Ferill 538. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 915 — 538. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um frávísun einhverfra frá geðheilsuteymum heilsugæslu.
Frá Rósu Guðbjartsdóttur.
1. Telur ráðherra að það samræmist lögum að vísa einhverfum einstaklingum frá geðheilsuteymum heilsugæslunnar á þeirri forsendu að þjónustuframboð „henti“ ekki fötlun þeirra, sbr. að í svari ráðherra á þskj. 743 kemur fram að í a.m.k. fjórum af sjö geðheilsuteymum er metið hvort þjónustuframboð teymisins ,,henti“ viðkomandi og að vísað sé frá ef það nýtist ekki með fullnægjandi hætti?
2. Er það opinber stefna ráðuneytisins að aðlögun þjónustu við einhverfa sé valkvæð eða ber heilbrigðiskerfinu að laga þjónustu að þörfum notenda?
3. Hvers vegna eru viðmið og framkvæmd mismunandi milli heilbrigðisumdæma ef þjónustan á að byggjast á jafnræði?
4. Hvernig tryggir ráðuneytið að faglegt mat sé sambærilegt milli geðheilsuteyma og leiði ekki til óbeinnar mismununar?
5. Byggist matið um hvort þjónustan henti eingöngu á þeim gögnum sem liggja fyrir eða fær viðkomandi að koma í matsviðtal?
6. Telur ráðherra að frávísunarhlutfall í 2. stigs geðheilbrigðisþjónustu, allt að 40,9%, sé eðlilegt?
7. Hvert eiga einstaklingar með einhverfu og geðrænan vanda sem vísað er frá geðheilsuteymum (2. stigs þjónusta) að leita til að fá meðferð? Ef svarið er til sjálfstætt starfandi sérfræðinga sem falla undir 2. stigs þjónustu, hvernig stendur á því að sjálfstætt starfandi sérfræðingar geta veitt slíka þjónustu en ekki geðheilsuteymi?
8. Hvernig er tryggt að einhverfir einstaklingar með geðrænan vanda sem vísað er frá geðheilsuteymum fái viðeigandi þjónustu og hafi efni á því að greiða fyrir hana? Ef slíkt er ekki tryggt, hvernig tryggir ráðherra að ekki komi upp kerfisbundið þjónustuleysi gagnvart einhverfum fullorðnum?
9. Hefur ráðuneytið látið meta sérstaklega stöðu einhverfra fullorðinna í geðheilbrigðiskerfinu? Ef ekki, hyggst ráðuneytið gera það?
10. Telur ráðherra að sú framkvæmd að vísa frá þegar þjónusta „hentar ekki“ geti leitt til kerfisbundins þjónustuleysis gagnvart einhverfum fullorðnum? Ef svo er, til hvaða aðgerða hyggst ráðherra grípa?
Skriflegt svar óskast.