Ferill 480. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 858  —  480. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Lilju Hrönn Önnudóttur Hrannarsdóttur um rétt námsmanna til atvinnuleysisbóta.


     1.      Hver er afstaða ráðherra til þess að launþegar sem jafnframt stunda háskólanám umfram 12 ECTS-einingar eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum missi þeir vinnuna á námstíma, sbr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006?
    Markmið laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, er að tryggja launamönnum eða sjálfstætt starfandi einstaklingum tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir eru að leita sér að nýju starfi eftir að hafa misst fyrra starf sitt, sbr. 2. gr. laganna. Innan atvinnuleysistryggingakerfisins eru gerðar mjög ríkar kröfur til atvinnuleitenda um að þeir séu í virkri atvinnuleit. Í því felst meðal annars að þeir séu reiðubúnir að taka starfi hvar sem er á landinu án sérstaks fyrirvara. Það hefur því ekki þótt samrýmast markmiðum laga um atvinnuleysistryggingar að hver sá sem stundar nám teljist uppfylla skilyrði laganna, svo sem hvað varðar virka atvinnuleit, og teljist þannig tryggður samkvæmt lögunum á sama tímabili og námið er stundað. Þó hefur verið talið að þeir sem stunda allt að 12 ECTS-eininga nám séu til þess bærir að uppfylla skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar, meðal annars hvað varðar virka atvinnuleit, og teljast slíkir einstaklingar því tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins.
    Rétt er að benda á að samkvæmt 5. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skal hinum tryggða ávallt heimilt að ljúka þeirri önn sem er yfirstandandi þegar hann missir starf sitt að fullu eða að hluta, án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga.
Það er aftur á móti markmið laga nr. 60/2020, um Menntasjóð námsmanna, að tryggja þeim sem falla undir lögin tækifæri til náms, án tillits til efnahags og stöðu að öðru leyti, með því að veita námsmönnum fjárhagslega aðstoð í formi námslána og styrkja.

     2.      Telur ráðherra rétt að greitt sé tryggingagjald, samkvæmt lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990, af launum launþega sem eru jafnframt námsmenn á háskólastigi þrátt fyrir að þeir eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum missi þeir vinnuna á námstíma?
    Samkvæmt forsetaúrskurði nr. 5/2025, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, fellur tekjuöflun ríkisins, þar á meðal innheimta opinberra gjalda, undir málefnasvið fjármála- og efnahagsráðuneytis, sbr. e-lið 4. tölul. 5. gr. úrskurðarins. Er því vísað til fjármála- og efnahagsráðherra hvað varðar fyrirspurn um lög nr. 113/1990, um tryggingagjald.