Ferill 480. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 802 — 480. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um rétt námsmanna til atvinnuleysisbóta.
Frá Lilju Hrönn Önnudóttur Hrannarsdóttur.
1. Hver er afstaða ráðherra til þess að launþegar sem jafnframt stunda háskólanám umfram 12 ECTS-einingar eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum missi þeir vinnuna á námstíma, sbr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006?
2. Telur ráðherra rétt að greitt sé tryggingagjald, samkvæmt lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990, af launum launþega sem eru jafnframt námsmenn á háskólastigi þrátt fyrir að þeir eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum missi þeir vinnuna á námstíma?
Skriflegt svar óskast.