Ferill 524. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 891 — 524. mál.
Fyrirspurn
til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um Menntasjóð námsmanna og lánshæfi atvinnuflugmannsnáms.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
1. Er vilji fyrir því innan starfandi nefndar um endurskoðun útlánareglna Menntasjóðs námsmanna að tryggja jafnræði umsækjenda sem vilja stunda atvinnuflugmannsnám á Íslandi á við þá nemendur sem kjósa að stunda nám erlendis?
2. Hyggst ráðherra beita sér fyrir breytingum á úthlutunarreglum eða framkvæmd sjóðsins þannig að lánshæfi og skilyrði taki mið af raunverulegum námsleiðum á markaði fyrir atvinnuflug? Ef svo er, hver er áætlaður tímarammi og hvaða vinna er hafin til að tryggja þetta?
Skriflegt svar óskast.