Ferill 511. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 860  —  511. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið, nr. 34/1944 (fánatími).

Frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.


1. gr.

    7. gr. laganna orðast svo:
    Þjóðfánann skal ekki draga á stöng fyrr en klukkan sjö að morgni og að jafnaði skal hann ekki vera lengur uppi en til sólarlags og aldrei lengur en til miðnættis, sbr. þó 2. mgr.
    Frá 1. maí til 15. ágúst er heimilt að hafa þjóðfánann uppi allan sólarhringinn.
    Ráðherra er heimilt með reglugerð að mæla fyrir um fánadaga og um nánari notkun þjóðfánans samkvæmt þessari grein.

2. gr.

    Við 1. mgr. 12. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þjóðfáninn skal vera óslitinn og með réttum litum þegar hann er við hún.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Frumvarp þetta er flutt af stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
    Á yfirstandandi löggjafarþingi hefur þremur þingmálum verið útbýtt sem varða þjóðfána Íslendinga; frumvarpi frá Guðrúnu Hafsteinsdóttur, frumvarpi frá Karli Gauta Hjaltasyni og þingsályktunartillögu frá Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur. Tvö síðarnefndu málin eru komin til umfjöllunar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Öll málin eiga það sammerkt að flutningsmenn vilja auka notkun þjóðfánans en gæta við það virðingar hans. Einnig hefur verið skorað á þingmenn að endurskoða reglur um tíma dags sem heimilt er að hafa fánann við hún.
    Við umfjöllun nefndarinnar um þingmálin tvö hefur skýrlega komið í ljós vilji til að rýmka reglur um fánatíma, þó þannig að virðingar hans verði gætt. Samhliða hefur nefndin orðið þess áskynja að margir skilja fánareglur svo að þær séu strangari en þær eru. Að mati nefndarinnar er orðið tímabært að lög um þjóðfána Íslendinga verði endurskoðuð í heild sinni með það fyrir augum að auka notkun þjóðfánans, þó þannig að borin verði tilhlýðileg virðing fyrir honum. Hvetur nefndin forsætisráðherra til að ráðast í slíka endurskoðun.
    Í gildandi lögum er það alfarið á hendi ráðherra að mæla fyrir um hve lengi dags halda megi þjóðfánanum við hún, sbr. 7. gr. laga nr. 34/1944. Í frumvarpi því sem varð að lögunum var hins vegar að finna tillögu um tiltekinn fánatíma. Við þinglega meðferð frumvarpsins var fallið frá þeirri tillögu. Niðurstaðan varð sú að fánatími skyldi ákveðinn með forsetaúrskurði, en nú er það gert með reglugerð. Að mati nefndarinnar er rétt að meginreglur um fánatíma verði framvegis að finna í lögum eins og gert var ráð fyrir í upphafi. Nefndin leggur einnig til að frá 1. maí til 15. ágúst verði heimilt að hafa þjóðfánann uppi allan sólarhringinn.