Ferill 435. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 888 — 435. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Sigurþóru Steinunni Bergsdóttur um erlent eignarhald í mikilvægum innviðum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvert er eignarhald erlendra aðila í fyrirtækjum sem teljast til mikilvægra innviða eða nauðsynlegrar þjónustu samkvæmt lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, nr. 78/2019? Svar óskast sundurliðað eftir fyrirtækjum og hlutfalli eignarhalds erlendra aðila í viðkomandi fyrirtæki.
Ráðuneytið bendir á að gildissvið laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, nr. 78/2019, er afmarkað. Lögin kveða á um áhættustýringu og viðbúnað net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, sbr. II. kafla laganna, einkum 7. gr. Þær lúta að því að viðkomandi aðilar hafi:
– skjalfesta öryggisstefnu og ferla um áhættumat og áhættustýringu,
– viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir,
– viðbragðsáætlanir og áætlanir um samfelldan og órofinn rekstur,
– virkt innra eftirlit með net- og upplýsingaöryggi og
– uppfylli tilkynningaskyldu vegna alvarlegra atvika.
Lögin taka ekki til eignarhalds fyrirtækja né fela þau í sér almenna skráningu eða yfirsýn yfir eigendur þeirra aðila sem skilgreindir eru sem rekstraraðilar nauðsynlegrar þjónustu eða veitendur stafrænnar þjónustu. Eftirlitsheimildir stjórnvalda samkvæmt 11. og 12. gr. laganna beinast að skipulagi og framkvæmd net- og upplýsingaöryggis, þ.m.t. öryggisstefnu, áhættumati, öryggisráðstöfunum og viðbragðsáætlunum, en ekki að eignarhaldi nema að því marki sem það kann að hafa bein áhrif á öryggisskipulag kerfa.
Þá skal tekið fram að eftirlit með rekstraraðilum nauðsynlegrar þjónustu er í höndum mismunandi eftirlitsstjórnvalda eftir málaflokkum, sbr. 11. gr. laga nr. 78/2019. Fjarskiptastofa er leiðbeinandi samhæfingarstjórnvald og vinnur með öðrum eftirlitsstjórnvöldum við framkvæmd eftirlitsins. Ekki liggur fyrir miðlæg skrá hjá Fjarskiptastofu um eignarhald aðila sem teljast til mikilvægra innviða samkvæmt lögunum. Þá hefur Fjarskiptastofa ekki upplýsingar um nákvæmt eignarhald þeirra aðila sem teljast mikilvægir innviðir og falla undir eftirlit stofnunarinnar á grundvelli laganna. Helgast það af framangreindri afmörkun á kröfum og eftirliti laganna.
Sérstakt ákvæði er að finna í lögum um Fjarskiptastofu þar sem stofnunni er, með hliðsjón af almannahagsmunum og þjóðaröryggi, heimilt að krefjast upplýsinga um eigendur, keðju eigenda og þá aðila sem fara raunverulega með atkvæðisrétt innan fjarskiptafyrirtækis. Það ákvæði tekur þó aðeins til fjarskiptafyrirtækja og byggist á heimildum samkvæmt lögum um Fjarskiptastofu, nr. 75/2021. Fjarskiptafyrirtæki falla almennt utan gildissviðs laga nr. 78/2019 að því er varðar netöryggiskröfur, þar sem um þau gilda sérákvæði laga um fjarskipti, nr. 70/2022.
Með hliðsjón af framangreindu liggja ekki fyrir hjá Fjarskiptastofu upplýsingar um eignarhald erlendra aðila í fyrirtækjum sem teljast til mikilvægra innviða samkvæmt lögum nr. 78/2019, hvorki sundurliðað eftir fyrirtækjum né hlutfalli eignarhalds.