Ferill 370. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 747  —  370. mál.




Svar


samstarfsráðherra Norðurlanda við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um eingreiðslu og Norðurlandasamninga.


     1.      Er samþykkt Alþingis á frumvarpi um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla), 15. desember sl. í samræmi við stefnu Norðurlandanna um að verða samþættasta svæði í heimi og þá Norðurlandasamninga sem Ísland er aðili að, svo sem Norðurlandasamning um almannatryggingar, Norðurlandasamning um félagslega aðstoð og félagslega þjónustu og Norðurlandasamning um gagnkvæmni varðandi greiðslur vegna skertrar starfshæfni, í ljósi þess að áskilnaður er um að lögheimili sé skráð á Íslandi 1. nóvember 2025 til að einstaklingur fái greiðslu samkvæmt ákvæðinu?
    Í frumvarpi því sem varð að þeim lögum sem fyrirspurnin lýtur að kemur meðal annars fram að frumvarpið þyki hvorki fela í sér efni eða ákvæði sem gefi tilefni til sérstakrar umfjöllunar um samræmi við Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, né heldur alþjóðlegar skuldbindingar Íslands.
    Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er gert ráð fyrir breytingu frá því sem verið hefur undanfarin ár hvað varðar markmið og útreikning á umræddri eingreiðslu þannig að greiðslan komi betur til móts við tekjulægstu hópa þeirra sem fá umrædda eingreiðslu. Þá kom fram í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytisins til velferðarnefndar, dags. 25. nóvember sl., að umrædd greiðsla væri sérstaklega ætluð tekjulægsta hópi lífeyrisþega sem búsettur er hér á landi, enda hefur verðbólga verið hér þrálát og húsnæðiskostnaður hár. Jafnframt kom fram í máli félags- og húsnæðismálaráðherra í umræðu í þingsal hinn 12. nóvember sl., að þau skilyrði sem lögð voru til fyrir umræddri eingreiðslu miði að því að ráðstafa því fjármagni sem gert hafði verið ráð fyrir til eingreiðslunnar á sem sanngjarnastan hátt. Í því sambandi þykir rétt að nefna að umrædd eingreiðsla telst ekki grunnlífeyrir í skilningi Norðurlandasamnings um almannatryggingar.
    Það er því mat samstarfsráðherra Norðurlanda að umrædd eingreiðsla rýri ekki markmið um að Norðurlönd verði samþættasta svæði heims og sé í samræmi við þá Norðurlandasamninga sem vísað er til, enda um að ræða sértæka eingreiðslu sem hefur það að markmiði að styðja við tekjulægstu hópa lífeyrisþega.

     2.      Hvernig samræmist samþykkt framangreinds frumvarps því meginmarkmiði Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar að koma í veg fyrir stjórnsýsluhindranir milli landa?
    Með vísan til svars við 1. tölul. fyrirspurnarinnar þykir samþykkt frumvarpsins ekki vera til þess fallin að koma á stjórnsýsluhindrun milli landa.