Ferill 474. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 908 — 474. mál.
Svar
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um mannauðsmál.
1. Hversu mörg stöðugildi eru nú í mannauðsmálum í ráðuneytinu?
Í ráðuneytinu er eitt stöðugildi sem sinnir mannauðsmálum.
2. Hvernig hefur þróunin verið í fjölda stöðugilda er sinna mannauðsmálum í ráðuneytinu á árunum 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Fjöldi stöðugilda sem sinnt hafa mannauðsmálum á tímabilinu er sem hér segir:
| Ár | Fjöldi stöðugilda |
| 2016 | 0 |
| 2017 | 0 |
| 2018 | 0 |
| 2019 | 0 |
| 2020 | 0 |
| 2021 | 1 |
| 2022 | 1 |
| 2023 | 1 |
| 2024 | 1 |
| 2025 | 1 |
| 2026 | 1 |
3. Hefur ráðuneytið keypt sérfræðiráðgjöf vegna mannauðsmála árin 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum og fyrirtækjum/rekstraraðilum.
Ráðuneytið hefur á tímabilinu keypt þjónustu og sérfræðiráðgjöf á sviði mannauðsmála. Nánari sundurliðun eftir árum og fyrirtækjum/rekstraraðilum má sjá í töflu undir 5. tölul. fyrirspurnarinnar.
4. Hefur ráðuneytið gert samninga við fyrirtæki/rekstraraðila um þjónustu eða ráðgjöf á sviði mannauðsmála á árunum 2016–2026? Ef svo er, hvernig fór samningaferlið fram? Hafa samningar verið boðnir út? Hvaða fyrirtæki/rekstraraðilar sinna slíku fyrir ráðuneytið?
Ráðuneytið hefur gert samninga við fyrirtæki um þjónustu og ráðgjöf á sviði mannauðsmála, einkum í tengslum við ráðningar. Kaup á þjónustu hafa farið fram í samræmi við lög um opinber innkaup. Þar sem um var að ræða kaup undir viðmiðunarfjárhæðum samkvæmt lögum um opinber innkaup var ekki skylt að bjóða þau út. Við val á þjónustuaðilum var litið til reynslu, sérþekkingar og hagkvæmni.
Ráðuneytið er með gildandi samning við Auðnast ehf. um þjónustu á sviði heilsu- og vinnuverndar. Á árunum 2016–2020 var árlega gerður samningur við Attentus – mannauð og ráðgjöf ehf. um aðkeypta mannauðsstjórnun. Árið 2020 var tekin ákvörðun um að ráða mannauðsstjóra til starfa innan ráðuneytisins og lauk þar með þeirri aðkeyptu þjónustu.
Nánari upplýsingar um aðkeypta þjónustu má sjá í töflu undir 5. tölul. fyrirspurnarinnar.
5. Hver hefur kostnaður vegna fyrrgreindrar þjónustu eða ráðgjafar verið á árunum 2016– 2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum, fyrirtækjum/rekstraraðilum.
Kostnaður vegna kaupa á þjónustu og sérfræðiráðgjöf á sviði mannauðsmála á árunum 2016–2025 er sundurliðaður í meðfylgjandi töflu. Þar sem kostnaður árið 2026 er óverulegur og heildarkostnaður liggur ekki fyrir var árinu sleppt úr yfirlitinu. Þá skal tekið fram að svarið inniheldur ekki birtingarkostnað vegna auglýsinga í tengslum við ráðningar. Svarið inniheldur heldur ekki greidda þóknun til hæfnisnefnda vegna ráðninga embættismanna.
| Rekstraraðili | 2016 | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 |
| Attentus – mannauður og ráðgjöf ehf. | 4.725.492 | 7.349.816 | 9.403.572 | 13.202.348 | 13.875.765 | 1.994.291 | 2.092.844 | 344.838 | - | - |
| Auðnast ehf. | - | - | - | - | 150.000 | - | - | 1.556.681 | 2.543.817 | 2.012.826 |
| Auki – mannauður og stjórnendaráð-gjöf ehf. | - | - | - | - | - | - | - | - | 1.289.600 | - |
| Álfheiður Steinþórsdóttir | - | - | - | - | - | - | 215.000 | 184.000 | - | - |
| Capacent ehf. | 763.324 | - | 857.936 | 1.367.368 | - | - | - | - | - | - |
| Góð samskipti ehf. | - | - | - | 200.000 | - | - | - | - | - | - |
| Hagvangur ehf. | - | - | - | - | - | - | - | - | - | 474.300 |
| Intellecta ehf. | 1.251.046 | - | - | - | - | - | - | - | - | - |
| Páfugl ehf. | - | - | - | - | - | - | 130.000 | 2.335.550 | - | - |
| Sálfræðiþj. Jóhanns Inga G slf. | - | - | - | - | - | - | 50.000 | - | - | - |
| Vinnvinn ehf. | - | - | - | - | 1.290.000 | - | - | 1.546.150 | - | 2.254.200 |
| Alls | 6.739.862 | 7.349.816 | 10.261.508 | 14.769.716 | 15.315.765 | 1.994.291 | 2.487.844 | 5.967.219 | 3.833.417 | 4.741.326 |