Ferill 481. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 803  —  481. mál.




Fyrirspurn


til utanríkisráðherra um hagsmunagæslu utanríkisþjónustunnar.

Frá Ingibjörgu Davíðsdóttur.


     1.      Hvernig skilgreinir ráðuneytið hagsmunagæslu fyrir Ísland?
     2.      Hvernig fer fram mat á því hvernig hagsmunagæslu utanríkisþjónustunnar skuli háttað hverju sinni?
     3.      Hvernig eru forgangsmál hagsmunagæslu utanríkisþjónustunnar ákveðin og á hvaða forsendum?
     4.      Hvernig fer þessi vinna fram og með aðkomu hverra?
     5.      Hver hafa forgangsmál í hagsmunagæslu utanríkisþjónustunnar verið frá 21. desember 2024 þegar ný ríkisstjórn tók við?


Skriflegt svar óskast.