Ferill 506. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 848  —  506. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, nr. 112/2015 (hlutverk, ráðgjafarnefnd, forstjóri o.fl.).

Frá atvinnuvegaráðherra.



1. gr.

    1. gr. laganna orðast svo:
    Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, er sjálfstæð stofnun sem heyrir undir ráðherra.

2. gr.

    3. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Forstjóri o.fl.

    Ráðherra skipar forstjóra Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna, til fimm ára í senn. Forstjóri skal hafa háskólamenntun sem nýtist í starfi. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi stofnunarinnar og annast rekstur hennar.
    Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna, skal setja sér langtímastefnu, m.a. um rannsóknir, sem ráðherra staðfestir.

3. gr.

    4. gr. laganna orðast svo:
    Forstjóri hefur sér til ráðuneytis ráðgjafarnefnd. Ráðherra skipar ráðgjafarnefnd til fjögurra ára í senn. Ráðherra skipar nefndarmenn án tilnefningar, skipar formann og setur honum erindisbréf. Við skipan nefndarinnar skal leitast við að tryggja aðkomu helstu hagsmunaaðila og faglega þekkingu á fagsviði stofnunarinnar.
    Ráðgjafarnefndin skal að jafnaði funda fjórum sinnum á ári. Formaður ráðgjafarnefndar boðar fundi nefndarinnar.
    Verkefni nefndarinnar er að vera forstjóra til ráðuneytis um mótun langtímastefnu, m.a. um rannsóknir skv. 2. mgr. 3. gr., og eftirfylgni hennar og vera tengiliður við hagsmunaaðila um fagleg málefni.

4. gr.

    5. gr. laganna orðast svo:
    Hlutverk Hafrannsóknastofnunar skal vera að:
     1.      Rannsaka lífríki og vistkerfi sjávar og ferskvatns ásamt umhverfisþáttum þeirra.
     2.      Veita stjórnvöldum ráðgjöf varðandi sjálfbæra nýtingu á auðlindum og verndun umhverfis í sjó og ferskvatni í samræmi við nýtingarstefnu stjórnvalda.
     3.      Veita einstaklingum, lögaðilum og hagsmunaaðilum þjónustu og ráðgjöf á fagsviðum stofnunarinnar eftir atvikum gegn gjaldi.
     4.      Miðla til stjórnvalda, hagsmunaaðila og almennings upplýsingum, rannsóknaniðurstöðum og gögnum um sjálfbærar nytjar og umhverfi hafs og ferskvatns.
     5.      Styðja við nýsköpun og tækniþróun á sviði sjávar- og ferskvatnstengdrar starfsemi sem eykur sjálfbærni, fjölbreytni og hagkvæmni í nýtingu auðlinda.
     6.      Annast milliríkjasamstarf og erlend samskipti á fagsviði stofnunarinnar.

5. gr.

    6. gr. laganna orðast svo:
    Hafrannsóknastofnun skal í samstarfi við háskóla og rannsóknastofnanir á fagsviði sínu taka þátt í uppbyggingu þekkingar og menntunar, m.a. með þátttöku í kennslu og vísindasamfélagi, með sameiginlegum rannsóknaverkefnum og með þátttöku nemenda í framhaldsnámi í rannsóknaverkefnum stofnunarinnar.

6. gr.

    7. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Fjármögnun og gjaldtaka.

    Kostnaður við starfrækslu Hafrannsóknastofnunar greiðist af fjárveitingum úr ríkissjóði samkvæmt fjárlögum.
    Hafrannsóknastofnun er heimilt að afla sér tekna með sölu á þjónustu á verksviði stofnunarinnar, af rannsóknastarfsemi sem samrýmist hlutverki stofnunarinnar, svo og af leigu tækja og búnaðar og úrvinnslu og afgreiðslu gagna.
    Gjaldtaka skv. 2. mgr. skal ákveðin í gjaldskrá sem ráðherra staðfestir og skal hún birt í B-deild Stjórnartíðinda.
    Einnig er stofnuninni heimilt að afla tekna með sölu afla sem fellur til vegna rannsókna og sölu hlutdeildar í félögum, sbr. 8. gr.
    Stofnuninni er heimilt veita viðtöku fjárframlögum og afla rannsókna- og þróunarstyrkja, jafnt innan lands sem utan, sem samrýmast hlutverki stofnunarinnar.
    Þann hluta starfsemi Hafrannsóknastofnunar sem rekinn er á viðskiptagrundvelli á samkeppnismarkaði skal skilja fjárhagslega frá öðrum þáttum rekstrarins og skal endurgjald taka mið af markaðsverði. Sala á þjónustu samkvæmt þessari málsgrein skal byggjast á samningum.

7. gr.

    Við 9. gr. laganna bætist: t.d. með því að fela stofnuninni rannsóknir og önnur tengd verkefni.

8. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Frumvarp þetta er samið í atvinnuvegaráðuneytinu. Með því er lagt til að samþykktar verði tilteknar breytingar á lögum um Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna. Gildandi lög um stofnunina hvíla á nokkuð gömlum grunni. Fyrstu lög um Hafrannsóknastofnun voru sett árið 1965 en þau tóku nokkrum breytingum allt þar til gildandi lög nr. 112/2015 voru sett en meginmarkmið þeirra var sameining Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar í eina stofnun, Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna. Með lögunum voru hlutverk þessara tveggja stofnana sameinuð og samþætt í einum lagabálki. Aftur á móti fólu lögin í reynd ekki í sér heildarendurskoðun á þágildandi lögum um stofnanirnar tvær sem urðu að Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna enda var hinni nýju stofnun ætlað að sinna sömu meginhlutverkum og stofnanirnar tvær sinntu áður og henni búin sambærileg starfsskilyrði stjórnskipulega.
    Markmið frumvarpsins er að styrkja gildandi lagaramma um stofnunina þannig að hann mæti sem best nýjum áskorunum og breyttum kröfum til hennar sem m.a. leiða af vaxandi loftslags- og umhverfisáskorunum, tækniþróun, breyttri stöðu alþjóðamála og auknu álagi á lífríki vatna og hafsins.
    Íslenskt samfélag hefur tekið verulegum breytingum á undanförnum áratugum. Nýjar atvinnugreinar tengdar nýtingu hafsins hafa risið og vaxið hratt, m.a. í formi stórfelldrar aukningar í lagareldi og hraðrar þróunar lífhagkerfis sjávar. Þá er aukin áhersla á að nýta auðlindir hafsins og hafgrunnsins. Þessar breytingar kalla á víðtækari, nákvæmari og sérhæfðari rannsóknir, aukna getu til að veita ráðgjöf á breiðara sviði og skilvirkari samhæfingu milli ólíkra hagsmunaaðila. Tækniframfarir síðustu ára hafa jafnframt áhrif á hlutverk og getu Hafrannsóknastofnunar til gagnaöflunar, úrvinnslu og greiningar og gera það að verkum að aðferðir og vinnulag stofnunarinnar þarf að þróast í takt við þessar breytingar.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Markmið frumvarpsins er að skýra betur og styrkja þann lagaramma sem Hafrannsóknastofnun starfar eftir og gera stofnuninni þar með betur kleift að sinna þeim verkefnum sem henni eru falin með lögum. Með frumvarpinu er einnig leitast við að bregðast við ýmsum ábendingum og gagnrýni á rekstur og stjórnsýslu stofnunarinnar sem fram hafa komið á liðnum árum m.a. í úttekt ráðuneytisins og skýrslu Ríkisendurskoðunar.
    Í því skyni að fá betri yfirsýn yfir hlutverk og starfsemi stofnunarinnar fól atvinnuvegaráðuneytið ráðgjafarfyrirtækinu Deloitte ehf. í sumarlok 2025 að vinna greiningu á stöðu stofnunarinnar og leggja grunn að valkostum til framtíðar um breytingar á skipulagi, verklagi og áherslum stofnunarinnar og stendur sú vinna enn yfir. Í frumvarpi þessu er m.a. tekið mið af þeim ábendingum sem þegar hafa komið fram af hálfu ráðgjafa Deloitte. Samhliða vinnu ráðgjafanna var í ráðuneytinu unnin úttekt á þeirri lagaumgjörð sem stofnunin starfar eftir og stjórnsýslu hennar þar sem m.a. voru færðar fram ábendingar um það sem huga mætti betur að í löggjöfinni. Við þá vinnu hefur komið í ljós að rétt sé að leggja til nokkrar breytingar á lögum um stofnunina til að styðja betur við starfsemi hennar og skýra stöðu hennar gagnvart atvinnuvegaráðuneytinu.
    Á meðal þess fram hefur komið í tengslum við framangreinda greiningarvinnu er að nauðsynlegt sé að skerpa á tilteknum atriðum í lögum um Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, nr. 112/2015. Einkum hefur verið bent á að framsetning á hlutverki Hafrannsóknastofnunar eins og það er skilgreint í 1.–18. tölul. 5. gr. laganna sé ómarkviss þar sem þar er ekki að finna leiðsögn um hvernig skuli forgangsraða verkefnum ef á reynir, t.d. ef þrengir að fjárveitingum. Er því talið nauðsynlegt að skerpa á og gera breytingar á framsetningu á hlutverki stofnunarinnar í lögum þannig að hún sé sem best í stakk búin til að sinna kjarnaverkefnum sínum á sviði rannsókna, ráðgjafar og þekkingarmiðlunar og forgangsraða verkefnum til lengri tíma.
    Þá hefur framangreind vinna leitt í ljós að nokkuð hafi skort á virka yfirstjórn ráðuneytisins gagnvart Hafrannsóknastofnun og að eftirfylgni þess með ýmsum lögbundnum verkefnum eða eftir atvikum ábendingum, t.d. frá eftirlitsaðilum á borð við Ríkisendurskoðun, sé ábótavant. Hafrannsóknastofnun er sjálfstæð stofnun sem heyrir stjórnarfarslega undir ráðherra sem fer með málaflokka stofnunarinnar. Af þessu sjálfstæði leiðir að heimildir ráðherra til að hafa afskipti af starfsemi stofnunarinnar, svo sem í tengslum við forgangsröðun rannsókna og annarra verkefna, eru takmarkaðar og þurfa almennt að hvíla á sérstakri lagaheimild. Í lögum nr. 112/2015 er að finna nokkuð víðtækar stjórnunarheimildir til handa ráðherra, svo sem heimildir til að setja reglugerðir um starfsemi stofnunarinnar og fela henni tiltekin verkefni. Þessar heimildir eru þó talsvert opnar án nánari afmörkunar á inntaki þeirra. Reyndin er enda sú að ráðherra hefur lítið sem ekkert notfært sér þessar stjórnunarheimildir jafnvel þótt ástæða kunni að vera til.
    Í því skyni að stuðla virkari yfirstjórn með starfsemi stofnunarinnar var við undirbúning frumvarpsins tekið til sérstakrar skoðunar hvort ástæða væri til að endurskoða stjórnsýslulega stöðu stofnunarinnar sem sjálfstæðs stjórnvalds og þannig færa hana undir beina yfirstjórn ráðherra. Niðurstaða þeirrar skoðunar var sú að vandinn þegar kæmi að skorti á yfirsýn og virki stjórn ráðuneytisins gagnvart Hafrannsóknastofnun væri ekki sá að nauðsynlegum stjórntækjum gagnvart stofnuninni væri ábótavant heldur fremur í því að ráðuneytið beiti ekki þeim úrræðum sem því eru tiltæk, eftir atvikum á grundvelli laga nr. 112/2015 eða laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011. Í því sambandi má m.a. nefna að ráðherra hefur sem fyrr segir ekki nýtt sér þær reglugerðarheimildir sem fram koma í lögum um stofnunina eða aðrar heimildir til að t.d. fela stofnuninni að annast rannsóknir eða verkefni. Verður því að telja nærtækara að hugað verði að verklagi innan ráðuneytisins og gerðar nauðsynlegar ráðstafanir, m.a. með tilliti til mönnunar og skipulags, til þess að tryggja viðunandi yfirstjórn og eftirlit með starfsemi stofnunarinnar. Er því ekki lagt til að hróflað verði við sjálfstæði stofnunarinnar en lagðar til vissar breytingar á reglugerðarheimildum og lögmætiseftirliti ráðherra. Má t.d. nefna að í frumvarpinu er lagt til að ráðherra fái til staðfestingar langtímastefnumótun stofnunarinnar, m.a. á sviði rannsókna. Þannig er leitað jafnvægis milli þess sjálfstæðis sem stofnunin þarf að njóta um vísindalegt starf og framkvæmd rannsókna annars vegar og möguleika ráðherra á að hafa áhrif og eftirlit með þeim mikilvæga málaflokki sem Hafrannsóknastofnun fer með og ráðherra ber ábyrgð á.
    Hluti þeirrar þjónustu sem stofnunin veitir, einkum verkefni á sviði ferskvatns, fer fram á samkeppnismarkaði. Er beinlínis gert ráð fyrir slíkum verkefnum í gildandi lögum þar sem er að finna áskilnað um bókhaldslegan aðskilnað slíkra verkefna og annarra lögbundinna verkefna. Mun einkum vera um að ræða verkefni á ferskvatnssviði stofnunarinnar, t.d. þjónustu við veiðiréttarhafa, sem bera skyldur samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006, svo eitthvað sé nefnt. Í tengslum við vinnu ráðgjafa Deloitte ehf. hefur komið fram sú ábending að hugað verði að því hvort tilefni væri til að veita Hafrannsóknastofnun með lögum aukið svigrúm til að fella samkeppnisrekstur stofnunarinnar í annað rekstrarform, t.d. hlutafélag. Var þá einkum höfð í huga annars vegar sú starfsemi stofnunarinnar sem fram fer á samkeppnismarkaði og hins vegar rekstur rannsóknaskipa stofnunarinnar og eftir atvikum annarra innviða. Markmið slíks fyrirkomulags hvað varðar samkeppnisrekstur stofnunarinnar væri þá að afmarka betur þá starfsemi sem er þessu marki brennd andspænis lögbundnum verkefnum stofnunarinnar og þá með það fyrir augum að öðlast betri yfirsýn yfir verkefnin og eins leita leiða til að draga úr slíkri starfsemi með það að markmiði að hún leggist af hjá stofnuninni og færist alfarið til einkaaðila sé þess kostur.
    Eftir nánari skoðun við undirbúning frumvarps þessa er ekki talið æskilegt að leggja til að slík heimild verði fest í lögin. Leiðir sú niðurstaða m.a. af þeirri stefnu sem mörkuð var með lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, og birtist í eigendastefnu ríkisins þar sem fjármála- og efnahagsráðherra fer almennt með fyrirsvar félaga í eigu ríkisins, sbr. m.a. 43. gr. laganna, en ekki einstaka stofnanir. Er því lagt til að fremur verði farin sú leið ef tilefni er til og fyrir því eru rekstrarlegar forsendur að leitast eftir því í samráði við fjármála- og efnahagsráðuneytið að koma félagi eða félögum á fót á öðrum grundvelli, t.d. með heimild í fjárlögum. Þá er ljóst að áður en til slíks gæti komið þarf að greina betur umfang þeirrar starfsemi sem fram fer á þessum grundvelli og ljóst þykir að einkaaðilar sinni eða geti sinnt. Í framhaldinu væri æskilegt að leita leiða til að draga úr slíkri samkeppnisstarfsemi stofnunarinnar. Þannig verði stofnuninni skapað meira svigrúm til að sinna lögbundnum verkefnum.

3. Meginefni frumvarpsins.
    Með frumvarpinu er lagt til að gerðar verði eftirfarandi breytingar:
    Í fyrsta lagi er lagt til að ekki verði lengur mælt fyrir um að forstjóri Hafrannsóknastofnunar skuli hafa háskólamenntun á verkefnasviði stofnunarinnar heldur þykir rétt að rýmka orðalag ákvæðisins þannig að heimilt sé að skipa forstjóra með menntun sem nýtist í starfi. Er þá einkum horft til þess að unnt verði að skipa einstakling sem býr yfir menntun og reynslu á sviði stjórnunar og rekstrar. Er sú áhersla í samræmi við þá almennu þróun að draga úr mjög sértækum hæfisskilyrðum forstöðumanna ríkisins og þeirri ríku ábyrgð sem þeir bera á starfsemi og rekstri stofnana, sbr. 2. mgr. 38. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Er það einnig í samræmi við stjórnendastefnu ríkisins þar sem rík áhersla er lögð á almenna leiðtogafærni við ráðningar stjórnenda. Er sú stefna höfð til hliðsjónar við ráðningar í æðstu embætti hjá ríkinu.
    Í öðru lagi er lagt til að lögfest verði skylda stofnunarinnar til að móta langtímastefnu sem taki einkum til rannsókna og endurspegli áherslur stofnunarinnar til lengri tíma. Stofnuninni er ekki settur ákveðin tímarammi varðandi mótun stefnunnar en gera verður ráð fyrir að hún sé reglulega tekin til heildstæðrar endurskoðunar, t.d. á þriggja til fimm ára fresti, þess á milli verði hún skoðuð og uppfærð, t.d. á ársfresti. Við mótun stefnunnar ber stofnuninni að taka mið af þeirri stefnu sem stjórnvöld móta á hverjum tíma m.a. um nýtingu fiskistofna og annarra auðlinda hafsins. Gert er ráð fyrir að ráðherra fái stefnuna til staðfestingar en með því er leitast við að tryggja visst aðhald og yfirsýn ráðherra með því að stofnunin beini áherslum, m.a. í rannsóknum og öðrum málaflokkum, í sömu átt og stjórnvöld hverju sinni. Með þessu fyrirkomulagi er þó ekki haggað því ríka sjálfstæði sem stofnunin hefur að öðru leyti um framkvæmd rannsókna og ráðgjafar.
    Í þriðja lagi eru lagðar til vissar breytingar á hlutverki og verklagi ráðgjafarnefndar stofnunarinnar. Lagt er til að ekki verði lengur tæmandi upp talið hvaða aðilar tilnefni nefndarmenn heldur verði ráðherra veitt visst svigrúm í því efni. Þá hefur komið í ljós í tengslum við þá greiningarvinnu sem staðið hefur yfir að ráðgjafarnefndin hefur ekki verið mjög virk. Hefur nefndin fyrst og fremst virkað sem vettvangur upplýsingamiðlunar milli stofnunarinnar og helstu hagaðila. Minna mun hafa farið fyrir því hlutverki nefndarinnar að vera forstjóra til ráðgjafar um langtímastefnumótun svo sem áskilið er samkvæmt gildandi lögum. Samkvæmt lögunum ber nefndinni að funda minnst einu sinni á ári og hefur nefndin síðastliðin ár fundað einu sinni til tvisvar sinnum ár hvert. Í því skyni að stuðla að aukinni virkni nefndarinnar og til þess að skapa meiri samfellu í störfum hennar er lagt til að fundum nefndarinnar verði fjölgað þannig að hún skuli að jafnaði funda minnst fjórum sinnum á ári. Því til viðbótar er lagt til að nefndin skuli fjalla um þá langtímastefnu sem stofnuninni er ætlað að móta, sbr. 2. mgr. 3. gr. frumvarpsins, og verði forstjóra til ráðuneytis um hana og eftirfylgni hennar.
    Í fjórða lagi er lagt til að skilgreining og framsetning á kjarnahlutverki Hafrannsóknastofnunar verði einfölduð og hún gerð markvissari. Samkvæmt gildandi lögum er fjallað um hlutverk stofnunarinnar í 5. gr. laganna en þar eru þau talin upp í 18 töluliðum án þess að gerður sé greinarmunur á þeim með tilliti til mikilvægis.
    Í fimmta lagi eru lagðar til minni háttar orðalagsbreytingar á ákvæði um samstarf stofnunarinnar við háskóla í því skyni að gera ákvæðið skýrara.
    Í sjötta lagi eru lagðar til tilteknar breytingar á framsetningu ákvæðis um fjármögnun stofnunarinnar og gjaldtökuheimildum til þess að gera þær skýrari.
    Loks eru lagðar til breytingar á framsetningu reglugerðarheimilda og heimilda ráðherra til að fela stofnuninni verkefni.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Frumvarpið er ekki talið fela í sér álitaefni sem kalla á sérstaka umfjöllun um samræmi við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar.

5. Samráð.
    Eins og fram kemur í 2. kafla byggist frumvarp þetta m.a. á greiningarvinnu og ráðgjöf ráðgjafarfyrirtækisins Deloitte ehf. Í tengslum við þá vinnu hefur verið haft víðtækt samráð við Hafrannsóknastofnun og um fimmta tug hagaðila sem tengjast málefninu. Deloitte annaðist samráðið að mestu fyrir hönd atvinnuvegaráðuneytisins og fór það fram með fundum seinni hluta árs 2025 og í upphafi árs 2026.
    Leitað var til fjölbreytts hóps hagaðila, m.a. fulltrúa samtaka og fyrirtækja í fiskeldi og sjávarútvegi, veiðifélaga, háskólasamfélags, tengdra ríkisstofnana, fræðimanna, erlendra sérfræðinga og annarra sérfræðinga á fagsviðinu. Markmið samráðsins var að fá heildstæða mynd af stöðu hafrannsókna og starfsemi stofnunarinnar og greina tækifæri til umbóta og aukins árangurs.
     Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 4. til 18. febrúar 2026 og bárust alls sex umsagnir (mál S-28/2026) þ.e. frá Hafrannsóknastofnun, Landssambandi veiðifélaga, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Landsvirkjun og tveimur einstaklingum. Í umsögnunum var að finna jákvæðar undirtektir við markmið og tillögur frumvarpsins og ýmsum athugasemdum komið á framfæri. Á meðal þess sem bent var á var hvort ástæða væri til að ganga lengra í einföldun á framsetningu á hlutverki stofnunarinnar eins og það birtist í 4. gr. frumvarpsins.
    Að loknu samráði voru gerðar tilteknar breytingar á 4. gr. í því skyni að skýra og einfalda framsetningu á hlutverki stofnunarinnar enn frekar. Markmið breytinganna er fyrst og fremst að draga betur fram kjarnahlutverk stofnunarinnar. Þannig er hlutverkið sett fram í sex töluliðum í stað átján. Með þeirri einföldun er leitast við að ná utan um hlutverk og verkefni stofnunarinnar með almennari hætti í stað þess að tilgreina ítarlega einstaka verkefni.
    Þá voru gerðar lítils háttar breytingar á greinargerð í því skyni að skýra betur atriði sem bent var á. Aðrar ábendingar voru ekki taldar gefa tilefni til breytinga á frumvarpinu en í mörgum þeirra fólust góðar ábendingar sem snúa fremur að framkvæmd laganna, svo sem hugmyndir um hvernig standa eigi að mótun og framkvæmd langtímastefnu og starfsháttum stofnunarinnar sem ástæða er til að taka til skoðunar í tengslum við þá stefnumótunarvinnu sem yfirstandandi er hjá stofnuninni.

6. Mat á áhrifum.
    Helstu breytingar sem lagðar eru til á gildandi lögum um Hafrannsóknastofnun snúa að innra skipulagi og því að skerpa á tilteknum atriðum laganna í því skyni að einfalda og skýra þann lagaramma sem stofnunin starfar eftir. Breytingarnar munu því ekki hafa teljandi áhrif á helstu hagsmunaaðila. Einnig eru lagðar til vissar breytingar á framsetningu stjórnunarheimilda ráðherra gagnvart stofnuninni. Þær fela þó ekki í sér efnislegar breytingar á yfirstjórn ráðherra gagnvart stofnuninni og er áfram gert ráð fyrir að hún njóti lögbundins sjálfstæðis. Þá gerir frumvarpið ekki ráð fyrir efnislegum breytingum á hlutverki og verkefnum Hafrannsóknastofnunar. Aftur á móti má gera ráð fyrir að með einfaldari og skýrari framsetningu hlutverksins í lögunum verði stofnuninni gert betur kleift að forgangsraða verkefnum. Samþykkt frumvarpsins mun ekki hafa aukinn kostnað í för með sér fyrir stofnunina en áfram er gert ráð fyrir sömu leiðum til fjármögnunar og gjaldtöku þó að lagðar séu til vissar breytingar í því skyni að skýra heimildir stofnunarinnar að þessu leyti.

Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Í greininni er fjallað um stjórnsýslulega stöðu stofnunarinnar og tekið fram að hún sé sjálfstæð en heyri undir ráðherra. Með ákvæðinu eru lagðar til minni háttar orðalagsbreytingar á sama ákvæði gildandi laga. Áfram er því gert ráð fyrir að stofnunin sé sjálfstæð í því skyni að undirstrika það sjálfstæði sem hún þarf að njóta á sviði rannsókna og ráðgjafar. Engu að síður starfar stofnunin áfram á málefnasviði ráðherra og heyrir stjórnarfarslega undir hann.

Um 2. gr.

    Í 3. gr. gildandi laga segir að forstjóri skuli hafa háskólamenntun á verkefnasviði stofnunarinnar. Í tíð eldri laga um stofnunina voru gerðar ríkari kröfur um menntun forstjóra þeirra stofnana sem urðu að Hafrannsóknastofnun eins og hún er í dag, þ.e. Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar. Í gegnum árin hefur löggjafinn smám saman dregið úr kröfum til fagmenntunar og sérhæfingar forstjóranna á fagsviðum stofnananna en auknar kröfur eru gerðar til stjórnunar- og rekstrarfærni. Þá hefur ábyrgð á rekstri færst frá því að vera dreifðari, þ.e. ýmist á milli forstjóra og aðstoðarforstjóra eða forstjóra og stjórnar til þess að vera eingöngu á hendi forstjóra. Ber hann því einn ábyrgð á stjórn, rekstri og starfsskipulagi stofnunarinnar gagnvart ráðherra, sbr. 38. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Þar segir að forstöðumaður beri ábyrgð á að stofnun, sem hann stýrir, starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf.
    Þessi þróun helst í hendur við þær breytingar sem hafa orðið á ábyrgð og hlutverki forstöðumanna ríkisstofnana almennt þar sem aukin áhersla hefur verið lögð á rekstrarlega ábyrgð, árangursstjórnun og leiðtogafærni. Birtist sú stefna m.a. í stjórnendastefnu ríkisins. Með framangreindri breytingu er leitast við að binda hendur ráðherra ekki um of við tiltekna menntun eða hæfni heldur fremur játa honum visst svigrúm til mats á því hvaða menntunar og hæfni er þörf hverju sinni einkum með tilliti til þarfa stofnunarinnar. Þessari þróun sést víða staður í lögum um ýmsar sérhæfðar stofnanir, t.d. Náttúrufræðistofnun, Veðurstofu Íslands og Umhverfis- og orkustofnun en í lögum um þessar stofnanir er almennt gert ráð fyrir að forstjóri skuli hafa háskólapróf sem nýtist í starfi án þess að áskilja sérstaklega tiltekna menntun. Í ljósi framangreinds er lagt til að tekinn verði af vafi á að við skipun forstjóra stofnunarinnar sé ráðherra ekki bundinn af því að skipa einstakling sem býr yfir menntun á fagsviði stofnunarinnar heldur geti hann jafnframt horft til annars konar menntunar svo sem á sviði stjórnunar og rekstrar. Með samþykkt slíkrar breytingar er að sjálfsögðu ekki á neinn hátt komið í veg fyrir að í embættið veljist einstaklingur með menntun á fagsviði stofnunarinnar.
    Í greininni er jafnframt lagt til að tekið verði sérstaklega fram í lögunum að stofnuninni beri að móta langtímastefnu einkum um rannsóknir sem endurspegli áherslur stofnunarinnar til lengri tíma. Við mótun stefnunnar ber stofnuninni að taka mið af þeirri stefnu sem stjórnvöld móta á hverjum tíma um nýtingu fiskistofna og annarra auðlinda hafsins. Gert er ráð fyrir að ráðherra fái stefnuna til staðfestingar en með því er leitast við að tryggja visst aðhald og yfirsýn ráðherra með því að stofnunin beini áherslum m.a. í rannsóknum í sömu átt og stjórnvöld hverju sinni. Með þessu fyrirkomulagi er þó ekki haggað því ríka sjálfstæði sem stofnunin hefur að öðru leyti um framkvæmd rannsókna og ráðgjafar.
    Eðlilegt er að gera ráð fyrir að stofnanir móti sér stefnu um fagleg málefni til nokkurra ára í senn sem taki m.a. mið af opinberri stefnumörkun stjórnvalda. Kemur slík stefnumótun til viðbótar við en ekki í stað þeirrar langtímastefnu sem stofnunum ber að móta um starfsemi sína, sbr. 31. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, enda nær hún fyrst og fremst til þess að greina frá markmiðum og almennum áherslum og hvernig þeim verði náð með tilliti til fjárveitinga.

Um 3. gr.

    Gert er ráð fyrir að ráðgjafarnefnd sem ráðherra skipar muni áfram starfa. Aftur á móti er lagt til að horfið verði frá því að telja tæmandi upp í lögunum þá aðila, þ.e. ráðherra og hagsmunaaðila, sem tilnefna fulltrúa í nefndina. Í stað þess verði tekið fram að við skipun nefndarinnar beri ráðherra að leitast við að tryggja aðkomu helstu hagsmunaaðila og fagþekkingu á fagsviði stofnunarinnar. Með þessari breytingu er ekki ætlunin að hrófla við eða útiloka þá aðila sem hingað til hafa tilnefnt í ráðgjafarnefndina og taldir eru upp í gildandi lögum. Áfram er því gert ráð fyrir að helstu hagsmunaaðilar, t.d. á sviði sjávarútvegs og fiskeldis auk ýmissa samtaka, t.d. sjómanna og skipstjóra, veiðiréttarhafa og fræðimanna, eigi sæti í nefndinni. Með þessari breytingu er hins vegar tryggt að ráðherra geti brugðist við breyttum þörfum og verkefnum stofnunarinnar sem kallað getur á breytta samsetningu nefndarinnar án þess að til þess þurfi lagabreytingu. Þá kemur einnig fyrir að hagsmunasamtök leggist af eða ný verði til og er því talið mikilvægt að ráðherra geti brugðist við slíkum breytingum án þess að ráðast þurfi í lagabreytingu.
    Þá er lagt til að skerpt verði á því hlutverki ráðgjafarnefndarinnar að vera forstjóra til ráðuneytis um langtímastefnumótun. Nánar tiltekið er lagt til að nefndin hafi það hlutverk að fjalla um þá langtímastefnu, m.a. um rannsóknir, sem í 2. mgr. 3. gr. frumvarpsins er lagt til að stofnuninni sé ætlað að móta og verði forstjóra til ráðuneytis um mótun hennar og eftirfylgni. Með framangreindum breytingum er skerpt á hlutverki nefndarinnar og það tengt með skýrari hætti við þá stefnumótun sem stofnuninni verður gert að ráðast í reglulega. Jafnframt er lagt til að nefndin fundi að jafnaði fjórum sinnum á ári í stað þess að áskilja að lágmarki einn fund á ári eins og gildandi lög gera ráð fyrir. Með þessu er leitast við að hvetja nefndina til tíðari fundarhalda í því skyni að hún öðlist betri yfirsýn og þekkingu á starfseminni svo vettvangur hennar nýtist sem best. Áfram er gert ráð fyrir að ráðgjafarnefndin verði mikilvægur vettvangur stjórnvalda og hagsmunaaðila til skoðana- og upplýsingaskipta. Er slíkur vettvangur til þess fallinn að stuðla að því að traust ríki um störf stofnunarinnar auk þess að styðja við hlutverk hennar við að miðla því sem fram fer innan veggja hennar. Er því ekki lagt til að hróflað verði við hlutverki nefndarinnar að þessu leyti.

Um 4. gr.

    Í greininni er kveðið á um hlutverk stofnunarinnar. Ákvæðið felur í sér einfaldari og skýrari framsetningu á hlutverki hennar en í gildandi lögum. Markmið breytinganna er fyrst og fremst að draga betur fram kjarnahlutverk stofnunarinnar. Þannig er hlutverkið sett fram í sex töluliðum í stað átján. Með þeirri einföldun er leitast við að ná utan um hlutverk og verkefni stofnunarinnar með almennari hætti í stað þess að tilgreina ítarlega einstaka verkefni. Með því að setja hlutverkið þannig fram er einnig horft til þess að verkefni og áskoranir á sviði hafrannsókna geta tekið breytingum og því æskilegt að fastsetja ekki með of fortakslausum hætti hlutverk stofnunarinnar. Að sama skapi er mikilvægt að lögin veiti ráðrúm til stefnumótunar í takt við áherslur stofnunarinnar og stjórnvalda á fagsviði hennar. Ekki er ætlunin að gera efnislegar breytingar á hlutverki hennar og áfram gert ráð fyrir að hún gegni sama hlutverki og leiðir af gildandi lögum.
    Í 1. tölul. er kveðið á um rannsóknarhlutverk stofnunarinnar sem er grunnhlutverk hennar og forsenda ráðgjafar til stjórnvalda og hagsmunaaðila um nýtingu auðlinda í sjó og ferskvatni. Ákvæðið tekur til rannsókna á lífríki og vistkerfum sjávar og ferskvatns, þ.m.t. vistfræðilegum tengslum og samspili lífvera og umhverfisþátta. Ákvæðið tekur bæði til grunnrannsókna og hagnýtra rannsókna sem eru forsenda ráðgjafar og ákvarðanatöku um sjálfbæra nýtingu auðlinda.
    Í 2. tölul. er kveðið á um ráðgjafar- og þjónustuhlutverk stofnunarinnar gagnvart stjórnvöldum og hagsmunaaðilum, sem er eitt af kjarnahlutverkum hennar. Ráðgjöfin byggist á þeirri þekkingu og gögnum sem aflað er með rannsóknastarfsemi skv. 1. tölul. og skal vera vísindaleg, sjálfstæð og ábyrg.
    Markmið ráðgjafarinnar er að styðja við ákvarðanatöku um sjálfbæra nýtingu, vernd og ræktun lifandi auðlinda í sjó og ferskvatni. Undir þetta fellur m.a. ráðgjöf til ráðuneyta og annarra stjórnvalda um veiðistjórnun, fiskeldi, framkvæmdir á haf- og strandsvæðum og vernd vistkerfa. Í ljósi þeirra víðtæku samfélags- og þjóðhagslegu hagsmuna sem slíkar ákvarðanir varða er lögð áhersla á að ráðgjöfin sé samræmd og byggð á bestu vísindum hverju sinni. Í 3. tölul. er áréttað það hlutverk stofnunarinnar að veita hagsmunaaðilum, einstaklingum og lögaðilum þjónustu á fagsviði stofnunarinnar, eftir atvikum gegn gjaldi, en um gjaldtöku er að öðru leyti kveðið á um í 6. gr. frumvarps þessa.
    Í 4. tölul. er fjallað um miðlun upplýsinga og gagnsæi í starfsemi stofnunarinnar. Lagt er upp með að hún miðli þekkingu og niðurstöðum rannsókna til stjórnvalda, hagsmunaaðila og almennings og veiti aðgang að gögnum í samræmi við lög. Með þessu er undirstrikað mikilvægi upplýstrar umræðu og trausts til vísindalegrar ráðgjafar. Miðlun þekkingar og aðgengi að gögnum styður jafnframt við þróun, nýsköpun og verðmætasköpun á sviði nýtingar haf- og ferskvatnsauðlinda. Með aðgengi að rannsóknarniðurstöðum og sérfræðiþekkingu skapast grundvöllur fyrir aukið samstarf við atvinnulíf, vísindasamfélag og stjórnvöld um þróun lausna og bætt verklag og skal leitast við að hafa slíka miðlun skýra og aðgengilega.
    Í 5. tölul. er tekið fram að stofnunin hafi það hlutverk að styðja við nýsköpun og tækniþróun á fagsviði sínu. Er henni þannig ætlað að styðja við þróun lausna og aðferða sem auka sjálfbærni, fjölbreytni og hagkvæmni í nýtingu auðlinda og styrkja samkeppnishæfni og þekkingargrunn greinarinnar.
    6. tölul. er samhljóða 17. tölul. gildandi laga og þarfnast ekki skýringar.

Um 5. gr.

    Breytingin felur fyrst og fremst í sér að hlutverk Hafrannsóknastofnunar í samstarfi við háskóla og rannsóknastofnanir er breikkað og orðað skýrar en áður. Í stað þess að tekið sé fram að stofnunin skuli stuðla að virkum samskiptum og rækta samstarf er nú sérstaklega tekið fram að stofnunin skuli taka beinan þátt í uppbyggingu þekkingar og menntunar á sínu fagsviði.

Um 6. gr.

    Í greininni er fjallað um fjármögnun stofnunarinnar og mælt fyrir um heimildir hennar til að afla sér tekna, t.d. með sölu á þjónustu og rannsóknastarfsemi, útleigu tækja og búnaðar og úrvinnslu og afgreiðslu gagna. Er stofnuninni gert að innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá sem ráðherra staðfestir.
    Ef starfsemi sem gjald er tekið fyrir er rekin á samkeppnismarkaði skal gjaldtakan hins vegar taka mið af markaðsverði. Þá skal gerður sérstakur samningur um þjónustuna.
    Ekki eru lagðar til efnislegar breytingar á heimildum stofnunarinnar til að afla sér tekna og innheimta gjöld heldur er fremur leitast við að skýra betur orðalag greinarinnar.

Um 7. gr.

    Með ákvæðinu eru lagðar til breytingar á reglugerðarheimildum laganna. Í stað þess að mælt sé á þremur stöðum fyrir um heimild ráðherra til að setja reglugerðir er lagt til að þær verði sameinaðar í eina. Nánar tiltekið er þar tekið fram að ráðherra geti með reglugerð mælt nánar fyrir um starfsemi Hafrannsóknastofnunar og um aðra framkvæmd laganna, t.d. með því að fela stofnuninni rannsóknir og önnur tengd verkefni. Þannig er í reynd ekki um efnislega breytingu á heimildum ráðherra að þessu leyti heldur einföldun.

Um 8. gr.

    Lagt er til að lögin öðlist þegar gildi.