Ferill 411. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 906 — 411. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um uppbyggingu hjúkrunarrýma.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvað hefur verið samþykkt uppbygging á mörgum nýjum hjúkrunarrýmum sem ekki eru tilbúin? Hve mörg þeirra hafa verið samþykkt á yfirstandandi kjörtímabili?
2. Hvar verða fyrirhuguð hjúkrunarrými, hve mörg hjúkrunarrými verða á hverjum stað og hvenær er áætlað að þau verði tilbúin? Stendur til að fækka hjúkrunarrýmum einhvers staðar í framhaldi af og/eða samhliða þessari uppbyggingu?
Málefni hjúkrunarheimila fluttust til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins þann 15. mars 2025. Eftirtalin verkefni hafa verið samþykkt án þess að framkvæmdum sé lokið:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Mjög styttist í að rekstur hefjist í Urðarhvarfi í Kópavogi. Framkvæmdir eru hafnar við Sóltún og Nauthólsveg í Reykjavík ásamt hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði. Niðurstöður útboðs liggja bráðlega fyrir í tengslum við uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á Húsavík. Þá er búið að rita undir samkomulag við sveitarfélög í tengslum við Hamra í Mosfellsbæ, Þursaholt á Akureyri og í tengslum við fyrirhugað hjúkrunarheimili í Vatnshlíð í Hafnarfirði, Vigdísarholt. Nýtt hjúkrunarheimili á Höfn er í byggingu en þeirri uppbyggingu var komið í farveg af heilbrigðisráðuneytinu á síðasta kjörtímabili.
Unnið hafði verið að hugmyndum um uppbyggingu varðandi Ás í Hveragerði, Urðarhvarf og Sóltún á síðasta kjörtímabili en þau verkefni voru ekki formfest fyrr en á árinu 2025 þegar félags- og húsnæðismálaráðuneyti tók við verkefnunum og tók af skarið um þá uppbyggingu með gerð leigusamninga um þessi heimili. Önnur verkefni á þessu kjörtímabili fela í sér uppbyggingu (eða fyrirhugaða uppbyggingu) hjúkrunarheimila að Nauthólsvegi í Reykjavík, Hömrum í Mosfellsbæ, Hvammi á Húsavík, Vatnshlíð í Hafnarfirði og Þursaholti á Akureyri, alls 407 ný rými. Mennta- og barnamálaráðherra mun kynna nýja framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma fyrir árin 2026–2030 á allra næstu dögum. Þar verða fleiri verkefni kynnt og allnokkur þeirra verða formfest á næstu vikum eða mánuðum.
Ekki liggja fyrir áætlanir um fækkun hjúkrunarrýma samhliða uppbyggingunni á þessari stundu en þörf fyrir hjúkrunarrými er metin árlega í framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma af hálfu heilbrigðisráðuneytisins. Þó má þess geta að á Húsavík mun starfsemi hjúkrunarheimilisins færast úr núverandi húsnæði, Hvammi, yfir í nýja byggingu. Hjúkrunarrýmum fækkar því ekki heldur fjölgar um sex en starfsemin í eldri Hvammi mun leggjast af. Í Hveragerði þarf að fjarlægja nokkur hús á staðnum með eldri rýmum og sameiginlegum baðherbergjum til að rýma fyrir nýju byggingunni. Þar er því heldur ekki um fækkun að ræða heldur fjölgar rýmum um 26. Sama er uppi á teningnum á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði á Höfn í Hornafirði, en þar er um að ræða endurbætur 24 rýma auk sex nýrra rýma til viðbótar.