Ferill 402. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 958 — 402. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur um forkaupsrétt.
1. Hve mörgum fasteignum á ríkið lögbundinn forkaupsrétt að?
Ríkissjóður á lögbundinn forkaupsrétt samkvæmt jarðalögum, nr. 81/2004, lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013, og lögum um menningarminjar, nr. 80/2012.
Í 41. gr. jarðalaga kemur fram að sé áformuð sala jarðar eða hluta jarðar sem seld hefur verið ábúanda eða sveitarfélagi, stofnun eða fyrirtæki þess skuli ríkissjóður eiga forkaupsrétt að jörðinni. Ábúandi samkvæmt jarðalögum er einstaklingur sem hefur afnotarétt af jörð eða jarðarhluta með réttindum og skyldum samkvæmt ábúðarlögum.
Í 37. gr. laga um náttúruvernd kemur fram að ríkissjóður hafi forkaupsrétt að jörðum og öðrum landareignum sem eru að hluta eða öllu leyti á náttúruminjaskrá að þeim aðilum frágengnum sem veittur er forkaupsréttur með jarðalögum.
Í 28. gr. a laga um menningarminjar kemur fram að ríkissjóður hafi forkaupsrétt að jörðum og öðrum landareignum þar sem eru friðlýstar menningarminjar, að þeim aðilum frágengnum sem veittur er forkaupsréttur með jarðalögum.
Ekki er til heildstætt yfirlit hjá fjármála- og efnahagsráðuneyti eða stofnunum þess um það til hve margra jarða eða annarra landareigna framangreind forkaupsréttarákvæði taka.
2. Hve mörgum fasteignum eiga aðrir en ríkið lögbundinn forkaupsrétt að?
Í 7. gr. a jarðalaga er mælt fyrir um forkaupsrétt sameigenda að jörð. Í 27. gr. jarðalaga er einnig mælt fyrir um forkaupsrétt ábúenda að ábúðarjörðum sínum að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Í 5. gr. laga um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík er mælt fyrir um forgangsrétt einstaklinga sem seldu Fasteignafélaginu Þórkötlu fasteignir í Grindavík en í því ákvæði felst m.a. forkaupsréttur.
Ekki er til heildstætt yfirlit hjá fjármála- og efnahagsráðuneyti eða stofnunum þess um það til hve margra fasteigna framangreind forkaupsréttarákvæði taka.
3. Hvað hefur ríkið fallið oft frá forkaupsrétti, bæði lögbundnum og samningsbundnum, að fasteignum á síðustu fimm árum? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Undanfarin ár hefur verið fallið frá forkaupsrétti á jörðum og lóðum sem stofnaðar hafa verið úr jörðum á grundvelli jarðalaga og samningsbundinna ákvæða við sölu slíkra jarða, sem dreifðist eins og að aftan greinir undanfarin fimm ár.
| Ár | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 |
| Fjöldi | 21 | 19 | 28 | 14 | 19 |
Framangreint yfirlit nær ekki til forkaupsréttar ríkisins á grundvelli laga um náttúruvernd eða laga um menningarminjar þar sem slíkar beiðnir berast til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis sem fer með framkvæmd þeirra lagaákvæða. Slíkar forkaupsréttarbeiðnir berast aðeins til fjármála- og efnahagsráðuneytis ef það ráðuneyti telur þörf á að beita slíkum forkaupsrétti fyrir hönd ríkissjóðs. Aðeins ein beiðni hefur borist ráðuneytinu um að beita slíkum forkaupsrétti undanfarin fimm ár.
4. Hversu mikil er umsýsla ríkisins vegna forkaupsréttar?
Vinna við hvert forkaupsréttarmál tekur um 2–6 vinnustundir og fer að mestu fram hjá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum. Ráðuneytið hefur ekki upplýsingar um umsýslu vegna forkaupsréttarmála sem berast til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis.