Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 767, 157. löggjafarþing 220. mál: faggilding o.fl. og staðlar og Staðlaráð Íslands (endurskoðun).
Lög nr. 14 2. mars 2026.
I. KAFLI
Breyting á lögum um faggildingu o.fl., nr. 24/2006.
Í lögum þessum er merking eftirfarandi orða og orðasambanda sem hér segir:
II. KAFLI
Breyting á lögum um staðla og Staðlaráð Íslands, nr. 36/2003.
Þingskjal 767, 157. löggjafarþing 220. mál: faggilding o.fl. og staðlar og Staðlaráð Íslands (endurskoðun).
Lög nr. 14 2. mars 2026.
Lög um breytingu á lögum um faggildingu o.fl. og lögum um staðla og Staðlaráð Íslands (endurskoðun).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Gildissvið og markmið.
2. gr.
2. gr. laganna orðast svo:Í lögum þessum er merking eftirfarandi orða og orðasambanda sem hér segir:
- Faggilding: Staðfesting frá faggildingarstofnun um að samræmismatsaðili uppfylli kröfur sem eru settar fram í staðli og, þar sem við á, allar viðbótarkröfur, þ.m.t. þær sem settar eru fram í viðeigandi atvinnugreinakerfum, til að annast sérstakt samræmismat.
- Faggildingarstofnun: Eina stofnunin í aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins sem annast faggildingu með leyfi frá ríkinu.
- Fullgilding: Staðfesting á trúverðugleika með því að leggja fram hlutlægar sannanir um að kröfur vegna tiltekinna fyrirhugaðra nota eða beitingar hafi verið uppfylltar.
- Góðar starfsvenjur við rannsóknir: Gæðakerfi sem varðar skipulagsferli og skilyrði fyrir áætlun, framkvæmd, eftirliti, skráningu, gagnageymslu og skýrslugjöf að því er varðar rannsóknir á umhverfisöryggi og heilbrigðisrannsóknir sem ekki eru klínískar.
- Prófun: Greining á einum eða fleiri eiginleikum sýnis sem metnir eru samkvæmt fyrirframgefinni aðferð.
- Samræmismat: Ferli sem sýnir fram á hvort sérstakar kröfur í tengslum við vöru, vinnslu, þjónustu, kerfi, einstaklinga eða stofnun hafa verið uppfylltar.
- Samræmismatsaðili: Aðili sem annast samræmismat, þ.m.t. kvörðun, prófun, vottun, skoðun, sannprófun og fullgildingu.
- Sannprófun: Staðfesting á sannleiksgildi með því að leggja fram hlutlægar sannanir um að tilgreindar kröfur hafi verið uppfylltar.
- Skoðun: Athugun á vöruhönnun, vöru, ferli eða uppsetningu búnaðar og ákvörðun á samræmi þess við tilgreindar kröfur, eða almennar kröfur, og skal þá byggt á faglegum úrskurði.
- Tilkynntur aðili: Aðili sem stjórnvöld hafa tilkynnt til Eftirlitsstofnunar EFTA, framkvæmdastjórnar ESB og annarra aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins að uppfylli viðeigandi kröfur til þess að fást við samræmismat samkvæmt tiltekinni tæknilegri reglugerð.
- Tilnefndur aðili: Aðili sem stjórnvald hefur veitt tilnefningu.
- Tilnefning: Heimild sem stjórnvald veitir aðila til að stunda tiltekna starfsemi við samræmismat.
- Vottun: Formleg staðfesting þriðja aðila byggð á athugun á starfsemi eða eiginleikum á því að vara, ferli, kerfi eða aðili uppfylli tilgreindar kröfur.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Á undan orðinu „skoðunarstofur“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: samræmismatsaðila, svo sem.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Reglur um faggildingarstarfsemi.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:- Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Faggildingarsvið skal gera samning við umsækjanda þar sem kveðið er á um skilyrði og samstarf vegna faggildingarinnar.
- 2. málsl. 3. mgr. orðast svo: Ákvörðun faggildingarsviðs er endanleg á stjórnsýslustigi.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:- Í stað orðsins „leyfisbréfi“ í 4. málsl. 1. mgr. kemur: faggildingarskírteini.
- Í stað orðanna „leyfi til faggildingar er fellt“ í 2. mgr. kemur: faggilding er felld.
7. gr.
3. málsl. 8. gr. laganna fellur brott.8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:- Í stað orðanna „þar til bæru stjórnvaldi“ kemur: faggildingarstofnun.
- Í stað orðanna „Alþjóðasamtökum um faggildingarsamvinnu (ILAC)“ kemur: alþjóðlegum samtökum um faggildingarsamvinnu.
9. gr.
Orðin „og setur reglugerð sem um það skal gilda, m.a. um útlit merkisins, stöðu þess og notkun“ í 2. mgr. 11. gr. laganna falla brott.10. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Við 3. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Gjaldskráin skal einnig birt á vef faggildingarsviðs. Heimilt er að kveða á um árlega verðlagsuppfærslu í gjaldskránni og skal þá gildandi verð á hverjum tíma birtast á vefnum.
11. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. laganna:- Í stað orðsins „nýaðferðartilskipanir“ í 1. mgr. kemur: EES-reglur.
- Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Tilkynntir aðilar skulu uppfylla skilyrði faggildingar.
- Í stað tilvísunarinnar „6. tölul.“ í 2. mgr. kemur: 10. tölul.
12. gr.
Í stað orðanna „öllum heimil“ í 2. málsl. 1. mgr. 4. gr. laganna kemur: heimil íslenskum lögaðilum.13. gr.
1. málsl. 7. gr. laganna orðast svo: Staðlaráð Íslands skal rekið á grundvelli þjónustusamnings við ríkið.14. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 17. febrúar 2026.