Ferill 153. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 850  —  153. mál.

3. umræða.


Nefndarálit með frávísunartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu).

Frá minni hluta atvinnuveganefndar.


    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997, og lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006. Þær breytingar sem mælt er fyrir um í frumvarpinu eru margar og umfangsmiklar. Í frumvarpinu felst að vikið er frá aflamarksstjórn við veiðar á grásleppu og tekin upp veiðistýring með útgáfu leyfa líkt og í tíð eldri laga, með þeim afleiðingum að aflahlutdeild grásleppusjómanna fellur niður.
    Að mati minni hlutans hafa vinnubrögð meiri hluta nefndarinnar í málinu verið óforsvaranleg og sjónarmið um vandaða lagasetningu og réttindi borgaranna virt að vettugi. Í því samhengi má vísa til minnisblaðs skrifstofu Alþingis sem barst nefndinni þann 25. febrúar 2026, þar sem fram kemur að leggja þurfi „heildstætt mat á áhrif frumvarpsins á stjórnarskrárvarin réttindi og það væri stjórnskipuleg skylda löggjafans að tryggja að slíkt mat færi fram, sbr. dóm Hæstaréttar í máli nr. 20/2022“. Í dómi Hæstaréttar sem vísað er til segir orðrétt: „Sé löggjöf til þess fallin að takmarka mannréttindi ber dómstólum að meta hvort löggjafinn hafi gætt sjónarmiða um meðalhóf, jafnræði og skýrleika lagaheimilda.“
    Í minnisblaðinu segir jafnframt að til að unnt sé að vinna slíkt mat á áhrifum frumvarpsins þurfi „aðgang að gögnum og sérþekkingu á þeirri löggjöf sem frumvarpinu er ætlað að breyta“ og að slík sérþekking sé ekki hjá skrifstofu Alþingis. Minni hlutinn bendir á að meiri hlutinn hefur lagt sig í líma við að koma í veg fyrir að óháðir utanaðkomandi sérfræðingar leggi mat á stjórnskipulegt gildi frumvarpsins, sbr. ákvörðun meiri hlutans á fundi nefndarinnar dags. 17. febrúar sl. um að afturkalla beiðni um lögfræðiálit þar að lútandi frá Lagastofnun Háskóla Íslands. Þá hefur atvinnuvegaráðuneyti ekki lagt mat á áhrif frumvarpsins á stjórnarskrárvarin réttindi manna.
    Að mati minni hlutans felast í áðurnefndu minnisblaði alvarlegar athugasemdir skrifstofu Alþingis um að vinnubrögð þingsins brjóti gegn stjórnarskránni verði frumvarpið samþykkt án þess að umrætt mat á áhrifum þess á stjórnarskrárvarin réttindi fari fram. Löggjafarvaldinu fylgir mikil ábyrgð og ber þingmönnum að virða stjórnarskrána í störfum sínum, sbr. 47. gr. stjórnarskrárinnar. Hæstiréttur hefur með skýrum hætti kveðið á um skyldur löggjafans við lagasetningu og ljóst að löggjafinn hefur ekki enn sinnt þeim skyldum við afgreiðslu þessa máls, líkt og skrifstofa Alþingis bendir á.
    Minni hlutinn harmar vinnubrögð meiri hlutans í málinu og mótmælir því harðlega að frumvarp, sem brýtur að óbreyttu gegn stjórnarskránni, sé sett á dagskrá þingsins.

    Að framangreindu virtu leggur minni hlutinn til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

    Þórarinn Ingi Pétursson, áheyrnarfulltrúi, er samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 3. mars 2026.

Jón Gunnarsson,
frsm.
Guðrún Hafsteinsdóttir. Bergþór Ólason.