Ferill 254. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 762 — 254. mál.
Síðari umræða.
Nefndarálit
um tillögu til þingsályktunar um framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2025.
Frá utanríkismálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Jón Gnarr, formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, og Hildi Edwald, ritara Íslandsdeildar.
Með tillögunni er skorað á ríkisstjórnina að vinna að framkvæmd tveggja ályktana Vestnorræna ráðsins sem samþykktar voru á ársfundi ráðsins 19.–20. ágúst 2025.
Í fyrri ályktuninni (nr. 1/2025) er lagt til að landsstjórn Færeyja, naalakkersuisut á Grænlandi og ríkisstjórn Íslands geri grein fyrir núverandi öryggis- og varnargrundvelli í vestnorrænu löndunum og á milli þeirra og leggi mat á hvernig þróa megi og efla öryggissamstarf á Vestur-Norðurlöndum þannig að íbúar geti lifað öruggu og mannsæmandi lífi.
Í seinni ályktuninni (nr. 2/2024) er lagt til að ráðherrar Vestur-Norðurlanda, sem bera ábyrgð á mikilvægum innviðum, þ.m.t. interneti og fjarskiptum, hittist á fundi til að ræða öryggi mikilvægra fjarskipta- og internetinnviða á Norður-Atlantshafi, einkum hvað varðar sæstrengi og gervihnattatengingar. Í ályktuninni er einnig lagt til að ráðherrar Vestur-Norðurlanda, sem bera ábyrgð á mikilvægum innviðum, kanni í tengslum við fund sinn hvort grundvöllur sé fyrir samstarfi um öryggi og viðbragðsáætlanir í tengslum við sæstrengi og gervihnattatengingar landanna á Norður-Atlantshafi.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Alþingi, 16. febrúar 2026.
| Pawel Bartoszek, form. |
Dagbjört Hákonardóttir, frsm. | Árni Helgason. |
| Diljá Mist Einarsdóttir. | Karólína Helga Símonardóttir. | Sigurður Helgi Pálmason. |
| Sigurður Ingi Jóhannsson. | Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. | Víðir Reynisson. |