Ferill 264. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 763 — 264. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um aðgengi að vefsetrum og smáforritum opinberra aðila.
Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, Barnaheillum, BHM, Hagsmunasamtökum heimilanna, ÖBÍ réttindasamtökum, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Samtökum iðnaðarins.
Nefndinni bárust átta umsagnir sem eru aðgengilegar undir málinu á vef Alþingis.
Frumvarpinu er ætlað að innleiða í landsrétt ákvæði tilskipunar (ESB) 2016/2102 um aðgengi vefsetra opinberra aðila og smáforrita þeirra fyrir fartæki. Markmið tilskipunarinnar er að tryggja að vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum opinberra aðila séu aðgengileg öllum, einkum fötluðu fólki, með því að gera þau skynjanleg, nothæf, skiljanleg og traust.
Umfjöllun nefndarinnar.
Í umsögnum sem nefndinni bárust um málið lýstu umsagnaraðilar almennt yfir ánægju með og stuðningi við innleiðingu tilskipunarinnar og markmið frumvarpsins. ÖBÍ réttindasamtök telja frumvarpið lykilskref í átt að raunverulegu jafnrétti á sviði stafrænnar stjórnsýslu. Benda þau á mikilvægi þess að markmið frumvarpsins nái fram að ganga og að raunveruleg réttindi séu tryggð með skýrum kröfum, eftirliti, úrræðum og virkri þátttöku notenda. Hins vegar komu fram ábendingar frá nokkrum umsagnaraðilum sem nefndin fjallaði um og vert er að gera stuttlega grein fyrir.
Í umsögn BHM og Barnaheilla komu fram ábendingar um gildissvið frumvarpsins. BHM benti á að þrátt fyrir að tilskipun (ESB) 2016/2102 tæki eingöngu til opinberra aðila, þá kvæðu alþjóðlegar skuldbindingar, svo sem aðrar tilskipanir Evrópusambandsins og 9. gr. Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, á um að einkaaðilum bæri jafnframt að tryggja aðgengi og taka mið af þörfum fatlaðs fólks. Þá komu fram sjónarmið í umsögn Barnaheilla um hvort tilefni væri til að aðlaga frumvarpið enn betur að íslenskum veruleika. Sérstaklega var bent á undanþágu frumvarpsins sem veitt er vefsetrum útvarpsrekenda í almannaþágu en þau telja að gera eigi sömu kröfur til Ríkisútvarpsins og gerðar eru til annarra vefsetra opinberra aðila.
Meiri hlutinn bendir á að við innleiðingu ESB-gerða skuli frumvörp að meginstefnu aðeins fela í sér þær breytingar sem nauðsynlegar eru til að endurspegla þá EES-skuldbindingu sem við á. Þá kemur einnig fram í greinargerð með frumvarpinu að sú undanþága sem gildir um útvarpsrekendur í almannaþágu sé ekki ákvörðun íslenskra stjórnvalda, heldur komi hún beint fram í 1. gr. tilskipunarinnar sjálfrar. Rökstuðningur tilskipunarinnar er sá að tryggja þurfi jafna samkeppnisstöðu við einkarekna miðla og því sé eðlilegra að fjalla um þessi mál í sérstakri fjölmiðlalöggjöf.
Þá ræddi nefndin um skilgreiningu á opinberum aðilum, sbr. 1. tölul. 3. gr. frumvarpsins, en í skýringum við ákvæðið í greinargerð kemur fram að skilgreiningin sé í samræmi við orðskýringu sem kemur fram í lögum um opinber innkaup, nr. 120/2016. Þá kemur fram í 2. tölul. 2. mgr. 2. gr. að lögin gilda ekki um vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum frjálsra félagasamtaka nema þau veiti þjónustu sem er nauðsynleg almenningi eða þjónustu sem beinist sérstaklega að þörfum fatlaðs fólks. Bendir meiri hlutinn á í því sambandi að samkvæmt lögum um opinber innkaup, sem skilgreining á opinberum aðila í þessu lagafrumvarpi vísar til, geta frjáls félagasamtök talist opinberir aðilar sé starfsemi þeirra rekin á kostnað opinberra aðila, ef opinber fjármögnun nemur meira en 50% af árlegum rekstrarkostnaði.
Samband íslenskra sveitarfélaga fagnar markmiðum frumvarpsins en gerir nokkrar athugasemdir. Bendir sambandið á að ráðherra hafi víðtækar heimildir til að leggja dagsektir á opinbera aðila sem sinni ekki fyrirmælum stjórnvalda í samræmi við kröfur frumvarpsins. Lagt er til að kveðið verði á um tiltekna hámarksfjárhæð dagsekta. Því tengdu bendir sambandið jafnframt á stuttan innleiðingartíma, sérstaklega með tilliti til þess að rekstraraðilar skóla og leikskóla séu í mörgum tilvikum háðir þjónustu einkaaðila sem þurfi að aðlaga eigin kerfi að nýjum kröfum sem geti tekið tíma. Loks gerði sambandið athugasemdir við að kostnaðarmat á fjárhag sveitarfélaga hafi ekki farið fram í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.
Meiri hlutinn bendir á að í greinargerð með frumvarpinu komi fram að lagt hafi verið mat á heildarkostnað allra aðila, sem byggir á þeirri forsendu að flestir aðilar þurfi á takmarkaðri aðlögun að halda. Þegar hvíli skylda á sveitarfélögum að tryggja aðgengi samkvæmt lögum um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, nr. 85/2018. Í greinargerðinni kemur einnig fram að það sé ávallt á ábyrgð þess sem veitir þjónustu að tryggja að hún uppfylli skilyrði laga, óháð því við hvaða birgja er skipt. Þá sé í frumvarpinu sérstakt ákvæði í 5. gr. um óhóflega byrði, sem sérstaklega er ætlað að mæta aðstæðum minni aðila og koma í veg fyrir ósanngjarnar kröfur.
Meiri hlutinn hefur skilning á þeim sjónarmiðum sem fram hafa komið í umsögnum en hafa þarf í huga markmið frumvarpsins um að tryggja að vefsetur og smáforrit fyrir fyrirtæki á vegum opinberra aðila séu aðgengileg öllum, einkum fötluðu fólki, og telur meiri hlutinn mikilvægt að það nái fram að ganga. Meiri hlutinn undirstrikar að um innleiðingu á tilskipun er að ræða, til hagsbóta fyrir almenning og viðkvæma hópa, en telur ekki rétt að útvíkka úrræðið frá því sem þegar er lagt til með frumvarpinu.
Breytingartillögur.
Gildistaka.
Meiri hlutinn leggur til breytingar á gildistökuákvæði frumvarpsins, m.a. með hliðsjón af ábendingum umsagnaraðila um stuttan innleiðingartíma. Þrátt fyrir að gæta þurfi að innleiðingartíma bendir meiri hlutinn á mikilvægi þess að tryggja tímanlega innleiðingu tilskipunarinnar og að markmið frumvarpsins um aðgengi nái fram að ganga sem fyrst, til hagsbóta fyrir þá aðila sem þurfa á bættu aðgengi að halda, einkum fatlað fólk. Aðlögunartími verði því að vera í hófi, með tilliti til hagsmuna þeirra sem markmið frumvarpsins taka til sem og þeirra aðila sem þurfa svigrúm til að mæta kröfum frumvarpsins, verði það að lögum. Líkt og vísað er til í greinargerð með frumvarpinu er í reynd verið að útfæra réttindi og skyldur sem þegar eru til staðar í íslenskum rétti. Meiri hlutinn leggur til að lögin öðlist þegar gildi en leggur jafnframt til rýmri aðlögunartíma, en þegar er gert ráð fyrir í frumvarpinu, fyrir opinbera aðila til að uppfylla kröfur laganna, sem komi til framkvæmda í áföngum.
Þá leggur meiri hlutinn til eina orðalagsbreytingu sem er ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif, hvað varðar hugtakið auðlindir í 2. mgr. 5. gr. um mat á óhóflegri byrði. Meiri hlutinn telur fara betur á því að nota þess í stað hugtakið bolmagn, sbr. þýðingu á sama hugtaki í lögum um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, nr. 19/2013.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Í stað orðsins „auðlinda“ í 2. mgr. 5. gr. komi: bolmagns.
2. 12. gr. orðist svo, ásamt fyrirsögn:
Gildistaka.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. koma ákvæði 4.–9. gr. til framkvæmda sem hér segir:
1. 1. janúar 2027 fyrir vefsetur opinberra aðila sem voru fyrst gerð almenningi aðgengileg eftir 1. janúar 2015.
2. 1. júlí 2027 fyrir önnur vefsetur opinberra aðila.
3. 1. janúar 2028 fyrir smáforrit opinberra aðila fyrir fartæki.
Grímur Grímsson, Ingibjörg Isaksen, Jón Pétur Zimsen, Sandra Sigurðardóttir og Snorri Másson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Grímur Grímsson og Sandra Sigurðardóttir rita undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 17. febrúar 2026.
| Víðir Reynisson, form. |
Grímur Grímsson, frsm. |
Guðmundur Ari Sigurjónsson. | |
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. | Sandra Sigurðardóttir. | ||