Ferill 450. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 946  —  450. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Erni Rúnarssyni um hlutfall erlends vinnuafls á heilbrigðisstofnunum á Íslandi og stuðning við íslenskunám þess.


     1.      Hver er áætlaður fjöldi starfsmanna með erlendan bakgrunn hjá heilbrigðisstofnunum á Íslandi? Svar óskast sundurliðað eftir opinberum heilbrigðisstofnunum og fjölmennustu einkareknu heilbrigðisstofnununum.
     2.      Hver var fjölgun þeirra á árunum 2000–2025?
    Ráðuneytið aflaði upplýsinga frá öllum opinberum heilbrigðisstofnunum og til að tryggja að gögnin yrðu samanburðarhæf milli stofnana var upplýsinga aflað í samræmi við skráningu í starfsmannakerfi Landspítalans. Skráning í Orra, starfsmannakerfi Landspítalans, byggir á skráningu ríkisfangs í þjóðskrá. Starfsmannakerfið Orri var að fullu tekið í notkun 2004 hjá Landspítalanum og byggir samantekt spítalans á tölum frá þeim tíma. Ekki höfðu allar heilbrigðisstofnanir tök á að skila gögnum svo langt aftur í tímann, samanber svör í meðfylgjandi töflum.
    Upplýsinga frá einkarekinni heilbrigðisþjónustu var ekki aflað samkvæmt 3. mgr. 49. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, þar sem segir: „Eftirlitsstörf Alþingis taka til opinberra málefna. Með opinberu málefni er átt við sérhvert málefni er tengist hlutverki og starfsemi ríkisins og stofnana þess, svo og félaga og annarra lögaðila sem eru að hálfu eða meira í eigu ríkisins og annast stjórnsýslu eða veita almenningi opinbera þjónustu á grundvelli laga, stjórnvaldsfyrirmæla eða samnings“.
    Svör við 1. og 2. tölul. fyrirspurnarinnar má sjá í meðfylgjandi töflu. Þar er stuðst við eftirfarandi skammstafanir: Landspítali (LSH), Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk), Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE), Heilbrigðisstofnun Vestfjarða (HVest), Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN), Heilbrigðisstofnun Austfjarða (HSA), Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU), Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS), Vigdísarholt (VH) og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH). Tölurnar frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sýna heildarfjölda á hverju ári en ekki meðaltal, þar sem ekki er hægt að nálgast þær upplýsingar úr mannauðskerfum stofnunarinnar.

Hlutfall erlends vinnuafls (byggt á skráningu ríkisfangs í þjóðskrá).


Fjöldi með erlent ríkisfang (að meðaltali yfir árið). Hlutfall af öðrum starfsmönnum
Ár LSH SAk HVE HVest HSN LSH SAk HVE HVest HSN
2004 135 2,8%
2005 139 2,8%
2006 166 3,2%
2007 226 4,3%
2008 254 4,8%
2009 196 3,8%
2010 140 15 12 2,9% 1,97% 2,5%
2011 113 18 14 2,3% 2,34% 3,2%
2012 113 17 15 2,3% 2,20% 3,8%
2013 115 19 8 2,3% 2,66% 2,2%
2014 125 18 12 2 2,5% 2,51% 3,2% 2,38%
2015 119 13 13 10 19 2,3% 1,77% 3,5% 3,50% 2,65%
2016 133 12 14 11 19 2,5% 1,66% 3,9% 3,12% 2,65%
2017 171 16 12 17 26 3,0% 2,15% 3,2% 4,78% 3,54%
2018 230 16 13 24 35 3,9% 2,04% 3,3% 6,28% 4,65%
2019 308 18 14 24 37 5,0% 2,14% 3,5% 6,74% 4,78%
2020 356 21 15 29 44 5,7% 2,41% 3,9% 6,33% 5,55%
2021 394 23 16 26 51 6,2% 2,56% 4,0% 6,13% 6,12%
2022 484 25 25 36 54 7,2% 2,67% 5,8% 8,29% 6,29%
2023 563 29 26 50 66 8,1% 3,03% 6,1% 11,26% 7,18%
2024 648 41 28 64 71 9,1% 3,95% 6,3% 13,92% 7,52%
2025 717 43 32 61 72 9,9% 4,16% 6,9% 13,15% 7,45%
    

Fjöldi með erlent ríkisfang (að meðaltali yfir árið). Hlutfall af öðrum starfsmönnum
Ár HSA HSU HSS VH HH HSA HSU HSS VH HH
2004
2005 0 0,00%
2006 18 0 29 6,5 2,82% 0,00% 8.0% 0,90%
2007 30 4 32 8 4,46% 1,10% 8.3% 1,00%
2008 30 8 38 10 4,72% 0,91% 9,7% 1,30%
2009 33 5 32 11 5,31% 0,88% 8,4% 1,80%
2010 30 5 26 10 4,89% 0,80% 7,1% 1,70%
2011 36 6 27 9,5 6,28% 0,79% 7,5% 1,60%
2012 32 9 26 10 5,86% 0,78% 7,1% 1,60%
2013 32 4 20 9 5,70% 0,80% 5,7% 1,50%
2014 37 3 18 18 8,5 6,99% 0,92% 5,2% 15% 1,40%
2015 41 4 17 25 9 7,44% 0,76% 5,4% 16% 1,50%
2016 34 6 17 26 9,5 6,53% 0,77% 5,2% 20% 1,40%
2017 38 5 18 27 11 6,91% 0,81% 5,5% 19% 1,60%
2018 51 4 28 31 14 8,27% 0,76% 7,3% 22% 2,10%
2019 51 4 27 39 14 9,68% 0,73% 7,5% 30% 2,00%
2020 59 3 36 43 13 9,82% 0,67% 8,9% 31% 1,70%
2021 62 3 32 58 18 10,06% 0,63% 8,1% 32% 1,70%
2022 68 3 36 67 19,5 10,95% 0,56% 8,9% 36% 2,20%
2023 85 5 42 70 19,5 14,24% 0,48% 9,7% 39% 2,00%
2024 103 5 48 72 26,5 16,35% 0,44% 10,6% 35% 2,50%
2025 113 4 72 69 30,5 16,33% 0,46% 14,6% 32% 3,00%



     3.      Hvernig er stuðningi háttað við erlenda starfsmenn heilbrigðisstofnana varðandi það að ná tökum á íslensku?
    Í svörum heilbrigðisstofnana kemur fram að þær leggja áherslu á notkun íslensku og stuðla að því með ýmsum hætti að erlent starfsfólk læri íslensku. Í október 2025 setti Landspítali tungumálastefnu spítalans þar sem áhersla er lögð á að íslenska sé aðaltungumálið í þjónustu spítalans til að tryggja öryggi og skilvirk samskipti. Á sama tíma birti spítalinn stefnu um íslenskukennslu fyrir starfsfólk Landspítala fyrir árin 2025–2030. Þar kemur fram að það sé stefna Landspítala að styðja starfsfólk af erlendum uppruna við að ná tökum á íslensku og nota íslensku í samskiptum við sjúklinga, aðstandendur og samstarfsfólk og bæta tækifæri starfsfólks af erlendum uppruna til að aðlagast vinnustaðnum og samfélaginu og byggja undir öryggi og sjálfstæði þess í starfi.
    Með stefnu um íslenskukennslu á Landspítala er ætlunin að styðja við markvissa íslenskukennslu fyrir starfsfólk af erlendum uppruna. Í því felst m.a. að starfsfólk sem ekki talar íslensku skal fá markvissa íslenskukennslu og starfsfólki býðst að sækja íslenskunámskeið að hluta til innan vinnutíma fyrstu tvö árin í starfi. Þá skal starfsfólk verktakafyrirtækja sem starfa innan Landspítala, t.d. við þrif, fá íslenskukennslu hjá vinnuveitanda sínum og skal kveðið á um það í samningum. Halda skal íslenskunámskeið í húsnæði spítalans þegar því verður við komið og unnið er að því að auka gæði íslenskunáms á spítalanum og innleiða stöðupróf. Þá var sérstakur verkefnastjóri tungumála ráðinn á Landakot haustið 2025 til að styðja við íslenskunám starfsmanna en þar eru yfir 40% starfsmanna með erlendan bakgrunn.
    Sjúkrahúsið á Akureyri hefur greitt eitt til tvö íslenskunámskeið fyrir starfsfólk og hefur sú kennsla að mestu farið fram í Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar. Einnig hefur deild vísinda og mennta verið með verklega kennslu á íslensku til að styðja klínískt starfsfólk í að læra helstu hugtök á íslensku sem nýtast í starfi við sjúkrahúsið. Á sjúkrahúsinu er unnið að því að setja fram viðmið um viðunandi íslenskukunnáttu starfsfólks af erlendum uppruna eftir tiltekinn tíma í starfi.
    Heilbrigðisstofnun Vesturlands greinir frá því að stuðningur við íslenskunám erlendra starfsmanna sé nokkuð breytilegur en ekki hafi verið sett heildarstefna í þeim málum. Þó sé almennt miðað við að starfsmenn sem sinna umönnun sjúklinga eða klínísku starfi tali íslensku. Aðrir starfsmenn hafa notið stuðnings samstarfsfólks og verið í úrræði á vegum sveitarfélaga eða annarra, t.d. þegar um flóttamenn er um að ræða.
    Heilbrigðisstofnun Vestfjarða leitast við að styðja erlent starfsfólk í að efla íslenskukunnáttu sína. Starfsfólki stendur meðal annars til boða að sækja íslenskunám hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Auk þess hefur starfsfólk aðgang að stafrænum námsúrræðum. Erlendum starfsmönnum er jafnframt bent á önnur opin íslenskunámsúrræði og stafrænt efni.
    Heilbrigðisstofnun Norðurlands leggur áherslu á að skapa styðjandi starfsumhverfi þar sem erlent starfsfólk fær stuðning við að ná tökum á íslensku og aðlaga sig að íslensku starfsumhverfi. Stofnunin hefur skýra mannauðs-, jafnréttis- og mannréttindastefnu sem öllu starfsfólki hefur verið kynnt og er aðgengileg á innri vef stofnunarinnar. Stofnunin hefur einnig skýra starfsþróunarstefnu sem hvetur allt starfsfólk, þ.m.t. erlent starfsfólk, til sí- og endurmenntunar. Erlendu starfsfólki stofnunarinnar standa til boða námsstyrkir (sbr. ákvæði í kjarasamningi) og aðstoð við skráningu á íslenskunámskeið. Þannig stuðlar stofnunin að því að starfsfólk geti valið sér nám sem hentar þörfum þess og starfi.
    Heilbrigðisstofnun Norðurlands leggur áherslu á að skapa lærdómssamfélag, jafningjastuðning og teymisvinnu. Sérstaklega er litið á dagleg samskipti sem lykilinn að því að ná góðum tökum á íslensku. Starfsfólk er því hvatt til að nota íslensku í daglegu starfi en á sama tíma ríkir skilningur og þolinmæði gagnvart þeim sem eru að læra málið.
    Heilbrigðisstofnun Austfjarða styður fólk í að sitja námskeið í íslensku.
    Hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands fær allt starfsfólk sem er ekki með íslensku að móðurmáli aðgang að smáforriti fyrir íslenskukennslu. Tvisvar á ári eru haldin íslenskunámskeið fyrir byrjendur og lengra komna.
    Heilbrigðisstofnun Suðurnesja býður upp á íslenskunámskeið fyrir starfsfólk og fer tíðni og tegund námskeiða eftir þörf hverju sinni. Árið 2025 voru haldin tvö námskeið í íslensku, annars vegar fyrir byrjendur og hins vegar framhaldsnámskeið. Búið er að skipuleggja næstu námskeið sem verða haldin á fyrri helmingi árs 2026. Íslenskunámskeiðin eru starfsfólki að kostnaðarlausu og fara fram á vinnustaðnum á dagvinnutíma til að auðvelda sem flestum þátttöku.
    Hjá Vigdísarholti er talað við starfsfólk á íslensku til að hjálpa því að ná tökum á málinu. Þar eru reglulega haldin íslenskunámskeið á vinnutíma og starfsfólk fær stuðning og svigrúm til að sækja sér frekara íslenskunám annars staðar og er tekið tillit til þess við vaktaskýrslugerð.
    Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur veitt erlendu starfsfólki svigrúm til að sækja íslenskunám á eigin vegum og gerð er rík krafa um íslenskukunnáttu í auglýsingum um laus störf.