Ferill 433. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 733  —  433. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003 (frádráttur vegna tómstunda barna).

Flm.: Diljá Mist Einarsdóttir, Ólafur Adolfsson, Hulda Bjarnadóttir, Rósa Guðbjartsdóttir, Sigurður Örn Hilmarsson, Hildur Sverrisdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Jón Pétur Zimsen, Jón Gunnarsson, Jens Garðar Helgason, Árni Helgason.


1. gr.

    Við 1. mgr. 30. gr. laganna bætist nýr stafliður, C-liður, svohljóðandi:
    150.000 kr. vegna hvers barns innan 16 ára aldurs á framfæri forráðamanns sem skráð er í skipulagt æskulýðsstarf. Ráðherra setur með reglugerð nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis.
    Fjárhæð skv. 1. mgr. skal í upphafi hvers árs taka breytingu í réttu hlutfalli við mismun á vísitölu neysluverðs við upphaf og lok næstliðins tólf mánaða tímabils. Fjárhæðina skal birta með auglýsingu ráðherra fyrir upphaf staðgreiðsluárs.
    Það er skilyrði frádráttar skv. 1. mgr. að æskulýðsstarf á árinu standi yfir í tíu vikur hið minnsta og að starfið fari fram undir stjórn eða leiðsögn fagaðila á sviði æskulýðsstarfa, sbr. ákvæði æskulýðslaga, nr. 70/2007.
    Það er og skilyrði frádráttar skv. 1. mgr. að barn hafi skráð lögheimili hjá viðkomandi einstaklingi. Framfærandi telst sá aðili sem hefur barnið hjá sér og annast framfærslu þess í lok tekjuársins, sbr. 68. gr. Hjón, sem skattlögð eru skv. 62. gr., teljast bæði framfærendur og skiptist frádrátturinn milli þeirra til helminga. Hið sama gildir um sambúðarfólk sem uppfyllir í lok tekjuársins skilyrði 3. mgr. 62. gr. enda þótt það óski ekki að vera skattlagt samkvæmt þeirri grein.
    Frádráttur samkvæmt þessum staflið heimilast frá tekjum skv. A- og B-lið 7. gr.
    Hafi foreldrar samið um skipta búsetu á hvort foreldri fyrir sig rétt á 75.000 kr. frádrætti frá tekjum.
    Ráðherra getur með reglugerð sett nánari ákvæði um framkvæmd frádráttar samkvæmt þessum staflið.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2026.

Greinargerð.


    Fjölskyldan er hornsteinn hvers samfélags og fólksfjölgun er forsenda þess að viðhalda samfélagi. Fæðingartíðni hefur lengi verið áhyggjuefni á meginlandi Evrópu, en tíðnin ein og sér viðheldur til að mynda ekki fólksfjölda í neinu Evrópusambandsríki. Lengi vel hafði Ísland sérstöðu í þessum efnum þar sem fæðingartíðni hér hafði verið umtalsvert hærri en í nágrannalöndunum. Nú er öldin hins vegar önnur og fæðingartíðni á Íslandi er í sögulegu lágmarki þannig að ekki dugir til að viðhalda mannfjölda haldi þróunin áfram sem horfir. Þessi breytta staða mun hafa mikil áhrif á aldurssamsetningu þjóðarinnar og þar með velferðarkerfi hennar. Ef fæðingartíðni er of lág til lengri tíma stendur mannfjöldi samfélagsins hreinlega ekki undir velferðarkerfi þess. Samfélag þarf þá að reiða sig á innflytjendur til þess að standa undir því.
    Undanfarin ár hefur þverfræðilegur hópur við Háskóla Íslands skoðað hvað veldur minnkandi fæðingartíðni á Íslandi. Meðal þess sem þegar hefur komið fram er að fæðingartíðni hefur minnkað mest hjá þeim sem eru í lægri tekjuþrepum og er munurinn mjög mikill á efsta og lægsta tekjuþrepi. Þessar niðurstöður ásamt öðru hafa leitt til vangaveltna og orðræðu sem beinist að því hvort barneignir séu orðnar forréttindi.
    Þessar niðurstöður ríma við háværar umkvartanir kvenna á barneignaraldri og aðstandenda þeirra. Staðan sé sú að barneignir hafi verulega neikvæð áhrif á tekjur foreldra, ekki síst mæðra sem taka enn þá mun stærri hluta fæðingarorlofs og lengja það enn frekar. Útgjöld í aðdraganda og strax í kjölfar barneigna, svokallaður byrjunarkostnaður, eru mikil. Dagvistunarvandinn frá því að fæðingarorlofi lýkur og þar til börn fá dagvistunarpláss eykur enn á útgjöld og fjárhagsáhyggjur foreldra. Þótt skylduskólaganga (og nú skólamáltíðir) sé ókeypis fylgja ýmis útgjöld börnum sem hafa lokið leikskólagöngu. Þar má sérstaklega nefna skipulagt frístundastarf grunnskólanna, íþróttir og aðrar tómstundir sem eru mjög kostnaðarsamar þrátt fyrir (eða í takt við) veglegan frístundastyrk sveitarfélaga. Æskulýðsstarfi fylgja oft mikil fjárútlát vegna búnaðar og viðburða sem tengjast starfinu. Æskulýðsstarf er lykilþáttur í forvarnastarfi og þátttaka barna og ungmenna í slíku starfi er mjög góð í samanburði við aðrar þjóðir. Er þá ótalinn hefðbundinn rekstrarkostnaður barnafjölskyldu; fleiri munnar til að metta og kroppar til að klæða.
    Flutningsmenn eru þeirrar skoðunar að skatta þurfi að lækka og opinberar álögur séu of miklar á barnafjölskyldur. Lagt er því til að heimilt verði að draga frá tekjum kostnað við æskulýðsstarf barns, eins og hugtakið er skilgreint í æskulýðslögum, nr. 70/2007. Fjárhæðin nemur 150.000 kr. á barn, eða 75.000 kr. á hvort foreldri hafi foreldrar komist að samkomulagi um skipta búsetu barns. Flutningsmenn telja að með frumvarpi þessu sé stuðningur tryggður við þær með einföldum, gagnsæjum og skilvirkum hætti. Þá hafi frumvarpið forvarna- og lýðheilsugildi.