Ferill 400. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 760 — 400. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á kosningalögum, sveitarstjórnarlögum og lögum um lögheimili og aðsetur (sveitarstjórnarkosningar í Grindavíkurbæ).
Frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá dómsmálaráðuneyti, landskjörstjórn, Þjóðskrá Íslands, Grindavíkurbæ, framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur og Járngerði, hagsmunasamtökum Grindvíkinga. Þá barst nefndinni umsögn sem aðgengileg er á vef Alþingis.
Umfjöllun nefndarinnar.
Efni frumvarpsins.
Með frumvarpinu er lagt til að settar verði sérreglur um kosningarrétt og kjörgengi í Grindavíkurbæ vegna sveitarstjórnarkosninga sem fyrirhugaðar eru 16. maí 2026. Fyrir nefndinni var því velt upp hvort efni frumvarpsins fæli í sér fordæmi sem önnur sveitarfélög gætu reitt sig á, t.d. lítil sveitarfélög sem ganga í gegnum efnahagslega erfiðleika. Nefndin telur ekki að svo sé þótt vissulega megi færa ýmis rök fyrir slíku. Að mati nefndarinnar verður slíkum aðstæðum ekki jafnað við þær náttúruhamfarir sem raskað hafa búsetu og daglegu lífi Grindvíkinga frá árinu 2019, sem leiddu til þess að bærinn var rýmdur með valdboði árið 2023. Um er að ræða eitt umfangsmesta verkefni vegna náttúruhamfara sem stjórnvöld hafa tekist á við. Fyrir liggur að um viðvarandi ástand um óvissan tíma er að ræða sem menn stjórna ekki.
Þrátt fyrir hið ótrygga ástand er mikilvægt að unnið verði ötullega að endurreisn samfélagsins í Grindavík. Sú sveitarstjórn sem tekur við eftir næstu sveitarstjórnarkosningar mun standa frammi fyrir mjög umfangsmiklu og krefjandi verkefni. Að mati nefndarinnar er lykilatriði að Grindvíkingum verði veitt tækifæri til að veita þeirri sveitarstjórn sterkt lýðræðislegt umboð til að leiða bæjarfélagið gegnum endurreisnarferlið. Meiri hluti Grindvíkinga hefur af ýmsum ástæðum flutt lögheimili sitt til annarra sveitarfélaga og hefur því ekki kosningarrétt og kjörgengi í Grindavík samkvæmt almennum reglum. Til þess að Grindvíkingar geti kosið í Grindavík í næstu sveitarstjórnarkosningum og átt sæti í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins er nauðsynlegt að mælt verði fyrir um sérreglur um kosningarrétt og kjörgengi. Sú leið sem farin er í frumvarpinu er að mati nefndarinnar sanngjörn og málefnaleg. Lagt er í hendur Grindvíkinga sjálfra að ákveða hvort þeir nýti kosningarrétt í sveitarfélaginu eða í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga nú lögheimili.
Stöðugleiki kosningalaga.
Með frumvarpinu er sem fyrr segir lagt til að settar verði sérreglur vegna sveitarstjórnarkosninga í ár. Skammur tími er til stefnu. Þegar gerðar eru breytingar á kosningalöggjöf þarf að hafa í huga að gætt sé að stöðugleika löggjafarinnar og að almennt séu ekki gerðar breytingar á henni þegar skammt er til kosninga. Þessi sjónarmið koma fram í viðmiðum Feneyjanefndar Evrópuráðsins um kosningaframkvæmd þar sem segir að almennt skuli forðast breytingar á kosningalöggjöf þegar minna en eitt ár er til kosninga.
Að mati nefndarinnar hafa viðmið Feneyjanefndarinnar þann tilgang að koma í veg fyrir að kosningakerfið sé gert óþarflega flókið fyrir kjósendur og að fyrirbyggja að dregið verði úr möguleikum þeirra á því að kynna sér málefni sem kosið er um. Það er jafnframt markmið viðmiðanna að hindra að kosningakerfið fái þá ásýnd að það hygli ákveðnum fylkingum í samfélaginu. Þó er ekki óheimilt að gera breytingar á kosningalögum þótt stutt sé til kosninga enda má ávallt bæta úr ágöllum, sbr. það sem fram kemur í viðmiðum Feneyjanefndarinnar. Þá hefur Alþingi þurft að bregðast við ágöllum með breytingum á kosningalögum með skemmri fyrirvara. Í ljósi mikilvægis kosningalaga sem hafa að markmiði að styrkja lýðræðið og í ljósi viðmiða Feneyjanefndarinnar telur nefndin mikilvægt að stigið verði varlega til jarðar og ekki gerðar meiri breytingar en nauðsynlegar eru ef skammur tími er til kosninga. Þá er einnig mikilvægt að breytingarnar verði kynntar kjósendum. Nefndin telur í þessu sambandi mikilvægt, eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu, að áður en frumvarpið barst Alþingi hafði samráðsferli um efni þess staðið yfir í nokkurn tíma og hinar fyrirhuguðu efnisreglur frumvarpsins því verið til umfjöllunar hjá helstu hagsmunaaðilum nokkru lengur.
Að því sögðu áréttar nefndin að með frumvarpinu er tryggður lýðræðislegur möguleiki Grindvíkinga til að koma að endurreisn samfélagsins á svæðinu með því að nýta kosningarrétt í sveitarstjórnarkosningum. Efni frumvarpsins er afmarkað og felur í sér val fyrir tiltekinn hóp kjósenda. Fyrir nefndinni, líkt og í greinargerð með frumvarpinu, kom jafnframt fram að víðtæk sátt væri um efni frumvarpsins sem rekja má m.a. til víðtæks samráðs. Telur nefndin það til eftirbreytni.
Kynning á efni frumvarpsins.
Þó að efni frumvarpsins sé tiltölulega afmarkað og þó að víðtækt samráð hafi verið haft um málið telur nefndin mikilvægt að efni þess verði kynnt vel. Mikilvægt er að þeir sem hyggjast nýta sér þann möguleika að kjósa í Grindavík séu meðvitaðir um að þá eigi þeir ekki kosningarrétt í öðrum sveitarfélögum við sveitarstjórnarkosningar árið 2026 og séu ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir lögheimilissveitarfélaga meðan þeir gegna slíkum störfum í Grindavík. Þá þarf að huga að ýmsum öðrum verklegum þáttum. Að mati nefndarinnar munu landskjörstjórn og Grindavíkurbær gegna þar lykilhlutverki auk framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur.
Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Jón Gnarr, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Sandra Sigurðardóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en rita undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa. Þórarinn Ingi Pétursson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.
Alþingi, 16. febrúar 2026.
| Vilhjálmur Árnason, form. |
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, frsm. | Jón Gnarr. |
| Bryndís Haraldsdóttir. | Ása Berglind Hjálmarsdóttir. | Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir. |
| Sigmundur Ernir Rúnarsson. | Þorgrímur Sigmundsson. | Sandra Sigurðardóttir. |