Ferill 497. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 829 — 497. mál.
Beiðni um skýrslu
frá atvinnuvegaráðherra um stjórnvaldsaðgerðir Matvælastofnunar.
Frá Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur, Þóru Gunnlaugu Briem, Grétari Mar Jónssyni, Sigurjóni Þórðarsyni, Sigurði Helga Pálmasyni, Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, Víði Reynissyni, Sigurþóru Steinunni Bergsdóttur, Sigmundi Erni Rúnarssyni og Diljá Mist Einarsdóttur.
Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að atvinnuvegaráðherra flytji Alþingi skýrslu um framkvæmd eftirlits Matvælastofnunar með dýravelferð. Í skýrslunni verði fjallað um:
1. hversu mörg mál í heild komu til kasta Matvælastofnunar ár hvert árin 2016–2025 og hverjar málalyktir urðu, einkanlega hvort lögð var á stjórnvaldssekt, hvort mál var kært til lögreglu, hvort umráðamenn hlutu viðvörun, hvort dagsektum var beitt, hvort vörslusvipting var framkvæmd og hvort mál var fellt niður,
2. hvaða viðmið gilda hjá Matvælastofnun þegar valið er að beita stjórnvaldssektum eða kæra mál til lögreglu vegna alvarlegra brota á reglum um dýravelferð,
3. hvaða verklagsreglur gilda hjá Matvælastofnun um samskipti við eigendur í málum sem varða slæman aðbúnað, þar á meðal um tilkynningar um eftirlit, leiðbeiningar, svigrúm til andmæla og beitingu meðalhófs,
4. hvaða mat liggur að baki ákvörðunum Matvælastofnunar um að grípa til aflífunar dýra í tengslum við vörslusviptingu og hvaða önnur úrræði stofnunin hefur til að tryggja velferð dýra án þess að grípa þurfi til aflífunar,
5. hvort í gildi eru verklagsreglur hjá stofnuninni þegar grípa þarf til þvingunarheimilda stofnunarinnar um að vörslusvipta eigendur, eða þegar farið er fram á að eigendur láti aflífa gæludýr sín, og hvort slíkar reglur hafa verið endurskoðaðar nýlega,
6. hvort fram fer regluleg endurmenntun eða fagleg þjálfun eftirlitsaðila Matvælastofnunar á sviði dýravelferðar, hvort algengt er að mál vegna dýravelferðar berist ítrekað til Matvælastofnunar án þess að varanlegar úrbætur verði á aðbúnaði dýra og hvernig slíkum málum er almennt fylgt eftir,
7. hversu oft Matvælastofnun hefur ákveðið stjórnvaldssektir vegna vanfóðrunar búfjár á útigangi og hvaða sjónarmið ráða slíkum ákvörðunum,
8. hvernig Matvælastofnun metur alvarleika mála sem varða slæman aðbúnað búfjár, þar á meðal hvenær og með hvaða hætti gripið er til íþyngjandi aðgerða á borð við vörslusviptingu eða slátrun, og hvaða sjónarmið ráða tímasetningu slíkra aðgerða,
9. hvernig háttað er eftirliti Matvælastofnunar með því að hrossaeigendur uppfylli skyldu sína um aðgang hrossa að skjóli á útigangi samkvæmt reglugerð um velferð hrossa,
10. á hvaða lagagrundvelli Matvælastofnun byggir það mat að heimilt sé að veita undanþágu vegna halaklippingar á svínum, hvernig slíku undanþágufyrirkomulagi er háttað í framkvæmd og hvernig stofnunin tryggir að halaklipping sé einungis framkvæmd í samræmi við skilyrði laga um velferð dýra og reglugerðar um velferð svína, þ.m.t. um brýna nauðsyn, faglegt mat dýralæknis og deyfingu dýra.
Greinargerð.
Í frétt Matvælastofnunar 9. mars 2023 kom fram að stofnunin hefði samkvæmt dýravelferðarlöggjöfinni annars vegar yfir að ráða þvingunarúrræðum, svo sem álagningu dagsekta, og hins vegar viðurlögum í formi stjórnvaldssekta vegna fullframinna brota. Jafnframt var tekið fram að allra alvarlegustu málum væri vísað til lögreglu til rannsóknar, sem gæti leitt til refsidóms.
Í nóvember 2023 skilaði Ríkisendurskoðun stjórnsýsluúttekt á eftirliti Matvælastofnunar með velferð dýra. Í úttektinni var m.a. fjallað um hvort eftirlitið væri skilvirkt og í samræmi við lög og reglugerðir og hvort viðbrögð stjórnvalda væru nægjanlega skýr og markviss þegar velferð dýra væri ógnað. Þar komu fram ábendingar um mikilvægi vandaðrar málsmeðferðar, skýrra viðmiða og þess að velferð dýra væri höfð að leiðarljósi þegar hætta væri talin á brotum gegn reglum um dýravelferð. Umfjöllun Ríkisendurskoðunar undirstrikar að álitamál um framkvæmd eftirlits Matvælastofnunar lúta ekki einvörðungu að gagnrýni hagsmunaaðila eða félagasamtaka.
Jafnframt hafa ýmis tilvik vakið spurningar um hvernig þessum úrræðum er í reynd beitt, hvort samræmi ríki í ákvörðunum Matvælastofnunar og hvort viðmið stofnunarinnar séu nægjanlega skýr. Bent hefur verið á að í sumum tilvikum hafi alvarleg atvik ekki leitt til íþyngjandi aðgerða þrátt fyrir ítarleg gögn um möguleg brot á reglum um dýravelferð, en gripið hafi verið til slíkra aðgerða í öðrum málum sem almenningur hefur talið sambærileg eða jafnvel vægari að eðli.
Í því samhengi vakti sérstaka athygli þegar Matvælastofnun greindi frá því í apríl árið 2025 að málsmeðferð vegna erinda um illa meðferð hryssna við blóðtöku væri lokið án frekari aðgerða. Stofnuninni höfðu borist fjölmörg myndbönd sem sýndu alvarlega meðferð á fylfullum hryssum þar sem m.a. var sparkað í þær og þær barðar með prikum. Í tilkynningu stofnunarinnar kom fram að í ljósi viðbragða og úrbóta rekstraraðila þar sem atvikin áttu sér stað hefði verið talið að ekki væri þörf á frekari aðgerðum af hálfu stofnunarinnar.
Í kjölfar þessarar niðurstöðu hefur stofnunin sætt gagnrýni af hálfu dýraverndarsamtaka hérlendis og erlendis. Gagnrýnin hefur m.a. lotið að því að með því að bregðast ekki við slíkum atvikum kunni stofnunin að senda þau skilaboð að harðýðgi gagnvart hrossum sé ekki litin jafn alvarlegum augum og sambærileg brot gagnvart dýrum af öðrum tegundum. Í umræðunni hefur jafnframt verið bent á dæmi þar sem Matvælastofnun hefur beitt stjórnvaldssektum vegna harðýðgi í málum sem talin hafa verið sambærileg að alvarleika. Slíkur samanburður hefur vakið spurningar um samræmi og jafnræði við beitingu úrræða.
Athygli hefur einnig beinst að eftirfylgni ítrekaðra tilkynninga um slæman aðbúnað dýra, bæði búfjár og gæludýra, og hvort slík mál leiði í raun til hertari viðbragða þegar úrbætur skila ekki árangri. Þá hefur verið gagnrýnt að skortur sé á gagnsæi um faglegt mat, verklag og innra samræmi í störfum eftirlitsaðila, m.a. í tengslum við hæfni, endurmenntun og beitingu matskenndra hugtaka í reglugerðum.
Í þessu samhengi hefur eftirlit með aðbúnaði hrossa á útigangi einnig verið gagnrýnt. Þrátt fyrir að í reglugerð um velferð hrossa sé skýrt kveðið á um skyldu eigenda til að tryggja hrossum aðgang að fullnægjandi skjóli hafa ítrekað komið fram dæmi um að hross séu höfð skjóllaus allan ársins hring. Í 18. gr. reglugerðarinnar er mælt fyrir um að þar sem hross eru höfð á útigangi skuli þau hafa aðgang að náttúrulegu skjóli eða, ef slíkt er ekki fyrir hendi, manngerðum skjólveggjum. Þrátt fyrir að slík ákvæði hafi verið í gildi um árabil hafa þau ekki í öllum tilvikum leitt til sýnilegrar eða samræmdrar eftirfylgni af hálfu eftirlitsaðila. Það vekur spurningar um framkvæmd reglugerðarinnar, túlkun á henni og raunverulegt eftirlit.
Jafnframt er ástæða til að víkja að niðurstöðum nýlegrar skýrslu atvinnuvegaráðherra um aðbúnað svína sem lögð var fram í kjölfar skýrslubeiðni þingmanna. Í skýrslunni er m.a. fjallað um framkvæmd halaklippingar á svínum og tekið fram að slíkt inngrip falli undir aðgerðir sem starfandi svínaræktendur hafi fengið undanþágu Matvælastofnunar til að framkvæma samkvæmt heimild í gildandi regluverki. Þetta hefur vakið spurningar enda er í skýrslunni ekki vísað skýrt til þeirra laga- eða reglugerðarheimilda sem undanþágurnar byggjast á. Samkvæmt lögum um velferð dýra og reglugerð um velferð svína er halaklipping aðeins heimil að uppfylltum skýrum skilyrðum, þ.e. þegar brýna nauðsyn ber til samkvæmt mati dýralæknis og aðgerðin er framkvæmd af dýralækni eða aðila með tilskilin leyfi með deyfingu og að teknu tilliti til velferðar dýrsins.
Í ljósi þess að í skýrslunni er talað um almennar undanþágur til starfandi svínaræktenda, án nánari sundurliðunar á lagastoð, verklagi eða eftirliti með framkvæmd, er mikilvægt að skýrt verði hvernig þetta fyrirkomulag samræmist gildandi lögum og reglugerðum. Þá hefur verið bent á að skortur á skýrum lagatilvísunum geti torveldað þeim sem leggja þurfa mat á hvort framkvæmd halaklippingar sé í raun undantekning, eins og gert er ráð fyrir í regluverkinu, eða hvort hún hafi í framkvæmd þróast í almenna og kerfisbundna aðferð.
Jafnframt hafa komið fram ábendingar í opinberri umræðu og í erindum til stjórnvalda um að samskipti Matvælastofnunar við búfjár- og dýraeigendur í tengslum við eftirlit og íhlutun geti í sumum tilvikum verið íþyngjandi, einkum þegar um er að ræða alvarleg atvik eða aðstæður þar sem eigendur standa frammi fyrir áföllum. Bent hefur verið á skort á samráði, takmarkað svigrúm til andmæla og óskýr skilaboð um kröfur og úrbætur. Þó að ljóst sé að Matvælastofnun starfar á grundvelli laga og reglna vekja slíkar ábendingar engu að síður spurningar um verklag stofnunarinnar í samskiptum við þá sem sæta eftirliti. Í því samhengi er mikilvægt að skoða hvort verklag um tilkynningar, leiðbeiningar, andmælarétt og skráningu samskipta sé nægjanlega skýrt og samræmt og samrýmist meginreglum stjórnsýsluréttar.
Að lokum hefur umræða um slæman aðbúnað búfjár í einstökum málum dregið fram áleitnar spurningar um hvernig Matvælastofnun metur alvarleika slíkra mála, hvenær talið er rétt að grípa til íþyngjandi úrræða á borð við vörslusviptingu eða slátrun og hvaða sjónarmið ráða tímasetningu aðgerðanna. Slíkar ákvarðanir skipta verulegu máli í ljósi markmiða dýravelferðarlöggjafarinnar um að koma í veg fyrir óþarfa þjáningu dýra.
Með skýrslubeiðni þessari er óskað eftir heildstæðri og skýrri umfjöllun um framkvæmd, verklag og lagagrundvöll eftirlits Matvælastofnunar með dýravelferð, þar á meðal um beitingu íþyngjandi aðgerða, eftirfylgni brota og undanþágur frá meginreglum regluverksins. Markmiðið er að tryggja gagnsæi, samræmi og skýra ábyrgð í stjórnsýslu á sviði dýravelferðar þannig að framkvæmd laga og reglugerða endurspegli í reynd þau markmið sem löggjafinn hefur sett um vernd dýra gegn óþarfa þjáningu.