Ferill 388. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 766 — 388. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Snorra Mássyni um grunnskóla.
1. Telur ráðherra að yfirlýst markmið í aðalnámskrá grunnskóla séu uppfyllt þannig að nemendur öðlist viðunandi hæfni til frekara náms að grunnskólagöngu lokinni? Ef svo er ekki, hvernig hyggst ráðherra bregðast við því?
Í aðalnámskrá grunnskóla kemur fram rammi um skólastarf, kennslu og kennsluskipan í landinu sem lýsir þeirri sýn sem stjórnvöld vilja hafa á menntun barna. Hún kveður m.a. á um markmið og fyrirkomulag skólastarfs í grunnskóla. Aðalnámskrá tekur til nemenda og starfsfólks skóla þar sem einnig er kveðið á um uppeldis- og menntunarhlutverk grunnskólans.
Aðalnámskrá er eitt helsta verkfæri mennta- og barnamálaráðherra til að tryggja samræmi og samhæfingu skólastarfs við útfærslu sameiginlegrar menntastefnu. Námskráin er því ein meginforsenda þess að stjórnvöld geti gegnt lögboðnu hlutverki sínu við að annast yfirstjórn og eftirlit með gæðum og framkvæmd skólastarfs. Aðalnámskrá er jafnframt ætlað að samræma nám og kennslu að því marki sem þörf er talin á og tryggja rétt allra nemenda til tiltekinnar lágmarksmenntunar og jafnrétti til náms ásamt gæðum náms.
Hins vegar sýna niðurstöður PISA að of mörg börn ljúka grunnskóla án þess að hafa náð fullnægjandi tökum á kjarnagreinum eins og lesskilningi, stærðfræðilæsi og læsi á náttúruvísindi. Af því hefur ráðherra miklar áhyggjur.
Niðurstöður PISA sýna að árangur íslenskra nemenda í lesskilningi hefur versnað meira en hjá flestum samanburðarþjóðum undanfarin ár. Í PISA 2022 náðu aðeins 60% íslenskra nemenda grunnviðmiðum OECD í lesskilningi. Hlutfallið var að meðaltali 74% í OECD.
Árið 2022 náðu 47% drengja ekki grunnfærni í lesskilningi, samanborið við 30% tíu árum áður. Fjöldi íslenskra stúlkna sem nær ekki þessari grunnfærni hefur nær þrefaldast frá árinu 2012. Þá voru það aðeins 12% stúlkna sem náðu ekki grunnfærni í lestri en 2022 hafði sú tala hækkað í 32%. Þessari þróun vill ráðherra snúa við.
Ráðherra telur það áhyggjuefni að hlutfall íslenskra nemenda sem býr yfir afburðahæfni er lægra á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum. Það er einnig lægra á Íslandi en meðaltal annarra OECD-ríkja. Því til viðbótar er brotthvarf drengja úr framhaldsskólum með því mesta sem þekkist í Evrópu samkvæmt Eurostat.
Að mati ráðherra hefur ekki tekist nægilega vel að ná fram markmiðum aðalnámskrár. Menntakerfið eigi ekki að snúast um falleg orð í námskrá heldur raunverulegan námsárangur barna. Því er unnið að því hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu að aðstoða skóla við að vinna betur að skipulagi og framkvæmd náms.
Ráðherra telur einnig brýnt að bregðast við framangreindum áhyggjum af festu og ábyrgð m.a. með því að styrkja kjarnagreinar, auka enn frekar stuðning inn í skólana, bjóða upp á markvissari náms- og starfsráðgjöf, bæta í námsgagnagerð og byggja kennslu á gagnreyndum aðferðum sem hafa sýnt árangur. Innleiðing á Matsferli sem samræmdum stöðu- og framvinduprófum er mikilvæg ásamt bættu innra og ytra mati á skólum, auknu gagnsæi í námsmati og setningu samræmdra reglna um símafrí í grunnskólum landsins. Unnið er að tillögum til að mæta þessum áskorunum í mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Þá telur ráðherra að snemmtæk íhlutun sé lykilatriði til að ná fram markmiðum aðalnámskrár grunnskóla. Börn sem dragist aftur úr í lestri, lesskilningi, ritun eða stærðfræði þurfi stuðning strax, ekki eftir mörg ár. Það sé bæði betra fyrir börn og fjölskyldur og hagkvæmara fyrir samfélagið. Með matsferli er hægt að koma snemma auga á lestrarvanda barna og mikilvægt að skólar bregðist fljótt við.
Það er mat ráðherra að skólinn eigi að vera griðastaður barna, en hann eigi líka að vera staður þar sem börn fá þá færni sem þau þurfa til að takast á við lífið og frekara nám. Það er grundvallarskylda okkar gagnvart börnum landsins. Þar þurfum við að taka höndum saman: Alþingi, mennta- og barnamálaráðuneyti, sveitarfélög, skólar og kennarar.
2. Telur ráðherra að núverandi einkunnakerfi í grunnskólum upplýsi nemendur og foreldra með skýrum hætti um það hver þekking og staða nemenda er að loknu námi? Ef svo er ekki, hvernig hyggst ráðherra bregðast við því?
Í lögum um grunnskóla, nr. 91/2008, er fjallað um námsmat. Þar segir að mat á árangri og framförum nemenda sé reglubundinn þáttur í skólastarfi. Tilgangur þess er að fylgjast með því hvernig nemendum tekst að mæta markmiðum aðalnámskrár og ná námsmarkmiðum sínum, örva nemendur til framfara og meta hverjir þurfa á sérstakri aðstoð að halda.
Í aðalnámskrá grunnskóla frá 2011 voru sett fram matsviðmið við lok grunnskóla fyrir einstakar námsgreinar og námssvið. Matsviðmiðin eru lýsing á hversu vel nemandi hefur skilgreinda hæfni á valdi sínu. Lýsingarnar í aðalnámskránni eru tengdar einkunnunum A, B og C og voru einungis skilgreindar fyrir 10. bekk. Það ber að nota þennan matskvarða við brautskráningu úr grunnskóla. Matskvarðinn er skilgreindur sem sex einkunnir: A, B+, B, C+, C og D og standa lýsingar á matsviðmiðum á bak við þær einkunnir.
Við endurskoðun á greinasviðum grunnskóla sem lauk árið 2024 var bætt við matsviðmiðum fyrir 4. og 7. bekk grunnskóla sem ætlað er að vera leiðbeinandi fyrir skóla og voru sett fram til að styðja við námsmat við lok yngsta stigs og miðstigs grunnskóla. Grunnskólar geta hins vegar notað fjölbreyttar námsmatsaðferðir en þeir þurfa að gera grein fyrir námsmati í skólanámskrá.
Ráðherra hefur fengið margar athugasemdir um að það sé ruglandi fyrir bæði nemendur og foreldra að skólar setji fram niðurstöður námsmats með ólíkum hætti en einnig að framsetning á núverandi einkunnakerfi í grunnskólum, byggt á bókstafaeinkunnum, sé hvorki nægilega skýrt né sanngjarnt gagnvart nemendum og foreldrum.
Kerfið hefur að mati ráðherra orðið flókið, óskýrt í túlkun og of oft til þess fallið að fela raunverulega stöðu nemenda í stað þess að upplýsa hana. Að mati ráðherra eiga einkunnir m.a. að vera verkfæri til að upplýsa, greina og styðja við nám, en ekki til að rugla fólk í ríminu. Ráðherra telur jafnframt að foreldrar eigi rétt á skýrum upplýsingum um stöðu barna sinna og nemendur eigi rétt á að skilja hvar þeir standa og hvað þarf að bæta. Þess vegna telur ráðherra nauðsynlegt að skoða breytingar á einkunnakerfinu með það að markmiði að skapa skýrleika, jafnræði og betri tengingu milli grunnskóla og framhaldsskóla, þannig að nemendur og foreldrar átti sig betur á stöðunni og börn finni sér ætíð nám í samræmi við áhuga og hæfni.
Ráðherra hefur því sett af stað spretthóp í mennta- og barnamálaráðuneyti til að leggja mat á kosti og galla núverandi einkunnakerfis í grunnskólum og koma með tillögur til úrbóta. Áður en ráðist er í breytingar á einkunnakerfi grunnskóla telur ráðherra mikilvægt að greina kosti og galla núverandi skipulags og skoða hvaða aðrir möguleikar komi til greina og þá hvort þær breytingar skili væntum árangri.
3. Hvernig telur ráðherra að grunnskóli án aðgreiningar hafi reynst? Hefur sú nálgun bætt námsárangur og hæfni allra nemenda? Hefur hún hentað ólíkum nemendahópum misvel? Ef svo er, hvernig hyggst ráðherra bregðast við því?
Stefnan um skóla án aðgreiningar byggir á göfugum markmiðum. Það er sjálfsagt og óumdeilt að börn með fötlun eða námserfiðleika eigi að vera hluti af skólasamfélaginu og fá þann stuðning sem þau þurfa. Þar stendur enginn á móti.
Ráðherra hefur áhyggjur af því að of oft hafi skort á sérfræðiþekkingu, mannafla og raunhæf úrræði og stuðning inn í skólana. Það hafi haft áhrif, bæði á þau börn sem þurfa stuðning og á aðra nemendur í bekknum. Skóli án aðgreiningar megi aldrei verða skóli án úrræða.
Ráðherra hefur sérstakar áhyggjur af stöðu barna sem hafa lítinn eða engan íslenskan tungumálagrunn. Telur ráðherra það einfaldlega ekki vera sjálfgefið að setja barn beint inn í almenna kennslu án þess að það hafi fengið markvissa og öfluga íslenskukennslu. Ef barn skilji ekki kennsluna, þá sé það ekki raunveruleg inngilding. Það sé útilokun í dulargervi. Þar höfum við brugðist of mörgum börnum.
Að mati ráðherra hefur borið á því að mismunandi skilningur sé lagður í hugtakið „skóli án aðgreiningar“ meðal þeirra sem sinna menntamálum, bæði innan hvers skólastigs og milli skólastiga. Almennt þurfi því að skýra betur bæði hugtakið sjálft og hvernig standa ber að framkvæmdinni.
Rétt nálgun að mati ráðherra er að um sé að ræða verkefni sem menntun fyrir alla. Það þýði hins vegar ekki eitt kerfi fyrir alla, heldur menntakerfi sem mæti ólíkum þörfum barna með sveigjanlegum og faglegum hætti. Sum börn þurfi sérhæfð úrræði um tíma. Önnur þurfi sérkennslu eða sérdeildir. Það eigi ekki að vera feimnismál að ræða slíkt.
Samkvæmt reglugerð nr. 585/2010 um stuðning við nemendur með sérþarfir í grunnskóla ber að koma til móts við náms- og félagslegar þarfir nemenda í almennu skólastarfi með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Lög og reglugerðir duga þó ekki ein og sér ef fjármagn, fagfólk og skýr verkaskipting fylgir ekki með.
Að mati ráðherra þarf að tryggja snemmtæka greiningu, markviss tungumálaúrræði fyrir börn af erlendum uppruna, öflugri stoðþjónustu inn í skólana og raunhæfan stuðning við kennara sem bera mikla ábyrgð. Markmiðið á að vera skýrt: Að hvert barn fái raunverulega þá menntun sem það á rétt á. Því þarf að bjóða upp á raunhæf úrræði sem tryggja að allir geti fengið þann stuðning sem þeir þurfa og náð árangri. Það er kjarninn í menntun fyrir alla.