Ferill 541. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 918 — 541. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um áhrif hækkana almannatrygginga á örorkulífeyri úr lífeyrissjóðum.
Frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.
1. Hefur verið gerð ný greining á áhrifum víxlverkunar greiðslna almannatrygginga og örorkulífeyris úr lífeyrissjóðum í kjölfar eða samhliða samþykkt laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026, nr. 99/2025?
2. Hvaða áhrif mun framlenging gildistíma ákvæðis til bráðabirgða XI í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, sem varðar víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna almannatrygginga og lífeyrissjóða til loka ársins 2026 sem samþykkt var á Alþingi í desember 2025, lög nr. 99/2025, hafa á:
a. Árleg útgjöld ríkissjóðs?
b. Tekjur örorkulífeyrisþega til lækkunar/hækkunar?
c. Útgjöld lífeyrissjóða?
3. Felur breytingin í sér að lífeyrissjóðum sé með öllu óheimilt að láta hækkanir sem urðu á örorkulífeyrisgreiðslum hinn 1. september 2025 samkvæmt lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, og lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, leiða til lækkunar á örorkulífeyrisgreiðslum til sjóðfélaga úr lífeyrissjóðum? Ef ekki, hvernig takmarkast þá heimild lífeyrissjóða til að lækka örorkulífeyrisgreiðslur vegna hækkananna 1. september 2025?
4. Með 21. gr. laga nr. 99/2025 var almenn hækkun skilgreind sem 5,8% hækkun 1. september 2025 og 5,2% hækkun 1. janúar 2026 á grundvelli tillagna sem komu fram í minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneyti. Hvernig var hlutfallið 5,8% ákvarðað?
Skriflegt svar óskast.