Ferill 450. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 758 — 450. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um hlutfall erlends vinnuafls á heilbrigðisstofnunum á Íslandi og stuðning við íslenskunám þess.
Frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.
1. Hver er áætlaður fjöldi starfsmanna með erlendan bakgrunn hjá heilbrigðisstofnunum á Íslandi? Svar óskast sundurliðað eftir opinberum heilbrigðisstofnunum og fjölmennustu einkareknu heilbrigðisstofnununum.
2. Hver var fjölgun þeirra á árunum 2000–2025?
3. Hvernig er stuðningi háttað við erlenda starfsmenn heilbrigðisstofnana varðandi það að ná tökum á íslensku?
Skriflegt svar óskast.