Ferill 526. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 893 — 526. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um skotvopnalög.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
1. Hvað líður setningu reglugerða á grundvelli vopnalaga, nr. 16/1998, í kjölfar þeirra breytinga sem urðu á lögunum og tóku gildi 24. febrúar 2024?
2. Telur ráðherra að 23. gr. vopnalaga, nr. 16/1998, samræmist 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands um friðhelgi heimilisins?
3. Telur ráðherra að innheimta gjalda vegna íhluta skotvopna samræmist meðalhófsreglu?
4. Telur ráðherra eðlilegt að telja plastbakka til að geyma púður á til endurhleðslu til íhluta skotvopna?
Munnlegt svar óskast.