Ferill 424. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 861  —  424. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um ferðir til Brussel og Washington.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu oft og í hvaða tilgangi ferðaðist ráðherra til annars vegar Brussel og hins vegar Washington á árinu 2025?

    Ráðherra sótti eftirtalda fundi í Brussel á árinu 2025:

Ferðastaður Tilgangur

Dags.

Brussel

Fundir með:
– Mark Rutte, framkvæmdastjóra NATO
– Maros Sefc ovic, framkvæmdastjóra hjá ESB, ábyrgur fyrir utanríkisviðskiptum og samskiptum við Ísland
– Kaja Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins
14.01.–16.01.

Brussel Varnarmálaráðherrafundur NATO 12.02.–13.02.
Brussel Utanríkisráðherrafundur NATO 02.04.–04.04.
Brussel Fundir varnarmálaráðherra um málefni Úkraínu, bæði Coalition of the Willing og Ukraine Defence Contact Group

10.04.–11.04.
Brussel EES-ráðsfundur

21.05.–22.05.
Brussel Varnarmálaráðherrafundur NATO 14.10.–15.10.
Brussel
EES-ráðsfundur og fundur EFTA-ráðherra með þingmannanefnd og ráðgjafanefnd EFTA
20.11.–21.11.
Brussel Utanríkisráðherrafundur NATO 02.12.–03.12.
                                  
    Ráðherra sótti enga fundi í Washington á árinu 2025. Vert er að taka fram að utanríkisráðherra átti engu að síður fundi með fulltrúum bandarískra stjórnvalda utan Washington. Ber þar helst að nefna samtöl við Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á hliðarlínum óformlegs utanríkisráðherrafundar NATO í Tyrklandi í maí og við Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, á hliðarlínum fundar varnarmálaráðherra NATO í Brussel í október. Utanríkisráðherra átti jafnframt fund með Brendan Hanrahan, háttsettum embættismanni um málefni Evrópu og Evrasíu í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna, á hliðarlínum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York í september.