Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 814, 157. löggjafarþing 238. mál: brottfall laga um Heyrnar- og talmeinastöð.
Lög nr. 15 3. mars 2026.

Lög um brottfall laga um Heyrnar- og talmeinastöð, nr. 42/2007.


1. gr.

     Lög um Heyrnar- og talmeinastöð, nr. 42/2007, falla úr gildi.

2. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. maí 2026. Frá sama tíma tekur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins við eignum og skuldbindingum Heyrnar- og talmeinastöðvar. Heyrnar- og talmeinastöð er samtímis lögð niður, ásamt embætti forstjóra stofnunarinnar.

3. gr.

     Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á öðrum lögum:
  1. Lög um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, nr. 129/1990:
    1. Orðin „Heyrnar- og talmeinastöð Íslands“ í 1. málsl. 3. mgr. 2. gr. laganna falla brott.
    2. Orðin „Heyrnar- og talmeinastöð Íslands“ í 2. mgr. 2. gr. a laganna falla brott.
  2. Lög um Sjónstöðina, nr. 160/2008: Í stað orðanna „Tryggingastofnunar eða Heyrnar- og talmeinastöðvar“ í c-lið 1. tölul. 2. mgr. 4. gr. laganna kemur: sjúkratryggingastofnunarinnar.

Ákvæði til bráðabirgða.
     Starfsmenn Heyrnar- og talmeinastöðvar, sem eru í starfi við gildistöku laga þessara og sinna þeim verkefnum sem færast til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þegar Heyrnar- og talmeinastöð er lögð niður, verða starfsmenn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins með sömu ráðningarkjörum og áður giltu. Um rétt starfsmanna til starfa hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins fer eftir ákvæðum laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Ákvæði 7. gr. laga nr. 70/1996 gilda ekki um ráðstöfun starfa sem ráðið er í samkvæmt þessu ákvæði.

Samþykkt á Alþingi 19. febrúar 2026.