Ferill 500. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 838 — 500. mál.
Beiðni um skýrslu
frá mennta- og barnamálaráðherra um frammistöðu nemenda úr
einstökum grunnskólum á lokaprófum í framhaldsskólum.
Frá Vilhjálmi Árnasyni, Bryndísi Haraldsdóttur, Diljá Mist Einarsdóttur,
Guðlaugi Þór Þórðarsyni, Jens Garðari Helgasyni, Jóni Pétri Zimsen,
Njáli Trausta Friðbertssyni, Ólafi Adolfssyni og Rósu Guðbjartsdóttur.
Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að mennta- og barnamálaráðherra flytji Alþingi skýrslu um frammistöðu nemenda úr einstökum grunnskólum á lokaprófum í framhaldsskólum skólaárið 2023–2024. Í skýrslunni komi fram:
1. Yfirlit yfir hvaðan nemendur sem útskrifuðust úr framhaldsskóla á skólaárinu 2023– 2024 höfðu lokið grunnskólanámi.
2. Hlutfall innritaðra framhaldsskólanemenda sem luku framhaldsskólanámi á tilskildum tíma skólaárið 2023–2024.
3. Yfirlit um hvern framhaldsskóla þar sem fram komi meðalárseinkunn allra framhaldsskólanemenda sem sóttu nám skólaárið 2023–2024 eftir grunnskólum sem þeir luku skyldunámi frá. Upplýsingar verði sundurliðaðar eftir árgöngum og eftir grunnskólum þegar fimm eða fleiri framhaldsskólanemendur komu úr eða luku skyldunámi frá sama grunnskóla. Reiknuð verði sameiginleg meðalárseinkunn framhaldsskólanemenda úr grunnskólum sem færri en fimm framhaldsskólanemendur komu úr eða luku skyldunámi frá.
4. Yfirlit um hvern framhaldsskóla þar sem fram komi meðaleinkunn útskriftarnemenda úr framhaldsskóla á grunnskólaprófi eftir grunnskólum sem þeir luku skyldunámi frá. Meðaleinkunn verði sundurliðuð eftir grunnskólum þegar fimm eða fleiri útskriftarnemendur úr framhaldsskóla komu úr eða luku skyldunámi frá sama grunnskóla. Reiknuð verði sameiginleg meðaleinkunn útskriftarnemenda úr framhaldsskóla úr grunnskólum sem færri en fimm útskriftarnemendur komu úr eða luku skyldunámi frá.
5. Meðaleinkunn nemenda úr öllum grunnskólum sem útskrifuðust úr framhaldsskóla á þessu tímabili.
Greinargerð.
„Almennt gildir að árangur skólastarfs er metinn eftir því hvernig nemendum gengur þegar námi er lokið. Þetta gildir um öll skólastig. Háskólar reyna að hampa þeim einstaklingum sem ná árangri í störfum sínum eftir útskrift og jafnvel eru gerðar kannanir á tekjum útskrifaðra nemenda úr einstökum háskólum og þeir bornir saman miðað við niðurstöðurnar. Allir háskólar reyna að skapa sér orðspor sem byggist á árangri útskrifaðra nemenda. Vandlega er fylgst með því í fræðaheiminum hvaðan höfundar fræðigreina hafa útskrifast. Framhaldsskólar fylgjast einnig vel með því hvort útskrifaðir nemendur ná árangri á vinnumarkaði eða í háskólanámi, t.d. hvernig þeim gengur á inntökuprófum í háskólum og hvernig þeim reiðir af í erfiðu námi. Framhaldsskólar reyna ekki síður en háskólar að verða þekktir fyrir gæði náms enda ríkir mikil samkeppni milli framhaldsskóla um nemendur sem geta valið milli skóla.
Sú stefna hefur verið rekin leynt og ljóst að hlífa grunnskólum landsins við samkeppni og samanburði. Þetta hefur verið rökstutt þannig að verið sé að þjóna hagsmunum grunnskólanemenda. Í reynd hefur þetta leitt til þess að óhægt er um vik að mæla árangur og bera saman gæði náms í ólíkum skólum. Slíkt þjónar hvorki hagsmunum nemenda né foreldra þeirra sem er umhugað um að börnin hljóti sómasamlega menntun.
Með því að fela ráðherra að taka saman einkunnir nemenda við útskrift úr framhaldsskólum og skoða úr hvaða grunnskólum þeir komu má fá fram mikilvægar upplýsingar um gæði og árangur skólastarfs í hverjum grunnskóla um sig. Nauðsynlegt er að hefja slíka upplýsingaöflun og þróa hana síðan sem tæki til að bera saman grunnskóla. Í kjölfarið getur hver og einn grunnskóli nýtt sér útkomuna við stefnumörkun til að bæta gæði náms og árangur nemenda.“