Ferill 454. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 773  —  454. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um BRCA-arfbera.

Frá Huldu Bjarnadóttur.


     1.      Hefur ráðherra í hyggju að bjóða BRCA-arfberum upp á tæknifrjóvganir og/eða skimanir fósturvísa (e. PGD)? Ef svo er ekki, hvers vegna?
     2.      Hver er kostnaður BRCA-arfbera við annað læknisfræðilegt eftirlit, svo sem hjá húð- og kvensjúkdómalæknum og við briseftirlit?
     3.      Hefur ráðherra í hyggju að mæta auknum ferðakostnaði BRCA-arfbera vegna læknisþjónustu sem ekki er unnt að sækja í heimabyggð, sem oftar en ekki er umfram þær fjórar ferðir á ári sem kveðið er á um í samningum við Sjúkratryggingar Íslands?


Skriflegt svar óskast.