Ferill 415. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 835  —  415. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um fjölda örorkulífeyrisþega.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver var fjöldi örorkulífeyrisþega, annars vegar þegar eldra kerfi var í gildi (örorkulífeyrir, tekjutryggingar og sérstök framfærsluuppbót) árin 2023–2025 og hins vegar frá því að nýtt örorkulífeyriskerfi tók gildi 1. sept. 2025 og út árið 2025? Svar óskast sundurliðað eftir kyni, þjóðerni og aldri.

    Samkvæmt lögum um almannatryggingar getur Tryggingastofnun ákvarðað greiðslur allt að tvö ár aftur í tímann frá því að stofnuninni berst umsókn og önnur gögn sem nauðsynleg eru til að taka ákvörðun um rétt til greiðslna og fjárhæð þeirra. Í ljósi þess geta endanlegar tölur um fjölda örorkulífeyrisþega á árunum 2024 og 2025 orðið aðrar en fram kemur í meðfylgjandi töflum.
    Í töflu 1 má sjá fjölda þeirra sem fengu greiddan örorkulífeyri frá Tryggingastofnun á árunum 2023, 2024 og 2025 óháð því hvort þeir fengu greiðslu hluta úr ári eða allt árið. Árinu 2025 er skipt í tvö tímabil.

Tafla 1.
Ár Fjöldi sem fékk greitt einhvern tímann á árinu/tímabilinu
2023 21.332
2024 21.004
2025 (jan. – ágúst.) 20.291
2025 (sept. – des.) 19.570
Heimild: Tryggingastofnun.

    Í töflu 2 má sjá fjölda þeirra sem fengu greiddan örorkulífeyri frá Tryggingastofnun á árunum 2023, 2024 og 2025, greint eftir aldri og kyni. Árinu 2025 er skipt í tvö tímabil.

Tafla 2.
Örorkulífeyrisþegar Fjöldi sem fékk greitt einhvern tímann á árinu/tímabilinu
Ár 2023 2024 2025 jan. – ágúst 2025 sept. – des.
Karlar 8.463 8.305 7.976 7.650
18–29 ára 953 885 814 821
30–39 ára 1.285 1.302 1.278 1.276
40–49 ára 1.549 1.544 1.509 1.499
50–59 ára 1.918 1.852 1.795 1.766
60–66 ára 2.758 2.722 2.580 2.288
Konur 12.869 12.699 12.315 11.920
18–29 ára 726 647 577 586
30–39 ára 1.674 1.620 1.534 1.537
40–49 ára 2.714 2.711 2.674 2.669
50–59 ára 3.444 3.378 3.269 3.260
60–66 ára 4.311 4.343 4.261 3.868
Karlar og konur 21.332 21.004 20.291 19.570
18–29 ára 1.679 1.532 1.391 1.407
30–39 ára 2.959 2.922 2.812 2.813
40–49 ára 4.263 4.255 4.183 4.168
50–59 ára 5.362 5.230 5.064 5.026
60–66 ára 7.069 7.065 6.841 6.156
Heimild: Tryggingastofnun.

    Í töflu 3 má sjá fjölda þeirra sem fengu greiddan örorkulífeyri frá Tryggingastofnun á árunum 2023, 2024 og 2025, greint eftir þjóðerni (uppruna miðað við fyrsta skráða ríkisfang sem Tryggingastofnun hefur upplýsingar um). Árinu 2025 er skipt í tvö tímabil.

Tafla 3.
Þjóðerni (uppruni) Fjöldi sem fékk greitt einhvern tímann á árinu/tímabilinu
Ár 2023 2024 2025 jan. – ágúst 2025 sept. – des.
Afríka 143 144 140 138
Alsír 4 5 6 6
Gana 9 8 8 8
Grænhöfðaeyjar 11 10 8 8
Kenía 10 10 10 10
Marokkó 58 60 57 58
Nígería 5 6 6 5
Suður-Afríka 8 8 8 8
Túnis 7 8 8 8
Afríka – önnur lönd (<5) 31 29 29 27
Ameríka 216 228 226 217
Bandaríkin 113 116 111 107
Brasilía 12 10 11 11
Chile 14 15 15 14
Grænland 8 9 9 7
Kanada 7 7 8 8
Kólumbía 19 18 19 19
Perú 7 7 7 7
Venesúela 16 22 21 20
Ameríka – önnur lönd (<5) 20 24 25 24
Asía 515 521 520 506
Afganistan 15 16 16 15
Filippseyjar 92 93 91 88
Indland 23 24 25 24
Indónesía 11 11 10 10
Írak 19 20 28 28
Íran 19 18 19 19
Jórdanía 5 5 5 5
Kína 17 17 16 16
Líbanon 7 7 7 7
Malasía 5 5 5 5
Nepal 7 7 7 6
Palestína 11 14 14 14
Srí Lanka 16 16 16 15
Sýrland 56 56 56 53
Taíland 127 129 127 125
Víetnam 67 66 62 60
Asía – önnur lönd (<5) 18 17 16 16
Evrópa (án Íslands) 1.457 1.472 1.464 1.426
Evrópa utan EES (án Íslands) 317 316 320 313
Albanía 9 8 9 9
Bosnía og Hersegóvína 21 22 23 22
Bretland 59 56 55 54
Færeyjar 24 23 23 22
Júgóslavía 12 12 11 11
Kósovó 69 70 71 70
Makedónía 11 11 12 12
Rússland 24 25 25 24
Serbía 39 39 38 38
Serbía og Svartfjallaland 9 9 8 8
Sovétríkin 7 7 7 6
Tyrkland 11 10 10 10
Úkraína 10 13 17 17
Evrópa utan EES (<5) 12 11 11 10
Evrópa innan EES (án Íslands) 1.140 1.156 1.144 1.113
Búlgaría 17 17 16 16
Danmörk 102 100 99 96
Eistland 6 6 6 6
Finnland 14 14 13 12
Frakkland 15 15 14 14
Holland 10 12 12 12
Írland 7 7 7 7
Ítalía 8 8 7 7
Króatía 39 37 37 35
Lettland 32 36 36 33
Litáen 67 66 70 67
Noregur 33 26 23 22
Portúgal 60 63 66 66
Pólland 563 577 569 554
Rúmenía 19 21 20 23
Slóvakía 12 11 11 10
Slóvenía 4 4 5 5
Spánn 21 22 22 20
Svíþjóð 34 33 34 34
Tékkland 9 8 9 9
Ungverjaland 12 12 12 11
Þýskaland 46 48 42 42
Evrópa innan EES (<5) 10 13 14 12
Eyjaálfa – önnur lönd (<5) 3 3 3 3
Ótilgreint 1 1 1 1
Ísland 18.997 18.635 17.937 17.279
Samtals 21.332 21.004 20.291 19.570
Heimild: Tryggingastofnun.