Ferill 153. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 849  —  153. mál.

3. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu).

Frá meiri hluta atvinnuveganefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið að nýju eftir 2. umræðu. Við 2. umræðu fundaði nefndin og fékk fulltrúa frá atvinnuvegaráðuneyti á sinn fund. Þá bárust nefndinni minnisblöð frá Fiskistofu og atvinnuvegaráðuneyti sem eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Nefndin fjallaði um hvort þær breytingar sem frumvarpið mælir fyrir um kunni að brjóta í bága við stjórnarskrárvarin réttindi sem gæti leitt til bótaskyldu ríkisins.
    Eftir frekari skoðun er það mat meiri hlutans að ákvæði frumvarpsins séu í samræmi við stjórnarskrá lýðveldisins Íslands og séu ekki til þess fallin að leiða til bótaskyldu ríkisins. Til viðbótar þeim sjónarmiðum sem fram koma í áliti þessu byggir meiri hlutinn á þeim sem rakin eru í greinargerð með frumvarpinu þar sem fjallað er um eðli veiðiheimilda og stöðu þeirra gagnvart 75. gr. og 72. gr. stjórnarskrárinnar.
    Í frumvarpinu er mælt fyrir um breytingu á því fyrirkomulagi sem gildir um stjórn grásleppuveiða. Breytingin felur ekki í sér frekari takmarkanir á aðgengi að atvinnugreininni en þegar er mælt fyrir um í gildandi lögum, enda er gert ráð fyrir að allir þeir sem njóta réttar til veiða á grásleppu í atvinnuskyni á grundvelli laga nr. 102/2024 muni eiga kost á að fá útgefið veiðileyfi frá Fiskistofu verði frumvarpið að lögum. Umræddir aðilar munu þannig áfram njóta réttar til veiða þrátt fyrir að fyrirkomulagið taki breytingum.
    Í athugasemdum við 1. gr. frumvarps til laga um stjórn fiskveiða kemur fram að það verði „að vera ákvörðunarefni löggjafans á hverjum tíma hvaða skipulag teljist best henta til þess að nýta þessa sameign þjóðarinnar með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi“. Hæstiréttur hefur í dómaframkvæmd sinni lagt til grundvallar að veiðiheimildir séu aðeins varanlegar í þeim skilningi að þær verða hvorki felldar niður né þeim breytt nema með lögum. Löggjafinn getur því frá einum tíma til annars m.a. kveðið nánar á um réttinn til fiskveiða, þar á meðal úr einstökum stofnum eða bundið hann skilyrðum vegna breyttra sjónarmiða um ráðstöfun þeirrar sameignar íslensku þjóðarinnar sem nytjastofnar á Íslandsmiðum eru, sbr. m.a. dóm Hæstaréttar í máli nr. 779/2016 og í máli nr. 12/2000.
    Ekki hefur ríkt full sátt um þá breytingu sem gerð var á veiðistjórn grásleppu með lögum nr. 102/2024. Frumvarp til að breyta fyrirkomulaginu í fyrra horf hefur verið lagt fram og verið til umfjöllunar í atvinnuveganefnd á síðasta og yfirstandandi löggjafarþingi. Í bæði skiptin var það afgreitt frá nefndinni með nefndaráliti meiri hluta. Ljóst mátti því vera að ríkur vilji var til að færa veiðistjórn til fyrra horfs og í samræmi við framangreinda dóma hefur löggjafinn svigrúm til þess.
    Meiri hlutinn áréttar að markmið frumvarpsins sé að styðja við smærri útgerðir og byggðir landsins, stuðla að nýliðun í atvinnugreininni og tryggja sjálfbæra og sanngjarnari nýtingu auðlindarinnar í þágu almannahagsmuna. Er það mat nefndarinnar að sóknarmarkskerfið þjóni almannahagsmunum betur en aflamarkskerfið þar sem reynsla af síðarnefnda kerfinu hefur bent til þess að réttindi safnist í auknum mæli á hendur fárra aðila. Slík þróun getur aukið aðgangshindranir, dregið úr nýliðun og haft neikvæð áhrif á smærri útgerðir og byggðir landsins. Af þessum sökum telur meiri hlutinn nauðsynlegt að hverfa frá aflamarkskerfinu og færa veiðistjórn grásleppu aftur til fyrra horfs.

Breytingartillögur.
Ákvæði til bráðabirgða XXV (8. gr.).
    Með 8. gr. frumvarpsins er lagt til að ákvæði til bráðabirgða XXV í lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, falli brott. Í 2. mgr. ákvæðisins er mælt fyrir um að þrátt fyrir 6. mgr. 12. gr. og 10. mgr. 15. gr. laganna sé framsal aflahlutdeilda í grásleppu óheimilt til 31. ágúst 2026.
    Meiri hlutinn leggur til breytingu á ákvæðinu þess efnis að framsal aflahlutdeilda verði óheimilt til og með 31. ágúst. Með því verði kveðið skýrt á um að framsal þeirra aflaheimilda sem úthlutað hefur verið sé óheimilt fram að gildistöku nýs kerfis. Þá er lagt til að mælt verði fyrir um að óheimilt verði að flytja aflamark til næsta fiskveiðiárs.

Gildistaka (9. gr.).
    Í 9. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir að lögin taki þegar gildi. Í minnisblaði atvinnuvegaráðuneytis, dags. 18. febrúar 2026, kemur fram að veiðar á grundvelli hlutdeildarsetningar grásleppu séu þegar hafnar. Yrði frumvarpið samþykkt óbreytt myndu aflahlutdeildir falla niður við gildistöku laganna og veiðar stöðvaðar. Í kjölfarið þyrfti síðan að útdeila veiðiheimildum á grundvelli nýrra laga. Nefndin fékk þær upplýsingar að stöðvun gæti varað í þrjár vikur. Meiri hlutinn bendir einnig á að þar sem veiðar eru þegar hafnar er óvíst hversu margir veiðidagar yrðu eftir til skiptanna þegar loks kæmi til útdeilingar að nýju. Til að gæta meðalhófs leggur meiri hlutinn því til breytingu á ákvæðinu þannig að lögin taki gildi 1. september 2026. Þannig muni aflamarkskerfið halda gildi sínu út þetta fiskveiðiár og veiðistjórn í grásleppu færð til fyrra horfs frá og með nýju fiskveiðiári.

Aðrar breytingar.
    Lagt er til að við frumvarpið bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem kveði á um að aflahlutdeildir í grásleppu falli niður við gildistöku laganna, þ.e. 1. september 2026.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      8. gr. orðist svo:
                      Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða XXV í lögunum:
                  a.      Á eftir orðinu „til“ í 2. mgr. kemur: og með.
                  b.      Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá er einnig óheimilt að flytja aflamark skips í grásleppu yfir á nýtt fiskveiðiár.
                  c.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Ákvæði þetta fellur úr gildi 1. september 2026.
     2.      9. gr. orðist svo:
                      Lög þessi öðlast gildi 1. september 2026 nema 8. gr. sem öðlast þegar gildi.
     3.      Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
                      Allar aflahlutdeildir í grásleppu sem skráðar eru á skip falla niður við gildistöku laga þessara.

Alþingi, 3. mars 2026.

Lilja Rafney Magnúsdóttir,
form., frsm.
Eydís Ásbjörnsdóttir. Ingvar Þóroddsson.
Dagbjört Hákonardóttir. Sigurjón Þórðarson. Valdimar Breiðfjörð Birgisson.