Ferill 238. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.

Þingskjal 730  —  238. mál.
Leiðréttur texti.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um brottfall laga um Heyrnar- og talmeinastöð, nr. 42/2007.

Frá minni hluta velferðarnefndar.


    Minni hlutinn tekur undir markmið frumvarpsins að því leyti sem það miðar að því að leggja niður sérstaka ríkisstofnun um heyrnar- og talmeinaþjónustu þannig að þjónusta á þessu sviði megi flytjast til heilsugæslunnar. Þegar ráðherrann mælti fyrir málinu lýsti hann því hins vegar yfir að ekki væri ætlunin að Heyrnar- og talmeinastöð (HTÍ) hætti að starfa. Stangast það á við efni frumvarpsins. Bera þessi ummæli vott um að nokkuð skorti á framtíðarsýn í málaflokknum.
    Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að þjónusta við heyrnarskerta hafi í vaxandi mæli flust til sjálfstætt starfandi heyrnarfræðinga sem hafa aukið aðgengi að þjónustunni og aukið úrval heyrnartækja sem í boði eru. Þá hafa sjálfstætt starfandi talmeinafræðingar tekið við nánast allri þjálfun einstaklinga með talmein. Í þessu ljósi telur minni hlutinn gagnrýnivert að frumvarpið taki ekki mið af þessum veruleika með því að skýra og takmarka hlutverk það sem heilsugæslunni er ætlað að taka yfir.
    Bæði í framsöguræðu ráðherra um málið og við umfjöllun nefndarinnar mátti greina nokkurn misskilning varðandi eðli þeirrar þjónustu sem heyrnarskertum er veitt nú af hendi HTÍ eða sjálfstætt starfandi heyrnarfræðinga. HTÍ hefur selt heyrnartæki í samkeppni við einkaaðila sem þó hafa haft forgöngu um fjölbreytt úrval heyrnartækja, bæði að því er varðar gæði og verð. Af umfjöllun nefndar um málið þykir minni hlutanum óljóst hvort Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sé ætlað að lögum, eða hefði í hyggju án lagaheimildar, að selja heyrnartæki.
    Minni hlutinn telur óheppilegt að frumvarpið taki ekki af allan vafa um það að heilsugæslunni, sem veitanda fyrsta stigs þjónustu á þessu sviði, sé ekki ætlað að selja almenningi heyrnartæki í samkeppni við sjálfstætt starfandi söluaðila á markaði.
    Í umsögnum kemur fram að starfsemin sé vanfjármögnuð og biðlisti sem varð til hjá HTÍ og fylgir með inn í heilsugæsluna sé langur.
    Greiningar á biðlistum liggja ekki fyrir. Hins vegar liggur fyrir að bið eftir þjónustu sjálfstætt starfandi heyrnarfræðinga er 2–3 vikur. Mætti ætla að margir sem hafa verið á biðlista hjá HTÍ hafi nú þegar fengið heyrnarþjónustu annars staðar. Minni hlutinn gagnrýnir að ekki liggi fyrir greining á biðlista HTÍ við þá kerfisbreytingu sem áformuð er, t.d. greining á því af hverju menn skrá sig á biðlista hjá HTÍ þegar þjónustuna er hægt að fá nánast umsvifalaust annars staðar. Ekki er ólíklegt að það stafi af ranghugmyndum almennings, einkum aldraðra, um niðurgreiðslu þjónustu og verð á heyrnartækjum.
    Heyrnartæki fást keypt á mismunandi verðbili að því er fram kemur í opinberum verðskrám. Landssamband eldri borgara minnir á það í umsögn sinni að heyrnartæki séu orðin svo dýr að fjöldi eldri borgara hafi ekki efni á að kaupa sér heyrnartæki þó að viðkomandi sé í brýnni þörf. HTÍ hefur aldrei birt verðskrá opinberlega og þannig ekki sinnt skyldu um neytendavernd heldur þvert á móti stuðlað að upplýsingaóreiðu um þessa þjónustu sem einkum aldraðir þurfa á að halda.
    Við meðferð málsins kom fram nokkur misskilningur varðandi fyrsta og annars stigs þjónustu í málaflokknum. Um leið var oft vísað í skýrslu starfshóps um framtíð heyrnarþjónustu sem gefin var út í febrúar árið 2025. Í skýrslunni er lagt til (á bls. 11) að hlutverk heilsugæslunnar verði að sinna fyrsta stigs þjónustu, sem er einfalt heyrnarpróf, snemmtæk íhlutun, forvarnir og skráning heilsufarsupplýsinga. Þar er lögð áhersla á að heilbrigðisstarfsfólk á fyrsta stigi, t.d. starfsmenn heilsugæslunnar, vísi fólki með líklegt heyrnartap áfram til sjálfstætt starfandi heyrnarfræðinga eða sérhæfðrar þverfaglegrar þjónustueiningar á öðru stigi. Óljóst er hvernig frumvarpinu er ætlað að renna stoðum undir slíka annars stigs þjónustu innan heilsugæslunnar. Um leið er óljóst hvernig heilsugæslan á að geta selt heyrnartæki með tilheyrandi nauðsynlegum löggiltum heyrnarmælingum og þar með tekið á sig óhjákvæmilega þjónustu við notendur þeirra tækja og reglubundna stillingu tækjanna.
    Í skýrslu nefnds starfshóps segir (á bls. 24) að varhugavert sé að innleiða stoðstéttir inn í heyrnarþjónustu. Við umræðu í nefndinni mátti greina væntingar um að það yrði þó gert og jafnvel að öðruvísi gæti heilsugæslan ekki sinnt málaflokknum. Minni hlutinn telur bagalegt að frumvarpið afmarki ekki hlutverk heilsugæslunnar þannig að raunhæft sé að hún sinni þeim tilfellum sem sannarlega eiga erindi við hana. Í því sambandi má benda á að afköst sjálfstætt starfandi heyrnarfræðinga virðast vera verulega meiri en hjá hinu opinbera ef borinn er saman afgreiðslutími hjá HTÍ sem hefur verið kl. 9–15 mánudaga til fimmtudaga og kl. 9–12 á föstudögum. Sjálfstætt starfandi heyrnarfræðingar hafa opið kl. 9.00–16.30 alla virka daga og einu sinni í viku til kl. 18.30 til þess að uppfylla þarfir fólks á vinnumarkaði. Þekkt er að biðtími eftir þjónustu heilsugæslunnar er úr hófi langur. Spurningum um hvernig heilsugæslan ætlar að mæta þörfum almennings með hefðbundna aldurstengda heyrnarskerðingu í ljósi þessa var eingöngu svarað í nefndinni með vísun til viðræðna við ráðuneytið um aukið fé til rekstrarins. Minni hlutinn átelur að ekki liggi fyrir betri skilningur á tækifærum sem frumvarpið býður upp á til hagræðingar.
    Minni hlutinn styður frumvarpið með vísan til markmiða þess en hvetur ráðherra til að ljúka undirbúningi að flutningi þjónustunnar til heilsugæslunnar og með skýrari afmörkun á verkefnum heilsugæslunnar en gert er í frumvarpinu. Í þeim efnum er mikilvægt að þjónusta heilsugæslunnar einskorðist við fyrsta stigs þjónustu og þjónustu við börn og skjólstæðinga með alvarlega heyrnarskerðingu. Þjónusta við aðra heyrnarskerta og þá er þurfa þjónustu vegna talmeina verði alfarið á hendi sjálfstætt starfandi á viðkomandi sviði.

Alþingi, 10. febrúar 2026.

Sigríður Á. Andersen,
frsm.
Rósa Guðbjartsdóttir. Sigurður Örn Hilmarsson.
Ingibjörg Isaksen.