Meðferðin er veitt af sérhæfðu MST-teymi sem vinnur með ungmenninu sjálfu, fjölskyldu, skóla og öðrum aðilum í umhverfi barnsins. CM-vímuefnameðferð er áhrifarík meðferð til að draga úr vímuefnaneyslu og auka meðferðarheldni, bæði hjá fullorðnum og ungmennum. Hún er talin virka sérstaklega vel þegar hún er samþætt fjölskyldumeðferð eins og MST.
Þegar fíknivandi er alvarlegur og ekki er talið að meðferð inni á heimili barns beri árangur stendur til boða meðferð á meðferðarheimili. Grunnmeðferð er meðferðar- og greiningarvistun þar sem vandi barna og fjölskyldna er kortlagður og meðferðaráætlun gerð. Slík meðferð fer fram á Blönduhlíð, sem er staðsett á Vogi, og stendur alla jafna yfir í 8–12 vikur með reglulegum heimfararleyfum.
Ef talið er að barn þurfi áframhaldandi meðferð stendur til boða framhaldsmeðferð. Þá er gert ráð fyrir sex mánaða vistun með möguleika á skemmri eða lengri vistun eftir því hvernig gengur. Bjargey í Eyjafjarðarsveit sinnir framhaldsmeðferð fyrir stelpur og stálp. Til stendur að starfsemin sem var á Lækjarbakka verði opnuð á ný í Gunnarsholti á næstu vikum og verður þar boðið upp á framhaldsmeðferð fyrir stráka og stálp, en þangað til er sú meðferð veitt á meðferðarheimilinu Stuðlum í Fossaleyni í Reykjavík.
Í vissum tilvikum á barn ekki afturkvæmt á öruggt heimili að meðferð lokinni og stendur þá til boða vistun á stuðningsheimili Barna- og fjölskyldustofu. Á því heimili er ekki gert ráð fyrir að vinna þurfi með alvarlegan vímuefnavanda heldur er það öðru fremur til þess fallið að aðstoða barn við frekari aðlögun út í samfélagið.
3. Hvaða fíknimeðferðarúrræði fyrir börn eru í undirbúningi og verða tekin í notkun á næstunni?
Til stendur að taka Gunnarsholt í notkun á næstu vikum, sbr. 2. tölul. fyrirspurnarinnar. Mikilvægt er að efla samhæfingu á málefnasviðum sem tengjast veitingu og framkvæmd þjónustu við börn með vímuefnavanda og var skipaður starfshópur um málefni barna með vímuefnavanda í desember sl. Hópinn skipa fulltrúar frá forsætisráðuneyti, félags- og húsnæðismálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti og mennta- og barnamálaráðuneyti. Meginverkefni hópsins er að móta heildstæðar tillögur um aðgerðir og úrræði fyrir börn með vímuefnavanda, með áherslu á börn með flókinn samsettan vanda sem hafa þörf á sérhæfðri þjónustu, bæði annars og þriðja stigs þjónustu. Áætlað er að hópurinn skili tillögum í mars 2026. Þá standa yfir viðræður við Garðabæ í tengslum við byggingu nýs meðferðarheimilis.
4. Hefur ráðuneytið viðurkennt erlendar stofnanir þar sem börnum er veitt fíknimeðferð sem stofnanir sem veita gagnreynda meðferð? Ef svo er, hvaða stofnanir?
Nei.
5. Standast íslenskar stofnanir þar sem börnum er veitt fíknimeðferð sömu kröfur og erlendar stofnanir þar sem veitt er sama meðferð? Hvernig hefur fíknimeðferð fyrir börn á íslenskum stofnunum verið gagnreynd?
Ekki hefur verið gerður formlegur samanburður á íslenskum og erlendum stofnunum þar sem börnum er veitt vímuefnameðferð. Um getur verið að ræða eðlisólíkar meðferðir sem taka mið af þeim lögum og reglum sem gilda í hverju landi fyrir sig.
Meðferðarheimili Barna- og fjölskyldustofu veita börnum sérhæfða meðferð vegna alvarlegra hegðunarerfiðleika, vímuefnaneyslu og meintra afbrota, sbr. 79. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002. Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála fer með eftirlit með gæðum þjónustu sem er veitt á grundvelli laganna. Á meðferðarheimilum er notast við gagnreyndar aðferðir sem skilað hafa árangri í meðferð og byggja á bestu þekkingu hverju sinni, m.a. áhugahvetjandi samtali, atferlismótun og áfallamiðaðri nálgun. Um er að ræða börn sem glíma við flókinn sálfélagslegan vanda og er vímuefnaneysla hluti af því samspili. Sú meðferð sem veitt er á meðferðarheimilum hér á landi miðar ekki eingöngu að því að taka á vímuefnaneyslu barna heldur er lögð áhersla á samþætta nálgun sem miðar að því að styrkja félagslega stöðu, efla sjálfsmynd og virkni barnsins í samfélaginu. Nálgunin byggir á faglegum grunni og er m.a. stuðst við leiðbeiningar sem gefnar voru út árið 2016. 1 Áhersla er lögð á að börn upplifi öryggi á meðferðarheimilinu, að meðferð barnanna fari fram í nánu samstarfi við fjölskyldu barnsins, að virkt samstarf fari fram við samfélag barnanna, t.d. skóla og atvinnulíf, sem og áhersla á tengsl við starfsfólk meðferðarheimilisins.
Að lokum ber að nefna að drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um barnavernd voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 13. nóvember 2025 (mál nr. S-224/2025). Í drögunum er sérstök áhersla lögð á notkun gagnreyndra aðferða í meðferðarstarfi en í e-lið 1. mgr. 6. gr. kemur fram að barnaverndaryfirvöldum beri að taka mið af bestu gagnreyndu þekkingu hverju sinni við mat á hagsmunum og þörfum barns og uppbyggingu og beitingu úrræða og/eða ráðstafana. Ekki er að finna sambærilegt ákvæði í núgildandi lögum en rétt þykir að sérstaklega verði vísað til gagnreyndrar þekkingar með framangreindum hætti þar sem undanfarin ár hefur verið lögð aukin áhersla á það að stjórnvöld byggi á gagnreyndri þekkingu við ákvarðanatöku og talið rétt að slíkt endurspeglist í frumvarpinu. Áætlað er að frumvarpið verði lagt fram á Alþingi í febrúar nk.
6. Hversu oft ár hvert undanfarin fimm ár hafa börn orðið uppvís að fíkniefnanotkun innan veggja meðferðarstofnunar?
Vímuefnaneysla inni á meðferðarheimilum er skráð sem atvik í mál barnanna sem um ræðir og hefur ekki verið tekin saman tölfræði hjá Barna- og fjölskyldustofu sem sýnir tíðni slíkra atvika.
7. Hafa meðferðarstofnanir fullnægjandi úrræði og heimild að lögum til að bregðast við fíkniefnanotkun barna innan veggja þeirra og koma í veg fyrir hana?
Þær heimildir sem eru til staðar í barnaverndarlögum, nr. 80/2002, er helst að finna í 82. gr. sem fjallar um réttindi barns og beitingu þvingunar.
Hins vegar hefur verið kallað eftir skýrari lagaumgjörð í þessum efnum, m.a. frá umboðsmanni Alþingis, og hefur mennta- og barnamálaráðuneyti birt drög að frumvarpi til laga um barnavernd í samráðsgátt stjórnvalda, sbr. 5. tölul. fyrirspurnarinnar. Með frumvarpinu er m.a. verið að koma til móts við ábendingar og tilmæli umboðsmanns Alþingis og skýra valdheimildir á þessu sviði enn fremur. Í 52. og 53. gr. frumvarpsins má finna ákvæði sem veita heimild til herbergisleitar, líkamsleitar og líkamsrannsóknar og heimild til haldlagningar muna að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Um er að ræða ný ákvæði sem er ekki að finna í núgildandi barnaverndarlögum.
1 Sjá: www.tandfonline.com/action/journalInformation?journalCode=wrtc20#aims-and-scope