Ferill 387. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 954  —  387. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur um strætisvagna frá kínverska framleiðandanum Yutong.


     1.      Hversu margir strætisvagnar frá kínverska framleiðandanum Yutong eru í eigu opinberra aðila eða í notkun hjá þeim, til að mynda hjá Strætó bs.?
    Í flota Strætós bs. eru 15 rafvagnar frá Yutong en heildarfjöldi rafvagna í flotanum er 40 vagnar. Í nóvember og desember 2025 komu 10 rafvagnar til landsins, þeir eru kínverskir en ekki frá Yutong. Í lok árs 2029 er stefnt að því að allir vagnar flotans verði orðnir rafvagnar.
    Einn vagn frá Yutong er í akstri almenningssamgangna á landsbyggðinni og ef áætlanir ganga eftir verða sex Yutong-vagnar í akstri almenningssamgangna á landsbyggðinni fyrir lok árs 2026.

     2.      Hafa stjórnvöld farið að dæmi stjórnvalda í nágrannaríkjum og brugðist við fregnum af þeim eiginleika nefndra strætisvagna að framleiðandi geti haft áhrif á virkni einstakra vagna með rafrænum hætti? Ef svo er, hvernig hafa stjórnvöld brugðist við? Ef svo er ekki, hvers vegna ekki?
    Stjórnvöld hafa brugðist við fregnum um að framleiðandi geti haft áhrif á virkni vagnanna með rafrænum hætti. Eftir að málið kom upp hefur ráðuneytið verið í samskiptum við Samgöngustofu, Strætó bs. og einnig við Vegagerðina.
    Samgöngustofa óskaði eftir upplýsingum um málið frá norskum stjórnvöldum. Í svarinu kom fram að stjórnvöld þar í landi hafi sjálf ekki framkvæmt úttektir á vögnunum en hygðust gera það í ár, 2026. Í svarinu kom einnig fram að ólíklegt sé að framleiðandi vagnanna geti stjórnað vagni sem er í gangi. Líkt og þekkist hjá öðrum bifreiðaframleiðendum sem reiða sig á þráðlausar hugbúnaðaruppfærslur, er fræðilegur möguleiki að hægt sé að hafa áhrif á virkni vagna. Þessi svör byggjast á rannsókn norska samgöngufyrirtækisins Ruter. Norsk stjórnvöld munu deila niðurstöðum sínum þegar þær liggja fyrir.
    Samgöngustofa hefur einnig verið í samskiptum við samgönguyfirvöld í Svíþjóð sem telja að framleiðandinn hafi aðgang að því að gera hugbúnaðaruppfærslur á vögnunum en hafi ekki möguleika á að stýra þeim með fjarskipunum. Svíar telja aðgang framleiðanda að hugbúnaðaruppfærslum ekki vandamál svo lengi sem ökutæki uppfylla skilyrði reglugerða UNECE nr. 155 og 156 um netöryggi og hugbúnaðaruppfærslur.
    Samgöngustofa bíður auk þessa svara frá Finnlandi og Danmörku.
    Strætó bs. hefur verið í samstarfi og samskiptum við almenningssamgöngufélög á Norðurlöndum vegna málsins og fengið kynningu á niðurstöðum Ruter á Yutong-vögnunum.
    Eins og áður sagði framkvæmdi Ruter öryggisprófun á rafknúnum Yutong-strætisvögnum þar sem annars vegar var metið hvort eftirlitsmyndavélar vagnanna gætu sent gögn út og hins vegar hvort framleiðandi hefði fjaraðgang að stjórnkerfum vagnanna. Niðurstöður sýndu að myndavélarnar eru ekki nettengdar, senda ekki út gögn og ekki er hægt að virkja slíka tengingu með hugbúnaðaruppfærslum.
    Vagnarnir styðji þó fjaruppfærslur hugbúnaðar í gegnum farsímanet sem gæti skapað möguleika á fjaraðgangi að tilteknum kerfum. Í frétt Ruter um öryggisprófunina er því haldið fram að framleiðandinn hafi því fræðilega séð getuna til að valda stöðvun vagna eða gera þá ónothæfa.
    Nýlega barst stjórnvöldum á Norðurlöndunum yfirlýsing frá Yutong. Í henni kemur m.a. fram að búnaður til hemlunar, hröðunar og stýringar vagnanna sé alfarið á valdi bílstjórans hverju sinni og sé á engan hátt stjórnað með fjarskipunum. Einnig kemur fram í yfirlýsingunni að kerfi til hugbúnaðaruppfærslu vagnanna sé vottað samkvæmt UNECE nr. 155 um netöryggi og UNECE nr. 156 sem setur kröfur um öruggar og rekjanlegar hugbúnaðaruppfærslur ökutækja.
    Tilgangur hugbúnaðaruppfærslna ökutækja almennt er að gera framleiðendum kleift að lagfæra og uppfæra hugbúnað úr fjarlægð og þannig draga úr viðhaldsþörf en slíkur hugbúnaður er notaður af fleiri viðurkenndum ökutækjaframleiðendum. Í yfirlýsingunni segir jafnframt að í hvert sinn sem hugbúnaður er uppfærður fái viðskiptavinur tilkynningu með öllum upplýsingum um uppfærsluna og þurfi að samþykkja hana áður en hún getur farið fram. Jafnframt sé hægt að gera alla fjarskiptavirkni vagnanna óvirka með því að taka fjarskiptabúnað úr sambandi eða fjarlægja SIM-kort. Þessi aðgerð hafi ekki áhrif á eðlilega notkun og akstur vagnanna.
    Ekki er ljóst hvort möguleiki á umræddum aðgangi eða stjórnun sé í raun kerfislegt stillingaratriði sem hægt sé að komast fram hjá en um leið er ljóst að ef svo er þá bera lagaheimildir kínverskra stjórnvalda til þarlendra fyrirtækja það með sér að þau geta farið fram á og fengið slíkan aðgang óháð samþykki viðskiptavinar fyrirtækisins.
    Samkvæmt upplýsingum sem Vegagerðin kallaði eftir vinnur umboðsaðili Yutong-vagnanna að því að koma upp eftirlitskerfi og að breyta hugbúnaði vagnanna þannig að upplýsingum frá þeim sé ekki miðlað til framleiðanda. Eftir það hafa framleiðendur ekki neina beina tengingu við vagnana. Unnið er að vottun þessa hugbúnaðar í Noregi og síðar í fleiri ríkjum Norðurlanda. Strætó bs. er í samtali við norsku samgöngufyrirtækin varðandi innleiðingu þessara lausna.
    Við einfalda skoðun metur Strætó bs. litla áhættu af notkun vagnanna en hefur hafið vinnu við ítarlegra mat sem byggist á hefðbundnu áhættumati upplýsingakerfa. Stefnt er á að ljúka því á fyrri hluta ársins 2026. Sem hluta af þessu áhættumati hefur Strætó bs. óskað eftir upplýsingum frá ríkislögreglustjóra um eftirtalin atriði, en önnur almenningssamgöngufélög á Norðurlöndunum hafa einnig óskað eftir sambærilegum upplýsingum:
     1.      Hvort til staðar sé einhver sérstök áhætta sem Strætó bs. þarf að vera meðvitað um varðandi söfnun gagna frá kínverskum vögnum og hægt er að misnota í ólöglegum tilgangi til eftirlits eða njósna, þjálfunar gervigreindar og hvort einhver hætta sé á að kínversk yfirvöld geti stöðvað notkun kínverskra vagna í rekstri á Íslandi.
     2.      Hvort greiningardeild ríkislögreglustjóra hafi einhver tilmæli eða ráðleggingar til Strætós bs. sem rekstraraðila almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu sem það geti fylgt til að lágmarka alla þá áhættu sem nefnd er í 1. tölul. ef hún er þá til staðar.
     3.      Hvort áhættumat tengt kínverskum vögnum sé á einhvern hátt frábrugðið mati á öðrum kínverskum vörum svo sem einkabílum, farsímum og farsíma- og símakerfum.
    Svar ríkislögreglustjóra við framangreindum spurningum liggur ekki fyrir að svo stöddu.
    Varðandi viðbrögð stjórnvalda hafa þau fyrst og fremst falist í innra samráði og samráði við stjórnvöld á Norðurlöndunum þar sem nánari greiningar á málinu fara fram. Gefi þær tilefni til aðgerða verður brugðist frekar við.