Ferill 80. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 919  —  80. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til sóttvarnalaga.

Frá meiri hluta velferðarnefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá heilbrigðisráðuneyti, embætti landlæknis, Landspítala, Lyfjastofnun, Reykjavíkurborg, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum atvinnulífsins, Landssamtökunum Þroskahjálp, ÖBÍ réttindasamtökum, sóttvarnaráði, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Íslenskri erfðagreiningu, Persónuvernd, Ferðamálastofu, Samgöngustofu, Viðskiptaráði Íslands, Rauða krossinum á Íslandi, umboðsmanni barna, Hafsteini Dan Kristjánssyni, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, og Trausta Fannari Valssyni, dósent við lagadeild Háskóla Íslands.
    Nefndinni bárust 15 umsagnir auk minnisblaða frá heilbrigðisráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
    Frumvarpið felur í sér ný heildarlög um sóttvarnir en gildandi sóttvarnalög eru frá árinu 1997. Þörf var talin á heildarendurskoðun á ákvæðum laganna, einkum þeim sem fjalla um stjórnsýslu sóttvarna og opinberar sóttvarnaráðstafanir, m.a. vegna þeirrar reynslu sem fengist hefur hér á landi vegna heimsfaraldurs SARS-CoV-2-veirunnar. Helstu nýmæli eru m.a. markmiðsákvæði, skýrara gildissviðsákvæði, nýjar orðskýringar, breytingar á stjórnsýslu sóttvarna, m.a. að því er varðar stöðu sóttvarnalæknis, stofnun farsóttanefndar, niðurlagning sóttvarnaráðs, skorður við tímalengd opinberra sóttvarnaráðstafana og uppfærð viðurlagaákvæði.

Umfjöllun nefndarinnar.
Heildarendurskoðun sóttvarnalaga.
    Fyrir nefndinni var rætt um mikilvægi sóttvarnalaga og nauðsyn þeirra til að vernda almannaheill, þ.e. líf og heilsu einstaklinga, gegn smitsjúkdómum. Að mati meiri hlutans felur frumvarpið í sér tímabæra heildarendurskoðun á sóttvarnalögum en með nýjum lögum er ætlunin að skýra betur þær heimildir og þau úrræði sem stjórnvöld hafa þegar farsóttir breiðast út og hætta er á útbreiðslu smits frá einstaklingum.
    Meiri hlutinn leggur áherslu á að beiting sóttvarnaráðstafana getur haft víðtæk áhrif á daglegt líf fólks og samfélagið allt. Í gegnum tíðina hafa sóttvarnalög tekið nokkrum breytingum en einna helst árið 2021 þegar IV. kafli laganna var yfirfarinn með tilliti til reynslu stjórnvalda vegna heimsfaraldurs SARS-CoV-2-veirunnar. Með frumvarpinu er lagt til að kveðið verði skýrt á um það í lögum til hvaða ráðstafana megi grípa til að skerða stjórnarskrárvarin réttindi, í hvaða tilvikum og að meðalhófs skuli þá gætt. Þannig muni ráðstafanir styðjast við viðhlítandi lagaheimild og ekki vera framkvæmdar nema í þágu almannahagsmuna eða til verndar heilsu eða réttindum annarra.

Breytingar á stjórnsýslu sóttvarna (II. kafli).
    Við meðferð málsins í nefndinni var fjallað um breytta stjórnsýslu sóttvarna. Breytingarnar lúta einkum að stöðu sóttvarnalæknis en lagt er til að sóttvarnalæknir verði skipaður af ráðherra, líkt og landlæknir, samhliða því að ábyrgð hans á framkvæmd sóttvarna heyri beint undir yfirstjórn ráðherra en ekki landlækni, sbr. 5. gr. frumvarpsins. Þá er lagt til að sóttvarnaráð verði lagt niður en að nýtt fjölskipað stjórnvald, farsóttanefnd, verði sett á laggirnar og skili tillögum til ráðherra um opinberar sóttvarnaráðstafanir, sbr. 9. gr. frumvarpsins.
    Fyrir nefndinni var rætt um áhrif þess að sóttvarnalæknir verði skipaður af ráðherra og teljist embættismaður í skilningi laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Hins vegar er áfram gert ráð fyrir að sóttvarnalæknir starfi innan embættis landlæknis þótt gert sé ráð fyrir að hann sé sjálfstæður í störfum sínum. Vegna þessa er í frumvarpinu lagt til að k-liður 1. mgr. 4. gr. laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, verði felldur brott, þ.e. að landlæknir beri ábyrgð á framkvæmd sóttvarna, sbr. sóttvarnalög. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að í framkvæmd hafi ábyrgð landlæknis á sóttvörnum fyrst og fremst verið formlegs eðlis og falist í því að landlæknir ráði til embættis síns hæfan sóttvarnalækni. Sóttvarnalög, nr. 19/1997, fela landlækni ekki nein tiltekin verkefni þótt þar sé minnst á ábyrgð á sóttvörnum heldur eru sóttvarnalækni falin öll helstu verkefni laganna. Í greinargerð með frumvarpinu kemur einnig fram að það fyrirkomulag sem lagt er til í frumvarpinu, þ.e. að sóttvarnalæknir starfi áfram innan embættis landlæknis, hafi orðið ofan á, einkum með tilliti til samlegðaráhrifa í lítilli stjórnsýslu eins og hér á landi.
    Meiri hlutinn bendir á að í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir breytingu á verkefnum embættis landlæknis heldur einungis skipun sóttvarnalæknis til að skýra betur stöðu hans og sérstaklega gagnvart ráðherra. Ef upp kæmi faraldur hefði embætti landlæknis áfram tilteknum skyldum að gegna í slíkum aðstæðum auk þess sem hægt væri að bregðast við ef þörf er á með tilfærslu starfsfólks.

Farsóttanefnd (8. og 9. gr.).
    Markmiðið með stofnun farsóttanefndar skv. 8. og 9. gr. frumvarpsins er að færa það verkefni og þá ábyrgð að koma með tillögur að opinberum sóttvarnaráðstöfunum, sem hafa veruleg áhrif á samfélagið, yfir á fleiri hendur með breiðari þekkingu og skírskotun. Ekki síður er markmiðið að styrkja sóttvarnalækni og almannavarnir varðandi stefnu og ákvarðanir þegar farsótt geisar sem og að koma formlega á laggirnar samráðsvettvangi helstu viðbragðsaðila.
    Við meðferð málsins var rætt um skipan nefndarinnar með hliðsjón af hlutverki hennar en í umsögnum um málið komu fram ýmis sjónarmið þar um. Félag hjúkrunarfræðinga taldi að hjúkrunarfræðingur með sérþekkingu á sýkingavörnum ætti að eiga sæti í farsóttanefndinni. Þá taldi Landspítali rétt að gerð yrði krafa um þekkingu allra þeirra fulltrúa sem sitja í nefndinni á efninu en ekki hluta þeirra líkt og frumvarpið gerir ráð fyrir. Einnig lagði Landspítali til að bætt yrði við nefndina fulltrúa sem hefði þekkingu á greiningu smitsjúkdóma og tengingu við rannsóknarstofur, enda skipti greiningargeta og aðgengi að rannsóknum miklu máli í viðbrögðum við smitsjúkdómum. Reykjavíkurborg taldi að fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga með viðeigandi þekkingu ætti að eiga sæti í nefndinni. Með því væri gætt að mikilvægum og viðkvæmum málaflokkum þjónustu sem veitt sé á sveitarstjórnarstigi. Þá töldu Samtök atvinnulífsins að í farsóttanefnd ætti að eiga sæti einstaklingur sem hefði annars vegar þjóðhagslega þekkingu og hins vegar stjórnskipulega þekkingu. Töldu samtökin ekki nægja þann möguleika frumvarpsins að kveðja tvo viðbótarmenn í nefndina heldur þyrfti þessi aðili að hafa lögbundið sæti í nefndinni og atkvæðisrétt.
    Meiri hlutinn telur ekki rétt að festa sérþekkingu á tilteknar heilbrigðisstofnanir enda geti það falið í sér ákveðna takmörkun. Auk þess skal sóttvarnalæknir, sem á sæti í farsóttanefnd, hafa sérfræðimenntun í læknisfræði og þekkingu á smitsjúkdómum og faraldsfræði þeirra. Þá bendir nefndin á að í 10. gr. frumvarpsins er kveðið á um samvinnu stofnana og fellur samvinna sóttvarnalæknis við rannsóknastofur þar undir.
    Að því er varðar sjónarmið um að í farsóttanefnd eigi að sitja fulltrúar með breiðari skírskotun bendir meiri hlutinn á að farsóttanefnd er heimilt samkvæmt frumvarpinu að kveðja tvo menn til viðbótar til að sitja í nefndinni sem hafa málfrelsi og tillögurétt telji nefndin tilefni til. Meiri hlutinn telur mikilvægt að í farsóttanefndinni sé tiltekin fagleg sérfræðiþekking til staðar en bendir jafnframt á að nefndinni er ætlað að vera vettvangur fyrir helstu viðbragðsaðila og því sé mikilvægt að stofnanir geti tilnefnt einstaklinga sem geta í krafti stöðu sinnar innan viðkomandi stofnunar tryggt skilvirkni og öryggi í viðbrögðum við faraldri. Meiri hlutinn leggur hins vegar til breytingu á 2. mgr. 8. gr. frumvarpsins í því skyni að veita farsóttanefnd rými til að fá inn í nefndina fjölbreyttari sjónarmið og breiðari þekkingu telji hún þörf á hverju sinni.

Aðkoma Alþingis að sóttvarnaráðstöfunum.
    Í 2. mgr. 18. gr. frumvarpsins er nýmæli um skyldu ráðherra til að upplýsa um og rökstyðja ákvarðanir sínar um opinberar sóttvarnaráðstafanir, án tafar, fyrir velferðarnefnd Alþingis. Þá er í 3. mgr. gert ráð fyrir að ráðherra upplýsi Alþingi um sóttvarnaaðgerðir með mánaðarlegri skýrslugjöf enda hafi aðgerð varað lengur en í átta vikur.
    Fyrir nefndinni voru reifuð sjónarmið um að Alþingi þyrfti að eiga meiri aðkomu að ákvörðunum um sóttvarnaráðstafanir. Í umsögn Samtaka atvinnulífsins er lögð áhersla á beina aðkomu Alþingis að ákvörðunum um sóttvarnaráðstafanir, þar sem slíkar ákvarðanir geti haft víðtækar afleiðingar fyrir samfélagið. Ekki sé nóg að gera einungis ráð fyrir upplýsingagjöf til þingsins eins og frumvarpið mælir fyrir um. Hvetja samtökin því Alþingi til að tryggja aðkomu sína að beitingu sóttvarnaráðstafana.
    Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi þess að Alþingi hafi aukna aðkomu að þessum málum. Meiri hlutinn telur þó ekki unnt að fallast á að þingið eigi að taka ákvörðun um sóttvarnaráðstafanir. Ráðherra, sem ber ábyrgð á stjórnarframkvæmdum á málefnasviði sínu, tekur ákvörðun um sóttvarnaráðstafanir á grundvelli faglegra sjónarmiða og gerir síðan þinginu grein fyrir ákvörðun sinni, forsendum hennar og rökstuðningi. Að mati meiri hlutans er það fyrirkomulag sem frumvarpið mælir fyrir um í samræmi við stöðu þingsins sem löggjafa og eftirlitsaðila með stjórnvöldum. Frumvarpið miðar jafnframt að því að tryggja stöðu velferðarnefndar sem virks eftirlitsaðila með ákvörðunum ráðherra. Þá bendir meiri hlutinn einnig á að telji þingið þörf á tíðari upplýsingagjöf, svo sem með skýrslugjöf eða minnisblöðum, er unnt að verða við slíku á grundvelli heimilda þingskapalaga.

Reglugerðarheimildir.
    Fyrir nefndinni voru reifuð sjónarmið um að frumvarpið fæli í sér mikið valdframsal til framkvæmdarvaldsins. Gert er ráð fyrir að ráðherra mæli fyrir um mörg atriði í reglugerðum. Í ljósi þessara sjónarmiða skoðaði nefndin sérstaklega þau ákvæði sem mæla fyrir um setningu reglugerða. Af þeirri yfirferð er ljóst að mörg ákvæði lúta að framkvæmdarlegum þáttum, eins og t.d. hvaða sjúkdómar eru tilkynningarskyldir til sóttvarnalæknis, um störf farsóttanefndar, skilyrði fyrir leyfi til reksturs rannsóknastofa, um form og efni vottorða, um öryggisbirgðir, gjaldtöku o.fl. Þau ákvæði sem helst koma til skoðunar eru þau sem varða opinberar sóttvarnaráðstafanir. Þar er gert ráð fyrir að ráðherra setji reglugerð, ýmist að fenginni tillögu sóttvarnalæknis eða farsóttanefndar, þar sem kveðið er á um opinberar sóttvarnaráðstafanir. Að mati meiri hlutans ganga þessi ákvæði ekki lengra en nauðsyn ber til. Ljóst er að ekki er hægt að sjá fyrir öll tilvik sem upp geta komið þegar alvarlegir sjúkdómar breiðast út í samfélaginu og bregðast þarf við með hröðum hætti. Því veitir frumvarpið ráðherra framangreindar heimildir til að bregðast við mögulegum aðstæðum með reglusetningu um opinberar sóttvarnaráðstafanir. Meiri hlutinn áréttar að við setningu almennra stjórnvaldsfyrirmæla verður ráðherra ætíð að taka tillit til þeirra hagsmuna sem reglurnar varða og meginreglna stjórnsýsluréttar. Þá er það mikilvægur varnagli að þær skuli settar að fenginni tillögu sóttvarnalæknis eða farsóttanefndar og að í frumvarpinu sé sérstaklega mælt fyrir um gildistíma þeirra.

Vinnsla persónuupplýsinga vegna opinberra sóttvarnaráðstafana (20. gr.).
    Í umsögn Persónuverndar kemur fram að huga þurfi að skyldu sóttvarnalæknis til þess að gera vinnslusamning vegna afmarkaðra verkefna sem hann getur falið öðrum aðilum, svo sem í tengslum við smitrakningu. Meiri hlutinn tekur undir þessa ábendingu um að huga skuli að gerð vinnslusamninga ef við á samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, en telur ekki þörf á að gera breytingu á frumvarpinu þess efnis.
    Í umsögn Íslenskrar erfðagreiningar eru gerðar athugasemdir við notkun orðsins „veira“ í athugasemdum um 20. gr. í greinargerð með frumvarpinu en þar segir að við skimun fyrir smitsjúkdómum, t.d. með sýnatöku, mótefnamælingum og raðgreiningu erfðaefnis veira, kunni að safnast viðkvæmar persónuupplýsingar um erfðafræðilega eiginleika ásamt heilsufarsupplýsingum. Telur Íslensk erfðagreining að eðlilegra sé að nota hugtakið „sýkill“ þar sem raðgreining einstakra gena í sýnum sem innihalda erfðaefni fleiri tegunda sýkla (svo sem baktería, veira og sveppa) er notuð við greiningar.
    Þá telur Íslensk erfðagreining það rangt sem fram kemur í skýringum í greinargerð með frumvarpinu um 20. gr. að við skimun fyrir smitsjúkdómum þar sem erfðaefni sýkils (oftast einstök gen sýkils) sé greint safnist viðkvæmar persónuupplýsingar um erfðafræðilega eiginleika einstaklingsins sem sýkill er fenginn úr. Hins vegar sé hægt að einangra og arfgerðargreina sérstaklega erfðaefni eða magna upp einstök gen einstaklings sem sýni til mótefnamælinga eða raðgreiningar á erfðaefni sýkils er tekið úr, en ólíkar gerðir sýna (strok úr hálsi, serum eða plasma) eru misvel til þess fallnar að einangra erfðaefni einstaklings til arfgerðargreininga. Í umsögn Íslenskrar erfðagreiningar er á það bent að til þess að nota sýni sem tekið er vegna skimunar, uppruna smits eða smitrakningar þurfi leyfi vísindasiðanefndar ef nota ætti þau til að afla erfðaupplýsinga fyrir vísindarannsókn. Leggur Íslensk erfðagreining til breytingar á orðalagi í skýringum í greinargerð með frumvarpinu um 20. gr. til að koma í veg fyrir misskilning um eðli og umfang gagnavinnslu við slíkar aðgerðir. Í minnisblaði ráðuneytisins kemur fram að ráðuneytið sé ekki á móti þeirri breytingu ef hún verði unnin í samvinnu við Landspítala og sóttvarnalækni.
    Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið Íslenskrar erfðagreiningar hvað varðar notkun á hugtakinu „sýkill“ og telur réttara að nota það hugtak í stað hugtaksins „veira“. Hins vegar getur meiri hlutinn ekki gert breytingar á texta greinargerðar en leggur þess í stað áherslu á að sú tillaga sem Íslensk erfðagreining leggur til í umsögn sinni að breyttu orðalagi og sá skilningur sem fram kemur í umsögn Íslenskrar erfðagreiningar sé lagður til grundvallar.

Aðgerðir vegna hættu á útbreiðslu smits frá einstaklingum, málsmeðferðarreglur (21.–24. gr.) og opinberar sóttvarnaráðstafanir (27.–28. gr.).
    Við meðferð málsins í nefndinni var fjallað um málsmeðferð frelsissviptingar fyrir dómstólum skv. 21.–24. gr. frumvarpsins. Samkvæmt 1. mgr. 21. gr. frumvarpsins getur sóttvarnalæknir, þegar tilkynning berst um að einstaklingur hafi smitsjúkdóm, gripið til frekari aðgerða en heilbrigðisstarfsmaður hefur gert til að fyrirbyggja eða hefta útbreiðslu smits sem ógnar almannaheill. Meðal slíkra úrræða er einangrun, sbr. 3. mgr. Þá getur sóttvarnalæknir skv. 2. mgr. gripið til aðgerða þegar grunur leikur á um smit, svo sem að láta þann einstakling sem grunaður er í sóttkví. Samkvæmt 7. mgr. 22. gr. frumvarpsins segir að bera skuli undir héraðsdóm aðgerðir sem mælt er fyrir um í stjórnvaldsákvörðun samkvæmt ákvæðum frumvarpsins og hafa í för með sér sviptingu frelsis í skilningi 1. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar ef viðkomandi neitar að hlíta ákvörðuninni. Slíkar aðgerðir mega aldrei vara lengur en í 15 sólarhringa í senn. Nánar er fjallað um málsmeðferð slíkra mála fyrir dómi í 23. gr. frumvarpsins.
    Í 1. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar segir að engan megi svipta frelsi nema samkvæmt heimild í lögum. Þegar sóttvarnalæknir tekur t.d. stjórnvaldsákvörðun um að einstaklingur skuli sæta einangrun eða sóttkví gegn vilja sínum heyra slík tilvik m.a. undir framangreint stjórnarskrárákvæði. Samkvæmt 4. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar skal hver sá sem af öðrum ástæðum er sviptur frelsi sínu vegna gruns um refsiverða háttsemi eiga rétt á því að dómstóll kveði á um lögmæti þess svo fljótt sem verða má. Réttur til að bera lögmæti slíkrar frelsissviptingar undir dómstóla er einnig tryggður í 4. mgr. 5. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.
    Fyrir nefndinni var rætt um nauðsyn þess að einstaklingar sem vilja ekki una stjórnvaldsákvörðun sóttvarnalæknis geti borið ákvörðunina undir dóm. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að þegar einstaklingi er tilkynnt um stjórnvaldsákvörðun, sem felur í sér frelsissviptingu, beri að veita honum leiðbeiningar um rétt hans til að bera ákvörðunina undir dóm, sbr. 1. mgr. 23. gr. frumvarpsins. Óski málsaðili eftir því skal sóttvarnalæknir svo fljótt sem verða má setja fram skriflega kröfu fyrir dómi um staðfestingu á gildi ákvörðunar, sbr. 2. mgr. 23. gr. Slík málsmeðferð fyrir dómi frestar ekki framkvæmd stjórnvaldsákvörðunar, sbr. 4. mgr. 23. gr. frumvarpsins, en jafnframt segir í 7. mgr. 23. gr. að dómari skuli taka málið fyrir án tafar og hraða málsmeðferð þess svo sem kostur er. Þá má skjóta úrskurði héraðsdóms til Landsréttar skv. 25. gr. frumvarpsins, sem frestar þó ekki framkvæmd úrskurðar héraðsdóms.
    Umfjöllun nefndarinnar laut því að framangreindum málsmeðferðarúrræðum samkvæmt ákvæðum frumvarpsins og rétti einstaklinga til að fá ákvörðun um frelsissviptingu endurskoðaða. Fram komu sjónarmið um að einstaklingar, sem sæta einangrun eða sóttkví á grundvelli stjórnvaldsákvörðunar sóttvarnalæknis skv. 21. gr., verði samkvæmt almennum málsmeðferðarreglum að eiga lögvarða hagsmuni til að bera lögmæti stjórnvaldsákvörðunar undir dómstóla og fá úrlausn á máli sínu. Af því má leiða að þegar frelsissviptingu lýkur, eftir að hámarki 15 sólarhringa, kann að vera að einstaklingur eigi ekki lengur lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn um lögmæti stjórnvaldsákvörðunar sóttvarnalæknis fyrir dómstólum. Komi það sérstaklega til skoðunar ef einstaklingur hyggst áfrýja niðurstöðu héraðsdómstóls til Landsréttar, sbr. 25. gr. frumvarpsins.
    Í minnisblaði, dagsettu 24. febrúar 2026, sem barst nefndinni frá heilbrigðisráðuneyti er bent á að samhljóða ákvæði megi finna í 5.–12. mgr. 14. gr. núgildandi sóttvarnalaga og var þeim bætt við lögin í febrúar árið 2021. Ákvæðin samræmist álitsgerð dr. juris Páls Hreinssonar og fengist hafi reynsla á framkvæmd þeirra frá tímum faraldurs SARS-CoV-2-veirunnar. Ráðuneytið bendir á að ákvarðanir sem hafa í för með sér sviptingu frelsis skuli bornar undir héraðsdóm ef viðkomandi neitar að hlíta ákvörðuninni, sbr. 23. og 24. gr. frumvarpsins. Vilji einstaklingur, að loknum 15 sólarhringum, fá úrskurðað um lögmæti stjórnvaldsákvörðunar sóttvarnalæknis fyrir dómstólum, þ.e. eftir að frelsissviptingu er aflétt, gæti sú staða komið upp að einstaklingurinn hafi ekki lengur lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn máls síns. Í minnisblaði ráðuneytisins er tiltekið að það sé ekki algilt þar sem dómstólar hafi viðurkennt lögvarða hagsmuni þrátt fyrir að ákvörðun sé lokið. Við nánari athugun nefndarinnar einskorðast slík mál við að einstaklingur geti átt lögvarða hagsmuni af því að fá skorið úr um lögmæti ákvörðunarinnar ef hann höfðar mál til heimtu miskabóta eða viðurkenningar á bótaskyldu. Í því samhengi má benda á dóm Hæstaréttar í máli nr. 201/2013 þar sem til álita kom hvort frelsissvipting hefði brotið gegn þeim réttindum sem áskilin eru í 67. gr. stjórnarskrárinnar.
    Í minnisblaði ráðuneytisins er einnig á það bent að við töku ákvarðana um sóttvarnaráðstafanir verði við val þeirra og útfærslu að vega sóttvarnasjónarmið í þágu verndar lífs og heilsu borgaranna annars vegar á móti þeim hagsmunum sem skerðast með þeim ráðstöfunum og varða m.a. frelsi og mannréttindi borgaranna hins vegar. Við slíkt hagsmunamat skipti grundvallarmáli að verið sé að bregðast við farsótt sem geisar þar sem að lífi og heilsu manna steðji bein og fyrirsjáanleg ógn.
    Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið ráðuneytisins og telur málsmeðferðarreglur frumvarpsins gæta nægilega að réttindum þeirra sem ákvarðanir skv. 22. gr. frumvarpsins beinast að og möguleikum þeirra á að fá skorið úr um lögmæti slíkra ákvarðana. Meiri hlutinn telur að mikilvægt sé að hafa í huga þá hagsmuni sem vegast á þegar skerða á frelsi einstaklinga og að ákvæði sem tryggja málsmeðferðarúrræði í tilvikum frelsissviptingar séu skýlaus og skýr og samræmist mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar.
    Við umfjöllun nefndarinnar komu upp sambærileg sjónarmið í tengslum við ákvæði í 27. og 28. gr. frumvarpsins sem fjalla um opinberar sóttvarnaráðstafanir. Samkvæmt 27. gr. frumvarpsins er ráðherra heimilt að setja reglugerð, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis, þar sem kveðið er á um opinberar sóttvarnaráðstafanir þegar um er að ræða alvarlegan sjúkdóm, svo sem sóttkví, heilbrigðisskoðun, skimanir, einangrun smitaðra og sótthreinsun. Þá er í 28. gr. fjallað um heimildir ráðherra, að fengnum tillögum farsóttanefndar, til að setja reglugerð um opinberar ráðstafanir þegar um samfélagslega hættulegan sjúkdóm er að ræða. Dæmi um slíkar ráðstafanir eru ónæmisörvanir, skimanir, afkvíun afmarkaðra svæða, lokun skóla, notkun hlífðarbúnaðar, stöðvun atvinnurekstrar eða samkomubann. Framangreindar ráðstafanir geta að hámarki gilt í fjórar vikur í senn.
    Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið um að opinberar sóttvarnaráðstafanir gætu takmarkað mannréttindi sem vernduð eru af mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar. Í greinargerð með frumvarpinu er fjallað um áðurnefnda álitsgerð Páls Hreinssonar, þar sem jafnframt er gerð grein fyrir þeim sjónarmiðum og að opinberar sóttvarnaráðstafanir geti helst varðað ákvæði 66., 67., 71., 73. og 75. gr. stjórnarskrárinnar. Í álitsgerðinni kemur enn fremur fram að í sumum tilvikum sé nægilegt að slíkar takmarkanir styðjist við lög svo að þær teljist heimilar. Í öðrum tilvikum verði opinberar sóttvarnaráðstafanir að vera í þágu almannahagsmuna, til verndar heilsu eða vegna réttinda annarra svo að þær teljist heimilar.
    Meiri hlutinn telur ljóst að mörg álitaefni geta komið upp í tengslum við opinberar sóttvarnaráðstafanir og að þær kunni að takmarka mannréttindi sem vernduð eru í stjórnarskránni. Bendir meiri hlutinn á það sem fram kemur í greinargerð með frumvarpinu um að heildarmarkmið þess sé að heimildir stjórnvalda til opinberra sóttvarnaráðstafana séu skýrar og í samræmi við kröfur lögmætisreglu og lagaáskilnaðarreglna stjórnarskrárinnar. Þá má benda á að á annan tug dóma og úrskurða hefur fallið í dómskerfinu um opinberar sóttvarnaráðstafanir, þar sem ákvarðanir sóttvarnalæknis um einangrun og sóttkví hafa verið staðfestar. Meiri hlutinn tekur undir það sem fram kemur í minnisblaði ráðuneytisins og áréttar að ákvæði sem fjalla um sóttvarnaráðstafanir, hvort sem þær miðast að einstaklingum eða almenningi, skuli hafa það að markmiði að bregðast við farsótt sem ógnar lífi og heilsu manna í samræmi við mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar.

Stjórnvaldssektir (35. gr.).
    Í 35. gr. frumvarpsins er ákvæði sem fjallar um skyldur flugrekenda eða umráðenda loftfars og útgerða eða umráðenda skips til að tryggja sóttvarnir samkvæmt reglugerð ráðherra ef hætta er á að samfélagslega hættulegur sjúkdómur berist til eða frá landinu, sbr. 1. mgr. Gert er ráð fyrir að Samgöngustofa geti lagt stjórnvaldssekt á einstakling eða lögaðila fyrir brot gegn 1. mgr. og reglugerð sem sett er á grundvelli 1. mgr., sbr. heimildir Samgöngustofu til að leggja á stjórnvaldssektir samkvæmt lögum um loftferðir, nr. 80/2022.
    Í umsögn Samgöngustofu um frumvarpið eru gerðar athugasemdir við að stofnuninni sé falið þetta hlutverk. Í umsögninni er bent á að með breytingu á eldri loftferðalögum, sbr. lög nr. 41/2021 og lög nr. 135/2021, var Samgöngustofu falið að leggja á stjórnvaldssektir vegna brota á skyldum aðila til að tryggja sóttvarnir en um var að ræða tímabundna ráðstöfun í tengslum við COVID-19-faraldurinn. Aðkoma Samgöngustofu við álagningu stjórnvaldssekta í umræddum málum í flugi hafi verið í lágmarki þar sem landamæraeftirlit eða landamæraverðir hafi skoðað og metið skyldur flugrekenda og kom aldrei til þess að stofnunin legði stjórnvaldssektir á flugrekendur eða umráðendur loftfara. Bendir stofnunin á að þetta hafi í raun verið hlutverk milliliðar, vegna komu loftfara, þar sem álagning sekta hefði alfarið byggst á skoðun og mati annars stjórnvalds, þ.e. landamæralögreglu. Þá kemur fram að Samgöngustofa hafi ekki beina tengingu við flugrekendur vegna komu loftfara né útgerðir þeirra skipa sem koma til Íslands með farþega. Að lokum bendir Samgöngustofa á að verði það niðurstaðan að hlutverkið verði hjá Samgöngustofu þurfi að kostnaðarmeta verkefnið og því þurfi að fylgja fjárheimildir.
    Í minnisblaði heilbrigðisráðuneytis um athugasemdir Samgöngustofu kemur fram að skoða megi hvort nauðsynlegt sé að annar aðili sinni verkefninu eða að stofnuninni verði tryggt nægjanlegt fjármagn til að sinna því.
    Meiri hlutinn telur rétt að líta til fyrrnefndrar lagasetningar í COVID-19-faraldrinum og telur að Samgöngustofa sé enn það stjórnvald sem er í lykilaðstöðu á grundvelli eftirlitshlutverks síns til að fara með þessa heimild. Meiri hlutinn telur eðlilegt að fagstofnun á borð við Samgöngustofu hafi þessa heimild til álagningar stjórnvaldssekta, í stað t.d. lögreglu, með hliðsjón af eðli slíkra sekta. Hvað varðar fjárheimildir vegna verkefnisins beinir meiri hlutinn því til heilbrigðisráðuneytis og ríkisstjórnar að tryggja að nægjanlegt fjármagn fylgi verkefninu.

Öryggisbirgðahald (38. gr.).
    Við meðferð málsins var rætt um ákvæði 38. gr. frumvarpsins um öryggisbirgðahald. Með 1. mgr. ákvæðisins er lagt til að lögfest verði hlutverk sóttvarnalæknis að hafa umsjón með afhendingu, dreifingu og notkun öryggisbirgða lyfja og lækningatækja til að bregðast við heilbrigðisógnum í samræmi við 2. gr. frumvarpsins. Kveðið hefur verið á um umrætt hlutverk sóttvarnalæknis í reglugerð, en talið er rétt að kveða skýrlega á um hlutverkið í lögum. Þá mun sóttvarnalækni verða heimilt að fela öðrum, svo sem heilbrigðisstofnun, verkefni sem falla undir ákvæði í 38. gr., svo sem innkaup lyfja og birgðahald. Þá er í 2. mgr. ákvæðisins að finna reglugerðarheimild þar sem ráðherra verður gert fært að útfæra framkvæmd ákvæðisins nánar, svo sem um þau lyf, lækningatæki og annan búnað sem skylt er að viðhalda sem öryggisbirgðum.
    Í umsögn Samtaka verslunar og þjónustu eru sjónarmið ítrekuð sem fram hafa komið þegar frumvarpið var til meðferðar á fyrri löggjafarþingum. Samtökin vísa í ábendingar sem fram komu í umsögn Lyfjastofnunar þegar drög að frumvarpinu lágu í samráðsgátt stjórnvalda árið 2022. Ábending Lyfjastofnunar laut þá að því að fyrir lægi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/123 sem kvæði á um að styrkja hlutverk Lyfjastofnunar Evrópu er varðar lyf og lækningatæki sem talin eru nauðsynleg í hættuástandi. Gera mætti því ráð fyrir að Lyfjastofnun yrði fengið það hlutverk við innleiðingu reglugerðarinnar í íslenskan rétt. Í umsögninni benda samtökin á að frá því að frumvarpið var lagt fram hafi reglugerðin verið samþykkt á vettvangi sameiginlegu EES-nefndarinnar. Samtökin benda í því samhengi á að 38. gr. skapi tvíverknað milli Lyfjastofnunar og sóttvarnalæknis, þar sem báðir aðilar hefðu með höndum skilgreiningu og eftirlit með birgðum lyfja og lækningatækja. Leggja samtökin því til að ákvæðið verði endurskoðað og að hlutverk Lyfjastofnunar verði formlega tryggt í samræmi við nýlega Evrópureglugerð.
    Meiri hlutinn bendir á það sem fram kemur í minnisblaði heilbrigðisráðuneytis til nefndarinnar, dagsettu 6. nóvember 2025, að ekki sé um sömu birgðaskyldu að ræða og kveðið er á um í 1. mgr. 29. gr. lyfjalaga, nr. 100/2020, heldur að með frumvarpinu sé átt við öryggisbirgðir sem ríkinu er ætlað að tryggja. Að því virtu telur meiri hlutinn að ekki þurfi að skýra ákvæði 38. gr. til samræmis við þá reglugerð sem vísað er til í umsögn Samtaka verslunar og þjónustu.

Samhæfing sóttvarna og almannavarna.
    Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið um að huga þyrfti að samhæfingu sóttvarna og almannavarna en fjallað var um samspil frumvarps til sóttvarnalaga og frumvarps til nýrra laga um almannavarnir sem nú er til meðferðar hjá allsherjar- og menntamálanefnd ( þskj. 396, 287. mál). Bent var á að á tímum heimsfaraldurs SARS-CoV-2-veirunnar hefði slík samhæfing gengið vel og að draga mætti lærdóm af þeirri reynslu. Í því samhengi er vert að nefna að samkvæmt gildandi sóttvarnalögum er unnt að virkja tiltekin úrræði þar sem ábyrgð sóttvarna er einkum hjá sóttvarnalækni og heilbrigðisráðherra og heilbrigðisstofnunum. Í gildandi lögum um almannavarnir, nr. 82/2008, hefur ríkislögreglustjóri það hlutverk að lýsa yfir almannavarnastigi í samráði við viðkomandi lögreglustjóra og tilkynna ráðherra um hvort neyðarástand sé líklegt, yfirvofandi eða ríkjandi. Þá er í lögum um almannavarnir jafnframt kveðið á um samhæfingu og yfirstjórn aðgerða í slíku neyðarástandi, með hliðsjón af almannavarnastigi og viðeigandi viðbragðsáætlun. Að þessu virtu komu fram sjónarmið um að með breyttri stjórnsýslu sóttvarna og almannavarna, líkt og mælt er fyrir um í þeim frumvörpum sem til meðferðar eru, þurfi að huga að samhæfingu með hliðsjón af fyrri reynslu.
    Meiri hlutinn telur árangursríka samhæfingu sóttvarna og almannavarna mikilvæga og telur nokkur ákvæði frumvarpsins vera til þess fallin að stuðla að því. Meiri hlutinn bendir á að með 8. gr. frumvarpsins um farsóttanefnd sé samstarf sóttvarnalæknis og almannavarna í fyrsta sinn formgert í lögum. Í ákvæðinu kemur fram að í nefndinni skuli sitja sóttvarnalæknir og landlæknir en auk þeirra skuli skipa einn eftir tilnefningu ríkislögreglustjóra, sem skuli hafa þekkingu á almannavörnum, auk fleiri fulltrúa. Þá kemur fram í 3. mgr. 9. gr. frumvarpsins að farsóttanefnd skuli vera vettvangur fyrir samhæfingu aðgerða innan heilbrigðiskerfisins og almannavarnakerfisins gegn samfélagslega hættulegum sjúkdómum og skuli nefndin funda reglulega ef samfélagslega hættulegur sjúkdómur sé útbreiddur í samfélaginu. Þá segir í 1. mgr. 10. gr., sem fjallar um samvinnu stofnana, að sóttvarnalæknir skuli í starfi sínu hafa samvinnu við ríkislögreglustjóra vegna almannavarna.
    Við skoðun á umræddu frumvarpi til nýrra laga um almannavarnir, sem nú er til meðferðar hjá allsherjar- og menntamálanefnd, eru ákvæði um samhæfingu og stjórn aðgerða vegna almannavarnaástands nánar útfærð. Í 35. gr. þess frumvarps er sérstaklega fjallað um samhæfingu og stjórn almannavarnaaðgerða vegna heilbrigðisvár. Þar er kveðið á um að ákvörðun ríkislögreglustjóra um almannavarnastig vegna heilbrigðisvár sem fellur undir sóttvarnalög skuli tekin í samráði við sóttvarnalækni, ef unnt er. Þá stýri ríkislögreglustjóri samhæfingu almannavarnaaðgerða vegna heilbrigðisvár í samráði við sóttvarnalækni. Að mati meiri hlutans er því nægilega hugað að samhæfingu almannavarna og sóttvarna í báðum frumvörpunum.

Breytingartillögur.
Orðskýringar (8. tölul. 3. gr.).
    Í umsögn sóttvarnalæknis kemur fram að hann telji rökréttara að nota hugtakið „ónæmisaðgerð“ áfram í staðinn fyrir „ónæmisörvun“. Í mörg ár hafi hugtakið „ónæmisaðgerð“ verið notað í lögum yfir skipulagða gjöf bóluefnis eða mótefnis í starfi sóttvarnalæknis. Í greinargerð með frumvarpinu segir um 8. tölul. 3. gr. að orðalagi hafi verið breytt frá gildandi lögum til samræmis við athugasemdir Landspítala og sóttvarnalæknis. Í umsögn sóttvarnalæknis er vísað til þess er fram kemur í greinargerð um þessa breytingu á hugtakinu og tekur sóttvarnalæknir fram að breytingin hafi ekki verið í samræmi við athugasemdir sóttvarnalæknis. Í umsögn Landspítala um frumvarpið þegar málið var lagt fram á 154. löggjafarþingi kom fram að orðið „ónæmisaðgerð“ væri notað í núgildandi lögum en betur færi á því að nota orðið „ónæmisörvun“. Landspítali taldi hugtakið „ónæmisaðgerð“ vera gamalt hugtak sem misst hefði gildi sitt við tilkomu fjölda lyfja og efna sem hefðu áhrif á starfsemi ónæmiskerfisins.
    Í minnisblaði frá heilbrigðisráðuneyti kemur fram að ráðuneytið setji sig ekki á móti breytingu á hugtakinu ef það er unnið í samvinnu við Landspítala og sóttvarnalækni.
    Í samráði við heilbrigðisráðuneyti leggur meiri hlutinn til að hugtakinu „ónæmisörvun“ í 8. tölul. 3. gr. verði breytt í „ónæmisaðgerð“ í samræmi við athugasemdir sóttvarnalæknis við frumvarpið. Samhliða er lagt til að orðinu „ónæmisörvun“ verði skipt út fyrir „ónæmisaðgerð“ í 6., 11., 28., 30., 33. og 40. gr. frumvarpsins.

Vísun til nefndar skv. 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007 (1. mgr. 5. gr.).
    Í samráði við heilbrigðisráðuneyti er lögð til sú breyting að felld verði brott vísun til mats hæfnisnefndar skv. 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, en með lögum nr. 12/2025 var 2. mgr. 9. gr. laganna sem fjallaði um hæfnisnefndir felld brott og nefndin því ekki lengur til. Þá er talið óþarft að vísa áfram til 9. gr. laga nr. 40/2007.

Embætti sóttvarnalæknis (3. mgr. 5. gr. og ákvæði til bráðabirgða).
    Til skýringar telur meiri hlutinn rétt að gera breytingu á því orðalagi sem notað er um starf sóttvarnalæknis. Með frumvarpinu er lögð til sú breyting á starfi sóttvarnalæknis að hann verði skipaður af ráðherra og teljist embættismaður í skilningi laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Samkvæmt greinargerð með frumvarpinu er sú breyting talin nauðsynleg og viðeigandi af þeirri ástæðu að samkvæmt frumvarpinu ber sóttvarnalæknir ábyrgð á framkvæmd sóttvarna undir yfirstjórn ráðherra. Áfram er þó gert ráð fyrir því að sóttvarnalæknir starfi innan embættis landlæknis. Sóttvarnalæknir starfar því á sviði sóttvarna innan embættis landlæknis og telur nefndin því eðlilegra að í frumvarpinu sé vísað til sviðs sóttvarnalæknis um starf hans í stað þess að vísað sé til embættis sóttvarnalæknis jafnvel þótt sóttvarnalæknir sé í reynd embættismaður. Telur meiri hlutinn þessa breytingu til þess fallna að skýra hlutverk og stöðu sóttvarnalæknis til aðgreiningar frá embætti landlæknis.

Farsóttanefnd (2. mgr. 8. gr.).
    Meiri hlutinn telur rétt að farsóttanefnd hafi aukið rými til að fá inn í nefndina fjölbreyttari sjónarmið og breiðari þekkingu telji hún þörf á hverju sinni. Leggur meiri hlutinn því til að heimild nefndarinnar til að kveðja til tvo menn til viðbótar til að sitja í nefndinni, telji hún tilefni til, verði útvíkkuð þannig að nefndinni sé heimilt að kveðja til tvo til fjóra til viðbótar til setu í nefndinni. Þá ætti nefndinni að vera fært að kveðja til setu í nefndinni aðila með ólíka þekkingu, svo sem þekkingu á sveitarstjórnarstigi og hjúkrunarfræði, þjóðhagslega og efnahagslega þekkingu eða aðra þá þekkingu sem farsóttanefnd telur tilefni til að fá inn í nefndina.

    Að lokum eru lagðar til fáeinar málfarsbreytingar.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      8. tölul. 3. gr. orðist svo: Ónæmisaðgerð: Skipulögð aðgerð sem örvar ónæmiskerfi einstaklings til að koma í veg fyrir smitsjúkdóm og að smitsjúkdómur dreifist í samfélaginu eða til að halda smitsjúkdómi í skefjum, svo sem með bólusetningu eða gjöf mótefnis.
     2.      Við 5. gr.
                  a.      Orðin „að fengnu mati nefndar skv. 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007“ í 1. mgr. falli brott.
                  b.      Í stað orðanna „embættis sóttvarnalæknis“ í 3. mgr. komi: á svið sóttvarnalæknis.
     3.      Í stað orðsins „ónæmisörvun“ í öllum orðmyndum hvarvetna í 6., 11., 28., 30., 33. og 40. gr. komi, í viðeigandi falli og tölu: ónæmisaðgerð.
     4.      Á eftir orðinu „tvo“ í 2. mgr. 8. gr. komi: til fjóra.
     5.      2. mgr. 16. gr. orðist svo:
                      Ef ráðherra tekur ákvörðun um beitingu ráðstafana sem heimilaðar eru samkvæmt þessum kafla skal ráðherra bera málið upp í ríkisstjórn, eins tímanlega og mögulegt er.
     6.      Fyrirsögn 34. gr. orðist svo: Vöktun ferðamanna vegna lýðheilsu.
     7.      Við 40. gr.
                  a.      2. tölul. 1. mgr. orðist svo: Hvaða sjúkdóma og atburði skylt er að tilkynna til sóttvarnalæknis og efni tilkynningar, sbr. 1. mgr. 4. gr.
                  b.      Í stað orðsins „eru“ í 1. tölul. 2. mgr. komi: teljast.
     8.      Við ákvæði til bráðabirgða.
                  a.      Í stað orðanna „embætti sóttvarnalæknis“ í 2. málsl. 1. mgr. komi: starf sóttvarnalæknis.
                  b.      Í stað orðanna „hjá embætti“ tvívegis í 2. mgr. komi: á sviði.

    Kristján Þórður Snæbjarnarson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.

Alþingi, 4. mars 2026.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,
form.
Kristján Þórður Snæbjarnarson,
frsm.
Grímur Grímsson.
Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir. Þóra Gunnlaug Briem.