Ferill 496. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 826  —  496. mál.
Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 332/2023 og 333/2023 um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi), nr. 172/2025 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun), nr. 176/2025 um breytingu á IV. viðauka (Orka), nr. 249/2025 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) og nr. 294/2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.


Frá utanríkisráðherra.



    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
     1.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 332/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi) við EES-samninginn og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/789 frá 17. apríl 2019 um reglur um nýtingu höfundarréttar og skyldra réttinda sem gilda um tilteknar netútsendingar útvarpsfyrirtækja og endurvarp hljóðvarps- og sjónvarpsefnis og um breytingu á tilskipun ráðsins 93/83/EBE.
     2.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 333/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi) við EES-samninginn og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/790 frá 17. apríl 2019 um höfundarétt og skyld réttindi á stafræna innri markaðnum og um breytingu á tilskipunum 96/9/EB og 2001/29/EB.
     3.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 172/2025 frá 11. júlí 2025 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1860 frá 13. júní 2024 um breytingu á reglugerðum (ESB) 2017/745 og (ESB) 2017/746 að því er varðar að innleiða Evrópska gagnabankann um lækningatæki (Eudamed) smám saman, skylduna til að tilkynna um það ef truflanir verða á afhendingu eða ef afhendingu er hætt og um umbreytingarákvæði vegna tiltekinna lækningatækja til sjúkdómsgreiningar í glasi.
     4.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2025 frá 11. júlí 2025 um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn og fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
                  a.      Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 frá 11. desember 2018 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum.
                  b.      Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/759 frá 14. desember 2021 um breytingu á VII. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 að því er varðar aðferðafræði fyrir útreikning á magni endurnýjanlegrar orku sem er notuð til kælingar og fjarkælingar.
     5.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 249/2025 frá 24. október 2025 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1849 frá 13. júní 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/852 um kvikasilfur að því er varðar tannsilfur og aðrar vörur með viðbættu kvikasilfri sem falla undir framleiðslu-, innflutnings- og útflutningsbann.
     6.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 294/2025 frá 5. desember 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og fella inn í samninginn framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1496 frá 12. júní 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar framkvæmdardagsetningu krafna um eiginfjárgrunn vegna markaðsáhættu.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á sex ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar (fskj. I–XIII).

2. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 332/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 332/2023 fellir inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/789 frá 17. apríl 2019 um reglur um nýtingu höfundarréttar og skyldra réttinda sem gilda um tilteknar netútsendingar útvarpsfyrirtækja og endurvarp hljóðvarps- og sjónvarpsefnis og um breytingu á tilskipun ráðsins 93/83/EBE.
    Markmið gerðarinnar er að bæta aðgang að útvarpi, bæði sjónvarpi og hljóðvarpi, á milli aðildarríkja ESB með því að einfalda leyfisveitingar annars vegar fyrir tilteknar netútsendingar útvarpsfyrirtækja, t.d. samsendingu (e. simulcasting) eða „eftiráaðgangi“ (e. catch-up service) og hins vegar fyrir endurvarp hljóðvarps- og sjónvarpsefnis. Efni gerðarinnar miðar að því að auka aðgengi að útsendingum frá öðrum ríkjum, með því að einfalda svokallaða réttindahreinsun (e. rights clearance) á höfundaréttarvörðu efni í slíkum dagskrám. Með réttindahreinsun er átt við það að afla allra nauðsynlegra heimilda frá rétthöfum til lögmætrar notkunar höfundaréttarvarinna verka. Réttindahreinsun er að jafnaði landsbundin sem þýðir að afla þarf heimilda til dreifingar efnis í hverju ríki þar sem efnið er aðgengilegt. Einföldun réttindahreinsunar samkvæmt þessari tilskipun felur í sér að nægilegt verður að afla slíkra heimilda í einu ríki, þ.e. upprunaríki. Er þá notkun verkanna heimil yfir landamæri innan Evrópska efnahagssvæðisins. Felur það í sér aukið hagræði fyrir dreifendur efnis, svo sem útvarps- og sjónvarpsfyrirtæki, og hefur jákvæð áhrif á aðgang almennings að útsendingum milli ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins. Tilskipunin hefur fyrst og fremst áhrif á fyrirkomulag réttindahreinsunar og samningsgerðar en skerðir ekki grundvallarréttindi rétthafa sem eiga áfram rétt til sanngjarns endurgjalds samkvæmt höfundarétti.
    Upptaka gerðarinnar í EES-samninginn og innleiðing hennar hér á landi kallar á breytingar á höfundalögum, nr. 73/1972. Fyrirhugað er að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra leggi fram frumvarp í þessu skyni á 158. löggjafarþingi, veturinn 2026–2027. Ekki er gert ráð fyrir fjárhagsáhrifum á ríkissjóð vegna lögfestingar gerðarinnar.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku tilskipunarinnar í samræmi við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerði hún ekki athugasemdir við upptöku tilskipunarinnar í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og umrædd gerð kynnt nefndinni sérstaklega.

3. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 333/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 333/2023 fellir inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/790 frá 17. apríl 2019 um höfundarétt og skyld réttindi á stafræna innri markaðnum og um breytingu á tilskipunum 96/9/EB og 2001/29/EB.
    Markmið gerðarinnar er að samræma ýmsar reglur um höfundarétt og skyld réttindi sem varða hinn stafræna innri markað og notkun verndaðra verka yfir landamæri. Tilskipunin felur m.a. í sér undanþágur frá eða takmörkun á einkarétti höfunda til að tryggja m.a. texta- og gagnanám, sérstaklega hjá rannsókna- og menningararfsstofnunum og undanþágu vegna notkunar menntastofnana á höfundaréttarvörðu efni við fjarkennslu á netinu. Þá kveður tilskipunin á um nýjan tveggja ára einkarétt útgefenda fréttaefnis á netinu, skyldu stærri þjónustuveitenda (t.d. Google og Facebook) að tryggja að samningar við rétthafa um not af verkum þeirra á netinu séu virtir og að rétthafar geti bannað not ákveðinna verka. Auk þess er kveðið á um sanngjarnt endurgjald til höfunda og flytjenda í samningum til hagnýtingar á verkum þeirra eða listflutningi.
    Upptaka fyrrgreindrar gerðar í EES-samninginn og innleiðing hennar hér á landi kallar á breytingar á höfundalögum, nr. 73/1972. Fyrirhugað er að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra leggi fram frumvarp í þessu skyni á 158. löggjafarþingi, veturinn 2026–2027.
    Ekki er gert ráð fyrir fjárhagsáhrifum á ríkissjóð vegna lögfestingar gerðarinnar, sem snýr fyrst og fremst að réttindum og skyldum aðila á einkamarkaði. Tilskipuninni er ætlað að hafa jákvæð áhrif fyrir rétthafa að höfundaréttarvörðu efni og starfsemi mennta-, rannsókna- og menningararfsstofnana.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku tilskipunarinnar í samræmi við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerði hún ekki athugasemdir við upptöku tilskipunarinnar í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og umrædd gerð kynnt nefndinni sérstaklega.

4. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 172/2025 frá 11. júlí 2025 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 172/2025 fellir inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1860 frá 13. júní 2024 um breytingu á reglugerðum (ESB) 2017/745 og (ESB) 2017/746 að því er varðar að innleiða Evrópska gagnabankann um lækningatæki (Eudamed) smám saman, skylduna til að tilkynna um það ef truflanir verða á afhendingu eða ef afhendingu er hætt og um framlengingu umbreytingarákvæða vegna tiltekinna lækningatækja til sjúkdómsgreiningar í glasi sem gera framleiðendum kleift að uppfylla kröfur um ESB-samræmisyfirlýsingu vegna tækjanna.
    Markmið gerðarinnar er að tryggja framboð af lækningatækjum til sjúkdómsgreiningar í glasi (e. in vitro) innan Evrópusambandsins, og auka gagnsæi með innleiðingu í skrefum á Evrópska gagnabankanum um lækningatæki (Eudamed) til verndar lýðheilsu og öryggi sjúklinga. Lagðar eru þær skyldur á framleiðendur tiltekinna lækningatækja að tilkynna viðskiptavinum, dreifingaraðilum og lyfjastofnunum um fyrirséðar truflanir eða stöðvun á afhendingu lækningatækja þegar þær eru taldar geta leitt til alvarlegra afleiðinga fyrir öryggi sjúklinga. Í tilviki Íslands bæri Lyfjastofnun að upplýsa önnur yfirvöld innan Evrópska efnahagssvæðisins og Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) um slíkar tilkynningar. Þá eru gerðar breytingar á ákvæðum um aðlögunartímabil sem eru til hagsbóta fyrir framleiðendur lækningatækja, tilkynnta aðila sem tilnefndir eru af lyfjastofnunum og notendum lækningatækja. Þessi ákvæði fresta gildistöku tiltekinna ákvæða reglugerða (ESB) 2017/745 og (ESB) 2017/746 er varða skyldur aðila til að veita upplýsingar í gegnum Evrópska gagnabankann um lækningatæki (Eudamed) og kröfur um vottorð um samræmismat útgefnum af tilkynntum aðilum.
    Upptaka fyrrgreindrar gerðar í EES-samninginn og innleiðing hennar hér á landi kallar á breytingar á lögum um lækningatæki nr. 132/2020. Fyrirhugað er að heilbrigðisráðherra leggi fram frumvarp í þessu skyni á yfirstandandi löggjafarþingi.
    Ekki er gert ráð fyrir fjárhagsáhrifum á ríkissjóð vegna lögfestingar frumvarpsins. Fjárhagsleg áhrif eru metin óveruleg á Lyfjastofnun og talin rúmast innan fjárheimilda stofnunarinnar. Þá er gert ráð fyrir því að innleiðingin feli í sér óveruleg fjárhagsáhrif á framleiðendur lækningatækja og rekstraraðila vegna skyldu um að veita upplýsingar um truflun eða stöðvun á afhendingu tækja. Ekki er gert ráð fyrir sérstökum aðlögunartíma. Reglugerð (ESB) 2024/1860 hefur þegar tekið gildi innan Evrópusambandsins og er því kunnug flestum framleiðendum lækningatækja og lækningatækja til sjúkdómsgreiningar í glasi sem markaðssetja slík tæki á Evrópska efnahagssvæðinu.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku tilskipunarinnar í samræmi við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerði hún ekki athugasemdir við upptöku tilskipunarinnar í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og umrædd gerð kynnt nefndinni sérstaklega.

5. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2025 frá 11. júlí 2025 um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2025 fellir inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
     a.      Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 frá 11. desember 2018 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum (RED II).
     b.      Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/759 frá 14. desember 2021 um breytingu á VII. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 að því er varðar aðferðafræði fyrir útreikning á magni endurnýjanlegrar orku sem er notuð til kælingar og fjarkælingar.
    Markmið tilskipunar (ESB) 2018/2001 er að stuðla að aukinni notkun á endurnýjanlegri orku. Tilskipunin er mikilvægur hluti þeirra ráðstafana sem taldar eru nauðsynlegar til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Tilskipunin gegnir lykilhlutverki í orkuskiptum, m.a. með því að einfalda leyfisveitingarferli fyrir virkjanir sem framleiða orku úr endurnýjanlegum orkugjöfum ásamt því að stuðla að auknu orkuöryggi með því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis, til að mynda með þróun endurnýjanlegrar hitunar og kælingar og þróun endurnýjanlegs flutningaeldsneytis, sjálfbærri orku á viðráðanlegu verði og með því að ýta undir tækniþróun og nýsköpun. Sett er það markmið að hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa í heildarnotkun verði a.m.k. 32% árið 2030 og 14% fyrir samgöngur á landi. Þá er upprunaábyrgðakerfið fest frekar í sessi og nær til fleiri orkugjafa en áður, þ.e. vetnis, gass, hita og kælingar ásamt raforku. Þá krefur tilskipunin seljendur eldsneytis um að færa upplýsingar inn í sameiginlegan evrópskan gagnagrunn og er ætlunin er að skapa hvata til að flýta fyrir fjárfestingum í nýsköpun og nútímavæðingu lykilatvinnugreina. Áhrif tilskipunarinnar á haghafa eru talin óveruleg og kveður hún á um einfaldara og fljótvirkara leyfisveitingaferli sem ætti að hafa í för með sér aukinn fyrirsjáanleika fyrir atvinnulíf.
    Ísland uppfyllir skilyrði fyrir undanþágu frá árlegri aukningu hlutdeildar endurnýjanlegra orkugjafa við hitun og kælingu þar sem hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa er yfir 60%. Samið var um sérstaka aðlögun fyrir Ísland við upptöku RED II-tilskipunarinnar í EES-samninginn sem er sú sama og veitt var ríkjunum Möltu og Kýpur fyrir útreikning sjálfstæðs markmiðs fyrir flug, þar sem miðað er við lægri hlutdeild af notkun endurnýjanlegrar orku, eða 4,12% í stað 6,18%.
    Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/759 þarfnast ekki lagabreytingar fyrir innleiðingu og er því ekki gerð frekari grein fyrir henni í þingsályktunartillögu þessari. Ástæða stjórnskipulegs fyrirvara á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2025 er fyrrgreind RED II-tilskipun og kallar innleiðing hennar hér á landi á breytingar á lögum um upprunaábyrgð á raforku sem framleidd er með endurnýjanlegum orkugjöfum o.fl., nr. 30/2008, raforkulögum, nr. 65/2003, lögum um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi, nr. 40/2013, auk annarra laga og reglugerða sem falla undir einföldun leyfisveitinga í umhverfis- og orkumálum. Fyrirhugað er að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra leggi fram frumvarp í þessu skyni á yfirstandandi löggjafarþingi. Fjárhagsleg áhrif eru metin óveruleg á ríkissjóð í tengslum við aukinn eftirlitskostnað hjá Umhverfis- og orkustofnun.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd og atvinnuveganefnd um upptöku tilskipunarinnar í samræmi við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerðu nefndirnar ekki athugasemdir við upptöku þeirra í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og umrædd gerð kynnt nefndinni sérstaklega.

6. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 249/2025 frá 24. október 2025 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 249/2025 fellir inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1849 frá 13. júní 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/852 um kvikasilfur að því er varðar tannsilfur og aðrar vörur með viðbættu kvikasilfri sem falla undir framleiðslu-, innflutnings- og útflutningsbann.
    Reglugerð (ESB) 2024/1849 herðir tiltekin ákvæði reglugerðar (ESB) 2017/852 í þeim tilgangi að draga enn frekar úr losun kvikasilfurs og skaðlegum áhrifum kvikasilfurs og kvikasilfurssambanda á heilbrigði manna og umhverfið. Í reglugerðinni er útvíkkað fyrirliggjandi bann við notkun tannsilfurs til viðgerða á barnatönnum og til viðgerða á tönnum barna undir 15 ára aldri, barnshafandi kvenna og kvenna með barn á brjósti og nær bannið nú til allra óháð aldri. Reglugerðin kveður á um ákveðnar undanþágur á fyrrgreindu banni ef tannlæknir telur notkun tannsilfurs nauðsynlega með hliðsjón af læknisfræðilegum þörfum sjúklingsins.
    Ekki er talið að aukinn kostnaður falli til vegna gerðarinnar fyrir ríkissjóð. Haft var samráð við Tannlæknadeild Háskóla Íslands og Tannlæknafélag Íslands sem höfðu ekki athugasemdir við upptöku gerðarinnar.
    Upptaka fyrrgreindrar gerðar í EES-samninginn og innleiðing hennar hér á landi kallar á lagabreytingar á efnalögum, nr. 61/2013. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur í þessu skyni lagt fram frumvarp á yfirstandandi löggjafarþingi um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála og er frumvarpið nú til umfjöllunar hjá umhverfis- og samgöngunefnd ( 265. mál). Reglugerðin verður að öðru leyti innleidd með breytingu á reglugerð um kvikasilfur, nr. 640/2022, svo sem varðandi inn- og útflutningsbann sem og framleiðslubann á tannsilfri, þar sem það krefst ekki lagabreytinga hérlendis. Þá er enginn útflutningur eða framleiðsla á tannsilfri hérlendis og innflutningur er í hverfandi mæli.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku tilskipunarinnar í samræmi við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerði nefndin ekki athugasemdir við upptöku þeirra í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og umrædd gerð kynnt nefndinni sérstaklega.

7. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 294/2025 frá 5. desember 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 294/2025 fellir inn í samninginn framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1496 frá 12. júní 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 575/2013 að því er varðar framkvæmdardagsetningu krafna um eiginfjárgrunn vegna markaðsáhættu.
    Evrópusambandið samþykkti í maí 2024 reglugerð (ESB) 2024/1623 sem felur í sér talsverðar breytingar á svonefndri CRR-reglugerð, reglugerð (ESB) nr. 575/2013, sem hefur að geyma varfærniskröfur til banka og annarra lánastofnana. Breytingarnar byggjast að mestu leyti á alþjóðlegum viðmiðum um varfærniskröfur til banka, svonefndum Basel III-staðli. Meðal þess sem er breytt eru kröfur um eigið fé vegna markaðsáhættu. Hluta þeirra breytinga var frestað um eitt ár, til 1. janúar 2026, með reglugerð (ESB) 2024/2795, í ljósi seinkunar á innleiðingu sambærilegra breytinga í öðrum lögsögum til að viðhalda jafnri samkeppnisstöðu evrópskra banka. Reglugerð (ESB) 2025/1496 frestar þeim um eitt ár til viðbótar, til 1. janúar 2027, af sömu sökum.
    Reglugerð (ESB) 2025/1496, ásamt reglugerðum (ESB) 2024/1623 og 2024/2795, hefur nú þegar verið veitt lagagildi með lögum nr. 102/2025, um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku reglugerðarinnar í samræmi við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerði nefndin ekki athugasemdir við upptöku hennar í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og umrædd gerð kynnt nefndinni sérstaklega.

8. Um upptöku ESB-gerða í EES-samninginn og um stjórnskipulegan fyrirvara.
    Á hverju ári er nokkur fjöldi ESB-gerða tekinn upp í EES-samninginn með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar. Samkvæmt EES-samningnum skuldbinda ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar aðildarríkin að þjóðarétti um leið og þær hafa verið teknar, nema eitthvert þeirra beiti heimild skv. 103. gr. EES-samningsins til að setja fyrirvara um að ákvörðun geti ekki orðið bindandi strax vegna stjórnskipulegra skilyrða heima fyrir. Viðkomandi aðildarríki hefur þá sex mánaða frest frá töku ákvörðunar í sameiginlegu nefndinni til að aflétta fyrirvaranum.
    Almennt hafa íslensk stjórnvöld einungis gert stjórnskipulegan fyrirvara þegar innleiðing ákvörðunar kallar á lagabreytingar hér landi, en í því tilviki leiðir af 21. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, að afla ber samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest. Slíkt samþykki getur Alþingi alltaf veitt samhliða viðeigandi lagabreytingu, en einnig hefur tíðkast að heimila stjórnvöldum að skuldbinda sig að þjóðarétti með þingsályktun áður en landsréttinum er með lögum breytt til samræmis við viðkomandi ákvörðun.
    Áðurnefnd 21. gr. stjórnarskrárinnar tekur til gerðar þjóðréttarsamninga en hún á augljóslega einnig við um þau tilvik þegar breytingar eru gerðar á slíkum samningum. Samkvæmt ákvæðinu er samþykki Alþingis áskilið ef samningur felur í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef hann horfir til breytinga á stjórnarhögum ríkisins. Síðarnefnda atriðið hefur verið túlkað svo að samþykki Alþingis sé áskilið ef gerð þjóðréttarsamnings kallar á lagabreytingar hér á landi.
    Umræddar ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar fela í sér breytingar á EES-samningnum en þar sem þær kalla á lagabreytingar hér á landi voru þær teknar með stjórnskipulegum fyrirvara. Í samræmi við það sem að framan segir er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeim breytingum á EES-samningnum sem í ákvörðununum felast.


Fylgiskjal I.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 332/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0826-f_I.pdf


Fylgiskjal II.


Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/789 frá 17. apríl 2019 um reglur um nýtingu höfundarréttar og skyldra réttinda sem gilda um tilteknar netútsendingar útvarpsfyrirtækja og endurvarp hljóðvarps- og sjónvarpsefnis og um breytingu á tilskipun ráðsins 93/83/EBE.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0826-f_II.pdf


Fylgiskjal III.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 333/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0826-f_III.pdf


Fylgiskjal IV.


Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/790 frá 17. apríl 2019 um höfundarétt og skyld réttindi á stafræna innri markaðnum og um breytingu á tilskipunum 96/9/EB og 2001/29/EB.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0826-f_IV.pdf


Fylgiskjal V.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 172/2025 frá 11. júlí 2025 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0826-f_V.pdf


Fylgiskjal VI.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1860 frá 13. júní 2024 um breytingu á reglugerðum (ESB) 2017/745 og (ESB) 2017/746 að því er varðar að innleiða Evrópska gagnabankann um lækningatæki (Eudamed) smám saman, skylduna til að tilkynna um það ef truflanir verða á afhendingu eða ef afhendingu er hætt og um umbreytingarákvæði vegna tiltekinna lækningatækja til sjúkdómsgreiningar í glasi.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0826-f_VI.pdf


Fylgiskjal VII.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2025 frá 11. júlí 2025 um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0826-f_VII.pdf


Fylgiskjal VIII.


Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 frá 11. desember 2018 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0826-f_VIII.pdf


Fylgiskjal IX.


Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/759 frá 14. desember 2021 um breytingu á VII. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 að því er varðar aðferðafræði fyrir útreikning á magni endurnýjanlegrar orku sem er notuð til kælingar og fjarkælingar.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0826-f_IX.pdf


Fylgiskjal X.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 249/2025 frá 24. október 2025 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0826-f_X.pdf


Fylgiskjal XI.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1849 frá 13. júní 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/852 um kvikasilfur að því er varðar tannsilfur og aðrar vörur með viðbættu kvikasilfri sem falla undir framleiðslu-, innflutnings- og útflutningsbann.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0826-f_XI.pdf


Fylgiskjal XII.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 294/2025 frá 5. desember 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0826-f_XII.pdf



Fylgiskjal XIII.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1496 frá 12. júní 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar framkvæmdardagsetningu krafna um eiginfjárgrunn vegna markaðsáhættu.

www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s0826-f_XIII.pdf