Ferill 441. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 834 — 441. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Sindra S. Kristjánssyni um Vetraríþróttamiðstöð Íslands og þjóðarleikvang vetraríþrótta.
1. Liggja fyrir tillögur um störf og framtíðarsýn fyrir Vetraríþróttamiðstöð Íslands (VMÍ) á grundvelli samnings ráðherra og stjórnar VMÍ sem undirritaður var í febrúar 2024?
Á grundvelli samnings frá febrúar 2024 liggja fyrir tillögur að framtíðarsýn og næstu skrefum Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands (VMÍ). Tillögurnar byggjast á stefnumótunarvinnu er grundvallast á vinnustofu er haldin var með helstu haghöfum á vegum VMÍ í desember 2024.
2. Hefur farið fram vinna í ráðuneytinu sem miðar að því að skilgreina þjóðarleikvang vetraríþrótta á Íslandi?
Um viðurkenningu íþróttamannvirkja sem þjóðarleikvanga í íþróttum gildir reglugerð nr. 388/2018. Samkvæmt reglugerðinni er hlutverk ráðuneytis að leggja mat á umsóknir um viðurkenningu íþróttamannvirkis sem þjóðarleikvangs í íþróttum. Eins og ferlinu er lýst í reglugerðinni er það hlutverk Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands að útbúa rökstudda tillögu um að íþróttamannvirki verði skilgreint sem þjóðarleikvangur að undangenginni umsókn viðkomandi sérsambands. Umsögn og samþykki sveitarfélags auk umsagnar héraðssambands skal fylgja umsókninni. Vinna við að skilgreina þjóðarleikvang vetraríþrótta hefur ekki farið fram í ráðuneytinu þar sem umsókn samkvæmt kröfum sem lýst er í fyrrnefndri reglugerð nr. 388/2018 hefur ekki borist. Berist slík umsókn fer í gang ferli sem lýst er í reglugerðinni þar sem hlutverk ráðuneytisins í ferlinu er að meta umsóknina og, standist umsókn kröfur, að veita viðurkenningu til þjóðarleikvangs.