Ferill 504. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 846  —  504. mál.




Fyrirspurn


til atvinnuvegaráðherra um erfðabreytileika laxa.

Frá Sigurjóni Þórðarsyni.


     1.      Telur ráðherra að niðurstöður skýrslu Matís frá mars 2024, „Erfðabreytileiki laxa í Laxá í Aðaldal“, sem benda til verulegra breytinga á erfðasamsetningu laxastofnsins, gefi tilefni til að ráðast í sambærilegar rannsóknir í öðrum laxveiðiám landsins?
     2.      Telur ráðherra að niðurstöðurnar gefi tilefni til að endurskoða regluverk og eftirlit með fiskirækt, þar á meðal seiðasleppingum, og hvort þörf sé á auknu aðhaldi í þeim efnum?


Skriflegt svar óskast.