Ferill 467. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 944  —  467. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um mannauðsmál.


     1.      Hversu mörg stöðugildi eru nú í mannauðsmálum í ráðuneytinu?
    Í ráðuneytinu er eitt stöðugildi mannauðsstjóra.

     2.      Hvernig hefur þróunin verið í fjölda stöðugilda er sinna mannauðsmálum í ráðuneytinu á árunum 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Á umræddu tímabili hefur að jafnaði verið eitt stöðugildi í mannauðsmálum þótt starfstitillinn mannauðsstjóri hafi ekki verið tekinn í notkun fyrr en í ársbyrjun 2019.

     3.      Hefur ráðuneytið keypt sérfræðiráðgjöf vegna mannauðsmála árin 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum og fyrirtækjum/rekstraraðilum.
    Í meðfylgjandi töflu er yfirlit yfir þau fyrirtæki og rekstraraðila sem ráðuneytið hefur keypt sérfræðiráðgjöf af vegna mannauðsmála á umræddu tímabili.

Fyrirtæki/rekstraraðili Tímabil
Attentus – mannauður og ráðgjöf ehf. 2018–2020
Auðnast ehf. 2018– 2025
Auður Bjarnadóttir 2020
Auki – mannauður og stjórnendaráðgjöf ehf. 2023– 2024
Capacent ehf. 2016– 2022
Goðhóll ehf. 2018– 2025
Vinnvinn ehf. 2020– 2022

     4.      Hefur ráðuneytið gert samninga við fyrirtæki/rekstraraðila um þjónustu eða ráðgjöf á sviði mannauðsmála á árunum 2016–2026? Ef svo er, hvernig fór samningaferlið fram? Hafa samningar verið boðnir út? Hvaða fyrirtæki/rekstraraðilar sinna slíku fyrir ráðuneytið?
    Samningur var gerður við Auðnast ehf. sem var í gildi 2019–2025. Ekki var um útboð að ræða þar sem verið var að leita eftir þjónustu tiltekinna ráðgjafa vegna þekkingar þeirra, reynslu og aðferðafræði sem þeir beita og kenna. Fjárhæðir voru einnig undir viðmiðunarfjárhæðum samkvæmt lögum um opinber innkaup nr. 120/2016.

     5.      Hver hefur kostnaður vegna fyrrgreindrar þjónustu eða ráðgjafar verið á árunum 2016– 2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum, fyrirtækjum/rekstraraðilum.
    Í meðfylgjandi töflu má sjá yfirlit yfir umræddan kostnað. Vakin er athygli á því að inni í fjárhæðum sem greiddar voru til Capacent á árunum 2017–2019 er kostnaður vegna ráðgjafar við ráðningu seðlabankastjóra, aðstoðarseðlabankastjóra og umboðsmanns barna. Enginn kostnaður hefur fallið til það sem af er árinu 2026 vegna þjónustu og ráðgjafar vegna mannauðsmála.

Fyrirtæki/ráðgjafi 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Ráðgjöf vegna ráðninga
Attentus – mannauður og ráðgjöf ehf. 0,5
Auður Bjarnadóttir 0,4
Auki - mannauður og stjórnendaráðgjöf ehf. 0,7
Capacent ehf. 1,7 1,6 2,5 3,0 0,1
Vinnvinn ehf. 0,5 1,2 3,0
Ráðgjöf vegna ýmissa mannauðsmála
Attentus – mannauður og ráðgjöf ehf. 1,1 1,7 0,3
Auðnast ehf. 0,4 2,3 0,9 0,9 1,0 1,2 1,0 0,4
Auki – mannauður og stjórnendaráðgjöf ehf. 0,5
Capacent ehf. 0,1 0,2
Ráðgjöf vegna jafnlaunavottunar
Goðhóll ehf. 5,0 0,8 1,9 2,2 0,6 2,4 0,9 1,5
Samtals 1,8 1,6 9,2 7,8 4,5 4,3 4,6 4,3 2,4 1,9
    * Fjárhæðir eru í milljónum kr.