Ferill 436. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 877 — 436. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um verðlagsuppfærslur.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver hafa útgjöld ríkissjóðs verið ár hvert undanfarin tíu ár vegna verðlagsuppfærslna?
Útreikningar launa- og verðlagsbóta eru framkvæmdir með miðlægum og samræmdum hætti af fjármála- og efnahagsráðuneyti við gerð fjárlaga ár hvert. Við verðlagsútreikning eru fjárheimildir færðar á verðlag komandi fjárlagaárs þar sem tekið er mið af spá um verðbólgu, áætlaðri þróun greiðslna almannatrygginga, launahækkunum ríkisstarfsmanna samkvæmt kjarasamningum einstakra stéttarfélaga, ýmsum sértækum verðlagsforsendum í tilteknum verkefnum og af breytingum á gengi íslensku krónunnar fyrir þá útgjaldaliði sem greiddir eru í erlendum gjaldmiðli. Þessari aðferðafræði hefur verið beitt um langt árabil og er tilgangur hennar að varpa ljósi á magnbreytingar í ríkisútgjöldum milli ára og aðlaga fjárheimildir stofnana og verkefna að árlegri launa- og verðlagsþróun. Í töflu að aftan má sjá hvernig launa- og verðlagsbætur hafa þróast undanfarin tíu ár samkvæmt fjárlögum og sundurliðun þeirra í laun, önnur gjöld og tilfærslur.
| Launa- og verðlagsbætur á verðlagi hvers árs (m.kr.) | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 | 2026 |
| Laun | 11.593 | 7.155 | 10.389 | 9.805 | 10.404 | 14.147 | 16.236 | 22.327 | 22.448 | 22.891 |
| Önnur gjöld | 2.233 | 3.244 | 8.321 | 6.641 | 9.058 | 9.979 | 19.619 | 19.756 | 13.637 | 9.698 |
| Tilfærslur | 9.431 | 7.883 | 10.405 | 9.286 | 14.216 | 13.181 | 30.463 | 29.310 | 18.142 | 18.599 |
| Alls | 23.258 | 18.283 | 29.115 | 25.733 | 33.677 | 37.307 | 66.318 | 71.393 | 54.227 | 51.187 |