Ferill 386. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 817 — 386. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur um úrbætur í málefnum barna og ungmenna með tal- og málþroskaröskun.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Með hvaða hætti hefur verið unnið að úrbótum í málefnum barna og ungmenna með tal- og málþroskaröskun, byggt á þeim ábendingum og athugasemdum sem fram komu í skýrslu mennta- og menningarmálaráðherra árið 2012 um stöðu hópsins?
Frá því skýrsla mennta- og menningarmálaráðuneytisins um stöðu barna og ungmenna með tal- og málþroskaröskun var birt árið 2012 hefur staðan því miður versnað verulega. Í mars 2012 voru um 400 börn á biðlista eftir þjónustu talmeinafræðinga. Í lok árs 2025 eru þau rétt tæp 5.000 samkvæmt könnun Visku og Félags talmeinafræðinga á Íslandi. Það er grafalvarleg þróun.
Þá hafa þeir tæplega 70 sjálfstætt starfandi talmeinafræðingar sem sinna börnum samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands verið samningslausir frá árinu 2022. Það eitt og sér sýnir að kerfið hefur ekki verið nægilega stöðugt né fyrirsjáanlegt.
Það er því óhætt að segja að margt af því sem bent var á í skýrslunni árið 2012 eigi enn við í dag. Þrátt fyrir góðan vilja og ýmsar tilraunir til úrbóta hafa kerfislegir veikleikar ekki verið leystir til fulls.
Í skýrslunni frá 2012 kom fram að lagalegur réttur barna og ungmenna væri tryggður samkvæmt lögum og reglugerðum, bæði innan sveitarfélaga og heilbrigðiskerfisins. En réttur á pappír dugir skammt ef framkvæmdin bregst. Skýrsluhöfundar bentu á að ábyrgðin væri dreifð á of margar stofnanir, verkaskipting óljós og ábyrgð á fjármögnun og skiptingu kostnaðar ekki nægilega skýr. Þá annaði kerfið ekki eftirspurn eftir þjónustu við börn og ungmenni og biðlistar voru langir eftir greiningu og talþjálfun.
Í kjölfarið samþykkti Alþingi í janúar 2013 þingsályktun þar sem ráðherra var falið að endurskoða málefni barna og ungmenna með tal- og málþroskaröskun og móta markvissa aðgerðaáætlun. Lögð var áhersla á betri yfirsýn, gagnaöflun, skýrari verkaskiptingu og fjármögnun með hagsmuni barna í forgrunni, auk snemmtækrar íhlutunar.
Síðar sama ár, þ.e. 2013, var stýrihópur skipaður og skilaði hann áfangaskýrslu árið 2017. Heilbrigðisráðherra setti reglugerð um starfsréttindi talmeinafræðinga sama ár og á árunum eftir 2013 fór í fyrsta sinn að útskrifast aukinn fjöldi talmeinafræðinga með MS-gráðu frá Háskóla Íslands, en meistaraprófsnám hófst þar árið 2010.
Árið 2014 var gert samkomulag um ábyrgðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga til að draga úr óskýrleika og árið 2015 hóf fjarþjónustan Trappa starfsemi sína, m.a. til að styrkja þjónustu á landsbyggðinni.
Árið 2023 skipaði heilbrigðisráðherra starfshóp um þjónustu talmeinafræðinga við börn. Hlutverk hans var að leggja fram tillögur um einfaldari, markvissari og aðgengilegri þjónustu, með snemmtækan stuðning og skýrt þjónustuferli í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021. Starfshópurinn skilaði tillögum í júní 2025 og drög að sameiginlegri aðgerðaáætlun heilbrigðisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra voru kynnt í september sama ár.
Þann 30. desember sl. voru drög að aðgerðaáætlun 2026–2028 birt í samráðsgátt stjórnvalda. Heilbrigðisráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið bera sameiginlega ábyrgð á framkvæmdinni. Sjúkratryggingar Íslands bera ábyrgð á miðlægum biðlista og greiðsluþátttöku. Tillögurnar fela í sér kerfisbundna endurskipulagningu með áherslu á snemmtæka og aðgengilega þjónustu, styttri biðtíma, aukið gagnsæi, bætta mönnun, betri nýtingu fjármuna og samþættingu í anda laga um farsæld barna.
Helstu aðgerðir eru m.a.:
– Að talmeinafræðingur starfi innan heilsugæslu sem tekur við tilvísunum þegar grunur vaknar um málþroskavanda.
– Að tryggja aðgengi að þjónustu í nærumhverfi barns, þar með talið með fjarþjónustu í samstarfi við skóla og skólaþjónustu.
– Kortlagning þjónustu talmeinafræðinga og skilgreining gæðavísa.
– Miðlægur biðlisti hjá Sjúkratryggingum Íslands í samstarfi við fagfélag talmeinafræðinga, þar sem núverandi biðlistar endurspegla ekki raunverulegar þarfir.
– Einfaldara tilvísanaferli, þannig að ekki þurfi tilvísun heimilislæknis heldur geti fagfólk í skóla eða skólaþjónustu lagt inn beiðni á faglegum grunni.
– Stofnun námsbrautar á háskólastigi fyrir talþjálfa eða aðstoðarfólk talmeinafræðinga.
– Endurskoðun ábyrgðarskiptingar ríkis og sveitarfélaga, m.a. til samræmis við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
– Skýrt verklag um mat á þjónustuþörfum barna með fjölþættari áskoranir en málþroskavanda eingöngu.
– Sérstök áhersla á að greina á milli máltökuvanda og málþroskavanda hjá börnum með íslensku sem annað mál.
Alls bárust 11 umsagnir um drög að aðgerðaáætluninni. Unnið er að yfirferð umsagna undir stjórn heilbrigðisráðuneytis og uppfærslu aðgerðaáætlunarinnar.
Greiningarvinna síðustu ára sýnir að sú staða sem upp er komin á sér sögulegar, faglegar og kerfislegar rætur. Þetta er margþættur vandi sem verður ekki leystur með einni aðgerð.
Ein stærsta áskorunin er skortur á talmeinafræðingum. Nú er aðeins tekið inn í námið annað hvert ár og nýverið var fjölgað úr 15 í 18 nemendur. Umsækjendur eru mun fleiri en komast að. Um 100 einstaklingar hafa lokið forkröfum fyrir meistaranám í talmeinafræði en komast ekki vegna fjöldatakmarkana, skorts á kennurum og takmarkaðra starfsþjálfunarplássa. Kennarar við námsleiðina hafa bent á að BS-nám í talmeinafræði myndi henta aðstoðarfólki talmeinafræðinga. Sú hugmynd hefur ekki hlotið brautargengi.
Það er ljóst að talsverður vandi blasir við varðandi talmeinaþjónustu barna, sem kalla má neyðarástand að mati ráðherra. En það er líka ljóst að nú er verið að taka heildstætt á málinu. Markmiðið er einfalt og skýrt: að börn fái þá þjónustu sem þau eiga rétt á, tímanlega, faglega og í sínu nærumhverfi, ekki eftir margra ára bið.