Ferill 483. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 942 — 483. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um vegakerfið og ráðstöfun kílómetragjalds.
1. Hversu stórt hlutfall vegakerfisins, viðhalds þess og nýfjárfestinga er á forræði ríkisins annars vegar og sveitarfélaga hins vegar?
Fjármála- og efnahagsráðuneytið býr ekki yfir þeim upplýsingum sem óskað er eftir í fyrirspurninni. Leitað var til innviðaráðuneytisins sem fer samkvæmt forsetaúrskurði með mál er varða skipulag og uppbyggingu samgöngukerfisins, auk viðhalds og reksturs þess. Innviðaráðuneytið vísar til innviðaskýrslu Samtaka iðnaðarins (SI) frá árinu 2025 og vefsíðu samtakanna um þessi mál. Samkvæmt upplýsingum í skýrslunni telur vegakerfi Íslands um 26.000 kílómetra og þar af eru um 8.000 kílómetrar með bundnu slitlagi. Af þessum kílómetrum er lengd vega í umsjá ríkisins tæplega 12.900 kílómetrar, þar af um 5.900 kílómetrar með bundnu slitlagi. Í fyrrnefndri skýrslu SI er lagt mat á lengd sveitarfélagavega, sem eru vegir innan þéttbýlis sem teljast þjóðvegir og eru í umsjón sveitarfélaga, og eru þeir tæplega 13.100 kílómetrar, þar af 2.500 kílómetrar með bundnu slitlagi. Sé notast við þessar upplýsingar heldur ríkið utan um 49,6% vegakerfisins og sveitarfélögin um 50,4%.
2. Telur ráðherra rétt að hluti af tekjum ríkissjóðs vegna álagningar kílómetragjalds renni til sveitarfélaga í ljósi þess hve stór hluti vegakerfisins er á forræði þeirra?
Með lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, sem öðluðust gildi 1. janúar 2016, var tekið upp breytt fyrirkomulag rammastýringar á útgjöldum ríkisins. Þannig skuli skatttekjur ekki eyrnamerktar verkefnum eða rekstraraðilum heldur sé það í verkahring Alþingis, sem fer með fjárstjórnarvald ríkisins, að ákveða í fjárlögum hverju sinni til hvaða aðila og verkefna skatttekjum er ráðstafað.
Samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, eru tekjustofnar sveitarfélaga fasteignaskattur og útsvar ásamt framlögum sem þeim eru úthlutuð m.a. úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ekki stendur til að breyta því fyrirkomulagi eða marka tekjur sérstaklega til sveitarfélaga til að fjármagna vegakerfið.