Ferill 507. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 851 — 507. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra um hreindýraveiðileyfi og kerfi hreindýraveiða.
Frá Sigurjóni Þórðarsyni.
1. Hver var heildarinnkoman af útgáfu hreindýraveiðileyfa árin 2025 og 2026 og hversu mikil var breytingin á milli ára?
2. Hvaða aðferðafræði er notuð við verðlagningu hreindýraveiðileyfa? Hefur sú aðferðafræði tekið breytingum á síðustu 20 árum? Ef svo er, í hverju felast þær breytingar?
3. Hefur verið metið hvort unnt sé að lækka rekstrarkostnað við umsýslu kerfis hreindýraveiða, m.a. með útvistun tiltekinna verkefna?
Skriflegt svar óskast.