Ferill 535. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 912 — 535. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um innviðafélag.
Frá fjármála- og efnahagsráðherra.
1. gr.
Stofnun innviðafélags.
Heimilt er að leggja til félagsins eignir og réttindi eftir því sem nánar greinir í lögum þessum.
Ákvæði laga um hlutafélög gilda um félagið ef ekki er kveðið á um annað í lögum þessum.
2. gr.
Tilgangur og markmið félagsins.
Meginmarkmið félagsins vegna verkefna sem það tekur að sér skulu vera að:
a. Tryggja hagkvæma, faglega og skilvirka verkefnastjórn varðandi undirbúning og framkvæmd stærri samgöngumannvirkja.
b. Skapa farveg fyrir fjármögnun mikilvægra samgönguinnviða.
c. Byggja upp sérhæfða þekkingu á innviðafjármögnun og áhættustýringu.
3. gr.
Hlutverk félagsins.
a. Fara með eignarhald, fjármögnun, uppbyggingu, viðhald og rekstur samgöngumannvirkja sem það tekur að sér.
b. Innheimta gjöld af umferð vegna notkunar samgöngumannvirkja.
c. Tryggja fjárhagslega sjálfbærni þess við uppbyggingu samgöngumannvirkja.
d. Tryggja faglegan undirbúning og áhættustýringu vegna ákvarðana þess um fjárfestingar í samgönguinnviðum, í samræmi við lög og viðmið sem gilda um opinberar framkvæmdir.
4. gr.
Hlutafé félagsins.
Ráðherra, í samráði við ráðherra sem fer með samgöngumál, er heimilt að færa yfir til félagsins eignarhald á þegar byggðum samgöngumannvirkjum sem tilheyra ríkinu í formi hlutafjár.
Ráðherra er heimilt að auka við hlutafé félagsins þar sem fjárfestum verður boðið að skrá sig fyrir nýjum hlutum í opnu ferli en þó þannig að ríkissjóður eigi alltaf ráðandi hlut í félaginu.
5. gr.
Stjórn félagsins.
6. gr.
Samningar um uppbyggingu innviða.
Samningur skv. 1. mgr. er háður staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytis, sbr. 40. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015.
7. gr.
Veggjöld.
Gjaldskrá fyrir hvert samgöngumannvirki skal birt opinberlega. Félaginu er heimilt að leggja á viðbótarálag í þeim tilvikum þegar ekið er um gjaldskyld mannvirki án þess að greiða fyrir aðgang að þeim í samræmi við gjaldskrá.
Eigandi ökutækis, eða skráður umráðamaður ef um kaupleigu er að ræða, ber ábyrgð á greiðslu veggjalda. Gjöld skv. 1. og 2. mgr. eru aðfararhæf án undangengins dóms eða sáttar. Skráður eigandi, þ.m.t. meðeigandi, og umráðamaður bera óskipta ábyrgð á greiðslu veggjalds ásamt dráttarvöxtum og innheimtukostnaði.
Félaginu er heimilt að gera samninga við aðra um innheimtu gjalda sé það metið fjárhagslega hagkvæmt. Um vanskil veggjalda fer samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu.
8. gr.
Heimild til lántöku o.fl.
Félaginu er heimilt að stofna dótturfélög um einstök verkefni eða til að annast afmarkaða þætti af verkefnum félagsins, í samræmi við samþykktir þess og lög þessi.
Félaginu er heimilt að annast önnur verkefni sem falla vel að hlutverki þess. Félaginu er jafnframt heimilt að gera hvers konar samninga við aðra aðila til að ná markmiðum sínum á sem hagkvæmastan hátt.
9. gr.
Slit félagsins.
10. gr.
Gildistaka.
Við gildistöku laga þessara falla úr gildi lög um vegtengingu um utanverðan Hvalfjörð, nr. 45/1990, og lög um stofnun hlutafélaga um vegaframkvæmdir, nr. 97/2010.
11. gr.
Breytingar á öðrum lögum.
1. Vegalög, nr. 80/2007:
a. Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
1. Við bætast eftirfarandi orðskýringar í viðeigandi stafrófsröð:
a. Opinbert innviðafélag: Opinbert hlutafélag sem stofnað er samkvæmt sérlögum í þeim tilgangi að hrinda í framkvæmd uppbyggingu stórra þjóðhagslega mikilvægra samgönguverkefna og tryggja fjármögnun og hraðari framvindu slíkra framkvæmda.
b. Skilgreint samgöngukerfi: Afmarkað kerfi samgöngumannvirkja sem skilgreint hefur verið sem ein heild í samgönguáætlun þar sem gjaldtaka getur tekið mið af heildarkostnaði allra mannvirkja innan kerfisins. Kerfið skal afmarkast þannig að notendur mannvirkja innan þess njóti sambærilegrar þjónustu.
2. 4. tölul. orðast svo: Veggjald: Gjald eða gjöld sem greidd eru fyrir rétt til að nota tiltekinn veg, vegarkafla eða skilgreint samgöngukerfi, á tilteknum tíma í tiltekin skipti.
b. Við 4. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ráðherra er heimilt að gera samning við opinbert innviðafélag, einn samning eða fleiri eftir þörfum, um uppbyggingu og rekstur samgönguverkefna á grundvelli samgönguáætlunar í samræmi við tilgang og hlutverk félagsins. Í samningi skal tryggt að félagið geti staðið undir kostnaði við undirbúning og framkvæmd verkefna, þ.m.t. stofnkostnaði, rekstri, viðhaldi og fjármagnskostnaði, með tekjum af veggjöldum eða eftir atvikum beinum fjárframlögum frá ríkinu til að verkefni geti talist fjárhagslega sjálfbært. Samningar við innviðafélag eru háðir staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytis, sbr. 40. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015.
c. Við 8. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Vegir sem opinbert innviðafélag fer með eignarhald á teljast til þjóðvega.
d. Við 13. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 1. málsl. 1. mgr. er ráðherra, í samráði við Vegagerðina, heimilt að fela opinberum hlutafélögum veghald að hluta eða öllu leyti í þeim samgönguinnviðaverkefnum sem félag tekur að sér á grundvelli samninga eða laga.
e. Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. laganna:
1. Við 2. mgr. bætist: eða skilgreinds samgöngukerfis.
2. Á eftir orðinu „umhverfis“ í 3. mgr. kemur: þróun skilgreinds samgöngukerfis.
3. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ráðherra, í samráði við Vegagerðina, er heimilt að veita opinberu innviðafélagi, eða dótturfélagi þess, sérleyfi til innheimtu gjalda á samgöngumannvirkjum í eigu ríkisins. Samningur um sérleyfi er háður staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytis, sbr. 40. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015.
f. Við 37. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Vegagerðinni er heimilt að taka eignarnámi land, jarðefni og önnur réttindi sem þörf er á vegna samgönguinnviðaframkvæmda á vegum opinbers hlutafélags. Um málsmeðferð vegna eignarnámsákvörðunarinnar gilda þau ákvæði VII. kafla vegalaga sem varða eignarnám.
2. Lög um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála, nr. 120/2012: Við 6. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Vegagerðinni er heimilt að taka að sér verkefni fyrir opinbert innviðafélag samkvæmt samningi.
Greinargerð.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.