Ferill 458. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 904 — 458. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Árna Helgasyni um hagræðingu í ríkisrekstri.
1. Hversu mikil hagræðing hefur átt sér stað í ráðuneytinu nú þegar á grundvelli tillagna starfshóps forsætisráðherra til ríkisstjórnar eftir samráð við almenning sem skilað var 4. mars 2025? Í hverju felst hagræðingin, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
Tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar nýttust við forgangsröðun í fjármálaáætlun 2026–2030 þar sem markmiðið var að ná fram aukinni skilvirkni og draga úr rekstrarkostnaði án þess að skerða opinbera þjónustu. Við undirbúning fjárlaga 2026 útfærði ráðuneytið nánar hagræðingaraðgerðir innan fjárveitinga sinna málaflokka, sjá töflu hér á eftir.
Varðandi áhrif tillagnanna á starfsemi á árinu 2025 er vert að benda á að það ár var starfsemi ráðuneytis og ríkisaðila í samræmi við þágildandi ársáætlanir á grundvelli þess árs. Fjárlög 2025 gerðu ráð fyrir almennri hagræðingu upp á 143,2 millj. kr. innan ársins og 379,6 millj. kr. sértækri hagræðingu fyrir málaflokka ráðuneytisins. Þar sem tillögurnar voru ekki samþættar inn í fjárlög 2025 liggur ekki fyrir hvaða hagræðing hafi náðst vegna tillagnanna á árinu 2025. Þrátt fyrir þetta nýttust tillögurnar til að koma ýmsum verkefnum af stað. Ráðuneytið fór strax í vinnu við að innleiða mál í samræmi við tillögur hópsins eins og gerð er grein fyrir í skýrslu starfshóps forsætis- og fjármála- og efnahagsráðuneytis frá nóvember 2025.
2. Hvaða hagræðing er áætluð vegna tillagnanna á þessu ári og í hverju felst sú hagræðing, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
Hagræðingaraðgerðir ríkisstjórnarinnar eru frá og með árinu 2026 samþættar ferli fjárlagagerðar og framkvæmdar fjárlaga og ber ráðuneytið ábyrgð á að innleiða þær innan þeirra málefnasviða sem það fer með. Á vef Stjórnarráðsins, á undirsíðunni hagsýni í ríkisrekstri, er haldið utan um verkefni ráðuneytisins sem tengist hagræðingaraðgerðunum. Gert er ráð fyrir að tvisvar á árinu 2026 verði birt yfirlit yfir stöðu verkefna á grundvelli tillagnanna.
Meðfylgjandi er yfirlit yfir hvernig ráðuneytið útfærði hagræðingaraðgerðir í fjárlögum 2026. Við áætlanagerð ársins 2026 var stofnunum ætlað að laga starfsemina að fjárveitingum með markvissum aðhaldsráðstöfunum og forgangsröðun verkefna. Stofnanir hafa ekki verið beðnar um að halda utan um hagræðingu sem kemur beint í kjölfar tillagna hagræðingarhópsins og því er ekki unnt að svara til um áhrif tillagnanna á einstaka rekstrarliði. Hvað varðar aðalskrifstofu ráðuneytisins voru hagræðingaraðgerðirnar útfærðar með skipulagsbreytingum og uppsögnum starfsmanna.
| Málaflokkur/stofnun | Upphæð í millj. kr. |
| 20.10 Framhaldsskólar | -727,6 |
| 02-301 Menntaskólinn í Reykjavík | -5,2 |
| 02-302 Menntaskólinn á Akureyri | -4,4 |
| 02-303 Menntaskólinn að Laugarvatni | -1,9 |
| 02-304 Menntaskólinn við Hamrahlíð | -7,3 |
| 02-305 Menntaskólinn við Sund | -5,1 |
| 02-306 Menntaskólinn á Ísafirði | -3,4 |
| 02-307 Menntaskólinn á Egilsstöðum | -3,1 |
| 02-308 Menntaskólinn í Kópavogi | -8,3 |
| 02-309 Kvennaskólinn í Reykjavík | -4,7 |
| 02-318 Stofnkostnaður framhaldsskóla | -500 |
| 02-350 Fjölbrautaskólinn í Breiðholti | -11,6 |
| 02-351 Fjölbrautaskólinn við Ármúla | -9 |
| 02-352 Flensborgarskóli | -5,2 |
| 02-353 Fjölbrautaskóli Suðurnesja | -8,3 |
| 02-354 Fjölbrautaskóli Vesturlands | -4,8 |
| 02-355 Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum | -2,1 |
| 02-356 Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra | -5,4 |
| 02-357 Fjölbrautaskóli Suðurlands | -10,2 |
| 02-358 Verkmenntaskóli Austurlands | -2,8 |
| 02-359 Verkmenntaskólinn á Akureyri | -10,7 |
| 02-360 Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | -5,5 |
| 02-361 Framhaldsskólinn í A-Skaftafellssýslu | -1,3 |
| 02-362 Framhaldsskólinn á Húsavík | -1,3 |
| 02-363 Framhaldsskólinn á Laugum | -2 |
| 02-365 Borgarholtsskóli | -10,6 |
| 02-367 Fjölbrautaskóli Snæfellinga | -1,5 |
| 02-368 Menntaskóli Borgarfjarðar | -1,3 |
| 02-370 Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ | -2,5 |
| 02-372 Menntaskólinn á Tröllaskaga | -1,8 |
| 02-504 Tækniskólinn | -21,9 |
| 02-581 Verzlunarskóli Íslands | -7,2 |
| 02-998 Varasjóðir málaflokka | -57,2 |
| 22.30 Stjórnsýsla mennta- og barnamála | -44,1 |
| 02-101 Mennta- og barnamálaráðuneyti, aðalskrifstofa | -44 |
| 02-998 Varasjóðir málaflokka | -0,1 |
| 29.40 Annar stuðningur við fjölskyldur og börn | -27,8 |
| 02-740 Barna- og fjölskyldustofa | -3,2 |
| 02-741 Ráðgjafar- og greiningarstöð | -2,5 |
| 02-998 Varasjóðir málaflokka | -22,1 |
| Samtals: | - 799,5 |