Ferill 513. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 871 — 513. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki.
Frá fjármála- og efnahagsráðherra.
1. gr.
Lögfesting.
Í lögum þessum er vísað til reglugerðar (ESB) 2020/1503 með aðlögunum skv. 1. mgr. sem reglugerðar (ESB) 2020/1503.
2. gr.
Vísanir til tilskipana.
1. Áhættusamt þriðja land skv. 2. mgr. 9. gr. tilskipunar (ESB) 2015/849: Áhættusöm og ósamvinnuþýð ríki samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
2. Ákvæði landslaga sem lögleiða tilskipun (ESB) 2015/849: Lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
3. Fagfjárfestir skv. 1.–4. lið I. þáttar II. viðauka við tilskipun 2014/65/ESB: Fagfjárfestir skv. a–d-lið 14. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
4. Fjárfestingarþjónusta samkvæmt tilskipun 2014/65/ESB: Fjárfestingarþjónusta samkvæmt lögum um markaði fyrir fjármálagerninga.
5. Framseljanleg verðbréf skv. 44. lið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB: Verðbréf skv. 64. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
6. Fyrirtæki sem falla undir 4. og 5. gr. tilskipunar 2009/110/EB: Rafeyrisfyrirtæki skv. 11.–13. gr. laga um útgáfu og meðferð rafeyris, nr. 17/2013.
7. Fyrirtæki sem falla undir 7–9. gr. tilskipunar (ESB) 2015/2366: Greiðslustofnanir skv. 7.–9. gr. laga um greiðsluþjónustu, nr. 114/2021.
8. Greiðsluþjónusta samkvæmt tilskipun (ESB) 2015/2366: Greiðsluþjónusta samkvæmt lögum um greiðsluþjónustu.
9. Greiðsluþjónustuveitandi samkvæmt tilskipun (ESB) 2015/2366: Greiðsluþjónustuveitandi samkvæmt lögum um greiðsluþjónustu.
10. Innstæðutryggingakerfi samkvæmt tilskipun 2014/49/ESB: Innstæðudeild Tryggingarsjóðs vegna fjármálafyrirtækja samkvæmt lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta.
11. Kröfur til framkvæmdar 1. mgr. 9. gr. tilskipunar 2013/36/ESB: Kröfur skv. 1. mgr. 3. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
12. Neytendur eins og þeir eru skilgreindir í a-lið 3. gr. tilskipunar 2008/48/EB: Neytandi skv. n-lið 5. gr. laga um neytendalán, nr. 33/2013.
13. Samstæðureikningsskil í samræmi við tilskipun 2013/34/ESB: Samstæðureikningsskil í samræmi við lög um ársreikninga.
14. Starfsleyfi samkvæmt tilskipun 2013/36/ESB: Starfsleyfi samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki.
15. Starfsleyfi sem lánastofnun skv. 8. gr. tilskipunar 2013/36/ESB: Starfsleyfi sem lánastofnun skv. 2. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
16. Starfsleyfi samkvæmt tilskipun 2014/65/ESB: Starfsleyfi samkvæmt lögum um markaði fyrir fjármálagerninga.
17. Starfsleyfi samkvæmt tilskipun 2009/110/EB: Starfsleyfi samkvæmt lögum um útgáfu og meðferð rafeyris.
18. Starfsleyfi samkvæmt tilskipun (ESB) 2015/2366: Starfsleyfi samkvæmt lögum um greiðsluþjónustu.
19. Tryggingakerfi fyrir fjárfesta samkvæmt tilskipun 97/9/EB: Tryggingakerfi fyrir fjárfesta samkvæmt lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta.
20. Umsjón með útboði án sölutryggingar skv. 7. lið A-þáttar I. viðauka við tilskipun 2014/65/ESB: Umsjón með útboði fjármálagerninga án sölutryggingar skv. g-lið 16. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
21. Yfirráð eins og þau eru skilgreind í b-lið 35. liðar 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB: Yfirráð skv. b-lið 43. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
3. gr.
Lögbært yfirvald og eftirlit.
Fjármálaeftirlitið hefur þær eftirlits- og rannsóknarheimildir sem kveðið er á um í 30. gr. reglugerðar (ESB) 2020/1503.
4. gr.
Stjórnvaldssektir.
Stjórnvaldssekt sem lögð er á einstakling getur numið allt að 82 millj. kr. Stjórnvaldssekt sem lögð er á lögaðila getur numið allt að 82 millj. kr., en getur þó verið hærri, eða allt að 5% af heildarveltu samkvæmt síðasta samþykkta ársreikningi lögaðilans eða 5% af síðasta samþykkta samstæðureikningi ef lögaðilinn er hluti af samstæðu.
Þrátt fyrir 2. mgr. er heimilt að ákvarða lögaðila stjórnvaldssekt sem nemur allt að tvöföldum ávinningi af broti ef sú fjárhæð er hærri.
Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um stjórnvaldssekt er aðfararhæf. Sé stjórnvaldssekt ekki greidd innan mánaðar frá því að aðila var tilkynnt um hana skal greiða dráttarvexti af fjárhæð sektarinnar. Um ákvörðun og útreikning dráttarvaxta fer eftir lögum um vexti og verðtryggingu.
5. gr.
Bann við stjórnunarstörfum.
6. gr.
Saknæmi.
7. gr.
Ákvörðun stjórnsýsluviðurlaga og annarra ráðstafana.
a. saknæmisstigs,
b. alvarleika og tímalengdar brotsins,
c. ábyrgðar hins brotlega,
d. fjárhagsstöðu hins brotlega, sér í lagi með hliðsjón af heildarveltu lögaðila eða árstekna og hreinnar eignar einstaklings,
e. ávinnings eða taps sem forðað var með brotinu fyrir hinn brotlega,
f. hvort brotið hafi leitt til taps þriðja aðila,
g. samstarfsvilja hins brotlega,
h. fyrri brota hins brotlega,
i. áhrifa brotsins á hagsmuni fjárfesta.
8. gr.
Sátt.
Seðlabanki Íslands setur reglur um framkvæmd 1. mgr.
9. gr.
Réttur grunaðs manns.
10. gr.
Frestur til að beita stjórnsýsluviðurlögum.
Frestur skv. 1. mgr. rofnar þegar Fjármálaeftirlitið tilkynnir aðila um upphaf rannsóknar á meintu broti. Rof frests hefur réttaráhrif gagnvart öllum sem staðið hafa að broti.
11. gr.
Stjórnvaldsfyrirmæli.
Seðlabanki Íslands setur reglur til að innleiða reglugerðir sem eru samþykktar með stoð í eftirtöldum ákvæðum reglugerðar (ESB) 2020/1503 og hafa verið teknar upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið:
1. 7. mgr. 6. gr. um einstaklingsmiðaða stýringu lánasafns.
2. 5. mgr. 7. gr. um kröfur, sniðmát og verklag við meðferð kvartana.
3. 7. mgr. 8. gr. um ráðstafanir og kröfur varðandi hagsmunaárekstra.
4. 16. mgr. 12. gr. um kröfur og fyrirkomulag umsóknar um starfsleyfi, þ.m.t. eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur, ásamt ráðstöfunum og verklagi varðandi áætlun um rekstrarsamfellu.
5. 3. mgr. 16. gr. um staðla, sniðmát og verklagsreglur varðandi upplýsingar í skýrslugjöf.
6. 7. mgr. 19. gr. um upplýsingar til viðskiptavina.
7. 3. mgr. 20. gr. um aðferðarfræði við útreikning vanskilahlutfalla.
8. 8. mgr. 21. gr. um mat og upplýsingar í tengslum við viðeigandi hópfjármögnunarþjónustu til reynslulítilla fjárfesta og hermun á getu til að þola tap.
9. 16. mgr. 23. gr. um lykilupplýsingablað fjárfestingar.
10. 5. mgr. 28. gr. um eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur fyrir tilkynningar á lögum og stjórnvaldsfyrirmælum í tengslum við markaðsefni.
11. 8. mgr. 31. gr. um tilgreiningu upplýsinga í upplýsingaskiptum milli lögbærra yfirvalda.
12. 9. mgr. 31. gr. um eyðublöð, sniðmát og verklag við samstarf og upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda.
13. 4. mgr. 32. gr. um eyðublöð, sniðmát og verklag við samstarf og upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda, evrópskra eftirlitsstofnana og eftirlitsstofnunar EFTA.
Seðlabanki Íslands getur sett reglur um heiðarleika, sanngirni og fagmennsku þjónustuveitenda hópfjármögnunar.
12. gr.
Gildistaka.
Þjónustuveitendum hópfjármögnunar hér á landi sem falla undir lög þessi er heimilt að veita hópfjármögnunarþjónustu til 1. júlí 2027, eða þar til þeir fá starfsleyfi ef það er innan þess tímamarks, samkvæmt lögum þessum.
13. gr.
Breyting á öðrum lögum.
2. Lög um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og skilavald, nr. 99/1999: Á eftir orðinu „þjónustuveitenda sýndareigna“ í 2. tölul. 2. mgr. 7. gr. laganna kemur: þjónustuveitenda hópfjármögnunar.
3. Lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018: Á eftir tilvísuninni „3. gr.“ í j-lið 1. mgr. 2. gr. laganna kemur: og þjónustuveitendur hópfjármögnunar samkvæmt lögum um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki.
4. Lög um lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, nr. 14/2020: Við 1. mgr. 2. gr. laganna bætist nýr töluliður svohljóðandi: 46. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 frá 7. október 2020 um evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki og um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/1129 og tilskipun (ESB) 2019/1937, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34 frá 25. apríl 2024, bls. 372–420.
5. Lög um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021: Við 1. mgr. 2. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Þjónustuveitendur hópfjármögnunar eins og þeir eru skilgreindir í e-lið 1. mgr. 2. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503.
Greinargerð.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.