Ferill 555. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 933 — 555. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um stafrænt fullveldi Íslands.
Frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur.
1. Hvaða gagnavinnsla og gagnageymsla á vegum ráðuneytisins er í skýjum erlendra fyrirtækja? Óskað er eftir upplýsingum um hvort um er að ræða evrópsk fyrirtæki eða bandarísk.
2. Hvaða gögn á vegum ráðuneytisins eru geymd í skýjum erlendra fyrirtækja? Óskað er eftir upplýsingum um hvort um er að ræða evrópsk fyrirtæki eða bandarísk.
3. Hefur ráðuneytið skilgreint stafrænt fullveldi í netmiðlun þess?
4. Er rótarfang, vefur, póstþjónn eða nafnaþjónn ráðuneytisins og undirstofnana skráður á Íslandi?
5. Hefur verið tryggt innan ráðuneytisins að tölvupóstur sé virkur ef samband rofnar við útlönd?
Skriflegt svar óskast.