Ferill 421. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 710 — 421. mál.
Skýrsla
Íslandsdeildar Norðurlandaráðs um norrænt samstarf árið 2025.
Öryggis- og varnarmál í víðum skilningi voru í brennidepli í störfum Norðurlandaráðs árið 2025. Athyglin beindist m.a. að því hvernig Norðurlönd gætu í sameiningu varið mikilvæga innviði, svo sem orkukerfi og samskiptanet, og styrkt viðnámsþrótt sinn gegn fjölþáttaógnum og upplýsingaóreiðu. Þingmenn ræddu vaxandi mikilvægi norðurslóða og áhuga Bandaríkjanna á Grænlandi. Norðurlandaráð lýsti á árinu yfir eindregnum stuðningi við Grænland og undirstrikaði lykilhlutverk landsins í norrænu samstarfi. Í Norðurlandaráði ríkti samstaða um að verja óskoraðan rétt Grænlendinga til að ráða eigin landi og framtíð og var því lýst yfir að norrænt samstarf yrði að endurspegla þann raunveruleika.
Vinna við endurskoðun Helsingforssamningsins, grundvallarsáttmála norræns samstarfs, hélt áfram á árinu. Umræða um að nútímavæða samninginn hófst á vettvangi Norðurlandaráðs árið 2022. Á Norðurlandaráðsþingi í Reykjavík árið 2024 samþykkti Norðurlandaráð tillögur um heildstæða endurskoðun samningsins. Markmiðið var að mæta kröfum landsdeilda Færeyja, Grænlands og Álandseyja um að fá jafna stöðu í samstarfinu á borð við ríkin fimm. Jafnframt var farið fram á það að utanríkis-, öryggis- og varnarmál yrðu gerð að formlegum hluta samningsins og að hann tæki í ríkara mæli til umhverfismála, stafrænnar þróunar og fleiri málefna. Norræna ráðherranefndin brást við þessum tillögum Norðurlandaráðs með því að fela Elinu Pirjatanniemi, prófessor í þjóðarétti, að gera lögfræðilega úttekt á mögulegum breytingum á samningnum. Pirjatanniemi kynnti framvindu vinnunnar á vorþingi Norðurlandaráðs 2025. Hún skilaði síðan skýrslu til Norrænu ráðherranefndarinnar í lok árs 2025 og má gera ráð fyrir að Norðurlandaráð fjalli ítarlega um efni hennar á árinu 2026.
Sögulegur áfangi náðist á Norðurlandaráðsþingi í Stokkhólmi haustið 2025 þegar samþykktar voru breytingar á starfsreglum Norðurlandaráðs sem tryggja landsdeildum Færeyja, Grænlands og Álandseyja föst sæti í forsætisnefnd Norðurlandaráðs. Grænlenskir ráðherrar ákváðu að sitja ekki þingið í Stokkhólmi til að lýsa óánægju með það hversu hægt gengi að breyta formlegri stöðu þeirra í opinberu samstarfi ríkisstjórnanna.
Svíar stýrðu starfi Norðurlandaráðs á árinu undir forystu Heléne Björklund forseta og Mariu Stockhaus varaforseta. Formennskuáætlun þeirra bar yfirskriftina „Samstíga Norðurlönd – norrænt notagildi og samheldni á ólgutímum“. Í áætluninni var lögð áhersla á að norræn samvinna skilaði íbúum og fyrirtækjum raunverulegum ávinningi. Sérstaklega var sjónum beint að því að fjarlægja stjórnsýsluhindranir, en það eru reglur sem gera fólki erfitt um vik að vinna, stunda nám eða reka fyrirtæki þvert á landamæri á Norðurlöndum.
Stuðningur við Úkraínu var áfram rauður þráður í öllu starfi Norðurlandaráðs. Á Norðurlandaráðsþingi í Stokkhólmi var lögð áhersla á að norræn ríki og Evrópa öll yrðu að skuldbinda sig til langtímastuðnings við Úkraínu, jafnt hernaðarlega sem efnahagslega, til að tryggja öryggi álfunnar. Varað var við því að Rússar gætu þreytt Evrópu með langvinnu stríði og því væri nauðsynlegt að sýna festu í stuðningi og refsiaðgerðum. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, ávarpaði þingið og fjallaði um hvernig sameiginleg gildi og samstaða væru besta vörnin gegn yfirgangi.
Dagbjört Hákonardóttir gegndi formennsku í Íslandsdeild Norðurlandaráðs á árinu. Bryndís Haraldsdóttir var varaformaður deildarinnar fram á haust en þá tók Halla Hrund Logadóttir við því embætti. Fulltrúar deildarinnar beindu sjónum sínum m.a. að málefnum norðurslóða og Grænlands, orkuskiptum og vinnu gegn stjórnsýsluhindrunum. Undir lok ársins var Guðmundur Ari Sigurjónsson kjörinn formaður þekkingar- og menningarnefndar Norðurlandaráðs en þrettán ár voru þá liðin síðan fulltrúi Íslandsdeildar gegndi síðast formennsku í einni af fagnefndum Norðurlandaráðs.
Samhliða norrænu samstarfi tók Íslandsdeild þátt í starfi Þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins (BSPC). Ársfundur BSPC var haldinn í Maríuhöfn á Álandseyjum í ágúst. Dagbjört Hákonardóttir og Bryndís Haraldsdóttir sóttu hann af hálfu Íslandsdeildar. Á ársfundinum var að venju samþykkt ítarleg sameiginleg ályktun sem send var ríkisstjórnum landa við Eystrasalt. Landsdeild Íslands fékk samþykktar tvær tillögur sem felldar voru inn í ályktunina, aðra um réttindi minnihlutahópa og hina um kynferðislegt sjálfræði kvenna. Í ályktuninni var jafnframt lýst stuðningi við óskoraðan rétt Grænlendinga til að ráða eigin landi og framtíð. Þá var stuðningi lýst við fullveldi og sjálfstæði Úkraínu og aðildarumsókn landsins að Evrópusambandinu. Einnig var fjallað um aðgerðir til að efla eftirlit með siglingum skuggaflota Rússlands um Eystrasalt. Á fundinum var samþykkt að Ísland tæki að sér formennsku í BSPC á tímabilinu 2026–2027.
2. Almennt um Norðurlandaráð.
Rætur norræns þingmannasamstarfs má rekja til ársins 1907 þegar Norræna þingmannasambandið var stofnað. Alþingi tók þátt í störfum þess frá þriðja áratugnum. Með stofnun Norðurlandaráðs árið 1952 varð samstarfið formfastara. Stofnríki ráðsins voru Danmörk, Ísland, Noregur og Svíþjóð en Finnland bættist í hópinn árið 1955.
Norðurlandaráð er samstarfsvettvangur þjóðþinga á Norðurlöndum. Álandseyjar, Færeyjar og Grænland taka þátt í samstarfinu. Það kemur að jafnaði saman til þingfundar tvisvar á ári og ræðir og ályktar um norræn málefni. Auk þess kemur Norðurlandaráð saman til nefndafunda þrisvar á ári. Á vegum Norðurlandaráðs er unnið að margvíslegum norrænum verkefnum sem þingmenn, nefndir, flokkahópar eða landsdeildir ráðsins hafa átt frumkvæði að. Norðurlandaráð hefur tillögu- og umsagnarrétt um fjármagn sem er veitt til norrænnar samvinnu árlega. Norræna ráðherranefndin tekur verulegt tillit til þeirra ábendinga.
Fulltrúar í Norðurlandaráði eru þingmenn sem eru valdir af norrænum þjóðþingum í samræmi við tillögur þingflokka. Í ráðinu eiga sæti 87 fulltrúar. Þing Noregs og Svíþjóðar eiga tuttugu fulltrúa, Finnlands átján fulltrúa, Danmerkur sextán fulltrúa, Íslands sjö fulltrúa, Færeyja tvo fulltrúa, Grænlands tvo fulltrúa og Álandseyja tvo fulltrúa. Skipan í sendinefndir þinganna, sem einnig eru nefndar landsdeildir, skal endurspegla styrk stjórnmálaflokka á þjóðþingum. Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð skiptast á um að fara með formennsku í ráðinu. Forseti og varaforseti hvers árs eru frá formennskulandinu.
Þingfundir eru að jafnaði haldnir tvisvar á ári. Á þingfundum er fjallað um framkomnar tillögur og beinir þingið tilmælum til ríkisstjórna landanna eða Norrænu ráðherranefndarinnar. Vorþing er að jafnaði haldið í mars eða apríl og haustþing um mánaðamót október og nóvember. Vorfundurinn er einnig nefndur þemaþing og er þar lögð áhersla á ákveðið málefni. Haustþingið er haldið í formennskulandi ársins. Þar gefa forsætisráðherrar, utanríkisráðherrar og varnarmálaráðherrar Norðurlanda Norðurlandaráðsþingi skýrslu og samstarfsráðherrar eða fagráðherrar svara fyrirspurnum í sérstökum fyrirspurnatíma. Fjárhagsáætlun norræns samstarfs fyrir komandi ár er að jafnaði samþykkt á haustþingi en Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin móta fjárhagsáætlun í sameiningu í viðræðum sem hefjast allt að ári fyrr. Á þinginu eru jafnframt forseti og varaforseti komandi árs kjörnir og skipað í nefndir og aðrar trúnaðarstöður.
Í Norðurlandaráði starfa fimm flokkahópar: jafnaðarmenn, miðjumenn, flokkahópur hægri manna, flokkahópurinn Norrænt frelsi og norræn vinstri græn. Flokkahóparnir móta sameiginlega afstöðu til einstakra mála og velja þingmenn í nefndir. Flestar tillögur sem lagðar eru fram í Norðurlandaráði koma frá flokkahópum.
Málefnastarf Norðurlandaráðs fer að mestu fram í fjórum fagnefndum auk forsætisnefndar. Á milli þinga stýrir forsætisnefnd starfi ráðsins, vísar tillögum til nefnda eða afgreiðir þær. Forsætisnefnd fer jafnframt með utanríkis- og öryggismál svo og samskipti Norðurlandaráðs við aðrar alþjóðastofnanir. Þá fer eftirlitsnefnd yfir ársreikninga ráðsins og stofnana sem starfa innan Norðurlandasamstarfsins. Loks kemur kjörnefnd saman til að gera tillögu að skipan í nefndir og trúnaðarstöður á vegum Norðurlandaráðs.
Forsætisnefnd.
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs er æðsta ákvörðunarvald milli þingfunda ráðsins og getur tekið ákvarðanir fyrir hönd þess. Hún stýrir starfi nefnda Norðurlandaráðs og samræmir það, ber ábyrgð á heildrænum pólitískum og stjórnsýslulegum áherslum og utanríkis- og varnarmálum, og gerir framkvæmda- og fjárhagsáætlanir ráðsins. Forsætisnefnd er skipuð forseta, varaforseta og allt að þrettán öðrum fulltrúum sem kosnir eru á þingi Norðurlandaráðs. Öll ríki á Norðurlöndum og allir flokkahópar eiga fulltrúa í forsætisnefnd.
Forsætisnefnd getur skipað undirnefndir, vinnuhópa, áheyrnarfulltrúa og eftirlitsaðila um sérstök málefni í afmarkaðan tíma, svo sem fjárlagahóp sem ræðir við Norrænu ráðherranefndina um fjárhagsáætlun hennar. Forsætisnefnd sér einnig um samskipti við þjóðþing utan Norðurlanda og aðrar svæðisbundnar og alþjóðlegar stofnanir. Norðurlandaráð á m.a. í nánu samstarfi við Eystrasaltsþingið, samstarfssamtök þinga Eistlands, Lettlands og Litáens.
Þekkingar- og menningarnefnd.
Þekkingar- og menningarnefnd Norðurlandaráðs fer með málefni sem snerta menningu, rannsóknir og menntun, grunn- og framhaldsskóla, fullorðinsfræðslu og alþýðufræðslu, þar á meðal mál sem snerta tungumálasamstarf, nýmiðla, færniþróun og nýsköpun á sviði menntamála. Nefndin vinnur einnig að málum sem snerta frjáls félagasamtök og störf sjálfboðaliða. Íþróttir, tungumál, kvikmyndir og fjölmiðlar, almenn og fjölbreytt list og menning barna og ungmenna eru jafnframt á starfssviði norrænu þekkingar og menningarnefndarinnar.
Hagvaxtar- og þróunarnefnd.
Norræna hagvaxtar og þróunarnefndin vinnur að málefnum og viðfangsefnum sem snerta vinnumarkað og vinnuumhverfi, atvinnulíf, viðskipti, iðnað, orku, baráttu gegn stjórnsýsluhindrunum, samgöngumál og öryggi í samgöngumálum. Nefndin fjallar einnig um mál sem tengjast fjármála og atvinnustefnu, þar á meðal um rammaskilyrði rannsókna, framleiðslu og viðskipta, og í framhaldi af því um frjálsa för á mörkuðum og vinnumörkuðum á Norðurlöndum. Byggða og uppbyggingarstefna, fjarskipti og upplýsingatækni eru einnig á starfssviði norrænu hagvaxtar og þróunarnefndarinnar.
Sjálfbærninefnd.
Norræna sjálfbærninefndin vinnur að viðfangsefnum og málum sem snerta umhverfis og náttúruvernd og náttúruauðlindir, þar á meðal nýtingu náttúruauðlinda í landbúnaði, sjávarútvegi og skógrækt. Loftslagsmál eru jafnframt mikilvægur hluti af starfi nefndarinnar, þar á meðal afleiðingar loftslagsbreytinga sem einkum má merkja á nyrstu svæðum Norðurlanda. Meðal annarra viðfangsefna nefndarinnar má nefna réttindi neytenda, fiskveiðistjórn, stefnumótun í landbúnaði, matvæli, kjarnorkuöryggi, líffræðilegan fjölbreytileika og sjálfbærni.
Velferðarnefnd.
Norræna velferðarnefndin leggur áherslu á hið norræna velferðarlíkan. Nefndin fæst við mál sem snerta umönnun barna, ungmenna og aldraðra, fötlun, áfengi, fíkniefni og misnotkun. Einnig er unnið með viðfangsefni sem tengjast jafnrétti, borgaralegum réttindum, lýðræði, mannréttindum og baráttu gegn afbrotum. Samþætting innflytjenda, fólksflutningar og flóttamenn heyra jafnframt undir nefndina og sama er að segja um húsnæðismál og málefni frumbyggja Norðurlanda.
Eftirlitsnefnd.
Eftirlitsnefnd Norðurlandaráðs fylgist fyrir hönd þingsins með starfsemi sem fjármögnuð er úr sameiginlegum sjóðum Norðurlanda. Nefndin hefur einnig umsjón með málefnum sem snerta túlkun samninga um norræna samvinnu, vinnutilhögun Norðurlandaráðs og önnur innri málefni.
Kjörnefnd.
Kjörnefnd Norðurlandaráðs undirbýr og gerir tillögur að kjöri sem fram fer á þingfundum og með aukakosningum í forsætisnefnd.
3. Íslandsdeild Norðurlandaráðs.
Skipan Íslandsdeildar Norðurlandaráðs.
Aðalmenn í Íslandsdeild Norðurlandaráðs í upphafi árs 2025 voru: Dagbjört Hákonardóttir, þingflokki Samfylkingarinnar, sem var formaður, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, Bryndís Haraldsdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, Guðbrandur Einarsson, þingflokki Viðreisnar, Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokki Samfylkingarinnar, Guðmundur Ingi Kristinsson, þingflokki Flokks fólksins, og Halla Hrund Logadóttir, þingflokki Framsóknarflokksins. Varamenn voru Arna Lára Jónsdóttir, þingflokki Samfylkingarinnar, Hildur Sverrisdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokksins, Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingflokki Samfylkingarinnar, Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingflokki Flokks fólksins, María Rut Kristinsdóttir, þingflokki Viðreisnar, Þórarinn Ingi Pétursson, þingflokki Framsóknarflokksins, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokksins.
Nokkrar breytingar urðu á skipan landsdeildarinnar á árinu. Bryndís Haraldsdóttir var kjörin varaformaður Íslandsdeildarinnar í febrúar. Sigurjón Þórðarson tók við sem aðalmaður af Guðmundi Inga Kristinssyni í mars. Jón Gunnarsson tók við sem aðalmaður af Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur í október. Halla Hrund Logadóttir var kjörin varaformaður Íslandsdeildarinnar í stað Bryndísar Haraldsdóttur í október.
Ritari Íslandsdeildar var Helgi Þorsteinsson.
Nefndaskipan Íslandsdeildar Norðurlandaráðs.
Fulltrúar Íslands í nefndum Norðurlandaráðs í upphafi árs voru sem hér segir: Í forsætisnefnd sátu Bryndís Haraldsdóttir og Dagbjört Hákonardóttir. Í þekkingar- og menningarnefnd sátu Guðmundur Ari Sigurjónsson og Guðbrandur Einarsson. Í sjálfbærninefnd sátu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Halla Hrund Logadóttir. Í velferðarnefnd sat Guðmundur Ingi Kristinsson. Í eftirlitsnefnd sat Guðbrandur Einarsson sem aðalmaður og Guðmundur Ingi Kristinsson sem varamaður.
Breytingar urðu á nefndasetu þegar leið á árið. Sigurjón Þórðarson tók sæti í þekkingar- og menningarnefnd í mars. Í október urðu frekari breytingar þegar Jón Gunnarsson tók sæti í sjálfbærninefnd og Bryndís Haraldsdóttir færðist sömuleiðis í þá nefnd úr forsætisnefnd. Í sama mánuði færðist Guðbrandur Einarsson í velferðarnefnd. Á Norðurlandaráðsþingi í október var Guðmundur Ari Sigurjónsson kjörinn formaður þekkingar- og menningarnefndar og Halla Hrund Logadóttir var kjörin varaformaður sjálfbærninefndar.
Landsdeildin samþykkti í febrúar að tilnefna Sigmund Erni Rúnarsson, þingmann Samfylkingarinnar, í stjórn Norræna menningarsjóðsins til 31. desember 2026. Þá samþykkti Íslandsdeild í október að tilnefna Örnu Láru Jónsdóttur í eftirlitsnefnd Norræna fjárfestingarbankans fyrir tímabilið 1. júní 2026 til 31. maí 2028.
Starfsemi Íslandsdeildar Norðurlandaráðs.
Íslandsdeild Norðurlandaráðs fundaði átta sinnum á árinu. Fundað var í febrúar (þrisvar), mars, apríl og október (þrisvar). Logi Einarsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, fundaði tvisvar með landsdeildinni, í mars og október.
4. Fundir Norðurlandaráðs.
Fundir nefnda og flokkahópa Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn 24.–25. febrúar.
Af hálfu Íslandsdeildar Norðurlandaráðs sóttu fundina Dagbjört Hákonardóttir formaður, Bryndís Haraldsdóttir varaformaður, Guðbrandur Einarsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Halla Hrund Logadóttir og varamennirnir Kristján Þórður Snæbjarnarson og Hildur Sverrisdóttir, auk Helga Þorsteinssonar, ritara Íslandsdeildar. Fundirnir fóru fram á Radisson Blu Scandinavia-hótelinu í Kaupmannahöfn.
Dagskráin hófst á fundum flokkahópa mánudaginn 24. febrúar. Síðar sama dag var haldinn sameiginlegur fundur allra þingmanna um skuggaflota Rússlands í Eystrasalti. Skip í þessum flota voru oft sögð illa útbúin. Þau sköpuðu hættu á umhverfisslysum auk þess sem þau voru talin gegna lykilhlutverki í að komast hjá alþjóðlegum refsiaðgerðum gegn Rússlandi. Flemming Splidsboel Hansen frá dönsku alþjóðamálastofnuninni (DIIS) fjallaði um málið í breiðu pólitísku samhengi. Hann sagði að mikilvægi Eystrasalts fyrir Rússa hefði aukist á undanförnum árum en að mörgu leyti væri orðið erfitt fyrir þá að athafna sig vegna þess að öll önnur ríki á svæðinu ættu nú aðild að NATO. Skuggaflotinn væri jafnframt ákaflega mikilvægur því að hann væri notaður til að flytja út olíu, en sá útflutningur væri grundvöllur rússnesks efnahags.
Tobias Liebetrau frá miðstöð hernaðarrannsókna (CMS) við Kaupmannahafnarháskóla fjallaði um blandaðar ógnir sem gætu grafið undan öryggi siglingaleiða og orkuinnviða í Eystrasalti. Jessica Larsen frá DIIS ræddi möguleg viðbrögð og lausnir á þeim vanda sem fylgdi skuggaflotanum og lagði áherslu á aukna samvinnu Norðurlanda á öllum sviðum við að fylgjast með og stöðva þessa starfsemi. Hún nefndi einnig að rætt hefði verið um að skilgreina siglingar skuggaflotans sem sjóræningjastarfsemi, en það opnaði á að nota ströng ákvæði alþjóðasamninga. Slíkt gæti þó reynst varasamt vegna hættu á gagnaðgerðum og vegna þess að ráðstafanir gætu vegið að siglingafrelsi almennt. Að kynningum loknum svöruðu fyrirlesarar spurningum þingmanna. Þar var m.a. rætt um hlutverk norrænna einkafyrirtækja í því að þjónusta skuggaflotann og hvernig hægt væri að koma í veg fyrir það. Einnig var fjallað um hvort hægt væri að beita ákvæðum alþjóðasamninga um umhverfismál til að stöðva siglingar skipanna.
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs og fagnefndir funduðu þriðjudaginn 25. febrúar. Bryndís Haraldsdóttir og Dagbjört Hákonardóttir sátu fund forsætisnefndar en Halla Hrund Logadóttir mætti einnig sem varamaður. Helena Kyster-Hansen frá STRING, sem er samstarfsnet norrænna og norðurevrópskra borga og svæða sem vinna að þróun sjálfbærs samgöngu- og innviðasamstarfs, kynnti flutningastarfsemi og innviðaþarfir á Norðurlöndum. Hún lagði áherslu á nauðsyn samhæfingar milli Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs í samgöngumálum, þar sem skortur á samhæfingu gæti tafið þróun á mikilvægum flutningaleiðum.
Í tilefni af því að þrjú ár voru liðin frá allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu samþykkti forsætisnefnd yfirlýsingu þar sem Norðurlönd ítrekuðu einhug sinn í stuðningi við Úkraínu og fordæmdu áframhaldandi árásarstríð Rússlands. Í yfirlýsingunni var lögð áhersla á að tryggja efnahagslegan og hernaðarlegan stuðning við Úkraínu til langframa frá Norðurlöndum, Eystrasaltsríkjum, Evrópusambandinu, NATO og öðrum vinveittum aðilum.
Á fundi forsætisnefndar var fjallað um svar ríkisstjórna Norðurlanda við tilmælum Norðurlandaráðs um endurskoðun Helsingforssamningsins. Norðurlandaráð hafði samþykkt á Norðurlandaráðsþingi árið áður tillögur um viðbætur og endurskoðun ýmissa hluta samningsins og lagt til að komið yrði á fót starfshópi með þátttöku Norðurlandaráðs sem falið yrði að líta á tillögur ráðsins. Í svari ríkisstjórna kom fram að þær vildu ekki taka afstöðu til endurskoðunar fyrr en farið hefði fram úttekt á lagalegum álitaefnum sem vörðuðu stöðu Færeyja, Grænlands og Álandseyja gagnvart Danmörku og Finnlandi. Norðurlandaráð tók formlega afstöðu til svarsins á vorþingi ráðsins í Helsinki sem haldið var dagana 31. mars til 1. apríl.
Á fundi forsætisnefndar var til umræðu tillaga flokkahóps vinstri grænna í Norðurlandaráði um að ríkisstjórnir Norðurlanda beittu sér fyrir því að Ísrael færi eftir dómum Alþjóðadómstólsins (ICJ) um hernám og aðskilnaðarstefnu. Jafnframt var lagt til að þær styddu málshöfðun Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir dómstólnum vegna brota á þjóðarmorðssáttmálanum, stæðu við bakið á dómstólnum svo að hann hefði næg úrræði til að rannsaka meint brot og beittu sér fyrir því að Palestína öðlaðist viðurkenningu sem ríki. Fram kom við umræðu um tillöguna að meiri hluti forsætisnefndar var andsnúinn henni, en ákveðið var að hún yrði formlega afgreidd síðar.
Í tilefni af því að þrjú ár voru liðin frá allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu komu þingmenn saman á fundi þar sem Andrii Yanevskyi, sendiherra Úkraínu í Danmörku, ávarpaði hópinn og þakkaði Norðurlöndum fyrir einarðan stuðning. Hann fjallaði um þörfina fyrir frekari stuðning, einkum hernaðarlegan, og lagði áherslu á að uppbygging Úkraínu ætti að byggjast á sjálfbærni og viðnámsþrótti. Þingmenn ræddu hvernig Norðurlönd gætu best stuðlað að því að önnur Evrópuríki ykju stuðning sinn við Úkraínu, bæði pólitískt og fjárhagslega.
Seinni part þriðjudags fundaði starfshópur Norðurlandaráðs um endurskoðun starfsreglna ráðsins. Hópurinn var stofnaður til að fara yfir tillögur landsdeildar Færeyja um breytingar á skipan forsætisnefndar til að tryggja að Færeyjar, Grænland og Álandseyjar ættu þar fulltrúa. Á fundinum var almenn sátt um að styrkja þyrfti stöðu þessara þriggja landa í forsætisnefnd, en rætt var um mismunandi útfærslur svo að jafnvægi milli flokkahópa yrði einnig tryggt. Meðlimir starfshópsins hölluðust að því að best væri að fjölga fulltrúum í forsætisnefnd úr 15 í 18. Niðurstaðan varð sú að starfshópurinn myndi vinna áfram að mótun tillögu sem kynnt yrði á sumarfundi forsætisnefndar.
Vorþing Norðurlandaráðs í Helsinki 31. mars–1. apríl 2025.
Af hálfu Íslandsdeildar Norðurlandaráðs sóttu fundina Dagbjört Hákonardóttir formaður, Bryndís Haraldsdóttir varaformaður, Guðbrandur Einarsson, Halla Hrund Logadóttir, Guðmundur Ari Sigurjónsson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, auk Heiðrúnar Pálsdóttur sem sótti fundinn í fjarveru Helga Þorsteinssonar ritara. Fundirnir fóru fram í Ríkisdegi Finnlands, Eduskunta.
Dagskráin hófst á fundum flokkahópa mánudaginn 31. mars. Í hádeginu bauð framkvæmdastjóri Norðurlandaráðs, Kristina Háfoss, nýjum þingmönnum í Íslandsdeild til hádegisverðarfundar þar sem farið var yfir sögu Norðurlandaráðs og Helsingforssamningsins, árangur af starfi ráðsins, hlutverk flokkahópa og nefnda og samspil við Norrænu ráðherranefndina. Á sama tíma sóttu Bryndís Haraldsdóttir og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hádegisverðarfund vinnuhóps um stjórnsýsluhindranir.
Eftir hádegi héldu fundir flokkahópa áfram og að þeim loknum voru haldnir nefndafundir. Á fundi forsætisnefndar var samþykkt yfirlýsing sem birt var á vef Norðurlandaráðs samdægurs. Í henni sagði m.a.: „Forsætisnefnd Norðurlandaráðs lýsir yfir eindregnum og skilyrðislausum stuðningi við grænlensku þjóðina og ófrávíkjanlegan rétt hennar til yfirráða yfir eigin landi og framtíð. Það er þjóðréttarleg grundvallarregla sem ekki má hvika frá.“
Anders Adlercreutz, samstarfsráðherra Norðurlanda frá Finnlandi, og Annika Hambrudd, mennta- og menningarmálaráðherra Álandseyja, sóttu fundinn en Finnland og Álandseyjar stóðu saman að formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2025.
Á fundinum var rætt um samgöngumál, fjárhagsáætlun fyrir árið 2026, mikilvægi áframhaldandi stuðnings við Úkraínu og nauðsyn þess að Norðurlönd stæðu saman á óvissutímum. Einnig kom fram að undirbúningur væri hafinn að ráðningu sérfræðings til að fara yfir tillögur Norðurlandaráðs að breytingum á Helsingforssamningnum og stefnt væri að því að niðurstöður lægju fyrir síðar á árinu. Þá var rætt um borgaralegan viðbúnað á hættutímum og fram kom að öll ný hús í Finnlandi ættu að hafa öryggisrými. Að lokum var rætt um stjórnsýsluhindranir sem brýnt væri að ryðja úr vegi með hliðsjón af því að ekki ættu öll norræn ríki aðild að Evrópusambandinu.
Þingfundurinn 1. apríl var haldinn í Lilla Parlamentet, sem er hluti af þinghúsi Ríkisdags Finnlands. Þema þingsins var „Stöndum sterkari saman – Nýtt skeið norræns samstarfs um öryggismál og viðbúnað“. Alexander Stubb, forseti Finnlands, var gestaræðumaður á þinginu. Hann fjallaði um stöðuna í heimsmálum og sagði að hann teldi sig öruggan vegna þess að norrænu ríkin fimm stæðu saman. Meðal þeirra óvissuþátta sem búa þyrfti við væri að mörk milli sannleika og lyga hefðu verið máð út og því skipti traust, líkt og ríkti í norrænu samstarfi, sífellt meira máli.
Forsetinn nefndi að Norðurlönd væru jafnan í fimm efstu sætum þegar borinn væri saman árangur ríkja í málum á borð við jöfnuð, jafnrétti, sjálfbærni, virðingu fyrir mannlegri reisn, stöðugleika og nýsköpun. Hann sagði að norrænar þjóðir ættu að minnast þess hve vel hefði tekist að treysta stofnunum samfélagsins og hver annarri og komst svo að orði að traust væri „norræna gullið“. Forsetinn vék einnig að öryggismálum og vörnum og minnti á að Finnland ætti meira en 1000 km landamæri að Rússlandi. Hann sagði varnir vera meira en vopn; þær væru einnig spurning um sjálfsmynd og sálræn viðbrögð. Menning skipti miklu máli þegar kæmi að því sem væri þess virði að verja. Sagði hann að litlu ríkin fimm yrðu að standa saman því að þau væru sterkari saman á landi, sjó, í lofti og á stafræna sviðinu.
Carl-Oskar Bohlin, almannavarnaráðherra Svíþjóðar, flutti framsöguræðu á eftir forsetanum. Í henni kom fram að um þessar mundir væri miklu fjármagni varið til að efla varnir í Svíþjóð. Hann nefndi að bæklingur hefði verið sendur inn á öll sænsk heimili með leiðbeiningum um hvernig bregðast ætti við ef neyðarástand yrði. Ráðherrann sagði að allir sem gætu ættu að taka þátt í vörnum landsins. Meðal þeirra verkefna sem unnið væri að væri uppbygging nýs netöryggiskerfis og verndun sæstrengja. Líkt og forseti Finnlands lagði ráðherrann áherslu á mikilvægi þess að Norðurlönd stæðu saman og sagði mikilvægt að þjóðirnar kynntust vel áður en þær þyrftu á stuðningi hver annarrar að halda.
Þingmenn máttu einnig bera upp spurningu eftir erindi almannavarnaráðherra og var hann m.a. spurður út í fæðuöryggi. Hann sagði að í Svíþjóð hefðu verið lagðir 1,6 milljarðar sænskra króna í að byggja upp seiglu í landbúnaði og auka birgðir. Horft væri til þess að framleiða hitaeiningar sem þyrfti til að lifa af, t.d. haframjöl. Viðmið sænskra stjórnvalda væri að heimili hefðu birgðir til sjö daga hið minnsta. Norðurlönd þyrftu að vinna þétt saman þegar kæmi að aðfangaöryggi.
Innlegg frá alþjóðlegum gestum var næst á dagskrá. Fulltrúar frá Þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins, Vestnorræna ráðinu og Benelúx-þinginu fluttu stutt erindi.
Undir fundarlið um innlegg frá þingmönnum talaði Dagbjört Hákonardóttir fyrir hönd flokkahóps jafnaðarmanna þar sem hún fjallaði um þörfina á því að verja og styrkja fjölmiðla svo að þeir gætu haldið úti faglegri og málefnalegri umræðu. Standa þyrfti vörð um tjáningarfrelsi og fjölmiðlafrelsi. Bryndís Haraldsdóttir talaði fyrir hönd hægri manna og minnti á mikilvægi þess að horfa til norðurslóða og þess sem væri að gerast þar. Hún sagði áhyggjuefni hvernig orðræðan væri vestan hafs og ræddi um þörfina á því að norrænir þingmenn ræddu við bandaríska kollega sína til að koma sjónarhorni Norðurlanda á framfæri. Halla Hrund Logadóttir talaði fyrir hönd forsætisnefndar og nefndi að samstarf Norðurlanda byggðist á trausti og því gætu þau unnið saman á sviði varnarmála en það kallaði á endurskoðun Helsingforssamningsins. Þá sagði hún nauðsynlegt að hugsa til geimsins og að vakta norðurslóðir með aðstoð gervihnatta.
Undir fundarlið um sjálfbær Norðurlönd var rætt um leiðir til að draga úr matarsóun, leggja ætti áherslu á að matvara væri ekki endilega skemmd þótt dagsetning síðasta söludags væri liðin. Þá var því fagnað að víða væri að finna í matvörubúðum kæla með útrunnum mat sem hægt væri að kaupa á hálfvirði.
Sagt var frá því hvaða fyrirkomulag yrði á afhendingu verðlauna Norðurlandaráðs á þinginu sem haldið yrði í Stokkhólmi í haust. Til stóð að afhenda verðlaunin í þinghúsi Ríkisdags Svíþjóðar að viðstöddum ríflega 200 gestum og eftir hana yrði haldin veisla þar sem öllum gestum Norðurlandaráðsþings, u.þ.b. 800 manns, yrði boðið. Hvorki yrði gerður sjónvarpsþáttur um verðlaunahafa né yrði bein útsending frá verðlaunaafhendingu í sjónvarpi. Rætt var um að veita þyrfti fé til að þýða bækur sem eru tilnefndar og verðlaunaðar þannig að verðlaunin hljóti viðeigandi athygli. Einnig voru uppi hugmyndir um að stofna nýjan flokk verðlauna fyrir málaralist.
Að loknu þinginu var haldinn árlegur fundur forsætisnefndar Norðurlandaráðs og NORDEFCO, vettvangs um varnarmálasamstarf norrænu landanna. Dagbjört Hákonardóttir, Bryndís Haraldsdóttir og Halla Hrund Logadóttir sóttu þennan fund fyrir Íslands hönd. Vettvangur um varnarmálasamstarf Norðurlanda, NORDEFCO, var stofnaður árið 2009 en hlutverk samstarfsins breyttist töluvert eftir að Svíþjóð og Finnland gengu í NATO. Einnig hafði innrás Rússlands í Úkraínu orðið til þess að auka vægi samstarfsins. Yfirskrift fundarins var „Samstarf á krefjandi tímum, stefnumótun og samvinna“. Formaður landsdeildar Finnlands, Ville Väyrynen, stýrði fundi.
Fyrstu gestir voru varnarmálaráðherra Finnlands, Antti Häkkänen, sem fjallaði um framtíðarsýn NORDEFCO, og finnski hershöfðinginn Jari Mikkonen, sem fjallaði um NORDEFCO frá sjónarhóli hersins miðað við viðbúnað og hreyfanleika hans. Varnarmálaráðherra sagði að meginverkefnið væri að auka öryggi í Evrópu, styrkja stöðuna gagnvart Rússum og efla varnir og áfallaþol. Hann sagði að samstarf Norðurlanda á sviði varnarmála yrði að vera sveigjanlegt og að skriffinnska mætti ekki vera mikil. Hershöfðinginn sagði að megináhersla væri lögð á að styrkja tengslin við lönd í vestri og að styrkja samskiptakerfi svo að hægt væri að bregðast hratt við aðsteðjandi ógnum. Öll norræn ríki þyrftu að styrkja flutningaleiðir, vegi, járnbrautir o.s.frv. Fram kom að NORDEFCO hefði einnig samstarf um netöryggi og hefði það aukist mikið að undanförnu. Einnig kom fram að Eystrasaltsríki hefðu áhuga á samstarfi við NORDEFCO.
Næst var fjallað um norrænt samstarf á sviði borgaralegs og varnarlegs viðbúnaðar. Gestir voru Turo Mattila frá utanríkisráðuneyti Finnlands og Teija Tiilikainen, sérfræðingur í netöryggismálum og forstöðumaður Evrópumiðstöðvar um varnir gegn blönduðum ógnum (e. European Centre of Excellence for Countering Hybrid Threats). Mattila kom að því að skrifa Niinistö-skýrsluna sem fjallaði um það hvernig styrkja ætti borgaralegt og hernaðarlegt viðbragð í Evrópu. Mattila talaði um þá ógn sem Evrópu stafaði af Rússlandi og að Bandaríkjamenn vildu að Evrópa tæki ábyrgð á eigin vörnum. Tiilikainen ræddi um það hvernig bæta þyrfti viðbúnað við hættuástandi og fjölþáttaógnum á Norðurlöndum.
Síðast var fjallað um uppbyggingu varnariðnaðar og norrænt samstarf í þeim efnum. Jerry Kettunen frá samtökum finnskra fyrirtækja í varnar- og flugiðnaði (e. Finnish Defence and Aerospace Industries, PIA) og Iro Särkkä frá Alþjóðamálastofnun Finnlands, FIIA, leituðust við að svara því hvort norræn varnarstefna væri til staðar og hvaða tækifæri væru í stöðunni á þessum óvissutímum. Fram kom að NORDEFCO-samstarfið væri mikilvægara en nokkru sinni áður og myndi nýtast við sameiginleg innkaup á hergögnum og styrkja Norðurlönd í að vera sameinaður varnarhópur. Löndin stæðu einnig saman vörð um lýðræðisleg gildi, mannréttindi og sjálfbærni. Það gæti gerst að fleiri ríki bættust við og þá yrði þetta norðurevrópskur varnarhópur.
Fundur forsætisnefndar Norðurlandaráðs í Blekinge í Svíþjóð 10.–11. júní 2025.
Af hálfu Íslandsdeildar Norðurlandaráðs sóttu fundina Dagbjört Hákonardóttir formaður og Bryndís Haraldsdóttir varaformaður auk Helga Þorsteinssonar ritara. Fundirnir fóru fram á sveitahótelinu Eriksberg í Blekinge í suðurhluta Svíþjóðar dagana 10.–11. júní.
Dagskráin hófst á hádegisverði í borginni Karlskrónu í boði Ulriku Messing, landshöfðingja (s. landshövding) í Blekinge. Þaðan var farið í heimsókn í flotastöð í sömu borg, en Karlskróna hefur öldum saman verið ein mikilvægasta heimahöfn sænska flotans. Forsætisnefndin heimsótti einnig skipasmíðastöð fyrirtækisins Saab Kockums þar sem var unnið að smíði nýrra kafbáta fyrir sænska flotann.
Fundur forsætisnefndar var haldinn miðvikudaginn 11. júní. Þar var fjallað um tillögur frá starfshópi á vegum forsætisnefndar sem hafði skoðað leiðir til að styrkja stöðu Álandseyja, Færeyja og Grænlands í nefndinni. Starfshópurinn lagði til að meðlimum forsætisnefndar yrði fjölgað úr 15 í 18 og að tryggt yrði að öll átta aðildarlönd Norðurlandaráðs ættu þar fulltrúa. Samkvæmt þágildandi reglum áttu aðeins Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð öruggt sæti í forsætisnefnd en fulltrúar Álandseyja, Færeyja og Grænlands höfðu haft rétt til setu á fundum þegar fjallað var um málefni sem sérstaklega tengdust þessum löndum. Allir flokkahópar í Norðurlandaráði lýstu stuðningi við tillögurnar en jafnframt var lögð áhersla á að taka fyrirkomulagið til endurskoðunar síðar þegar nokkur reynsla hefði fengist af því. Formleg tillaga um breytingar var tekin til meðferðar á fundi forsætisnefndar og hún var endanlega afgreidd á Norðurlandaráðsþingi í Stokkhólmi í október.
Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, kynnti á fundinum drög að fjárhagsáætlun norræns samstarfs fyrir árið 2026. Ellemann var stödd á fundi samstarfsráðherra Norðurlanda í Helsinki og kynningin fór því fram á fjarfundi. Fremur litlar breytingar urðu á fjárhagsáætlun milli ára og var það ólíkt því sem var fyrir nokkrum árum þegar verulegum fjármunum var ráðstafað frá mennta- og menningarmálum til annarra verkefnasviða. Norðurlandaráð lagðist á sínum tíma gegn breytingunum og nú hafði Norræna ráðherranefndin ákveðið að halda ekki áfram á þeirri braut.
Eitt helsta áherslumál Svía í formennsku í Norðurlandaráði á þessu ári var að ryðja úr vegi stjórnsýsluhindrunum milli norrænna landa. Á fundi forsætisnefndar var ákveðið að vinna sérstaklega að því að bæta upplýsingaskipti milli þjóðskráa landanna.
Samþykkt var á fundinum að framlengja ráðningarsamning Kristinu Háfoss, framkvæmdastjóra Norðurlandaráðs, um þrjú ár.
Fundir nefnda og flokkahópa Norðurlandaráðs í Ósló 15.–16. september.
Fundir Norðurlandaráðs voru að þessu sinni haldnir í Stórþinginu í Ósló. Af hálfu Íslandsdeildar Norðurlandaráðs sóttu fundina Dagbjört Hákonardóttir formaður, Bryndís Haraldsdóttir varaformaður, Guðbrandur Einarsson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Halla Hrund Logadóttir, Jón Gunnarsson og Sigurjón Þórðarson, auk Helga Þorsteinssonar ritara.
Á dagskrá forsætisnefndar Norðurlandaráðs bar hæst pólitískt samráð við varnarmálaráðherra Noregs, umræður um endurskoðun Helsingforssamningsins og tvær þingmannatillögur frá flokkahópi hægri manna; önnur um að breyta fjárfestingarstefnu Norræna fjárfestingarbankans þannig að heimilt yrði að fjárfesta í hergagnaiðnaði og hin um að skylt yrði að láta fylgja með öllum tillögum í Norðurlandaráði lýsingu á því hvernig þær stuðluðu að norrænu notagildi, samþættingu Norðurlanda og afnámi stjórnsýsluhindrana. Þá voru samþykktar breytingar á starfsreglum Norðurlandaráðs um að framvegis ættu fulltrúar allra átta landa sæti í forsætisnefnd.
Mánudaginn 15. september hófst dagskrá með fundum flokkahópa. Síðar sama dag fór fram sameiginlegur fundur um gervigreind þar sem fjallað var um stöðu og tækifæri norræns samstarfs á sviði gervigreindar, m.a. með tilliti til samhæfingar regluverks, siðferðilegra viðmiða, gagnaflæðis og gagnadeilingar. Kynnt var nýtt norrænt-baltneskt gervigreindarsetur (e. New Nordics AI) og rætt um stjórnskipan og fjármögnun slíks samstarfs.
Þriðjudaginn 16. september sátu íslensku þingmennirnir fundi nefnda Norðurlandaráðs: Dagbjört Hákonardóttir og Bryndís Haraldsdóttir fund forsætisnefndar, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Guðbrandur Einarsson og Sigurjón Þórðarson fund þekkingar- og menningarnefndar og Halla Hrund Logadóttir og Jón Gunnarsson fund sjálfbærninefndar. Að auki sótti Guðbrandur fund eftirlitsnefndar og Bryndís fund stjórnsýsluhindranahóps.
Tore O. Sandvik, varnarmálaráðherra Noregs, var boðaður á fund forsætisnefndar til pólitísks samráðs í kjölfar þess að ríkisstjórnir Norðurlanda höfðu hafnað tillögu Norðurlandaráðs um að stofna norræna varnarmálanefnd. Í svari ríkisstjórnanna kom fram að samskipti um varnarmál færu þá fram á vettvangi NORDEFCO (e. Nordic Defence Cooperation) og beint milli ráðuneyta og að nýr samstarfsvettvangur gæti orsakað tvíverknað. Sandvik lagði áherslu á mikilvægi þess að þróa varnarsamstarf Norðurlanda innan ramma NORDEFCO og taldi að heppilegasta leiðin til að tryggja þinglega aðkomu væri um þann farveg.
Helsingforssamningurinn er lagalegur grunnur opinbers samstarfs Norðurlanda innan Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar. Í kjölfar 60 ára afmælis hans árið 2022 hófst umræða í Norðurlandaráði um að taka hann til endurskoðunar. Þingmenn vildu bæta við ákvæðum um ný samstarfssvið, svo sem umhverfismál, öryggis- og varnarmál og samfélagsöryggi, og efla stöðu Færeyja, Grænlands og Álandseyja í samstarfinu. Á Norðurlandaráðsþingi í Reykjavík haustið 2024 var samþykkt tillaga til ríkisstjórna Norðurlanda um að hefja formlega endurskoðun á samningnum. Í apríl 2025 fólu ríkisstjórnir Elinu Pirjatanniemi, prófessor við háskólann Åbo Akademi í Finnlandi, að gera úttekt á mögulegum breytingum með aðstoð sérfræðingahóps. Pirjatanniemi kom á fund forsætisnefndar í Ósló til að greina frá vinnu sinni. Hún sagði að verkefnið væri á undirbúningsstigi. Markmiðið væri að leggja fram greiningu til grundvallar pólitískri ákvarðanatöku. Hún lagði áherslu á að greiningin væri fyrst og fremst lagalegs eðlis. Þar yrðu skoðuð réttarsambönd þjóðaréttar, Evrópuréttar og innlendrar löggjafar. Sérstaklega yrði fjallað um stöðu Færeyja, Grænlands og Álandseyja í ljósi mögulegrar fullrar aðildar að Norðurlandaráði. Hún benti einnig á að þjóðaréttur væri í stöðugri þróun, m.a. varðandi réttindi minnihlutahópa og sjálfstjórnarsvæða, sem hefði þýðingu fyrir verkefnið. Hún kynnti jafnframt samsetningu rannsóknarteymis við Åbo Akademi og skipulag samráðs við norrænan tilvísunarhóp. Úttekt ætti að ljúka fyrir árslok 2025 og niðurstöður yrðu lagðar fyrir ríkisstjórnir Norðurlanda í byrjun árs 2026.
Á fundi forsætisnefndar var jafnframt fjallað um tillögu frá flokkahópi hægri manna um breytingu á fjárfestingarstefnu Norræna fjárfestingarbankans. Tillagan fól í sér að bankanum yrði heimilt að fjárfesta í hergagnaiðnaði á Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum til að efla öryggi og samfélagslegt viðnám í löndunum. Í greinargerð með tillögunni kom fram að bankinn hefði fram til þess tíma lagt megináherslu á sjálfbærni og fjármögnun innviða- og samfélagsverkefna en vegna aukinnar ógnar frá Rússlandi væri brýnt að endurmeta stefnu bankans. Vísað var til þess að Evrópski fjárfestingarbankinn hefði þegar ráðist í breytingar sem heimiluðu lánveitingar til hergagnaiðnaðar. Mikill meiri hluti fundarmanna lýsti yfir stuðningi við tillöguna. Forsætisnefnd fól skrifstofu Norðurlandaráðs að skrifa nefndarálit um málið á grundvelli umræðunnar.
Forsætisnefnd samþykkti að leggja fyrir Norðurlandaráðsþing breytingar á starfsreglum Norðurlandaráðs sem fólu í sér að framvegis yrði tryggt að fulltrúar allra átta landa, þar á meðal Færeyja, Grænlands og Álandseyja, ættu sæti í forsætisnefnd. Jafnframt var ákveðið að fjölga meðlimum forsætisnefndar úr 15 í 18.
Á fundi forsætisnefndar var tekin til umræðu þingmannatillaga frá flokkahópi hægri manna um að skylt yrði að láta fylgja með öllum tillögum í Norðurlandaráði lýsingu á því hvernig þær stuðluðu að norrænu notagildi, samþættingu Norðurlanda og afnámi stjórnsýsluhindrana. Í umræðum var bent á að þetta gæti aukið gagnsæi og styrkt faglegan grundvöll ákvarðana Norðurlandaráðs. Sumir óttuðust þó að breytingin gæti leitt til aukins skrifræðis og lengri málsmeðferðar. Forsætisnefnd bað skrifstofu Norðurlandaráðs að semja nefndarálit á grundvelli þeirra athugasemda sem fram komu á fundinum.
Forsætisnefndin fjallaði einnig um stjórnsýsluhindranir, mögulega þátttöku í loftslagsráðstefnunni COP30 í Belém í Brasilíu og undirbúning fyrir Norðurlandaráðsþing í Stokkhólmi árið 2025.
Norðurlandaráðsþing í Stokkhólmi 27.–30. október.
Norðurlandaráðsþing var að þessu sinni haldið í þinghúsi Ríkisdags Svíþjóðar í Stokkhólmi. Af hálfu Íslandsdeildar Norðurlandaráðs sóttu fundina Dagbjört Hákonardóttir formaður, Bryndís Haraldsdóttir varaformaður, Halla Hrund Logadóttir, Guðbrandur Einarsson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Jón Gunnarsson og Sigurjón Þórðarson, auk Helga Þorsteinssonar ritara. Einnig komu á þingið Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, og Sverrir Jónsson, skrifstofustjóri Alþingis. Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar tóku þátt Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Logi Einarsson, ráðherra norræns samstarfs og mennta-, menningar- og nýsköpunarmála. Björn Helgi Barkarson, skrifstofustjóri í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, sótti einnig fundi í stað ráðherra. Jón Gnarr, formaður Vestnorræna ráðsins, tók jafnframt þátt í þinginu.
Skömmu fyrir þingið sendi Jens-Frederik Nielsen, formaður landsstjórnar Grænlands, bréf til Norðurlandaráðs þar sem hann tilkynnti að grænlenskir ráðherrar myndu ekki taka þátt í þinginu. Ástæðan væri sú að Grænlendingar væru óánægðir með stöðu landsins í samstarfinu og teldu að of hægt gengi að gera breytingar.
Helgina fyrir Norðurlandaráðsþing hélt Norðurlandaráð ungmenna að venju þing. Ungmennin samþykktu fjölmargar ályktanir, þar á meðal um að vinna að því að grænlenska, færeyska og samíska stæðu jafnfætis öðrum norrænum málum í samstarfinu. Finninn Arvid Karell var kjörinn nýr forseti samtakanna. Norrænu ungmennaverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn en þeim er ætlað að vekja athygli á einstaklingum eða samtökum sem vinna í þágu ungs fólks á Norðurlöndum. Fyrstu verðlaunin runnu til Nordjobb.
Dagskrá Norðurlandaráðs hófst mánudaginn 27. október þegar flokkahópar komu saman til funda. Seinna þann dag var haldinn sameiginlegur fundur með yfirskriftinni „Norræn menning – stöðugur punktur í óstöðugum heimi“. Jafnframt funduðu kjörnefnd og eftirlitsnefnd Norðurlandaráðs.
Þriðjudaginn 28. október funduðu nefndir Norðurlandaráðs. Í forsætisnefnd sat Dagbjört Hákonardóttir. Í sjálfbærninefnd sátu Halla Hrund Logadóttir, Bryndís Haraldsdóttir og Jón Gunnarsson. Í þekkingar- og menningarnefnd sátu Guðbrandur Einarsson, Guðmundur Ari Sigurjónsson og Sigurjón Þórðarson. Bryndís Haraldsdóttir sótti einnig fund stjórnsýsluhindranahóps Norðurlandaráðs. Sama dag fundaði forsætisnefnd Norðurlandaráðs annars vegar með Vestnorræna ráðinu og hins vegar með samstarfsráðherrum Norðurlanda. Að venju bauð Karl XVI. Gústaf Svíakonungur þingmönnum Norðurlandaráðs, þingforsetum, ráðherrum og fleiri þátttakendum til hádegisverðar í konungshöllinni. Að því loknu hófst þingfundur Norðurlandaráðs með ávörpum forseta Ríkisdags Svíþjóðar og forseta Norðurlandaráðs. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, flutti ræðu og í kjölfarið hófst norrænn leiðtogafundur með forsætisráðherrum og stjórnarleiðtogum Norðurlanda. Dagskrá dagsins lauk á því að forsætisráðherra Danmerkur og lögmaður Færeyja kynntu formennskuáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir árið 2026. Um kvöldið voru verðlaun Norðurlandaráðs afhent. Tónlistarverðlaunin komu í hlut Víkings Heiðars Ólafssonar.
Snemma morguns miðvikudaginn 29. október fundaði forsætisnefnd Norðurlandaráðs með forsætisráðherra Finnlands, en Finnar gegna formennsku í ráðherranefndinni í ár. Að því loknu héldu þingfundir Norðurlandaráðs áfram. Í hádegishléi funduðu fagnefndir ráðsins með norrænum ráðherrum sinna málaflokka og forsætisnefnd hitti að máli utanríkisráðherra Norðurlanda. Um kvöldið stóð forsætisnefnd Norðurlandaráðs fyrir málþingi fyrir alþjóðlega gesti.
Fimmtudaginn 30. október hélt þingfundur áfram. Síðast á dagskrá var kosning nýs forseta og varaforseta. Finnski þingmaðurinn Ville Väyrynen var kjörinn forseti Norðurlandaráðs fyrir árið 2026 og Kim Berg varaforseti. Í kjölfarið kynnti Väyrynen formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja fyrir komandi ár. Heléne Björklund, fráfarandi forseti, flutti kveðjuávarp og sleit þinginu.
Á fundi forsætisnefndar Norðurlandaráðs á þriðjudegi tók nefndin fyrir tvær tillögur um aukinn viðbúnað. Önnur var þingmannatillaga frá miðflokkahópi um að efla og samræma norrænt samstarf um allsherjarviðbúnað. Hin var tillaga frá landsdeild Færeyja sem miðaði að því að styrkja viðbúnað og aðfangaöryggi í Norður-Atlantshafi. Báðar tillögurnar vísa til svokallaðs Haga-samstarfs Norðurlanda um samfélagsöryggi og viðbúnað. Í tillögu miðflokkahóps var m.a. lagt til að stigið yrði skref í átt að fullri aðild Álandseyja, Færeyja og Grænlands að þessu samstarfi. Tillögunum var almennt vel tekið og samþykkt að vinna nýja tillögu frá forsætisnefnd upp úr þeim báðum.
Á fundinum ræddi nefndin einnig hlutverk Norðurlandaráðs á ráðstefnum Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál og líffræðilega fjölbreytni (COP) á síðustu árum og hvernig þátttöku skyldi hagað til framtíðar. Meiri hluti þingmanna taldi mikilvægt að ráðið tæki þátt í ráðstefnunum til að sinna alþjóðlegu hlutverki sínu og koma norrænum áherslum á framfæri. Fulltrúi flokkahópsins Norrænt frelsi benti á að þátttaka væri kostnaðarsöm og félli ekki undir kjarnastarfsemi ráðsins. Forsætisnefnd samþykkti að færa upplýsingarnar til bókar og að málið yrði tekið upp að nýju á fundi nefndarinnar í desember. Nefndin ræddi einnig tillögu flokkahóps jafnaðarmanna um að halda árlega norræna lýðræðisráðstefnu með þátttöku ráðamanna og ungs fólks. Skiptar skoðanir voru um málið en nefndin fól skrifstofu Norðurlandaráðs að kanna kostnað og útfærslu fyrir næsta fund.
Á fundi forsætisnefndar með Vestnorræna ráðinu beindist athygli einkum að öryggis- og varnarmálum á Vestur-Norðurlöndum og stöðu ungs fólks á norðurslóðum. Rætt var um vaxandi alþjóðlegan áhuga á svæðinu og nauðsyn þess að verja innviði, svo sem sæstrengi og netkerfi. Þá bentu fundarmenn á að fjárfestingar í öryggismálum ættu einnig að þjóna borgaralegum hagsmunum. Einnig var rætt um brottflutning ungs fólks frá sumum svæðum á Vestur-Norðurlöndum og um mikilvægi þess að tryggja þátttöku ungmenna í stefnumótun. Fundarmenn lögðu áherslu á náið samstarf ráðanna tveggja og sammæltust um að efla það enn frekar, ekki síst með hliðsjón af 75 ára afmæli Norðurlandaráðs árið 2027.
Forsætisnefnd fundaði einnig með samstarfsráðherrum Norðurlanda, þar á meðal Loga Einarssyni. Þar var rætt um stjórnsýsluhindranir, samfélagsöryggi, almannavarnir og endurskoðun Helsingforssamningsins. Á fundi nefndarinnar með utanríkisráðherrum fóru fundarmenn yfir stuðning við Úkraínu, ESB-málefni, áhuga Bandaríkjastjórnar á Grænlandi og fleiri mál. Á fundi nefndarinnar með Petteri Orpo, forsætisráðherra Finnlands, beindist umræða að öryggis- og varnarmálum í víðum skilningi.
Þingfundur Norðurlandaráðs hófst seinni part þriðjudags með ræðu Andreasar Norléns, forseta Ríkisdags Svíþjóðar. Hann lagði áherslu á sameiginleg norræn gildi og mikilvægi þinglegs samstarfs í breyttu alþjóðlegu umhverfi. Hann nefndi einnig vaxandi óvissu í öryggismálum og mikilvægi þess að Norðurlönd stæðu saman, ekki síst vegna stríðsins í Úkraínu. Þá undirstrikaði hann þýðingu lýðræðisins, réttarríkisins og tjáningarfrelsis sem grunnstoða norrænna samfélaga. Að loknu ávarpi forseta tók Heléne Björklund, forseti Norðurlandaráðs, til máls. Í ræðu sinni lagði hún áherslu á að samstarfið væri forsenda þess að tryggja hagsmuni almennings og að samheldni væri nauðsynleg til að takast á við sameiginlegar áskoranir. Hún ræddi styrk norræns lýðræðis en varaði jafnframt við vaxandi pólitískri skautun og harkalegri orðræðu. Hún undirstrikaði mikilvægi samheldni og trausts og sagði að það væri á ábyrgð kjörinna fulltrúa að standa vörð um þessar grunnstoðir norræns samfélags. Að lokum brýndi hún fyrir þingmönnum að halda áfram að afnema stjórnsýsluhindranir og styrkja innviði og menningarsamstarf, enda væri það lykillinn að norrænni samkennd, lýðræði og sjálfbærri þróun.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, var gestur þingsins. Í ræðu sinni ræddi hún sögulegt hlutverk Norðurlanda í Evrópu og hvernig sameiginleg gildi væru grunnur að samstarfi álfunnar. Hún fjallaði um breytt öryggisumhverfi í álfunni og lýsti hvernig norræn ríki hefðu brugðist við hernaðarlegum og blönduðum ógnum með auknu samstarfi á sviði öryggis- og varnarmála, bæði innan NATO og í tengslum við Evrópusambandið. Von der Leyen vék ítarlega að stríðinu í Úkraínu og sagði áframhaldandi stuðning Evrópu við Úkraínu vera lykilforsendu öryggis og stöðugleika í Evrópu. Hún benti á að Rússar byggðu á þeirri ranghugmynd að tíminn ynni með þeim og að hægt væri að þreyta Evrópu með langvinnu stríði. Hún taldi varanlegan frið aðeins mögulegan ef þessi forsenda yrði hrakin, til dæmis með skuldbindingu um langtímastuðning við Úkraínu og auknum þrýstingi á Rússland. Hún minnti á umfangsmiklar refsiaðgerðir gegn Rússlandi, þar á meðal aðgerðir gegn skuggaflota landsins, og lagði áherslu á að nýta frystar rússneskar eignir til að styðja varnir og efnahag Úkraínu. Von der Leyen ræddi einnig áform ESB um að stórefla varnargetu og viðnámsþrótt ríkja til að mæta áframhaldandi ógn frá Rússlandi. Í síðari hluta ræðu sinnar beindi hún sjónum að samkeppnishæfni Evrópu, orkuskiptum og loftslagsmálum og undirstrikaði vaxandi mikilvægi norðurslóða vegna loftslagsbreytinga og alþjóðlegrar samkeppni.
Í kjölfar ræðu Ursulu von der Leyen fór fram norrænn leiðtogafundur með þátttöku forsætisráðherra norrænna ríkja, þingmanna Norðurlandaráðs og fulltrúa Norðurlandaráðs ungmenna. Á fundinum var sjónum einkum beint að norrænni samstöðu og öryggi í víðum skilningi í ljósi breyttrar stöðu í Evrópu og aukinnar óvissu í alþjóðamálum. Í umræðunni kom skýrt fram að öryggishugtakið væri ekki lengur bundið við hernaðarlegar ógnir einar og sér heldur tæki það einnig til samfélagsöryggis, viðbúnaðar gegn blönduðum ógnum, verndunar mikilvægra innviða, lýðræðisins og trausts í samfélaginu. Margir ræðumenn nefndu innrásina í Úkraínu og afleiðingar hennar. Þeir hvöttu norræn ríki til að standa saman, hvort sem væri innan NATO, ESB eða í norrænu samstarfi. Stuðningur við Úkraínu var rauður þráður í máli ræðumanna. Þeir ræddu einnig vaxandi mikilvægi samstarfs Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Þar kom fram að öryggi Norðurlanda væri órjúfanlega tengt stöðugleika á Eystrasaltssvæðinu og norðurslóðum. Í umræðunni var einnig vikið að lýðræðinu, trausti og pólitískri skautun og því að þótt lýðræðishefðir norrænna ríkja væru sterkar væri nauðsynlegt að standa vörð um þær. Þá var sérstök athygli vakin á stöðu Færeyja, Grænlands og Álandseyja í norrænu samstarfi og mikilvægi þess að tryggja þeim raunverulegan og sýnilegan sess í fjölskyldu norrænna landa.
Dagbjört Hákonardóttir beindi fyrirspurn til Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur. Hún sagði að þegar rætt væri um öryggi og viðnámsþrótt mætti ekki vanmeta mikilvægi samfélaga á norðurslóðum, sérstaklega í ljósi þess að stórveldi sýndu svæðinu vaxandi áhuga. Hún spurði hvernig dönsk stjórnvöld hygðust efla fjárfestingar í innviðum, stjórnsýslu og menntakerfi Grænlands til að styrkja stöðu landsins og þar með öryggi á svæðinu. Í svari sínu lagði forsætisráðherra Danmerkur áherslu á nýjan samning milli danska ríkisins og grænlenskra stjórnvalda sem efla ætti innviði, stuðla að sjálfbærri þróun og fela Grænlendingum aukna ábyrgð á eigin framtíð. Bryndís Haraldsdóttir beindi einnig spurningu til Frederiksen. Hún vakti athygli á því að á þinginu væru þingfulltrúar átta norrænna þjóða en aðeins forsætisráðherrar sjö ríkja þar sem formaður landsstjórnar Grænlands væri ekki á leiðtogafundinum. Hún spurði um afstöðu ráðherrans til fjarveru Grænlendinga og hvenær mætti búast við breytingum á Helsingforssamningnum svo að öll löndin átta sætu við sama borð. Í svarinu lýsti forsætisráðherra stuðningi við kröfur Grænlands og Færeyja um aukið sjálfstæði innan norræns samstarfs og sagðist vona að lögfræðileg úttekt sem verið væri að vinna að myndi skapa grundvöll fyrir breytingar.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra lagði áherslu á að Norðurlönd ættu að vera stolt af rótum sínum og menningu, þar lægi styrkur þeirra til framtíðar. Hún sagði samstöðu og umburðarlyndi vera rauðan þráð í norrænum samfélögum þrátt fyrir ólíka sögu þjóðanna. Samfélög þar sem fólk sýndi hvert öðru skilning væru að hennar mati öruggari en samfélög sem byggðust á sundrungu. Hún benti á að búsetu á Norðurlöndum fylgdu bæði réttindi og skyldur og að samfélagsleg ábyrgð væri kjarni heilbrigðrar ættjarðarástar. Jafnframt sagði hún að grunngildi svæðisins væru víða í hættu þar sem orðræða sem ýtti undir klofning hefði rutt sér til rúms í nafni þjóðernishyggju. Slík ættjarðarást væri að hennar mati hvorki heilbrigð né uppbyggileg. Kristrún sagði jafnframt að óánægja almennings með stjórnmálin væri að hluta skiljanleg þar sem margir upplifðu að stjórnsýsla væri orðin flókin og fjarlæg daglegu lífi fólks. Hún hvatti stjórnmálafólk til að mæta þessari þróun af ábyrgð, hlusta á almenning og skapa tilfinningu fyrir festu, samfélagslegri samheldni og öryggi. Að hennar mati væri hægt að ræða áhrif alþjóðavæðingar af hreinskilni án þess að ala á ótta. Hún undirstrikaði að alþjóðlegt samstarf væri ómetanlegt en jafnframt væri mikilvægt að halda eigin menningu á lofti.
Að leiðtogafundinum loknum kynntu Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Aksel V. Johannesen, lögmaður Færeyja, formennskuáætlun landanna í Norrænu ráðherranefndinni fyrir árið 2026. Yfirskrift hennar er Traust tengsl í hverfulum heimi. Formennskuáætlunin byggist á sameiginlegri framtíðarsýn forsætisráðherra Norðurlanda frá árinu 2019 um að Norðurlönd yrðu sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030. Sú sýn hvílir á þremur stoðum: grænum, samkeppnishæfum og félagslega sjálfbærum Norðurlöndum. Markmiðið er að samþætting nái til allra landanna átta, bæði í daglegu lífi fólks og í stjórnsýslu. Í áætluninni er jafnframt lögð sérstök áhersla á endurskoðun Helsingforssamningsins, sem er grundvöllur norræns samstarfs, með það að markmiði að laga hann að breyttum aðstæðum í alþjóðasamfélaginu og tryggja að hann endurspegli raunveruleika og vilja allra norrænu landanna átta, þar á meðal Færeyja, Grænlands og Álandseyja. Í áætluninni er lögð áhersla á að efla samfélagsöryggi og viðbúnað, styrkja afhendingaröryggi og samvinnu um aðfangakeðjur, hraða grænum umskiptum og nýsköpun og standa vörð um félagslega samheldni, traust og lýðræðisleg grunngildi. Einnig verður unnið markvisst að því að fjarlægja stjórnsýsluhindranir, efla samkeppnishæfni norrænna hagkerfa og styrkja stöðu Norðurlanda gagnvart umheiminum, m.a. í samstarfi við Evrópusambandið, Eystrasaltsríki og nágrannaríki í vestri og á norðurslóðum.
Í máli Mette Frederiksen kom skýrt fram að hún liti svo á að aðildarlönd norræns samstarfs væru átta talsins. Hún fjallaði um endurskoðun Helsingforssamningsins og sagði eðlilegt og nauðsynlegt að laga hann að þeim veruleika sem Norðurlönd byggju við nú á dögum og að ólíkum óskum þátttakenda í samstarfinu. Hún lagði ríka áherslu á að fylgja eftir væntanlegu lögfræðiáliti um samninginn, það yrði forgangsmál í formennskutíð Dana og Færeyinga. Þá benti hún á að aðeins tvö lönd stæðu að formennskunni að þessu sinni þar sem Grænland hefði ákveðið að taka ekki þátt. Hún kvaðst virða þá ákvörðun en lýsti jafnframt von um að skapa betri ramma til samstarfs til framtíðar fyrir öll norrænu löndin átta. Aksel V. Johannesen lagði í máli sínu sérstaka áherslu á stöðu Færeyja í norrænu samstarfi og á mikilvægi Helsingforssamningsins. Hann benti á að Færeyjar hefðu í meira en hálfa öld tekið virkan þátt í norrænu samstarfi af ábyrgð og með stolti og að samstarfið næði inn í alla helstu anga samfélagsins – stjórnsýslu, atvinnulíf, menningu, rannsóknir og menntun. Jafnframt sagði hann að Færeyingar hefðu lengi alið með sér þá von að geta tekið þátt í norrænu samstarfi á jafnræðisgrundvelli. Slík þátttaka fæli ekki aðeins í sér aukin réttindi heldur einnig aukna ábyrgð og raunveruleg áhrif á mótun framtíðar norræns samstarfs.
Í umræðu um utanríkismál sem fram fór á miðvikudegi var lögð rík áhersla á að Norðurlönd stæðu saman á óvissutímum og að samstarf þeirra skipti sífellt meira máli í breyttu alþjóðlegu umhverfi. Stuðningur við Úkraínu var í brennidepli. Ræðumenn sögðu mikilvægt að hann yrði fyrirsjáanlegur til langframa enda væri hann grundvöllur öryggis Evrópu allrar. Bent var á að Norðurlönd hefðu lagt meira af mörkum en flest önnur ríki og að halda þyrfti áfram að veikja getu Rússa til að fjármagna stríðsrekstur sinn, m.a. með aðgerðum sem beindust að því að draga úr tekjum af orkusölu þeirra. Mikil umræða varð einnig um alþjóðalög og reglubundna skipan alþjóðamála. Ræðumenn lögðu áherslu á að þessi viðmið væru smáríkjum lífsnauðsynleg og að Norðurlönd þyrftu að verja þau þegar þrengt væri að lýðræði og mannréttindum. Einnig var varað við ósamræmi í viðbrögðum ríkja við brotum á alþjóðalögum; trúverðugleiki fælist í því að beita sömu mælistiku á öll átök. Öryggismál í víðum skilningi voru þingmönnum og ráðherrum mjög hugleikin. Ræðumenn fjölluðu um blandaðar ógnir, netárásir og upplýsingaóreiðu og fóru fram á enn nánara samstarf Norðurlanda. Aðild allra norrænna ríkja að NATO var sögð styrkja sameiginlegt öryggi og jafnframt var lögð áhersla á mikilvægi norðurslóða þar sem breytingar á náttúrufari og öryggismálum krefjast samhæfðra viðbragða.
Ástandið á Gaza-svæðinu var einnig til umfjöllunar. Ræðumenn lýstu þungum áhyggjum af aðstæðum íbúa þar og lögðu áherslu á að alþjóðalög og mannréttindi yrðu virt. Þótt vonir hefðu vaknað í kjölfar vopnahlés töldu margir stöðuna viðkvæma og undirstrikuðu nauðsyn þess að mannúðaraðstoð bærist án hindrana. Jafnframt var bent á að varanlegur friður krefðist pólitískra viðræðna með tveggja ríkja lausn að leiðarljósi.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lagði í ræðu sinni áherslu á norræna samstöðu á tímum óstöðugleika og sagði reynsluna sýna að Norðurlönd væru sterkari saman en í sundur. Hún varaði við því að stoðir alþjóðasamstarfsins væru að veikjast og að ítrekuð brot á alþjóðalögum væru sérstaklega alvarleg fyrir lítil ríki sem reiddu sig á reglubundna skipan alþjóðamála. Hún ræddi stríðið í Úkraínu og sagði innrás Rússa vega að bæði fullveldi landsins og grundvelli alþjóðakerfisins. Því skipti sköpum að norræn ríki héldu áfram samstilltum stuðningi við Úkraínu enda væri hann grundvöllur öryggis og lýðræðis í Evrópu allri. Þá ræddi hún ástandið á Gaza-svæðinu, krafðist þess að viðmiðum mannúðarréttar væri fylgt og nefndi tveggja ríkja lausn sem einu færu leiðina að friði. Að lokum undirstrikaði hún mikilvægi öryggis á norðurslóðum og sagði endurskoðun Helsingforssamningsins þurfa að taka til allra norrænu landanna átta svo að samstaða og jafnræði næðist í norrænu samstarfi.
Halla Hrund Logadóttir var fulltrúi miðflokkahóps í umræðunni og beindi sjónum að norðurslóðum og mikilvægi norrænnar samvinnu í ljósi hraðra breytinga á svæðinu. Hún benti á að bráðnun hafíss opnaði nýjar siglingaleiðir milli Asíu og Norðurlanda. Þær gætu stytt flutningstíma, dregið úr notkun og losun eldsneytis og skapað ný efnahagsleg tækifæri. Samtímis fælu þessar breytingar í sér nýjar áskoranir sem snertu öryggi, umhverfisvernd og stöðu ríkja á svæðinu. Hún lagði áherslu á samstillt viðbrögð Norðurlanda, svo sem með öflugri innviðum og vöktun. Nefndi hún sérstaklega gervihnattakerfi sem nýst gætu bæði til umhverfisvöktunar og siglingaöryggis. Hún hvatti til umræðu um framtíðarsamstarf á norðurslóðum og hvernig Norðurskautsráðið gæti áfram tryggt frið og stöðugleika þrátt fyrir harðnandi hagsmunabaráttu og breyttar aðstæður.
Að utanríkismálaumræðu lokinni tók við umræða um varnarmál. Þingmenn og ráðherrar voru sammála um að öryggishorfur í Evrópu hefðu versnað til muna og að það hefði afgerandi áhrif á Norðurlönd. Ræðumenn töldu að innrás Rússlands í Úkraínu hefði breytt forsendum varnarmála og kallað á hraðari og samhæfðari ákvarðanir en áður. Sérstaklega var rætt hvernig nýjar varnaráætlanir NATO mótuðu nú forgangsröðun, verkaskiptingu og uppbyggingu varnargetu á Norðurlöndum. Bryndís Haraldsdóttir lagði þunga áherslu á norrænt varnarsamstarf og sagði samvinnu ríkjanna forsendu þess að tryggja öryggi. Dagbjört Hákonardóttir ræddi varnarmál miðað við norræn grunngildi og undirstrikaði að öryggi væri jafnt samfélagslegt sem hernaðarlegt. Hún varaði við því að upplýsingaóreiða, sundrung og ótti gætu grafið undan lýðræði og öryggi og hvatti til þess að varnarmálayfirvöld hefðu það sjónarhorn ætíð í huga. Þá beindi hún sjónum að afleiðingum stríðsins í Úkraínu, sérstaklega brottnámi barna, og kallaði eftir auknum fjárstuðningi og markvissum aðgerðum norrænna ríkja til að styðja endurheimt þeirra.
Næst fluttu gestaávörp þeir Rúslan Stefantsjúk, forseti þjóðþings Úkraínu, og Szymon Holownia, forseti neðri málstofu þjóðþings Póllands. Stefantsjúk þakkaði Norðurlöndum eindreginn stuðning við Úkraínu frá upphafi innrásarinnar og sagði hann skipta sköpum fyrir varnir landsins og öryggi óbreyttra borgara. Hann rakti hvernig rússnesk stjórnvöld hefðu beitt árásum á orkuinnviði til að nota veturinn sem vopn gegn samfélaginu og fór fram á fyrirsjáanlegan langtímastuðning við Úkraínu. Hann sagði nauðsynlegt að gera stríðsreksturinn pólitískt og efnahagslega óbærilegan fyrir Rússa, m.a. með ströngum þvingunaraðgerðum og nýtingu frystra eigna til skaðabóta. Stefantsjúk sagði öryggi Evrópu velta á skýrum öryggistryggingum fyrir Úkraínu, svo sem NATO- og ESB-aðild, og minnti á að það væri skylda lýðræðisríkja að verja alþjóðalög og réttarríkið. Szymon Holownia benti á að Evrópa hefði áratugum saman byggt friðsamlega sambúð á viðskiptum en vanrækt að byggja samstarfið á sameiginlegum gildum. Reynslan af samskiptum við Rússland hefði sýnt að efnahagsleg tengsl gætu orðið að veikleika þegar grundvallargildi væru ekki sameiginleg. Hann sagði að innrásin hefði þjappað NATO og Evrópu saman en varaði við því að upplýsingaóreiðu, ótta og sundrungu væri í auknum mæli beitt sem vopnum. Holownia hvatti þingmenn til að verja traust og lýðræðislega umræðu. Hann hvatti til nánara samstarfs á norðurslóðum og við Eystrasalt sem byggðist fremur á sameiginlegum gildum og vilja til að verja frelsið en aðeins á samningum.
Næst á dagskrá þingfundar var greinargerð og fyrirspurnatími samstarfsráðherra Norðurlanda. Rætt var vítt og breitt um stöðu norræns samstarfs á tímum óvissu og hraðra breytinga. Ræðumenn ræddu stjórnsýsluhindranir sem bitnuðu á hversdagslífi fólks og starfsemi fyrirtækja, svo sem vegna flutninga milli landa, félagslegra réttinda og samskipta við yfirvöld yfir landamæri. Þá var rætt um samfélagsöryggi, almannavarnir og viðbúnað. Bent var á mikilvægi samhæfingar, traustra innviða, aðfangakeðja og getu samfélaga til að bregðast við neyðarástandi og fjölþáttaógnum. Endurskoðun Helsingforssamningsins var áberandi umræðuefni. Bæði var rætt um hana sem tæki til að jafna stöðu allra norrænu landanna átta og sem leið til að styrkja og nútímavæða norrænt samstarf. Einnig var rætt um lýðræði, traust, fjölmiðlaumhverfi og áhrif upplýsingaóreiðu sem hluta af víðara samhengi samfélagslegs öryggis. Loks var horft til framtíðar; rætt var um gervigreind og samkeppnishæfni og hvernig efla mætti samstarfið svo að það skilaði íbúum raunverulegum ávinningi.
Bryndís Haraldsdóttir fjallaði um endurskoðun Helsingforssamningsins og lagði áherslu á að það ferli væri ekki að hefjast heldur hefði það staðið yfir um nokkurt skeið í Norðurlandaráði. Hún minnti á að ráðið hefði skipað vinnuhóp og aflað sérfræðiálita. Þingið sem haldið var í Reykjavík árið 2024 hefði aukinheldur samþykkt einróma ályktun um að hvetja ríkisstjórnir til að hefja endurskoðun. Bryndís lagði áherslu á að endurskoðun ætti bæði að tryggja jafnræði landanna átta og endurspegla breytta heimsmynd, sérstaklega á sviði öryggismála og nýrrar tækni. Hún fór þess á leit að samstarfsráðherrar tækju skýra pólitíska ábyrgð á verkefninu og byggðu áfram á þeirri vinnu og þeim skýru fyrirmælum sem þegar lægju fyrir frá Norðurlandaráði.
Logi Einarsson setti umræðuna í samhengi við fjölpóla heimsskipan og hraðar tæknibreytingar. Hann benti á að Norðurlönd stæðu frammi fyrir flóknari áskorunum en nokkru sinni fyrr. Hann lagði áherslu á að í slíkum aðstæðum skipti samstarf ríkja sem deila lýðræðislegum gildum, frelsi og jafnrétti meira máli en nokkru sinni fyrr. Hann benti sérstaklega á samstarf um gervigreind og stafræna þróun, m.a. með stuðningi við norræna gervigreindarmiðstöð sem gæti hjálpað til við að styrkja stöðu norrænna tungumála og stafrænt sjálfstæði. Logi ræddi einnig mikilvægi þess að efla innviði, draga úr stjórnsýsluhindrunum og styrkja samfélagslegan viðnámsþrótt. Að lokum lýsti hann stuðningi við endurskoðun Helsingforssamningsins með það að markmiði að tryggja jafnræði allra norrænu landanna átta og efla samstarf á sviði menningar, menntunar, heilbrigðis og öryggis.
Á dagskrá þingfundar á miðvikudegi var einnig umræða um stjórnsýsluhindranir á Norðurlöndum, fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir árið 2026 og jafnframt ávörp alþjóðlegra gesta á þinginu. Þeir sem fluttu ávörp undir síðastnefnda dagskrárliðnum voru Jãnis Vucãn, forseti Eystrasaltsþingsins, Theodoros Rousopoulos, varaforseti Evrópuráðsþingsins, Robert Zile, varaforseti Evrópuþingsins, Maria Byrne, varaforseti þjóðþings Írlands, Pim van Ballekom, varaforseti Benelúx-þingsins, Mikko Savola, varaforseti NATO-þingsins, Kristina Herbst, forseti Þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins, breski þingmaðurinn Caroline Nokes, Jette Waldinger-Thiering, varaforseti héraðsþings Slésvíkur-Holtsetalands, og Jón Gnarr, formaður Vestnorræna ráðsins. Jón hóf mál sitt á því að syngja fyrsta erindi Völuspár. Hann ræddi síðan um sameiginlega sögu Norðurlanda og mikilvægi þess að nota hana til sameiningar fremur en sundrungar. Hann nefndi norræn grunngildi á borð við jafnrétti, lýðræði, traust og frið. Hann sagði að á tímum vaxandi óróa í alþjóðamálum hefði vægi Vestur-Norðurlanda aukist og Vestnorræna ráðið gegndi þar lykilhlutverki.
Dagskrá þingfundar á fimmtudegi hófst með umræðu um jafnréttismál. Fram kom að mikill árangur hefði náðst á síðustu áratugum en að andstaða við jafnrétti og réttindi hinsegin fólks færi engu að síður vaxandi, bæði á Norðurlöndum og á alþjóðavettvangi. Rætt var um sameiginlegt átaksverkefni sem miðar að því að bregðast við þessu bakslagi, m.a. með því að fjármagna ýmsar aðgerðir og vinna með félagasamtökum og alþjóðastofnunum og jafnframt með auknu samstarfi Norðurlanda á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Sjónum var einnig beint að kynbundnu ofbeldi, Istanbúl-samningnum og baráttunni gegn heiðurstengdu ofbeldi. Lögð var áhersla á að jafnrétti yrði fléttað inn í alla málaflokka, allt frá vinnumarkaði til grænna umskipta, með skýrum markmiðum í öllu stjórnkerfinu. Töluvert var rætt um stöðu drengja og ungra karla, svo sem einmanaleika og geðheilbrigði. Talað var um að þessi málefni þyrftu að vera sjálfsagðir þættir í almennri jafnréttisumræðu en ekki deiluefni.
Í umræðu um velferðarmál var fjallað um norrænt samstarf á heilbrigðis- og félagsmálasviði og hvernig það gæti stutt sjálfbærni velferðarkerfa til framtíðar. Lögð var áhersla á jafnan aðgang, forvarnir og geðheilbrigði ungs fólks. Kallað var eftir sameiginlegu norrænu átaki og dýpri gagnagreiningu til að takast á við vandann. Viðbúnaður og viðnámsþróttur velferðarkerfa í kreppu var einnig til umræðu. Rætt var um bóluefnaöryggi á grundvelli reynslu af heimsfaraldri kórónuveiru og um varnir gegn sýklalyfjaónæmi. Talsverð umræða varð um fjölþjóðlegar stafrænar lausnir, til dæmis í tengslum við rafræna lyfseðla, öruggt upplýsingaflæði og það að kerfi geti skipst á upplýsingum við venjulegar aðstæður og í neyðarástandi. Loks var rætt um skort á starfsfólki og leiðir til að uppfylla þörf á því sem væru í senn siðferðilega verjandi og árangursríkar. Í síðari hluta umræðu undir þessum dagskrárlið var rætt um málefni fatlaðs fólks; að brjóta niður kerfislægar hindranir, efla aðgengi og þátttöku í skóla, frístundum, stafrænu lífi og ákvarðanatöku og að auka tækifæri til atvinnu og sjálfstæðs lífs, þar á meðal með aukinni áherslu á réttindi, gagnasöfnun og samstarf á alþjóðavettvangi.
Í umræðu um stöðu barna og ungmenna í norrænum samfélögum var áréttað að þau væru ekki aðeins framtíðin heldur einnig virkir þátttakendur hér og nú. Rætt var um mikilvægi þess að sjónarmið barna og ungmenna væru tekin alvarlega í stefnumótun og ákvarðanatöku, m.a. með virkri þátttöku þeirra í norrænu samstarfi. Miklar áhyggjur komu fram af vaxandi andlegri vanlíðan, félagslegri einangrun og auknum þrýstingi í stafrænu umhverfi þar sem samfélagsmiðlar, skaðlegar fyrirmyndir og upplýsingaóreiða hefðu áhrif á líðan og sjálfsmynd ungs fólks. Þá var fjallað um ójöfnuð, m.a. barnafátækt og mismunandi aðgang að menningu, frístundum og stuðningsúrræðum, sem gæti grafið undan jöfnum tækifærum. Einnig var rætt um öryggi barna og ungmenna, þar á meðal tengsl ofbeldis, fíkniefna, skorts á félagslegum stuðningi og veikra forvarna. Að lokum var vikið að framtíðarsýn norræns samstarfs á þessu sviði þar sem krafist var skýrari sameiginlegrar stefnu, aukins samstarfs og markvissra aðgerða til að bregðast við breyttum áskorunum í lífi barna og ungmenna.
Að vanda þurftu þingmenn að ræða og afgreiða tillögur um margvísleg málefni. Gerð var söguleg breyting á starfsreglum ráðsins: Færeyjar, Grænland og Álandseyjar fá nú föst sæti í forsætisnefnd, æðstu pólitísku stjórn ráðsins. Samþykkt var ný norræn stefna um frjálsa för á Norðurlöndum fyrir tímabilið 2026-2030 sem miðar að því að ryðja úr vegi stjórnsýsluhindrunum fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem starfa þvert á landamæri. Þingið samþykkti einnig að efla samstarf ríkisfjölmiðla, m.a. með því að gera norrænt efni sýnilegra og styrkja málskilning milli þjóðanna. Einnig var samþykkt að efla gerð samísks námsefnis og styrkja menntun samískra kennara. Í velferðarmálum var kallað eftir norrænni stefnu í öldrunarþjónustu til að mæta hækkandi meðalaldri og mönnunarvanda. Enn fremur samþykkti þingið kröfu um hertar reglur um losun skipa á norðurslóðum. Norðurlönd munu beita sér sameiginlega innan Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar fyrir strangari kröfum á heimskautasvæðum.
Undir lok fundar á fimmtudegi var kosið í ýmis embætti á vegum Norðurlandaráðs. Guðmundur Ari Sigurjónsson var kjörinn formaður þekkingar- og menningarnefndar. Rúmur áratugur er liðinn síðan Íslendingur gegndi síðast formennsku í einni af nefndum ráðsins. Finnski þingmaðurinn Ville Väyrynen var kjörinn forseti Norðurlandaráðs fyrir árið 2026 og Kim Berg varaforseti. Að því loknu kynnti Väyrynen formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja fyrir komandi ár. Formennskuáætlunin byggist á þema um norrænt heildaröryggi og miðar að því að efla sameiginlegan viðbúnað Norðurlanda. Lögð er áhersla á að heildaröryggi taki bæði til hefðbundinna öryggis- og varnarmála og þátta sem snúa að daglegu öryggi og velferð borgaranna, svo sem menntunar, menningar, heilbrigðis og samfélagslegs viðnámsþróttar. Í áætluninni er einnig fjallað um mikilvægi nánara samstarfs Norðurlanda á sviði utanríkis-, öryggis- og varnarmála í ljósi breyttrar stöðu í öryggismálum í Evrópu. Þá er lögð áhersla á að styrkja miðlalæsi, stafrænt öryggi og sameiginleg viðbrögð gegn upplýsingaóreiðu og blönduðum ógnum. Samgöngur, orkumál og vernd hafsvæða eru jafnframt hluti af þessari heildarsýn á öryggi og langtímaþróun Norðurlanda.
Heléne Björklund, fráfarandi forseti, flutti kveðjuávarp og sleit þinginu. Í lokaorðum sínum þakkaði hún fulltrúum aðildarlanda fyrir vel heppnað þing og málefnalegar umræður sem einkennst hefðu af gagnkvæmri virðingu og metnaði. Hún benti á að þrátt fyrir krefjandi stöðu í alþjóðamálum hefði tekist að halda á lofti mikilvægi menningar og hlutverki hennar í að styrkja samfélög og samheldni. Björklund lagði áherslu á vaxandi alþjóðlegan áhuga á Norðurlöndum og lýsti þeim sem stöðugum og traustum samstarfsaðila. Hún minnti jafnframt á mikilvægi þeirrar ákvörðunar að stækka forsætisnefnd með þátttöku Færeyja, Grænlands og Álandseyja.
Fundur forsætisnefndar Norðurlandaráðs í Reykjavík 8.–9. desember.
Af hálfu Íslandsdeildar Norðurlandaráðs sóttu fundinn Dagbjört Hákonardóttir formaður og Halla Hrund Logadóttir varaformaður auk Heiðrúnar Pálsdóttur og Hildar Edwald, starfsmanna skrifstofu Alþingis. Bryndís Haraldsdóttir, meðlimur Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, tók þátt í sameiginlegum fundi forsætisnefndar Norðurlandaráðs og Eystrasaltsþingsins. Fundurinn hófst á heimsókn á varnarsvæðið í Keflavík þar sem þátttakendur fengu kynningu á því starfi sem þar fer fram. Snorri Matthíasson, deildarstjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytis, og Marvin Ingólfsson, aðstoðarframkvæmdastjóri varnarmálasviðs Landhelgisgæslu Íslands, kynntu starfsemina fyrir þátttakendum.
Lars Püss, formaður eftirlitsnefndar Norðurlandaráðs, var gestur fundarins og sagði frá starfi nefndarinnar og fjallaði um starf Norræna fjárfestingarbankans. Þá fjallaði hann um samstarf eftirlitsnefndarinnar við forsætisnefnd og verkaskiptingu þeirra á milli. Þá var rætt um stjórnsýsluhindranir. Lögð var áhersla á eftirfylgni með fyrirspurnum sem bornar höfðu verið upp við ráðherra þar að lútandi. Einnig var rætt um hvernig meta mætti áhrif tillagna, sem fram voru lagðar, á stjórnsýsluhindranir. Rætt var um að uppfæra skilgreiningu á norrænu notagildi og fella stjórnsýsluhindranir inn í hana.
Á fundinum voru samþykktar tillögur. Samþykkt var að hafa viðbótarkosningu í hagvaxtarnefnd, tillaga um norrænt þekkingarsetur um gervigreind var samþykkt, samþykkt var tillaga um stafrænt ökuskírteini fyrir öll norræn ríki og ákveðið var að taka tillögu um aukið vægi í allsherjarviðbragðssamstarfi til frekari vinnslu.
Þá var fjallað um lýðræðishátíð og þátttöku ungs fólks, samskipti við varnarmálaráðherra og pólitískt samráð, alþjóðamál, þátttöku Norðurlandaráðs í loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna og kvennanefndarfundi Sameinuðu þjóðanna. Norðurlandaráðsþing sem haldið var í Stokkhólmi í október var einnig rætt og mat lagt á hvað vel hefði gengið og hvað betur mætti fara. Samþykktur var aukastuðningur við Norðurlandaráð æskunnar til þess að halda sumarbúðir í Útey næsta sumar. Verkáætlun og alþjóðastefna fyrir árið 2026 voru samþykktar og rætt var um sumarfundi nefnda Norðurlandaráðs sem fram áttu að fara sumarið 2026.
Lýst var almennri ánægju með aukna þátttöku Grænlands, Færeyja og Álandseyja í forsætisnefnd en umræða varð um jafnvægi milli flokkahópa og landsfulltrúa og ákveðið að viðhafa þáverandi fyrirkomulag í tvö ár.
Að forsætisnefndarfundi loknum héldu forsætisnefnd Norðurlandaráðs og Eystrasaltsþingið sameiginlegan fund. Á dagskrá fundarins var staða smáríkja í alþjóðamálum og staða og framtíð Istanbúlsamningsins. Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, og Mãris Andzãns, forstöðumaður miðstöðvar alþjóðastjórnmála í Ríga í Lettlandi, voru gestir fundarins og héldu fyrirlestra um stöðu Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem smáríkja við breytta stöðu alþjóðastjórnmála. Kom fram hjá þeim, sem og í umræðum sem á eftir fylgdu, áhersla á mikilvægi samvinnu þessara ríkja. Að lokum var rætt um stöðu Istanbúlsamningsins og framtíð hans í ljósi fyrirætlana Lettlands um að segja sig frá samningnum. Jãnis Vucãns, forseti Eystrasaltsþingsins, skýrði frá stöðunni og Eva Lindh, formaður velferðarnefndar Norðurlandaráðs, tók þátt í umræðum sem á eftir fóru.
5. Ársfundur Þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins (BSPC) í Maríuhöfn á Álandseyjum 2.–26. ágúst 2025.
Af hálfu Íslandsdeildar Norðurlandaráðs sóttu ársfundinn Dagbjört Hákonardóttir formaður og Bryndís Haraldsdóttir varaformaður auk Helga Þorsteinssonar ritara. Ársfundurinn fór fram í þinghúsi lögþings Álandseyja í Maríuhöfn. Á fundinn komu rúmlega tvö hundruð þingmenn, embættismenn og aðrir gestir. Öll norrænu þingin átta eiga aðild að Þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins (e. Baltic Sea Parliamentary Conference, BSPC) ásamt þingum Eystrasaltsríkja, Póllands, Þýskalands og þýsku sambandslandanna Hamborgar, Bremen, Slésvíkur-Holtsetalands og Mecklenburg-Vorpommern. Færeyingar sendu fulltrúa á ársfund í fyrsta sinn í mörg ár. Norðurlandaráð, Eystrasaltsþingið og Evrópuþingið eiga jafnframt aðild að samtökunum.
Dagskrá hófst sunnudaginn 24. ágúst með undirbúningsfundum þar sem fjallað var um drög að ályktun ársfundar og fleiri málefni. Ársfundurinn hófst á mánudegi með ávörpum frá Alexander Stubb, forseta Finnlands, Antoninu Nenasevu, varaforseta þjóðþings Lettlands, og Júlíu Navalnaju, einum af leiðtogum stjórnarandstöðunnar í Rússlandi. Stubb sagði í ræðu sinni að innrás Rússa í Úkraínu árið 2022 hefði markað tímamót í veraldarsögunni á borð við árin 1918, 1945 og 1989. Með innrásinni hefðu Rússar brotið alþjóðalög og nauðsynlegt væri að bregðast við því. Hann fagnaði því að ríkin við Eystrasalt, að Rússlandi undanskildu, væru nú eftir inngöngu Finna og Svía í NATO sameinaðri en nokkru sinni fyrr. Hann hvatti til sameiginlegra aðgerða ríkjanna til að verja neðansjávarinnviði gegn fjölþáttaógnum, til að mynda frá skuggaflota Rússlands.
Ungmenni frá aðildarlöndum og aðildarsvæðum BSPC komu saman í tengslum við ársfundinn og ræddu ýmis málefni sem tengjast Eystrasalti. Í þeim hópi voru fimm fulltrúar frá Íslandi: Bára Örk Melsted, Antonia Hamann, Indrajeet Tambe, Laura Scheefer og Snorri Hallgrímsson. Á fundi ungmenna voru samþykktar ályktanir sem beint var til þingmanna BSPC. Ungmennin gerðu tillögu um lækkun kosninga- og kjörgengisaldurs, aðgerðir til að standa vörð um líffræðilega fjölbreytni, eflingu geðheilbrigðisþjónustu, að loftslagsbreytingar yrðu skilgreindar sem öryggisógn í stjórnarskrám og öðrum grundvallarskjölum, aðgerðir til að auka notkun sjálfbærra orkugjafa og að dregið yrði úr nýtingu jarðefnaeldsneytis. Ungmennin kynntu niðurstöður sínar fyrir þingmönnum BSPC og áttu við þá samtöl í umræðuhópum um einstök málefni.
Á ársfundinum voru kynntar lokaniðurstöður vinnuhóps BSPC um orkuöryggi, sjálfbærni, viðnám og tengjanleika (e. Working Group on Energy Security, Self-sustainability, Resilience and Connectivity) sem starfað hafði undanfarin tvö ár. Margar tillögur í lokaályktun fundarins voru frá vinnuhópnum komnar. Ákveðið var á fundinum að skipa nýjan vinnuhóp um eflingu net- og upplýsingaviðnámsþols til að styrkja lýðræðið (e. Working Group on Strengthening Cyber and Information Resilience to Promote Democracy). Á fundinum var einnig rætt um vistkerfi sjávar, fiskveiðar, loftslagsmál, skipasiglingar, lýðræðið og fleiri málefni. Meðal ræðumanna voru Egils Levits, fyrrverandi forseti Lettlands, Pekka Haavisto, fyrrverandi utanríkisráðherra Finnlands, og fjölmargir sérfræðingar.
Bryndís Haraldsdóttir flutti ræðu undir lok ráðstefnunnar. Hún sagði að þótt Íslendingar byggju ekki í landi við Eystrasalt legðu þeir mikla áherslu á samstarf við aðildarlönd BSPC. Hún benti á að þessi lönd ættu sér mörg sameiginleg gildi. Rétt eins og þjóðum við Eystrasalt væri Íslendingum umhugað um umhverfi sjávar. Einnig nefndi hún að ógnin frá Rússlandi væri til staðar á norðurslóðum rétt eins og við Eystrasalt. Öll aðildarríki BSPC þyrftu því að standa saman til að verjast þeim öflum sem virtu að vettugi alþjóðalög og lýðræðisleg gildi.
Við lok ráðstefnunnar var að venju samþykkt ítarleg sameiginleg ályktun sem send var ríkisstjórnum landa við Eystrasalt. Eins og undanfarin ár bar landsdeild Íslands fram tvær tillögur, aðra um réttindi minnihlutahópa og hina um kynferðislegt sjálfræði kvenna. Voru þær báðar samþykktar og urðu þar með hluti af ályktuninni. Einnig var samþykkt að lýsa stuðningi við óskoraðan rétt Grænlendinga til að ráða eigin landi og framtíð. Jafnframt var lýst stuðningi við fullveldi, sjálfstæði og friðhelgi yfirráðasvæðis Úkraínu og við tilraunir Úkraínumanna til að fá aðild að Evrópusambandinu. Í ályktuninni var enn fremur fjallað um ráðstafanir til að efla samstarf um eftirlit og aðgerðir til að stemma stigu við siglingum skuggaflota Rússlands um Eystrasalt, um verndun fiskistofna og mörg fleiri mál. Ályktunin var birt í heild á vef Þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins.
Með ráðstefnunni í Maríuhöfn lauk formennskutíð Álandseyja í BSPC og þar með forsetatíð Alfons Röbloms, þingmanns á lögþingi Álandseyja. Nýr forseti varð Kristina Herbst, sem jafnframt er forseti landsþings þýska sambandslandsins Slésvíkur-Holtsetalands. Ráðstefnan í Maríuhöfn var jafnframt sú síðasta sem Bodo Bahr, framkvæmdastjóri BSPC, sá um. Bahr hafði gegnt stöðu framkvæmdastjóra samtakanna frá árinu 2014 en starfaði áður lengi að málefnum BSPC í tengslum við störf fyrir landsþing þýska sambandslandsins Mecklenburg-Vorpommern. Eftirmaður Bahrs er Jan Diedrichsen frá Slésvík-Holtsetalandi.
6. Verðlaun Norðurlandaráðs.
Verðlaun Norðurlandaráðs árið 2025 voru afhent í þinghúsi Ríkisdags Svíþjóðar í Stokkhólmi 28. október í tengslum við 77. þing ráðsins. Veitt voru verðlaun í fimm flokkum fyrir bókmenntir, barna- og unglingabókmenntir, kvikmyndir, tónlist og umhverfismál. Nánari upplýsingar um verðlaunahafa ársins má nálgast á vefsvæðinu www.norden.org.
7. Starfsáætlun og áherslur Norðurlandaráðs fyrir árið 2026.
Finnland og Álandseyjar gegna formennsku í Norðurlandaráði árið 2026 og verður Norðurlandaráðsþing haldið í Helsinki. Formennskuáætlunin ber heitið „Almennt öryggi á Norðurlöndum“. Meginmarkmiðið er að styrkja viðbúnað og viðnámsþrótt Norðurlanda gagnvart áskorunum framtíðar með markvissara samstarfi. Móta á sameiginlega sýn á öryggismál og gera norræna samvinnu sýnilegri á öllum stigum samfélagsins. Jafnframt verður lögð áhersla á að eyða stjórnsýsluhindrunum og efla tengsl við samfélagið til að tryggja að norrænt samstarf skili íbúum á svæðinu sem mestum ávinningi.
Alþingi, 3. febrúar 2026.
| Dagbjört Hákonardóttir, form. |
Halla Hrund Logadóttir, varaform. | Bryndís Haraldsdóttir. |
| Guðmundur Ari Sigurjónsson. | Jón Gunnarsson. | Sandra Sigurðardóttir. |
| Sigurjón Þórðarson. |
Fylgiskjal I.
Tillögur sem lagðar voru fram á árinu.
A 2007/UVU – Þingmannatillaga um að gera greiningu á kjörum vinnuferðalanga á Norðurlöndum.
A 2009/UKK – Þingmannatillaga um að Norðurlönd samræmi rannsóknir um borgarasamfélag og alþýðufræðslu.
A 2010/UKK – Þingmannatillaga um norrænt samstarf um stuðning við óháða blaðamennsku.
A 2011/UVU – Þingmannatillaga um samstarf ríkisstjórna Noregs, Svíþjóðar og Finnlands um samgönguleið frá Atlantshafsströndinni í Noregi til suðausturhluta Finnlands.
A 2012/UVU – Þingmannatillaga um að efla stöðu launafólks á vinnumarkaði Norðurlanda.
A 2013/UHN – Þingmannatillaga um samnorrænan hringrásarmarkað með byggingarefni.
A 2014/UKK – Þingmannatillaga um samræmingu starfsnáms í byggingagreinum.
A 2015/UVU – Þingmannatillaga um stafrænt ökuskírteini á öllum Norðurlöndum.
A 2016/UHN – Þingmannatillaga um plöntukynbætur í náttúruverndarskyni.
A 2017/UVN – Þingmannatillaga um aukið norrænt samstarf í baráttunni gegn ofbeldi í nánum samböndum.
A 2018/UKK – Þingmannatillaga um að víkka út verðlaun Norðurlandaráðs til að þau nái einnig til myndlistar og handverkslistar.
A 2020/UVN – Þingmannatillaga um norrænt jafnréttis- og jafnræðisframtak.
A 2021/PRE – Þingmannatillaga um að breyta fjárfestingarstefnu Norræna fjárfestingarbankans.
A 2022/PRE – Þingmannatillaga um lýsingu á afleiðingum að því er varðar norrænt notagildi, samþættingu á svæðinu og afnám stjórnsýsluhindrana.
A 2023/PRE – Landsdeildartillaga um aukinn viðbúnað og aðfangaöryggi í Norður-Atlantshafi – samnorræn ábyrgð.
A 2024/UVU – Nefndartillaga um stefnu Norðurlandaráðs um frjálsa för.
A 2025/PRE – Forsætisnefndartillaga um breytingar á starfsreglum Norðurlandaráðs.
A 2026/PRE – Þingmannatillaga um norræna lýðræðisráðstefnu.
A 2027/PRE – Þingmannatillaga um að auka vægi allsherjarviðbúnaðar í norrænu samstarfi.
A 2028/UKK – Þingmannatillaga um þvernorræna jafningjaúttekt á menntun og rannsóknum.
A 2029/UVN – Nefndartillaga um öldrunarþjónustu á Norðurlöndum í framtíðinni.
A 2030/UKK – Þingmannatillaga um norræna eftirlitsnefnd.
A 2031/UHN – Þingmannatillaga um fiskveiðistjórnun í Eystrasalti með hliðsjón af auknum viðbúnaði.
A 2032/UHN – Þingmannatillaga um vísindalega samstillingu á Norðurlöndum um fiskveiðistjórnun á norrænum miðum.
B 349/PRE – Ráðherranefndartillaga um fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar 2026.
Fylgiskjal II.
Formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja í Norðurlandaráði 2026: Almennt öryggi á Norðurlöndum.
Lipurt norrænt samstarf á óvissutímum.
Heimurinn gengur nú í gegnum miklar breytingar og ríkjandi ástand í alþjóðamálum reynir á hina rótgrónu og reglubundnu heimsskipan. Í febrúar 2022 hóf Rússland innrásarstríð gegn Úkraínu. Innrásin brýtur í bága við stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og alþjóðalög. Öll norrænu löndin fordæma hernað Rússlands í Úkraínu og styðja sjálfstæði Úkraínu og yfirráð yfir landsvæði sínu.
Norrænu löndin hafa lengi unnið að því að efla jafnrétti, mannréttindi og lýðræðisleg gildi og stuðla að friði. Álandseyjar eru gott dæmi um friðsamlega leið til að leysa ágreining. Við verðum að halda áfram á þeirri braut og gera enn betur. Fylgni við lög og alþjóðasamninga, traust og sameiginlegar leikreglur eru hornsteinar norrænna samfélaga eins og sjá má í stefnu Norðurlandaráðs í alþjóðamálum.
Við verðum einnig að halda áfram að dýpka norrænt samstarf á sviði utanríkis-, öryggis- og varnarmála. Með nánu samstarfi við líkt þenkjandi þjóðir getum við áorkað meiru á alþjóðavettvangi. Í öllu alþjóðasamstarfi eiga norræn sérkenni og norrænn ávinningur að vera skýr.
Viðnámsþolin samfélög - öryggi og sjálfbærni á Norðurlöndum.
Áfallaþol okkar helst í hendur við aðgerðaáætlun um almennt öryggi. Með samvinnu yfirvalda, atvinnulífs, stofnana og almennings tryggjum við best mikilvæga samfélagslega starfsemi á öllum sviðum og undir öllum kringumstæðum. Útgangspunkturinn er sá lagagrundvöllur og starfsemi sem gildir undir venjulegum kringumstæðum. Ýmiss konar ógnir steðja að mikilvægri samfélagsstarfsemi og leiðirnar til að mæta þeim eru líka af ýmsu tagi.
Andlegt áfallaþol er hluti af almennu öryggi. Með því er átt við hæfni einstaklinga og samfélagsins til að standast andlegt álag sem krísur valda og getu til að takast á við afleiðingar þeirra. Góður andlegur viðnámsþróttur flýtir fyrir endurheimt eftir áföll.
Mörg norrænu landanna eru í fremstu röð hvað almannavarnir varðar. Gott dæmi um það eru finnsku lögin um almannavarnir og samhæfð áætlun um námskeið um landvarnir. Þar er að finna yfirgripsmiklar leiðbeiningar og aðgerðaráætlanir varðandi viðbrögð við áföllum og áfallastjórnun. Á sviði norrænnar samvinnu hefur líka náðst umtalsverður árangur í þróun viðbragðsáætlana. Norðurlandaráð samþykkti fyrstu stefnu sína um samfélagsöryggi árið 2019. Enestam-skýrslan um almannavarnir var unnin 2021 og framkvæmd hennar kallar á aðgerðir. Að frumkvæði forsætisráðherra Finnlands, Petteri Orpo, er sameiginlegt norrænt samstarfsnet um aðfangaöryggi í undirbúningi.
Norrænt almannavarna- og öryggissamstarf verður að dýpka og því verður að flýta jafnt á sviði áætlanagerðar sem athafna. Mikilvægt er að þetta samstarf nái til allra málefnasviða og að þau vinni saman. Áríðandi er að fram fari umræða um sameiginlegar ógnir og áhættur og hvaða þætti eigi helst að verja. Í formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja í Norrænu ráðherranefndinni fyrir árið 2025 er lýst svokölluðum demanti um almennt öryggi á sviði norrænnar samvinnu.
Hernaðarviðbúnaður og almannavarnir á Norðurlöndum.
Á formennskuárinu verður lögð áhersla á að þróa frekar norræna öryggis-, varnar- og utanríkisstefnu. Enn fremur verður hugað að uppfærslu Helsingforssamningsins, vinnunni í tengslum við bætt aðfangaöryggi og almannavarnir og baráttunni gegn upplýsingaóreiðu og fjölþáttaógnum. Samhæfing og samvinna landanna á krísutímum verður aukin og látin ná til æ fleiri málefnasviða, þar á meðal heilbrigðismála.
Samstarf norrænu landanna eykst sífellt innan NORDEFCO og Atlantshafsbandalagsins. Norræn varnarsamvinna tengist líka aðfangaöryggi og innviðum. Samhliða varnarsamvinnu á sér stað umfangsmikil samvinna á sviði almannavarna, til dæmis innan Haga-samstarfsins. Hernaðarviðbúnaður og almannavarnir verða miðlægir þættir í formennskutíð Finnlands. Náið norrænt samstarf er mikilvægt varðandi innra öryggi, m.a. í tengslum við skipulagða glæpastarfsemi sem teygir sig yfir landamæri.
Hlutur menntunar og menningar í viðbragðsáætlunum.
Menning og almenn menntun skipta miklu máli fyrir norræn samfélög, andlegt áfallaþol íbúanna og aðfangaöryggi. Í samstarfi við almenning, félagasamtök og norrænar stofnanir verður staða menningar og menntunar styrkt.
Finnland mun í formennskutíð sinni styðja samnorræn verkefni sem bæta líðan barna og ungmenna og stuðla að bættri menntun og símenntun. Þetta eykur jöfnuð og samfélagslega einingu. Með slíkri samvinnu á að tryggja að menntakerfin ýti undir gagnrýna hugsun, jafnrétti, lýðræðisleg gildi og þátttöku og komi í veg fyrir skautun.
Undir formennsku Finnlands heldur Norðurlandaráð áfram að styrkja samstarf landanna í baráttunni við fjölþáttaógnir og takast á við siðferðilegar og samfélagslegar afleiðingar af þróun gervigreindar. Með samnorrænu frumkvæði og aðgerðum til að bæta fjölmiðlalæsi og stafræna hæfni má bæta möguleika almennings til að átta sig á og berjast gegn upplýsingaóreiðu. Sameiginlegar aðferðir verða þróaðar og bestu aðferðum miðlað til að tryggja að gervigreind þróist á ábyrgan hátt og börn og ungmenni hljóti vernd á netinu. Jafnframt verða nýttir þeir möguleikar sem gervigreind býður upp á.
Norrænt heilsuöryggi.
Heilsuöryggi er veigamikill þáttur í almennu öryggi á Norðurlöndum. Að tryggja heilsuöryggi krefst samvinnu, til dæmis varðandi viðbrögð við heilbrigðisógnum framtíðarinnar, svo sem nýjum farsóttum. Með framtíðaráföll í huga munu norrænu löndin halda áfram að þróa sameiginlegar aðgerðaáætlanir sem koma í veg fyrir stjórnsýsluhindranir og tryggja árangursríka samhæfingu. Norrænu löndin nýta sér skýrslur Könbergs og Enestams til að efla samvinnu sína. Í samræmi við ráðleggingar í þessum skýrslum halda löndin áfram að berjast gegn sýklalyfjaónæmi, þróa sérhæfða heilbrigðisþjónustu og tæknilausnir í velferðarþjónustu og stuðla að hreyfanleika sjúklinga. Áfram verður unnið að sameiginlegum bóluefnakaupum og samhæfðri uppbyggingu viðbúnaðarbirgða heilbrigðisgeirans.
Undir forystu Finnlands mun Norðurlandaráð styðja við vinnuna við að efla félagslega sjálfbærni og samfélagslegt jafnrétti. Sérstaklega verður athygli beint að líðan barna og ungmenna í viðkvæmri stöðu. Norrænu löndin skiptast á upplýsingum um bestu aðferðir við að berjast gegn útilokun og styðja við verkefni sem ýta undir þátttöku ungmenna og bæta líðan þeirra.
Náið norrænt samstarf um samgöngur og verndun innviða.
Norrænu löndin eru fámenn málsamfélög. Á tímum ákafrar hnattvæðingar og tæknibreytinga rísa Norðurlönd úr hafi eins og klettur lýðræðis, jafnréttis og trausts. Hvernig getum við lagað okkur að breytingum í ótryggri veröld og breytt veikleikum í samkeppnisforskot? Hvernig getum við staðið vörð um hreyfanleikann á milli landa og fyrirtækja, vel smurða innviði og flæði framleiðslu og upplýsinga - án þess að gleyma borgurunum?
Finnland mun í formannstíð sinni vinna að langtímaáætlun um norræna samræmingu á sviði flutninga og innviða. Bæði er þörf á stofnun sem tæki ábyrgð á umfangsmikilli samræmingu og síðan nýtast þeir samstarfsmöguleikar sem fyrir hendi eru ekki nægilega vel. Í öllum krísum verða Norðurlönd að halda samkeppnishæfni sinni á sjálfbæran, hagkvæman og öruggan hátt með nýsköpun, tækni og gervigreind.
Þegar ástand í öryggismálum er ótryggt skipta flutningar og innviðir sköpum fyrir hæfni samfélaga til að starfa eðlilega. Undir forystu Finnlands verður lögð aukin áhersla á áætlanir um að breyta almennum innviðum í hernaðarlega (mannvirki með tvöfalt notagildi) ef nauðsyn krefur. Þar að auki beinum við sjónum sérstaklega að siglingum á Eystrasalti, veikleikum í aðfangaöryggi og ásigkomulagi umhverfisins. Á mörgum sviðum má setja aukinn kraft í samvinnuna, til dæmis varðandi möguleika á að sjá fyrir og verjast fjölþáttaógnum, opna nýjar samgönguleiðir og samskiptanet ásamt því að viðhalda þeim sem fyrir eru. Ekki má heldur gleyma nyrstu svæðunum.
Við heitum því að virða sjórétt en öryggi á sjó og vernd neðansjávarinnviða mun í framtíðinni kalla á öflugra og umfangsmikið eftirlit á hafsvæðum sem skipta miklu máli fyrir aðfangaöryggi í Evrópu.
Siglingaöryggi á Eystrasalti og fæðuöryggi.
Loftslagsaðgerðir og græn umskipti styðja við almannavarnir og aðfangaöryggi með því að bæta aðgengi að björgum, draga úr áhrifum loftslagsbreytinga og efla almennt öryggi og efnahagslega sjálfbærni. Öflun málma sem nauðsynlegir eru fyrir raforkunotkun er mikilvægur hluti grænna lausna. Undir forystu Finnlands verður aðgerðum haldið áfram til að tryggja hráefnisöflun og sjálfbæra orkuframleiðslu. Öflugt hringrásarhagkerfi ýtir undir hagkvæma nýtingu hráefna.
Sjálfbærni í landbúnaði og fiskveiðum er mikilvæg fyrir aðfanga- og fæðuöryggi auk þess sem hún skiptir sköpum varðandi viðhald líffræðilegrar fjölbreytni. Sjálfbær nýting hafsvæða og vernd sjávar nær m.a. til sjálfbærra veiða, öruggra siglinga og framleiðslu endurnýjanlegrar orku.
Nú á tímum óvissu í öryggismálum er nauðsynlegt að taka tillit til þeirrar áhættu sem tengist öruggum orkuflutningum, tölvusamskiptum og umhverfismengun í Eystrasalti. Undir forystu Finnlands verður lögð sérstök áhersla á baráttuna gegn loftslagsbreytingum og varðveislu líffræðilegrar fjölbreytni að ógleymdum öðrum ógnum sem krefjast athygli.
Rótfesta í löndunum.
Í formennskutíð Finnlands verður áfram unnið að því að treysta baklandið í löndunum á grundvelli sænsku formennskuáætlunarinnar. Mikilvægt er að norræn samvinna eigi sér rótfestu og tengist jafnt þjóðþingunum sem almenningi í löndunum. Sérstök áhersla verður lögð á að auka bein samskipti fagnefnda þjóðþinganna og landsdeildanna í Norðurlandaráði. Sameiginleg viðmið verða mótuð með því að miðla góðum aðferðum og vinna að beinum markmiðum og lausnum, til dæmis við afnám stjórnsýsluhindrana. Löndin skiptast einnig á dæmum um vel heppnað norrænt samstarf um löggjafarstarf.
Norrænu löndin og norrænt samstarf verður sýnilegra og öðlast aukið vægi í samvinnu við borgarasamfélagið, til dæmis í norrænu félögunum. Þær leiðir sem Norðurlandaráð býr yfir til að gera samstarfið sýnilegra á öllum sviðum samfélagsins verða þróaðar frekar. Hægt væri að vinna gegn rörsýn og auka skilvirkni í starfi Norðurlandaráðs í heild.
Norræn framtíðarsýn um almennt öryggi.
Norðurlandaráð ætti að stefna að samnorrænni framtíðarsýn um almennt öryggi. Ríkisstjórnir landanna verða að vinna nánar saman að því að búa Norðurlönd enn betur undir framtíðaráföll og -áskoranir. Norðurlandaráð mun gegna mikilvægu hlutverki varðandi samstarf um almennt öryggi á Norðurlöndum.
Í formennskutíð Finnlands mun forsætisnefndinni og fagnefndum bjóðast að fjalla um viðfangsefnið almennt öryggi. Hvaða ógnir steðja að Norðurlöndum á sviði almannavarna og viðnámsþols að mati forsætisnefndarinnar og fagnefndanna og hvað geta þær gert til að efla almannavarnir og viðbúnað á Norðurlöndum? Með formennskuáætluninni hvetjum við stofnanir Norðurlandaráðs til þess að leggja sitt af mörkum til þessarar mikilvægu vinnu.