Ferill 453. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 948  —  453. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Huldu Bjarnadóttur um fjárframlög og ívilnanir til íþrótta- og æskulýðsstarfs og lýðheilsuverkefna.


     1.      Hversu stórt hlutfall fjárlaga fyrir árið 2026 rennur til íþrótta- og æskulýðsstarfs?
    Samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2026 nemur heildarfjárheimild til íþrótta- og æskulýðsmála 3.445,4 millj. kr. Þar af eru 1.238 millj. kr. ætlaðar til uppbyggingar þjóðarhallar.
    Heildarútgjöld samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2026 nema 1.685.193,8 millj. kr. Hlutfall framlaga til íþrótta- og æskulýðsmála af heildarútgjöldum ríkissjóðs nemur því um 0,205%. Ef fjárframlög til uppbyggingar þjóðarhallar eru undanskilin nemur hlutfall framlaga til íþrótta- og æskulýðsmála um 0,131% af heildarútgjöldum.
    Tekið skal fram að sveitarfélög landsins veita umtalsverðum fjármunum ár hvert til íþrótta- og æskulýðsstarfs, m.a. til uppbyggingar og rekstrar mannvirkja um land allt, sem ekki koma fram í fyrrnefndum tölum.

     2.      Hvaða skattafslættir og/eða -ívilnanir standa íþróttafélögum til boða í dag?
    Mennta- og barnamálaráðuneytinu er kunnugt um að í gildi eru skattalegir hvatar fyrir lögaðila sem starfa til almannaheilla, svo sem íþróttafélög.
    Heimilt er að draga frá skattskyldum tekjum gjafir og framlög til lögaðila sem uppfylla tiltekin skilyrði og eru skráðir á almannaheillaskrá sem Skatturinn heldur. Íþrótta- og ungmennafélög geta, að uppfylltum skilyrðum, skráð sig á slíka skrá. Gild skráning er skilyrði fyrir því að einstaklingar og fyrirtæki geti nýtt sér frádrátt vegna slíkra framlaga.
    Frádráttur hjá einstaklingum getur numið 10–350 þús. kr. á ári og hjá fyrirtækjum allt að 1,5% af rekstrartekjum.
    Fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með skattamál og getur veitt nánari upplýsingar um efnið.

     3.      Hvaða aðgerðir hyggst ríkisstjórnin ráðast í vegna endurgreiðslu og/eða stuðnings við uppbyggingu mannvirkja til íþróttaiðkunar?
    Fjallað er um skiptingu ábyrgðar á uppbyggingu mannvirkja til íþróttaiðkunar milli ríkis og sveitarfélaga í íþróttalögum, nr. 64/1998, og reglugerð um viðurkenningu þjóðarleikvanga í íþróttum, nr. 388/2018. Í 7. gr. íþróttalaga segir að bygging íþróttamannvirkja í þágu skóla og til almenningsnota sé í verkahring sveitarfélaga nema öðruvísi sé fyrir mælt í lögum. Í reglugerð um viðurkenningu þjóðarleikvanga í íþróttum er fjallað um framlag ríkis til stofnkostnaðar þjóðarleikvanga.
    Ríkið, í samstarfi við Reykjavíkurborg, kemur að uppbyggingu þjóðarhallar fyrir inniíþróttir og að uppbyggingu þjóðarleikvanga fyrir knattspyrnu og frjálsíþróttir. Verkefnin eru mislangt á veg komin en öll munu þau skapa bætta umgjörð til alþjóðlegs keppnishalds hér á landi og aukin tækifæri til að efla faglega umgjörð með keppnisíþróttastarfi.

     4.      Standa endurgreiðslur og/eða styrkir lýðheilsuverkefnum til boða í dag? Ef ekki, hvers vegna?
    Endurgreiðslur og/eða styrkir til lýðheilsuverkefna heyra ekki undir mennta- og barnamálaráðuneytið. Heilbrigðisráðuneytið fer með mál sem varða lýðheilsu og forvarnir.

     5.      Stendur til að setja reglugerð um þjóðarleikvanga í íþróttum? Ef ekki, hvers vegna?
    Eins og áður hefur komið fram er í gildi reglugerð um viðurkenningu þjóðarleikvanga í íþróttum, nr. 388/2018. Ekki eru áform um að setja aðra reglugerð um þjóðarleikvanga í íþróttum.