Ferill 463. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 907 — 463. mál.
Svar
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Árna Helgasyni um hagræðingu í ríkisrekstri.
1. Hversu mikil hagræðing hefur átt sér stað í ráðuneytinu nú þegar á grundvelli tillagna starfshóps forsætisráðherra til ríkisstjórnar eftir samráð við almenning sem skilað var 4. mars 2025? Í hverju felst hagræðingin, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
Tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar nýttust við forgangsröðun í fjármálaáætlun 2026–2030 þar sem markmiðið var að ná fram aukinni skilvirkni og draga úr rekstrarkostnaði án þess að skerða opinbera þjónustu. Við undirbúning fjárlaga 2026 útfærði hvert ráðuneyti nánar hagræðingaraðgerðir innan fjárveitinga sinna málaflokka, sjá töflu í 2. tölul.
Varðandi áhrif tillagnanna á starfsemina á árinu 2025 er vert að benda á að það ár var starfsemi ríkisaðila í samræmi við þágildandi ársáætlanir á grundvelli fjárlaga þess árs. Fjárlög 2025 gerðu ráð fyrir almennri hagræðingu upp á 2,2 milljarða kr. innan ársins og 8,2 milljarða kr. sértækri hagræðingu. Þar sem tillögurnar voru ekki samþættar inn í fjárlög 2025 liggur ekki fyrir hvaða hagræðing hafi náðst vegna tillagnanna á árinu 2025. Þrátt fyrir þetta nýttust tillögurnar til að koma ýmsum verkefnum af stað. Því fóru ráðuneyti og stofnanir strax í vinnu við að innleiða mál í samræmi við tillögur hópsins eins og gert er grein fyrir í skýrslu starfshóps forsætis- og fjármála- og efnahagsráðuneytis frá desember 2025. 1
Að auki vinnur ráðuneytið markvisst að endurskipulagningu á stofnanakerfi sínu en sú vinna hefur staðið yfir síðan árið 2022. Það ár voru undirstofnanir ráðuneytisins 13 en eru nú níu.
Þær sameiningar sem þegar hafa átt sér stað innan ráðuneytisins eru:
– Náttúrufræðistofnun var sett á fót 1. júlí 2024 á grunni Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands og Náttúrurannsóknarstöðvarinnar við Mývatn.
– Náttúruverndarstofnun var sett á fót 1. janúar 2025 á grunni Vatnajökulsþjóðgarðs og hluta Umhverfisstofnunar.
– Umhverfis- og orkustofnun sett á fót 1. janúar 2025 á grunni Orkustofnunar og hluta Umhverfisstofnunar.
– Stofnun Vilhjálms Stefánssonar var lögð niður þann 1. janúar 2025 og starfsemi hennar færð inn í Háskólann á Akureyri.
– Land og skógur var sett á fót 1. janúar 2024 á grunni Landgræðslunnar og Skógræktarinnar en hin nýja stofnun færðist til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins í mars 2025.
Breytingarferli sem snýr að einföldun stofnanakerfis ríkisins er vandasamt og tímafrekt og bætist ofan á dagleg verkefni starfsmanna, bæði innan ráðuneytis og hjá hlutaðeigandi stofnunum. Þó að nýjar sameinaðar stofnanir hafi tekið til starfa er breytingaferlinu ekki lokið. Nú þegar hefur breytingin skilað sér í einföldun og meiri skilvirkni en lengri tíma mun taka að ná að fullu fram þeirri hagræðingu sem stefnt er að.
2. Hvaða hagræðing er áætluð vegna tillagnanna á þessu ári og í hverju felst sú hagræðing, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
Hagræðingaraðgerðir ríkisstjórnarinnar eru frá og með 2026 samþættar ferli fjárlagagerðar og framkvæmdar fjárlaga. Hvert ráðuneyti ber ábyrgð á að innleiða hagræðingaraðgerðir innan þeirra málefnasviða sem það fer með. Á vef Stjórnarráðsins, á undirsíðunni Hagsýni í ríkisrekstri 2 , er haldið utan um verkefni ráðuneyta sem tengjast hagræðingaraðgerðunum. Á árinu 2026 er gert ráð fyrir að öll ráðuneyti birti tvisvar yfir árið yfirlit yfir stöðu verkefna á grundvelli tillagnanna. Þetta var síðast gert í september 2025 og vísast í fyrrnefnda vefsíðu.
Meðfylgjandi er yfirlit yfir hvernig ráðuneytið útfærði sértækar hagræðingaraðgerðir í fjárlögum 2026. Við áætlanagerð ársins 2026 var stofnunum ætlað að laga starfsemi að fjárveitingum með markvissum aðhaldsráðstöfunum og forgangsröðun verkefna. Stofnanir hafa ekki verið beðnar um að halda utan um hagræðingu sem kemur beint í kjölfar tillagna hagræðingarhópsins og er því ekki unnt að svara til um áhrif tillagnanna á einstaka rekstrarliði.
| Fjárlög 2026 – Sértækar aðhaldsráðstafanir | Gjöld |
| millj. kr. |
|
| 14 Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti | |
| 17.10 Náttúruvernd, skógrækt og landgræðsla | |
| 14-206 Náttúruverndarstofnun | |
| 14-206-101 Almennur rekstur | -19,3 |
| 14-232 Land og skógur | |
| 14-232-101 Land og skógur | -21 |
| 14-998 Varasjóðir málaflokka | |
| 14-998-110 Varasjóður málaflokks 17–10 | -14,2 |
| 17.20 Rannsóknir og vöktun á náttúru Íslands | |
| 14-401 Náttúrufræðistofnun | |
| 14-401-101 Náttúrufræðistofnun | -11,4 |
| 14-412 Veðurstofa Íslands | |
| 14-412-101 Almennur rekstur | -19,7 |
| 14-998 Varasjóðir málaflokka | |
| 14-998-115 Varasjóður málaflokks 17–20 | -14,2 |
| 17.50 Stjórnsýsla umhverfismála | |
| 14-101 Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti | |
| 14-101-101, aðalskrifstofa | -37,2 |
| 14-502 Umhverfis- og orkustofnun | |
| 14-502-101 Almennur rekstur | -14,3 |
| Samtals | -151,3 |
1 www.stjornarradid.is/library/02-Rit--skyrslur-og-skrar/Umb%c3%a6tur%20og%20hagr%c3%a6%c3%b0ing%20%c3%ad%20r%c3%adkisrekstri.pdf
2 www.stjornarradid.is/verkefni/rekstur-og-eignir-rikisins/hagsyni-i-rikisrekstri-/