Ferill 385. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 732 — 385. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
1. Hversu margir einstaklingar hafa fengið greiðslur á grundvelli laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006, sl. 10 ár?
Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun hefur 201 einstaklingur fengið greiðslur á árunum 2016–2025 á grundvelli laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006.
2. Hversu margir þeirra hafa fengið greiðslur á grundvelli hvers sjúkdómsstigs annars vegar og fötlunarstigs hins vegar skv. 26. og 27. gr. laganna?
Á árunum 2016–2025 fékk eftirtalinn fjöldi einstaklinga greiðslur á grundvelli laga nr. 22/2006, skipt niður eftir fötlunar- og sjúkdómsstigum skv. 26. og 27. gr.:
| 1. fötlunarstig | 36 einstaklingar | 1. sjúkdómsstig | 105 einstaklingar |
| 2. fötlunarstig | 36 einstaklingar | 2. sjúkdómsstig | 86 einstaklingar |
| 3. fötlunarstig | 1 einstaklingur | 3. sjúkdómsstig | 8 einstaklingar |
Greiðslur kunna að hafa verið inntar af hendi vegna barna sem falla undir eitt eða fleiri sjúkdóms- eða fötlunarstig á sama ári þannig að sami einstaklingur kann að vera talinn oftar en einu sinni í framangreindri töflu sem skýrir að samanlagður fjöldi einstaklinga í töflunni er 272 en ekki 201, sbr. svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar.
3. Hversu margir þeirra hafa fengið greiðslur á grundvelli alvarlegrar einhverfu eða verulegrar einhverfu, sbr. 2.–3. tölul. 1. mgr. 27. gr. laganna?
Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun skráir stofnunin einhverfu hvorki sem „alvarlega“ né „verulega“ heldur miðar skráning stofnunarinnar við ICD-10 flokkunarkerfi en innan þess flokkunarkerfis hefur bernskueinhverfa eða dæmigerð einhverfa flokkunina F84.0. Þegar metið er undir hvaða fötlunarstig skv. 1. mgr. 27. gr. laganna fötlun barns fellur er mat lagt á heildarvanda barnsins og er einhverfugreining þar með talin, þegar það á við. Á árunum 2016–2025 fengu 13 einstaklingar greiðslur sem tengdust F84.0 ICD-greiningu barns.
4. Hversu mörgum umsóknum um greiðslur hefur verið hafnað sl. 10 ár?
Tryggingastofnun hefur á árunum 2016–2025 synjað 144 umsóknum um greiðslur á grundvelli laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006.